Morgunblaðið - 01.06.1963, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.06.1963, Blaðsíða 18
 MORGUNBLAÐÍÐ Laugardagur 1. júiií 1963 ÞEGAE siglt er inn til Ólafs- fjarðar, er ekki annað að sjá, en hann sé ósköp venjulegur bær, kannski heldur í minna lagi til að vera kaupstaður. Það hópast fólk niður að skipinu, eins og í öðrum bæjum, þar sem ekki eru miklar samgöngur, og höfnin sjálf virðist ekki bera vott um sérstaklega mikið athafnalíf. Það er ekki fyrr en komið er upp í bæinn, að vart verður við sérstakan blæ snyrtimennsku og velsældar. Þegar gengið er eftir aðalgötunni sjást fjórar stórar og fallegar nýbyggingar, tvö þriggja Séð yfir höfnina í Ólafsfirði Frjálst framtak undirstaða allra framfara á Ölafsfirði hæða verzlunarhús, nýtt stöðvar- hiús Pósts og s'ma og glæsilegt félagsheimili, sem öllum hefur verið byrjað á og lokið við á síð- ustu árum. Utar í bænum eru að risa upp ný íbúðarhverfi, bæði uppi í hlíð inni og niðri á eyrinni, þar sem tugir húsa eru í smíðum og nokk ur hefur þegar verið lokið við. Allt ber þetta vott um traustan vöxt og viðgang bæjarins. Þegar spurzt er fyrir um at- vinnulífið á Ólafsfirði er það eitt atriði, sem öðrum fremur vekur fljótlega á sér athygli aðkomu- manna. Öll atvinnufyrirtæki í bænum eru í eigu einstaklinga. Öll uppbygging atvinnuveganna er í höndum einstaklinga eða fé- laga, sem þeir hafa myndað með sér, en bæjaryfirvöldin leggja kapp á að skapa sem bezt vaxt- AmgSýsing frá Bæjarsímaniim Ný götuskrá fyrir Reykjavík og Kópavog, símnot- endum raðað eftir götuheitum, er til sölu hjá Inn- heimtu Landssímans. Upplag er takmarkað, enda sérstaklega ætlað fyrirtækjum og stofnunum. Verð skrárinnar er kr. 140.00 eintakið. BÆJARSÍMINN. good/year HJÓLBARÐAR P. Stefánsson hf. Laugavegi 170—172. 0 GOOD^f^fEAR 3 Magnús Gamalielsson arskilyrði fyrir atvinnufyrirtæk- in á staðnum. Einstaklingsframtakið er Ólafs firðingum svo í blóð borið að jafnvel frambjóðandinn Arnór Sigurjónsson gat á kosninga- fundi kommúnista fyrir skemmstu ekki annað en lýst yf- ir, að framtak, já frjálst fram- tak, hefði verið undirstaða allra hinna miklu framfara á Ólafs- firði. Ólafsfjörður byggir afkomu sína á útgerð, fiskverkun og síld- arvinnslu, og meðfram höfninni eru átta fiskverkunarstöðvar, þar af tvö hraðfrystihús, og þrjú síldarsöltunarplön. Niðri á bryggju rekumst við á einn elzta útgerðarmann Ólafs- fjarðar, Magnús Gamalíelsson, og göngum með honum upp í fiskverkunarstöð hans, sem hann er að stækka til mikilla muna. Fram að þessu hefur Magnús verkað saltfisk og skreið, en í vetur hefur hann komið fyrir hraðfrystitækjum í viðbyggingu við fiskverkunarhúsið, enda þótt það hafi upprunalega ekki verið ætlunin. Og nú er hann enn að steypa allstóra viðbyggingu við kæliklefann. — Hvenær byrjaðir þú að gera út? „Ég byrjaði að gera út stærri báta 1928 og verkaði þá allan aflann í salt. Það hefur frá upp- hafi verið föst regla hjá mér, að selja fiskinn aldrei frá mér óunn- inn, og það hefur aldrei brugðið út af því nema um skeið í stríð- inu, þegar ég varð að láta sigla með hann beint til Bretlands.“ — Hvenær byggðir þú þessa fiskverkunarstöð? „Ég byggði hana á árunum fyrir 1950, og það má segja að það hafi á margan hátt orðið mér dýrt spaug. Þegar ég byrjaði var haftastjórnin í algleymingi, og það var ekki við það komandi, að ég fengi að setja steypt loft í húsið. í staðinn varð ég svo að byggja loftið upp á stálgrind- til þess að geta notað það eitthvað, og þegar í upphafi varð það mun dýrara. Nú sé ég fram á að þurfa að rífa þetta tréloft úr í sumar og steypa í staðinn, og það geta all- ir dæmt um hvort nokkrum hafi verið hagur í þessum höftum.“ — Þú ert að stækka fiskverk- unarstöðina? „Ég ætlaði að skapa beiting- araðstöðu fyrir þrjá báta í við- byggingu við fiskverkunarhúsið, en þegar til kom þótti mér betra að nota þetta húsnæði til að koma fyrir í því hraðfrystitækj- um. Aðstaðan er reyndar ekki sem bezt enn, og ég hef í hyggju að flytja sjálfan vinnusalinn sem fyrst upp á hluta af efri hæðinni. Hinum hlutanum vil ég ekki ráð- stafa strax, því ég bind miklar vonir við, að fljótlega verði hægt að vinna betur það hráefni sem síldin gefur okkur. Ég hafði svo hugsað mér að bæta við þriðju hæðinni, og hafa þar húsnæði fyr ir aðkomufólk, sem ég ræð til starfa hjá mér. Auk þess er ég svo að stækka hjá mér frysti- geymsluna.“ — Hvað gerir þú út marga báta núna? „Ég geri ekki nema einn bát út sjálfur, Guðbjörgu. Hún var á línu í vetur og fékk rúm 500 tonn, en varð fyrir alvarlegri vél arbilun, þegar hún var að koma úr einum bezta róðrinum. Ég veit ekki hvort ég kem henni af stað á síldina. Annars eru hér á Ólafs firði nokkur hlutafélög, bæði £ útgerð, fiskverkun og síldarsölt- un, sem við eigum saman hinir og þessir." — Hvaða framkvæmdum telur þú vera brýnust þörf fyrir á næstu árum? „Það liggur mest á að bæta hafnaraðstöðuna og koma á nokk uð öruggu vegarsambandi við Akureyri. Með því móti mundi aðkomubátum fjölga til muna. Nú þegar leggja margir bátar frá Akureyri upp hérna, vegna þess hvað það er miklu styttra að fara af miðunum, en þeim mundi fjölga, ef hafnarskilyrðin yrðu bætt. Múlavegur mun tryggja okkur öruggt vegarsam- band að minnsta kosti mestan hluta ársins þótt hann virðist nokkuð hrikalegur. Auk þess þyrfti að stækka verulega síld- arbræðsluna hérna. Það er und- irstaðan fyrir aukinni söltun, því við getum ekki ætlazt til að bát- arnir leggi söltunarsíldina á land hérna, en sigli síðan með það sem þeir hafa af bræðslusíld til Siglu fjarðar og lendi jafnvel í all- langri löndunarbið á báðum stöðum.“ — Að lokum, Magnús, hvernig hefur gengið að fá fólk til vinnu? „Það er allt í lagi núna, eftir að skólarnir eru búnir, en það voru hreinustu vandræði í vet- ur. Verkefnin hérna eru svo mörg og verið að vinna að svo mörgu, að við búum við mjög tilfinnanlegan skort á vinnuafli. Á því sviði, sem fleirum, hefur orðið mikil breyting síðustu ár- in.“ — þh. '< ' OWOW" AJ. X. • * tf. f s s Fiskverkunarhús Magnúsar Gamalielssonar Dregiö um bíla þann júní

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.