Morgunblaðið - 01.05.1963, Side 18
18
MORCUNBLAÐID
Miðvikudagur 1. maí 1963
Tvö eða þrfú ffet
milli lífs og dauða
Mynd þessi var tekin á pásk-
unum undir Ólafsvíkurenni,
þó ekki þar, sem steinninn féll
ofan á bílinn. Sýnir hún vel
grýlukertin og flóðamækina,
sem lafa niður úr svellbólstr-
unum. — Ljósm. Mbl. Hall-
dóra Gunnarsdóttir.
SVO SEM sagt var frá í Mbl.
á laugardag, lenti stóreflis
steinn á jeppabíl, sem var á
ieið frá Sandi til Ólafsvíkur
21. þ.m. Munaði þar mjóu, að
stórslys yrði.
Blaðið hefur átt stutt við-
tal við Jóhannes Jónasson,
sem var í bifreiðinni ásamt
föður sínum. Sagðist honum
svo frá:
— Við vorum komnir upp
úr Gvendarbrunnsklifi og
200 til 300 metra inn á götu,
þegar slysið varð. Við vorum
því ekki undir Enninu (Ólafs-
víkurenni) sjálfu, heldur und-
ir klettum norðanvert í því.
Þar áttum við ekki von á
steini, því að þar hrynur
skjaldan úr fjallinu.
— Skyndilega sá ég skugga
bregða fyrir. Stærðar steinn
kastaðist skáhallt á vélarhláf-
ina, braut hana, reif af ljós-
ker og aurbretti og lenti nið-
ur í hjólkassanum, en reif
sig aftur upp úr rifrildinu af
þvílíku afli, að hann flaug
yfir sex snúru gaddavírsgirð-
ingu og hentist 10—15 metra
vegalengd. Trúað gæti ég að
steinninn væri á annað hundr-
að pund að þyngd.
— Þarna skall hurð nærri
hælum, því að hefði bíllinn
verið kominn svo sem tveim-
ur til þremur fetum framar,
hefði steinninn lent á bílhús-
inu, og hefði þá enginn frá
tíðindum að segja.
Leit að kindum
í Látrabjargi
LÁTRUM, 22. apríl — f gær
leitaði ég að kind þeirri sem hef-
ur gengið úti í Látrabjargi á-
samt gráum, syni sínum, í vetur.
Rétt fyrir norðanáhlaupið var
litið eftir henni, en þá sást
hvorugt.
Er ég kom á brúnina á Geita-
skó, en svo heitir staður sá þar
sem þau hafa haft vetrarvist,
þá voru þau 50 metra fyrir neð-
an brúnina. Er það efsta sem
þau komast án hjálpar. Ærin
var ofsastygg, en hún hefur alla
Sumarbúðum
Þjóðkirkjunnar
berast gjafir
AKUREYRÍ, 29. apríl.
Sumarbúðum Þjóðkirkjunnar
barst fyrir skömmu bréf frá
Byggingavöruverzlun Akureyrar
h.f., undirritað af Helga Pálssyni
og Grími Valdimarssyni, þar
sem verzlunin gefur alla úttekt
byggingarefnis frá árinu 1962 til
sumarbúðanna við Vestmanns-
vatn, en hún nemur hátt á sjötta
þúsund króna. Gjöfinni fylgja
hlýjar óskir um blessun í starfi
sumarbúðanna.
Þá hafa sumarbúðunum einnig
borizt nýlega þúsund krónur að
gjöf frá konu, sem vill ekki láta
nafns síns getið.
Vinna er þegar hafin við bygg-
ingaframkvæmdir við Vestmanns
vatn á þessu sumn og fram
haldið, þar sem frá var horfið í I
íyrrahaust. — Sv. P.
undanferð. Strax og hún sá mig,
fór hún að þoka sér niður þræð-
ing, þar til þau voru komin nið-
ur um 200 metra eða meir. Þá
stanzaði hún og fór að vita ótta-
laus af mér. Enda kemst bún
ekki mikið neðar og er þá
svipuð vegalengd eftir í fjöru.
Grös eru að verða algræn svo
neðarlega í bjarginu. Ærin er
að sjá komin að burði, en hin
sællegasta. Ég athugaði hrútinn
vel í sjónauka og er það einn
sá líklegasti kynbótahrútur sem
ég hefi séð. Hann er stærri en
ærin og auk þess að vera tví-
lembingur sjálfur er hánn und-
an tvílemibingi í báðar ættir og
vel kynjaður. Þarna er því um
metfé skepnu að ræða.
En það er miklum erfiðleikum
bundið að handsama kindur á
Rússneskur
styrkur
SOVÉZK stjómarvöld munu
veita einum íslendingi skólavist
og styrk til náms við háskóla í
Sovétrikjunum næsta háskólaár.
Kandidatar eða stúdentar, sem
langt eru komnir í námi, koma
öðrum fremur til greina. Þeir,
sem kynnu að hafa hug á slíkri
námsvist, skulu senda umsókn til
menntamáiaráðuneytisins, Stjórn
arráðshúsinu við Lækjartorg,
fyrir 20. maí n.k. og láta fylgja
staðfest afrit pjófskirteina, svo og
meðmæli. Umsóknareyðublöð
fást í menntamálaráðuneytinu.
(Frá menntamálaráðuneytinu)
þessum stað, sérstaklega hrúta,
því vafasamt hvernig til tekst.
Okkur hafa reynzt þeir viðsjár-
verðir í bjarginu.
Hér er komið bezta veður.
Snjórinn er horfinn og tekin við
vorveðrátta, eins og maður ósk-
ar að hún verði. — Þórður
„Vængstýfðir
endar44 sýnt á
Dalvík
LEIKFÉLAG DALVÍKUR æfir
nú af kappi hinn vinsæla gaman
leik „Vængstýfðir englar“, sem
menntaskólarnir á Akureyri og í
Reykjavík sýndu fyrir nokkrum
árum við mjög góðar undirtekt-
ir. Leikurinn hefur einnig verið
kvikmyndaður og fóru þekktir
leikarar með aðalhlutverkin.
Ýmsar endurbætur hafa verið
gerðar á félagsheimilinu; for-
sena byggð framan við leiksviðið
og lofthæð og hliðarrými stór-
aukið, er ekki að efa, að Dalvík-
ingar munu kunna að meta þetta
mikla framtak félagsheimilisins
og leikfélagsins; þessar nýju um
bætur bjóða bæjarbúum upp á
möguleika til þess að sjá mun
betri sjónleiki og aðkomuleik-
flokkum tækifæri til þess að sýna
stærri og vandaðri leiksýningar,
sem síður hefðu notið sýn við
þau fremur þröngu og erfiðu skil
yrði, sem áður voru!
Fyrirhugað er að sýna Væng-
stýfða engla um miðjan maí; leik
urinn gerist allur í franskri saka
máianýlendu og ber margt spaugi
legt á góma; búningarnir eru frá
því um aldamótin.
Formaður leikfélagsins er Hjálm
ar Júlíusson, sem einnig málar
leiktjöldin; leikstjóri er Kristján
Jónsson.
85 tonna
smíðum á
Neskaupstað, 24 apríl.
AFLI handfærabáta hefir verið
lítill það sem af er, en talsvert
magn fengist af steinbít á línu.
Handfæraafli brást alveg á
Hornafirði, enda tíð óhagstæð.
Lítið hefir verið reynt á heima-
miðum vegna slæmra gæfta, en
vonandi stendur það til bóta.
Stefán Ben og Hafþór hafa lagt
upp um 600 lestir. Helztu fram-
kvæmdir um þessar mundir eru
bygging 85 lesta báts hjá Drátt-
Sæfari
aflahæstur
AKRANESI, 29. apríl.
Heildarþorskafli hér á laugar
dag og sunnudag varð alls 310
tonn, 148 tonn á laugardag og
162 á sunnudag. — Þrír síldar-
bátar héðan fengv í nótt samtals
892 tunnur, Höfrungur II. 412,
Ófeigur II VE 400 (landað í
Reykjavík) og Reynir 80 tunn-
ur. — Aflahæstur báta á þorski
á þessari vertið er Sæfari, Skip-
stjóri Jóhannes Guðjónsson, með
809 tonn. — Oddur.
Skátadagurinii
á Akranesi
AKRANESI, 29. apríl.
Skátadagurinn var hátíðlegur
haldinn hér á sunnudag. Rösklega
200 skátar gengu í skrúðgöngu í
kirkju og hlýddu messu. Dá-
vænn hópur skáta kom sunnan
úr Kópavogi. Um kvöldið var
skemmtun í Bíóhöllinni með leik
þætti og fleirum skemmtiatrið-
um. — Oddur.
Karlakór Akur-
eyrar lteldur
söngskemmtanir
AKUREYRI, 29. aprfl. — Karla-
kór Akureyrar hélt söngskemmt-
anir í Borgarbíói á Akureyri 26.
og 27. apríl. Söngstjóri var Ás-
kell Jónsson. Undirleik annaðist
Guðmundur Jóhannsson. Ein-
söngvarar með kórnum voru
Guðmundur Karl Óskarsson og
Sverrir Pálsson. Á söngskránni
voru fjórtán lög eftir innlenda
og erienda höfunda. Húsfyllir
var báða dagana, og kór og ein-
söngvunrm mjög vel fagnað.
Þurfti að endurtaka meira en
helming söngskrárinnar og
syngja aukalög. Kórinn endur-
tekur söngskemmtunina n.k. laug
ardag kl. 5. — St. Eir.
Æsustaðif í Langa-
dal auglýstir
JÖRÐIN Æsustaðir í Langadal er
auglýst til sölu í síðasta Lögbirt-
ingablaði, en í vetur samþykkti
alþingi að heimila sölu á tveim-
ur prestjörðum, Æsustöðum og
Vatnsenda í Suður-Þingeyjar-
sýslu. Hvorug jörðin er kirkju-
staður eða fornt prestsetur og
prestar voru hættir að búa á báð
um stöðum.
Margir munu kannast við
prestssetrið á Æsustöðum, því
Norðurlandsvegur liggur þar um
hlaðið. Nokkur ár eru þó síðan
prestur hefur búið þar, því húsið
er talið óhæft til íbúðar fyrir
prestinn. Sóknarpresturinn sr.
Jón ísfeld er í leiguhúsnæði í
sveitinni, en byggt verður nýtt
prestsetur í Bólstaðahlíðarlandi,
skv. ósk héraðsbúa.
Prestsetrið á Vatnsenda verður
flutt í nýtt nýbýlahverfi í Köldu-
kinn og er byrjað að byggja þar
prestsetur.
bátur í
Norðfirði
arbrautinni og er vélin í hann
komin. Er það 375 ha. Kromhaut-
vél, hollensk. Yfirbygging og
hvalbakur verða úr alminium og
eru í smíðum hjá Birni Magnús-
syni í Keflavík.
Síldarvinnslan h.f. er að færa
út kvíarnar og er hafin viðbót-
arbygging og smíði mjölskemmu.
Hafnarframkvæmdir þær sem
fyrirhugaðar eru munu hefjast
í enda maí, eða júníbyrjun og
fer það að sjálfsögðu eftir því
hvernig gengur á Reyðarfirði, en
sami vinnuflokkurinn byggir 4
báðum stöðunum. Þar gekk upp-
setning stáiþilsins vel fram að
páskum en óhagstætt tíðanar
undanfarið veldur einhverjum
töfum.
Oddskarð hefir verið ófært að
undanförnu og ekki hefir verið
hægt að fljúga hingað fyrr en
í dag. Fjöldi manns hefir að und-
anförnu beðið flugfars úr Reykja
vík. Reynslan eftir veturinn bend
ir ekki til þess að Norðfjarðar-
flugvöllur ætli að verða okkur
mikil samgöngubót, að minnsta
kosti ekki yfir vetrarmánuðina.
— Jakob.
%%%%%%%%%%%%
ridge
MASTERS PAIRS keppnin í
Englandi vekur ávallt mikla at-
hygli og eru áhorfendur jafnan
margir. Sigurvegarar að þessu
sinni urðu Terence Reese og
Jeremy Flint.
Spilið, sem hér fer á eftir er
frá keppni þessari og er gaman
að athuga sagnirnar á nokkrum
borðum.
A KD6 *
V D G 10 8
<#10 6 3
# G 9
A G A Á 10 9 3
# K 9 7 2 7 3
# KDG5 #54
*D843 # A 9 8 7 4
A 52
# A 6 3
# 2
A A K 10 7 6 5 2
Þar sem sigurvegararnir sátu
A-V gengu sagnir þannig:
Austur Suður Vestur Norður
pass 3 gr pass pass
4 A dobl pass pass
4 A pass pass pass
Suður lét út laufaás og Flint
fékk auðveldlega 10 slagi og
vann spilíð.
Schapiro og Rodrigue spiluðu
saman að þessu sinni og hjá
þeim gengu sagnir þanmg, þeir
sátu N-S:
Austur Suður Vestur Norður
1 A 3 A dobl allir
pass
Mikill vafi virðist að rétt sé
að austur segi pass þegar félagi
hans doblar 3 lauf, enda fengu
þeir ekki mikið fyrir spilið þar
sem suður fékk 8 slagi.
Þar sem hinar frægu spilakon-
ur Markus og Gordon sátu A-Y
gengu sagnir þannig:
Austur Suður Vestur Norðuf
pass 1 * 1 V 1 A
2 ♦ 3 A 3 ♦ 4 A
4 ♦ 5 A dobl allir pass
Spilið varð aðeins 2 niður þar
sem A-V trompuðu ekki spaða,
enda hafði norður sagt litinn.