Morgunblaðið - 01.06.1963, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.06.1963, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐtll Laugardagur 1. júní 1963 Iþrdttamiöstöö í hverju kjördæmi Rætt við Gísla Halldórsson forset i Í.S.Í. um óskir og ætlanir Í.S.Í. og stórauknar fram- kvæmdir í íþróttamálum ÍÞRÓTTIR, afrek og manndómur hafa jafnan átt gott rúm í hug- um íslenzkrar þjóðar. Það hefur löngum verið hlutskipti næstum sérhvers tslendings að duga vel í baráttu við sitt umhverfi, eða deyja ella. Á síðari áratugum, þegar lífsbaráttan hefur orðið auðveldari, hefur þessi þörf bar- áttu og sigurvilja beinzt yfir á svið leikja og tilbúinna íþrótta. íþróttir, hverju nafni sem nefn- ast, eiga hljómgrunn í bugum velflestra manna, ungra sem gam alla, karla sem kvenna. Afrek og dáð á íþróttaleikvangi snerta við kvæma strengi í hjarta hverrar sálar. Islenzkur íþróttafrömuður, sem kann utanbókar þúsundir setninga og samtala úr íslend- ingasögum, sagði nýlega: Hvað væru okkar Islendingasögur, ef íþróttaafrekum, og því sem til þeirra getur talizt, væri sleppt? En ætlunin var ekki að fara út í heimspekilegar umræður um gildi íþrótta eða skilning manna á þeim. Staðreynd er að íþróttir og útilíf eru í dag meðal þeirra viðfangsefna, sem sérhvert þjóð- félag leggur hvað ríkasta áherzlu á — brunnur, sem þegnarnir sækja til — forði, sem þjóð getur lifað á. Það var m.a. af þessum ástæðum sem við fórum á fund æðsta manns íþróttahreyfingar- innar á íslandi, Gísla Halldórs- sonar, forseta ÍSÍ, og inntum hann eftir því, hvað efst væri á baugi hjá íþróttahreyfingunni og til að fá fréttir af því, sem hreyf- ingin vinnur að, og því, sem hún helzt vill að komist í fram- kvæmd. — Það, sem efst er á baugi nú, er bygging íþrótta- og sýningar- hallar í Laugardalnum. Húsið hefur nú mótazt, því að verið er að járnbinda hvolfþakið. Þakið verður steypt í júnímánuði. Bygging hússins er næsta sér- stæð vegna hins mikla flatar sem þakið spannar án súlna. Það þarf varfærni við, þegar slíkt hvolfþak er steypt. T.d. er það æskilegt, að sem minnst rigni þá 3 sólarhringa, sem vinn- an tekur. En þakið þolir vel ein- hverjar skúrir á slíku tímabili, því sérstaklega er gert ráð fyrir breytilegu veðurfari hér og steypt úr þurri steypublöndu. Húsið verður fokhelt um jóla- leytið og áfram haldið sleitulaust við það, unz það er fullgert og áætlunin nú er að það verði fullgert um áramótin ’64—’65. Það er búið að vinna í húsinu fyrir um 12 millj. kr. Áætlað er, að með núverandi verðlagi verði heildarkostnaður við bygginguna 30 millj. kr. íþróttahúsið fullnægir öll- um ströngustu kröfum, sem stórþjóðir gera til slíkra húsa. Þarna fæst fullkomið keppnis svæði fyrir þær íþróttagrein- ar, sem mests rýmis þurfa, t.d. handknattleiks, körfuknatt- Ieiks, badmintons, tennis, auk allra annarra greina, sem minna rýmis krefjast. í húsinu verður timburgólf klætt plastefni. Plasthúðin er sett sem slitlag vegna iðnsýninga í húsinu, því að timburgólf sem í leikfimissal þolir ekki þann á- gang, er á sér stað við slíkar •ýningar. * SKRIFSTOFUHÚS ÍSÍ OG ÍBR Þá er unnið sleitulaust að skrifstofubyggingu íþróttahreyf- ingarinnar, og er húsið senn fok- helt. Unnið er að múrhúðun ut- anhúss og múrhúðun innanhúss og miðstöðvarlagning hefst í júlí. Reiknað er með, að húsið verði tilbúið eftir eitt ár, og getur þá öll yfirstjórn íþróttamálanna í Reykjavík og fyrir landið allt flutt aðsetur sitt þangað. Þar verður ÍSÍ með sínar skrifstofur og fundarsali sérsambanda sinna og ÍBR með sín 7 sérráð auk Ólympíunefndar. Það, sem þegar hefur verið unnið, kostar 1.4 millj. kr., en kostnaður við fullgert hús er á- ætlaður 3.8 millj. kr. ÍSÍ og ÍBR leggja fram meiri hluta þess fjár. Ríkið leggur til hússins vegna ÍSÍ 450 þús. kr., og var sú upphæð tilkynnt sem af- mælisgjöf til ÍSÍ á 50 ára af- mæli samtakanna. Reykjavíkur- borg leggur fram styrk bæði til ÍSÍ og ÍBR alls um 800 þús. kr. Afganginn leggja samtökin til og afla fjárins með ýmsu móti. Þeg- ar þetta hús er fullgert á íþrótta- hreyfingin sína miðstöð, þar sem allt er innan sömu veggja, er að íþróttum lýtur. — Laugardalurinn verður þá innan skamms hið fullkomna íþróttasvæði? spyrjum við Gísla. — Þegar þeim framkvæmdum, sem ég hef lýst, er lokið, svo og byggingu sundlaugarinnar (50 metra), en unnið er nú að því að fullgera teikningar og útboðs- skilmála fyrir mannvirkið. Mun þeim undirbúningi brátt lokið og verður þá verkið boðið út í heild. Þarna er gert ráð fyrir keppnislaug, almenningslaug og stórri vaðlaug fyrir börn. Árlega hafa verið lagð- ir til hliðar fjármunir, sem ætlaðir eru til laugarinnar og eru í þeim sjóði um 6 millj. krónur. Kemst því skriður á framkvæmd irnar strax að loknu útboði og ætti sundlaugin að geta verið fullgerð um áramótin 1964—’65. Eftir að sundlaugin hefur ver- ið fullgerð, er brýn nauðsyn á að hraða byggingu síðari hluta stúku Laugardalsvallarins. Þegar því verki er lokið, eigum við í- Gísli Halldórsson þróttasvæði í höfuðborginni, sem myndi sóma sér vel í hvaða höf- uðborg sem værL Á STARF EINSTAKRA FÉLAGA — En hvað viltu segja okkur um framkvæmdir einstakra í- þróttafélaga? — Þróttur er að fá sitt athafna- svæði við Skipasund. Félagið fær rúmgott svæði og hyggst byggja velli og félagsheimili. Á lóðinni er fyrir æfingavöllur unglinga. Reiknað er með því, að Þróttur geti hafið æfingar fyrir sína ung- lingaflokka á svæðinu þegar á þessu sumri. TBR hefur sótt um lóð og mun fá úthlutað lóð í Laugardal. Fé- lagið leggur höfuðáherzlu á bygg ingu húss, en einnig er gert ráð fyrir byggingu útivalla. Þá hefur ÍR sótt um lóð. Bent hefur verið á Fossvogsdal sem ákjósanlegan stað, en Laugardal- ur kemur einnig til greina, ef ÍR-ingar hverfa að því að byggja aðeins íþrótta- og félagsheimili. Önnur stærri félög, s. s. Valur, Ármann, KR og Víkingur halda áfram uppbyggingu á sínum svæðum. KR hefur unnið fyrir og byggt sem nemur 3.5 millj. kr., Valur fyrir sömu upphæð, Ármann fyrir 2.0 millj, en þeir eru nú að hefja framkvæmdir á nýju svæði, Víking- ur fyrir sömu upphæð og Fram fyrir um 500 þús. kr., eða alls um 12.5 millj. kr. Auk þess eiga félögin skíðaskála og aðrar eign- ir sem kostuðu í byggingu uim 5,5 miRj. kr. Samitals nemur þvá byggingarkostnaður mannvirtkja íþróttafélaganna í Reykjavík um 18 mllj. Síðan mannvirkin voru byggð hefur verðlag breytzt, svo að óhætt mui) að tvöfalda krónu- töluna til að fá fram raunhæfa kostnaðartölu í dag, og eiga þá félögin eignir sem nema 36 millj. kr. að verðgildL * STARFFÉLAGA ÚTI Á LANDI — En hvað er um starfið úti á landi að segja? — Víða úti á landi er unnið myndarlega að sundlaugarbygg- ingum og íþróttavallargerð, en íþróttahús hafa þeir ekki getað ráðizt í. Notazt er við íþróttahús skólanna, en þau eru ónóg starfi íþróttafélaganna. Síðari árin hafa bæjar- og sveitarfélögin lagt verulegt lið og mikið fjármagn til bygg ingar íþróttamannvirkja og starfs íþróttafélaga — en þó engan veginn nóg. Stafar það einkum af því, að íþróttasjóð- ur hefur ekki haft fjárráð, sem vonir stóðu til í upphafi Framkvæmdir allar hafa því hvílt þyngra á félögunum sjálfum — og sveitarfélögun- um — en ætlað var í upphafi. Framkvæmdirnar hafa líka tekið margfalt lengri tíma eða jafnvel stöðvazt um lengri eða skemmri tima af þessum sökum. Menntamálaráðherra hefur nú skipað nefnd til að athuga fjárþörf íþróttasjóðs og gera tillögur um, á hvern hátt sjóð- urinn geti staðið við skuld- bindingar sínar, og væntir íþróttahreyfingin þess, að mik ill og góður árangur verði af starfi þeirrar nefndar. ★ VAXANDIFJÖLDI AÐHYLLIST ÍÞRÓTTIR — En hvað er almennt um íþróttastarfið í landinu að segja? — Það hefur vaxið á undan- förnum árum. Það háir starfinu, að verulegur skortur er á þjálfur um og leiðbeinendum úti um landsbyggðina. Áætlað er, að tekin verði upp námskeið og kennsla á vegum ÍSÍ og íþrótta- kennaraskólans til að bæta úr þessum skorti. Það talar sínu máli, að inn- an vébanda ISÍ eru 26.000 skrásettir félagar — þar af um 15.000 virkir — í 230 félögum. Félögin skiptast á 27 héraðs- íþrótta- og sýningarhöllin í Lan gardatnum í byggingu sambönd og 7 sérsambönd auk sérráða. Innan allra þessara samtaka eru mjög góðir starfs kraftar, sem þjóðin hefur ekki efni á að láta ónotaða. En aukin átök verða ekki gerð án aukins fjármagns. Við höfum gert lauslega á- ætlun um, að 1500—2000 karl- ar og konur innan íþrótta- hreyfingarinnar vinni ótrú- lega mikið starf í sjálfboða- vinnu og allt það starf er unn- ið í þágu æskulýðs til heilla fyrir Iand og þjóð. ■k OPINBERIR STYRKIR — Veitir hið opinbera hér minni eða meiri styrki til íþrótta- hreyfingarinnar, en t.d. á Norð- urlöndum? — Þetta er ekki gott að bera saman. íþróttahreyfingin á Norðurlöndum fær mjög myndar lega styrki frá getraunastarfsemi þar — slíka styrki þekkjum við ekki. En bein fjárframlög úr op- inberum sjóðum munu álíka há hér miðað við félagatal íþrótta- hreyfingarinnar hér og á Norður- löndum. Nú hefur hið opinbera hækkað styrki við íþróttahreyfinguna þannig að ÍSÍ getur í fyrsta sinn úthlutað styrkjum til námskeiða og annars rekstrar félaga eða fé- lagasamtaka. Einnig mun í fyrsta sinn í ár úthlutað stórauknum styrk til rekstrar félaganna úti um landsbyggðina. ■k UNGLINGASTARF — Hvert telur þú veiga- mesta framtíðarverkefni ÍSÍ? — Það er að gefa öllum þeim aukna fjölda unglinga hér á landi kost á að geta iðkað íþrótt- ir. Samkvæmt hagskýrslum mun unglingum fjölga hér meira á næsta áratug en nokkurt annað jafnlangt tímabil fyrr. Á ára- tugnum 1950—1960 er áætluð fjölgun unglinga á aldrinum 7—. 15 ára 21%. Á áratugnum 1960— 1970 er gert ráð fyrir 50% fjölg- un unglinga á sama aldri. ÍSÍ fær þar með stórum aukið verk- efni — og ÍSÍ vill standa við sína skyldu í því. Sem byrjunarstarf hefur ÍSÍ skipað unglingaráð, sem ætlað er að örva þátttöku æskunnar í í- þróttum. Fjármagn er lagt til hliðar til þeirrar starfsemi og gert ráð fyrir, að erindrekar geti farið út um landið og leiðbeint æskufólki til íþrótta og útileikja. Slíkt starf var tekið upp í Rvík fyrir 6 árum og ætíð haldið uppi í júní/júlí. Æ fleiri unglingar leita til slíkra námskeiða og urðu þeir 1400 á sl. sumri — og undu allir vel og fundu eitthvað við sitt hæfi. Slíkt er mikilsvert í- þróttunum — og einnig foreldr- um og unglingunum sjálfum. ★ GÓÐUR SKILNINGUR — Sem forseti ÍSÍ um árs- skeið hefur þú kynnzt þörf- um og óskum íþróttahreyfingar- innar og fundið hug annarra til hennar? — Alls staðar hef ég mætt góð- um skilningi fyrir þarfir íþrótta- hreyfingarinnar — en þær eru helzt fjárhagslegar. En til þess að ÍSÍ geti gegnt hlutverki sínu þarfnast samtökin enn meira fjármagns, m.a. til að styrkja starf héraðssambandanna úti um land. ★ ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ I HVERJU HÉRAÐI — Eru nokkrar nýjungar á döfinni hjá ÍSÍ? — Æskilegt væri að mínum Frl á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.