Morgunblaðið - 01.06.1963, Blaðsíða 4
4
MORCVNBLABIÐ
Laugardagur X. júní 1963
Matreiðslan er auðveld
og bragðið ljúfíengt
ROYAL
SKYNDIBÖÐINGUR
M œ I J ö i/j ÍJter a( kaldr!
mjólk og helhð J skól
Blandið mmhaldi pakk-
ans saman við og þeyt
»ð l eina minútu —
Bragðtegundir —
Súkkulaði
Karamellu
Vamllu
larðarberia
—tmm | m
*■**" __. . --J ' ,, , ,
AUTOLITE
Það munar
kraftkertin
AUTOIiTE
fRODUCTS OF (j55k£^) “O^OR COHPANT
Snorri G. Guðmundsson
um —
— Berdreyminn
Framhald af bls. 3.
— Jú. suroarið eftir kom sarrvt
einn bátur hingað og svo hver af
öðrum úr því, og á stríðsárunum
voru hér í Ólafsvilc 8 bátar. Þá
var komin hér bryggjustuibbur,
og við fóruim að geta lagt að á
flóði, en urðum að fera frá á
flóði aftur, hvenær s©m var sólar-
hringsins. Enn er svo hér við
bryggjuna að allir bátar standa
á fjöru nema 3 geta verið við
bryggjuna og flotið. Áður fyrr
var allur afli lagður upp í
sandinn.
— Sjálfur hættir þú skip-
stjórn 1&52?
— Já, ég var alla tíð með
gamla Viking. Hann var kallaður
elliheimilið, en það var nú samt
einhvernvegin svo, að alltaf fisik-
aði nú elliheimilið mest. En svo
voru snurvoðuveiðarnar bannað-
ar. og þá hætti ég.
— Og hvað ertu svo búinn að
eiga marga báta um dagana?
— Þeir eru nú víst orðnir
átta talsins. Víkingur var 9 tonn,
en mestur varð Glaður, og hann
var hvorki meir né minna en 22
fconn. Og þá réðum við okkur
ekki fyrir kæti, þegar við eign-
uðumst 22ja tonna skip.
Þegar hér var komið samtali
okkar Halldórs, er barið. Hall-
dór fer til dyra og ég heyri, að
hann skrafar þar eitthvað við
ungan mann, en síðan fer hann
upp á loft og ég heyri að hann
segir, þegar hann gengur upp
stigann: Komdu vinur minn með
miðann. Dóttir Halldóns visar
piltirium uPP á loftið og þar lýkur
hann erindi sínu. Þetta var ein-
hver af sjómönnum eða við-
skiptamönnum við einhvern báta
Halldórs, og var hann með miða
upp á peningagreiðslu. Halldór
bendir mér að koma upp á loft til
þegar drengurinn er farinn.
Ég prika upp brattan stigan, sem
að vísu er teppalagður eins og
önnur gólf á heimili hans, og
síðan geng ég inn í svefnher-
bergi Halldórs. Þetta herbergi
var svefnherbergi þeirra hjóna
frá því þau fluttu í þetta hús.
I>að hefur jafnan síðan einnig
verið skrifstofa útgerðar Hall-
dóns Jónssonar og er það enn í
dag. Úr svefnherbergis og skrif-
sfcofu glugganum hefur Halldór
yfirsýn yfir höfnina. Héðan átti
hann auðveit fyrr á árum með
að fylgjast með, hvernig bátunum
hans reiddi af í höfninni, ef veð-
ur breyttist á næturþeli. Hann
átti einnig hægt með að sjá,
þegar bátarnir komu að landi, og
félli til einhver frístund frá
svefni og vinnu var hægt að
lita yfir bókhaldið og reikningana
og þá kannske ekki alltaf valinn
til þess afmarkaður skrifstofu-
tími.
— Snerist hugur þinn allur um
útgerð og sjómennsku Halldór?
Hafðir þú ekki gaman af gleð-
skap umfram það, sem þú minnt
ist á brennivínsdrykkjuna áðan?
— Jú, ég hafði alla tíð gaman
af gleðskap. Konan mín líka ákaf-
lega létt í skapi og við brugðum
okkur oft á böll. Við byrjuðum að
búa 17 ára gömul með sinn
koddan hvort. En við létum aldrei
erfiðleika hefta okkur í því að
gera okkur glaðaar stundir.
— En afskipti þín af málefnum
staðanns?
— Þau hafa nú aldrei verið
sérstaklega mikil. Ég man þó
eftir því að kirkjan hérna skuld-
aði 1700 kr. Það var vissulega
mikill peningur í þá daga. Um
þessa skuld var mikið rætt á
almennum fundi. Ég og nokkrir
fleiri vorum á móti því að hækka
gjöldin til þess að geta greitt
þessa skuld. Kannske hef ég átt
einhvern hlut að því að samþykt
þar að lútandi var felld. Þegar
svo var komið, að forráðaménn
sáu ekki, hvernig leysa ætti
þennan vanda öðru visi en að
leggja gjöld á fólkið, tók ég mig
til fékk í lið með mér nokkrar
konur hér á staðnum og við hóf-
um að safna með samskotum fé
til kirkjunnar. Sama kvöldið
var svo komið að við gátum
gengið á fund safnaðarstjórnar-
innar og afhent 1700 kr. til
greiðslu á skuldinni.
Við höldum nú niður í stofu
aftur og Halldór bendir mér
stíft á koníaksflöskuna.
— Hvað er þetta, drengur,
þú bragðar ekkert á þessu!
— Ég þarf þess ekki, Halldór
minn. Það eitt að ræða við þig
er á við marga dægrastyttingu
og sennilega mörg koníaksfyllirí.
Ég sit enn nokkra stund og tala
við Ha'lldór, og nú berst talið
að ferðalagi hans út um heim.
Hann hefrir sýnilaga ákaflega
gaman af að ferðtst, sér hlutina
í skemmtilegu ljósi hvar sam
hann fer, en í þessum greinar-
stúf var ekki ætlunin að ræða
ferðasögur og ferðamál, og ég
vil enda þetta samtal á að vitna
í setningu, sem Halldór Jónsson
sagði við mig, þegar við höfðum
verið að ræða gott hjónaband
hans, barnalán og allgóða afkomu
hans sem útgerðarmanns. Harin
hallaði sér fram, studdi oln-
bogunum á hnén, tók báðum
höndum utan um kaffibollann
og horfði ofan í hann og sagði:
— Þegar allt er lagt saman,
drengur minn, hefur lifið verið
mér gott — mjög gott.
Síldarmatsmaður óskast
Duglegan mann með síldarmatsprófi vantar okkur
í sumar. Ráðningartími eftir samkomulagi. Gott
kaup. Uppl. veita Oddur Jónsson og Kristinn Hall-
dórsson simi 5 Siglufirði.
HALLDÓRSSTÖÐ Síldarsöltun Siglufirði.
Kynnist hinum velþekktu
frönsku PEUGEOT bílum
Peugeot sameinar alla þá eiginleika sem
góð bifreið hefur upp á að bjóða, það er:
Traustleika sparneytni og öryggi
Peugeot bílarnir eru margfaldir verðlauna
hafar í alþjóðlegum aksturskeppnum.
Nýr Peugeot Station bifreið verður til
sýnis og sölu á morgun sunnudag að Sér-
leyfisstöð Steindórs, Hafnarstræti 7 frá
kl. 9 — 3.
Hverfisgötu 50 — Sími 12242.
- Bezf að auglýsa í Morgunbladinu —
P E U G E 0 T - untboðið
GENERAL
l
ELECTRIC
KÆLISKÁPAR
Nýjar gerðir með:
'tr helmingi stærra frystihólfi
en eldri gerðin.
+ tveimur hurðum.
Eleetric hf.
Túngötu 6 — Sími 15355.
— Sjómanna-
dagurinn
Framnald af bls. 1.
og eru þeir 28 talsins. Er það
óvenju há tala, og eru þá komn-
ar 829 stjörnur í minningarfána
sjómannadagsins.
Að þessu sinni verða 3 aldraðir
sjómenn heiðraðir fyrir starf sitt.
Garðar Pálsson, stýrimaður,
ræðumaður sjómanna við hátíða-
höldin á Austurvelli mun leggja
sérstaka áherzlu á slysavarna- og
öryggismál.
Ágóði af hátíðarhöldum sjó-
mannadagsins mun að þessu sinni
renna til uppbyggingar Hrafn-
istu, eins og undanfarin ár, nema
hvað 20 þús. kr. mun varið til
sumardvalarheimilis fyrir sjó-
mannabörn að Laugalandi í Holt-
um. *•
Sjómannadagsblaðið kemur út
nú um helgina og verður það
að mestu helgað sjómannadegin-
um á Akureyri, sem nú á 25 ára
afmæli. Á Akureyri verða mikil
hátíðarhöld og mun ágóða af
þeim verða varið til sjóslysasöfa-
unarinnar fyrir norðan.