Morgunblaðið - 01.06.1963, Síða 11
Viðreisn sknpor velmegun
Málgagn Sambands ungra Sjálfstæðismanna.
'r Kitstjórar: Birgir ísl. Gunnarsson, Ólafur Egilsson og Ólafur B. Thors.
Eí Sjáffstæðisflokkurinn má
ráða, verður fsland land
hinna frjálsu borgara
eftir Ragnhildi Helgadóttur
EINN hinna fimm höfuðþátta í
Stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins er
félagslegt öryggi allra lands-
manna.
Um leið og þjóðfélag frjálsra
borgara hvetur menn til að kom-
ast áfram af eigin rammleik,
smíða sína eigin gæfu, eftir því
sem efni standa til, vill það
Tryggingastofnun ríkisins fer
með geysimikið fé og almanna-
tryggingar eru lögboðnar. Allir
þurfa að greiða til þeirra ákveð-
ið gjald og allir njóta líka rétt-
ar til bóta, ef þau atvik ber
að höndum eða þær aðstæður
eru, sem lögin tilgreina. Hinir
tryggðu sjálfir greiða 32% af
Ragnhildur Helgadóttir
vernda gegn áföllum þá, sem
atvikin hafa svipt möguleikan-
um til að bjargast sjálfir um
lengri eða skemmri tíma. í því
er félagslegt öryggi fólgið. Nokk-
uð má marka þroska hvers þjóð-
félags og menningarstig á því,
hvernig þeim málum er skipað.
Hugmyndin um opinbera
skyldusamhjálp borgaranna er
mjög gömul á íslandi allt frá
tímum fornrar hreppaskipunar.
í dag er sú hugmynd fram-
kvæmd á mjög víðtækan hátt.
32 breytingar á trygginga-
lögunum.
Það, hvenær félagslegrar að-
Stoðar er brýn nauðsyn er við-
kvæmt, persónulegt matsatriði.
Erfitt er að meta þar aðstæður
eins á mælistiku annars. Meðal
annars þess vegna hefur það
smám saman orðið ofan á, að
réttur til aðstoðar yrði æ al-
mennari, að fullnægðum vissum
skilyrðum.
Fáar greinar löggjafar á íslandi
hafa tekið eins oft viðamiklum
breytingum eins og helzta laga-
boðið um félagslegt öryggi, lög-
in um almannatryggingar. Síð-
ustu tíu árin hefur Alþingi af-
greitt ekki færri en 32 frum-
vörp til breytinga á trygginga-
lögunum.
tekjum stofnunarinnar, 36%
koma frá ríki, 18% frá sveitar-
félögunum og 14% frá atvinnu-
rekendum. Þó er þess að geta,
að fjölskyldubætur greiðast úr
ríkissjóði að fullu.
Tryggingastofnunin úthlutar
því almannafé í formi ótal teg-
unda bóta. Lög þessi snerta
mjög hag manna, og var því eðli-
legt að þau séu oft endurskoð-
uð.
★ Tryggingamál á Alþingi
s.I. 4 ár.
Nú skulu nokkur atriði rakin
um tryggingamál á Alþingi á
síðasta kjörtímabili.
Vorið 1960 var samþykkt gagn-
ger breyting á lögunum með
ákvörðun um að greiða foreldr-
um fjölskyldubætur með öllum
börnum þeirra, en áður voru
ekki greiddar fjölskyldubætur
með fyrsta og öðru barni. Þetta
var ein þeirra ráðstafana, sem
gerðar voru í sambandi við efna-
hagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar.
Aðrar bætur voru þá einnig
hækkaðar að mun og ýmsir van-
kantar laganna jafnaðir. Hlutur
einstæðra mæðra var mjög bætt
ur. Lögfest var, að greiða skyldi
mæðralaun strax með fyrsta
barni, en áður var svo gert, ef
um tvö börn eða fleiri var að
ræða. Mæðralaun eru bætur, sem
tryggingastofnunin greiðir til að-
stoðar ekkjum, ógiftum mæðrum
eða fráskildum, sem börn hafa á
framfæri einar. Með þessum
sömu börnum og börnum örorku
lífeyrisþega er einnig greiddur
barnalífeyrir, ákveðin upphæð
með hverju barni — hugsuð sem
framlag af hendi föður. Þegar
faðir barnsins er á lífi og er
framfærsluskyldur, hefur Trygg-
ingastofnunin milligöngu um
greiðslu barnalífeyris, sem móð-
irin hefur fengið úrskurð yfir-
valds um.. Þetta er sú upphæð,
sem í daglegu tali og
raunar nýju lögunum nefn-
ist meðlag og er jafn-
hátt hinum almenna barnalíf-
eyri. Allar þessar bætur voru
hækkaðar.
•Ar SkerSingarákvæðin
afnumin.
Með þessum lögum var ákveð-
ið að fella úr gildi skerðingar-
ákvæðin, sem svo voru nefnd,
ákvæðin, sem miðuðu rétt til
bóta við efnahag bótaþega. Þá
voru ákvæði um bætur vegna
slysa lagfærðar.
f árslok voru svo samþykkt
lög um að öryrkjar og allir 67
ára og eldri ættu jafnan rétt
til bóta án tillits til efnahags.
Aðrar breytingar, sem í þetta
sinn voru gerðar, stóðu í beinu
sambandi við þetta. Fríðindi voru
t.d. aukin til þeirra, sem frest-
uðu töku ellilífeyris.
Á þingi 1961—62 voru enn
samþykkt lög um hækkun á bót
11111 trygginganna í samræmi við
launahækkanirnar, sem orðið
höfðu í landinu, um 13% fyrst
og 4% síðar.
Loks var frumvarp til nýrrar
heildarlöggjafar um almanna
tryggingar samþykkt á Alþingi
nú í apríl. Var það byggt á
starfi stjórnskipaðrar nefndar,
sem haft hafði málið í heild í
ítarlegri athugun.
Samkvæmt þeim lögum telj
ast til almannatrygginga lífeyris-
tryggingar, slysatryggingar og
sjúkratryggingar.
★ Lífeyristryggingar.
Úr ræðu Lárusar
gjaldkera á
HIN efnahagslega viðreisn var
fyrst og fremst fólgin í ráðstöf-
unum sem stuðluðu að því að
ekki eyddust allar tekjur þjóðar
innar sem öfluðust, þannig að
eitthvað yrði eftir af fjármagni
til aukinnar uppbyggingar at-
vinnuveganna og ennfremur að
koma í veg fyrir versnandi gjald-
eyrisstöðu Islendinga gagnvart
erlendum þjóðum.
Hið fyrra atriðið var leyst á
þann hátt að hvetja fólk til að
spara meira með því að borga því
betur fyrir það, þ. e. hækkaðir
voru vextir. Auðvitað urðu þá
útlár.cvextir að hækka líka.
Þessi ráðstöfun hefur haft í för
með sér meiri sparifjáraukningu
en áður hefur þekkzt. Þetta fjár-
rnagn er síðan notað til húsbygg-
inga, bygginga verkamannabú-
. taða o. s. frv., en lán til þessara
i.luta hafa hækkað og aukizt veru
lega, auk þess sem það er lánað
atvinnufyrirtækjum, einstakling-
um og félögum til ótal fram-
kvæmda í atvinnulífinu.
Allar þessar auknu fram-
kvæmdir, sem hvarvetna blasa
við, þurftu aukið vinnuafl bæði
við framleiðslu á þeim og bygg-
ingu þeirra. Örari sparifjáraukn-
ing hefur þannig stuðlað að örari
hagvexti, meiri framleiðslu og
síðast en ekki sízt að því að nú
hafa allir vinnu, sem gera og
vilja vinna. Þetta eru staðreynd-
irnar.
Spáð var atvinnuleysi
Hermann Jónasson spáði hins
vegar, að þessi stefna leiddi til
þess að 4 þúsund atvinnuleysingj-
ar yrðu á íslandi að óbreyttu
Jónssonar bæjar-
Ólafsfirði
ástandi (Tím-
ihn 5. febr. 1960)
En viti menn,
nú þegar náðst
hefur það tak-
mark að hafa
fulla atvinnu á
íslandi, sem hef-
ur lengi verið á
kröfuspjöldum
alþýðusamtak-
anna þá hrópa kommún-
istar og Framsóknarmenn þá auð
vitað líka: Vinnuþrælkim: Hvítt
í dag, svart á morgun, en til- -
gangurinn og vinnubröðin þau
sömu: Stór orð í því skyni að
rugla dómgreind fólksins.
Það er svo kapítuli út af fyrir
sig að Framsóknarmenn hamast
nú mjög gegn vaxtastofnun ríkis
stjórnarinnar og leggja til, að
„vaxtaokrinu", eins og þeir kalla
verði létt af, og beina þá tillög-
um sínum eingöngu að útláns-
vöxtum, sem auðvitað hefði í
för með sér lækkun á innláns-
vöxtum. Tillaga þeirra gerir fyrst
ráð fyrir 2% lækkun, sem þýðir
100 millj. króna tekjumissi spari-
fjáreigenda. Þetta hefði óhjá-
kvæmilega í för með sér minni
sparnað fólks, lánasamdrátt, hæg
ari hagvöxt og sennilega árstíða-
bundið atvinnuleysi, en þetta
segjast þeir vilja gera vegna
unga fólksins, sem er að byggja.
Það hallast hvergi á í málflutn-
ingnum.
Traust á gjaldmiðlinum
endurvakið
Viðreisnarstjómln hvarf |j(lr-
Framhald á bls. 19.
(Allar þessar tölur eru miðað-
ar við nýsamþykkt lög um al-
mannatryggingar).
Slysatryggingar taka til sjúkra
hjálpar, dagpeninga, örorkubóta
og dánarbóta.
Slysatryggðir skv. lögunum
eru launþegar, iðnnemar, stjórn-
endur aflvéla og ökutækja, er
þeir hafa umráð yfir, útgerðar-
menn, sem sjálfir eru skipverj-
ar og þeir, sem vinna að björg-
un manna úr lífsháska eða vörn
um gegn yfirvofandi meirihátt—
ar tjóni á verðmætum.
Kafli laganna um sjúkratrygg-
ingar fjallar um sjúkrasamlögin,
sem hver maður yfir 16 ára skal
vera L
★ Sami réttur um Iand allt.
Með þessum nýju lögum var
ákveðið, að menn skyldu njóta
sama bótaréttar og greiða sömu
gjöld til trygginganna, hvar sem
þeir byggju á landinu.
★ Öryrkjar
Nokkrir aðrir þættir löggjaf-
arinnar varða einnig félagslegt
öryggi. Meðal starfa stjórnar-
flokkanna á liðnu kjörtímabili
verður að nefna ýmsar ráðstaf-
anir til stuðnings sjálfshjálpar
öryrkjum og eflingu stofnana,
sem hlúa að sjúku fólki og öldr-
uðu.
Gerðar voru sérstakar ráðstaf-
anir til stuðnings lömuðum, fötl-
á ári
Lífeyristryggingar taka til:
Ellilífeyris. sem er skv. lögum
fyrir einstakling ....................................... 18.240,00
örorkulífeyris .......................................... 18.240,00
(elli- og örorkulífeyrir fyrir hjón er 90% af lífeyri
tveggja einstaklinga).
Makabota, sem eru heimilar maka elli- eða örorkulífeyris-
hafa, ef serstakar ástæður eru fyrir hendi, allt að....... 14.592,00
Fjölskyldubóta, með hverju barni ........................... 3.000,00
Barnalífeyris, sem er ...................................... 8.400,00
Mæðralauna með einu barni ................................ 1.680,00
— — tveimur ................................... 9.120,00
— — þrem eða fleiri.......................... 18.240,00
Fæðingarstyrk, sem er við hverja fæðingu ................... 4.000,00
Ekkjubóta, sem eru kr. 200,00 á mán. í 3 mán. eftir lát
eiginmanns, og kr. 1500.00 í 9 mánuði ef barni innan 16 ára er
til að dreifa.
uðum og vangefnum og stutt
mikilsvert starf samtaka áhuga-
fólks um málefni þessa bág-
stadda fólks. Lög voru samþykkt
um skattfrelsi happdrættisvinn-
inga og gjaldskyldu á vissar vör-
ur, sælgæti, gosdrykki, eldspýt-
ur, sérstaklega í þessu skyni.
Breytt var lögum um erfða-.
fjársjóð 1960 á þann veg, að úr
honum mætti láta fé til elli-
heimila. Aðrar stofnanir, sem
þeim sjóði ber að styðja, eru
vinnuheimili og vinnustofur ör-
yrkja, svo og vinnutæki til notk
unar á slíkum stöðum.
■ár Aldraða fólkið.
Sett voru lög til að bæta að-
stöðu aldraðs fólks til að lifa
sem lengst meðal hins starfandi
fólks án þess að þurfa að leita
til vistheimila. Var þetta gert
með því að lögfesta stofnun bygg
ingarsjóðs fyrir aldrað fólk,
þannig að því yrði léttara að
fá húsnæði, sem miðað yrði við
þess hæfi með hagkvæmum kjör-
um.
Einnig voru sett lög um heimil-
ishjálp fyrir aldrað fólk sérstak-
lega.
★
Ollum þessum málum hefur
hefur verið reynt að haga þann-
ig, að hjálp hins opinbera lam-
aði ekki viðleitni til sjálfsbjarg-
ar. Þegar t.d. réttur til elli- og
örorkulífeyris var miðaður við
visst hámark tekna, skapaðist til-
hneiging hjá mörgum til að
sleppa viðráðanlegu, laimuðu
starfi til að verða ekki af líf-
eyrinum. Slík þróun er engum
æskileg. Þess vegna er niður-
staðan, að allir fái jafnt í líf-
eyri.
Mál þessi eru þannig vaxin,
að jafnan þurfa þau endurskoð-
unar við eftir þróun aðstæðna
í þjóðfélaginu. Aðalatriðið er þó,
að löggjöfin um þessi atriði nái
jafnan eins vel þeim tilgangi
Sjálfstæðisflokksins, að skapa
landsmönnum félagslegt öryggi.
Ef Sjálfstæðisflokkurinn má
ráða, verður land okkar land
hinna frjálsu borgara, sem eru
— eftir því sem mannlegt vald
getur við ráðið — einnig frjálst
af óttanum við tjón af skakka-
föllum lífsins.