Morgunblaðið - 15.06.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.06.1963, Blaðsíða 1
24 síður 50. árgangur 132. tbl — Laugardagur 15. júní 1963 PrentsmiSja Morgunblaðsins To//ð oð geimfari með konu innan- j ðorðs verð/ skotið á loft i dag frá Siberiu Moskvu, 14. júní — (NTB-AP) — í D A G skutu sovézkir vísindamenn á loft mönnuðu geimfari, Vostok 5. — Geimiarinn, Valeri Bykovky, er 28 ára ofursti í sovézka flughernum. Þegar síðast fréttist af geimfaranum, var bann við góða heilsu og tæki geimfarsins í fullkomnu lagi. + Haft er eftir áreiðanlegum heimildum í Moskvu, að á morgun eða síðar en þó áður en Bykovsky lendir, verði annað geimfar sent á loft og geimfarinn verði kona. + Ekki hefur verið skýrt frá því hve lengi Bykovsky eigi að vera á lofti, en Tass-fréttastofan skýrði frá því í dag, að gera mætti ráð fyrir að ferðin yrði löng. Óstaðfestar fregnir herma, að áætlað sé, að Bykovsky verði á lofti í viku. Lengstu geimferð, sem farin hefur verið til þessa, fór sovézki geim- farinn Adrian Nikolayev, en hann fór 64 hringi umhverfis jörðu og var tæpa fjóra sólarhringa í ferðinni. Vostok 5 var skotið á loft kl. 12 á hádegi í dag eftir ís- lenzkum tíma frá ónefndum stað í Sovétríkjunum, sennilega í Síberíu. Geimfarið fer umhverf- is jörðina á 88 mínútum og fjór- um sekúndum, og munar litlu að það sé sami tími og gert var ráð fyrir, áður en því var skotið á loft. Jarðfirrð geimfarsins eru 233 km., en jarðnánd 181 km. Samkvæmt fregnum Tass fréttastofunnar, er geimferðin farin til þess að afla nánari upp- lýsinga um áhrif slíkra ferða á mannslíkamann og til þess að reyna stjórntæki geimfarsins. Skömmu eftir að Bykovsky var skotið á loft, heyrðist frá hon um og tilkynnti hann, að öll tæki væru í fullkomnu lagi og sér liði vel. Sjónvarpað var úr geimfar- inu og sást Bykovsky að störf- um. Voru myndirnar af honum í sjónvarpinu þær skýrustu, sem sézt hafa af sovézkum geimfara. Næsti geimfari heitir Ludmila Sovézkir fréttamenn skýrðu vestrænum fréttamönnum í Moskvu svo frá í dag,að kona, Ludmila að nafni, væri nú við eldflaugaskotpall í Síberíu, við- búin að fara í geimfari á braut umhverfis jörðina. Sögðu frétta- mennirnir, að blöðin í Sovétríkj- unum hefðu þegar reiðubúna ævisögu Ludmilu, sem er 25 ára. Við þjálfun til geimferða hefði hún reynzt hæfari til slíkra ferða, en nokkur þeirra geim- fara, sem Sovétríkin þegar hafa sent út í geiminn. T.d. þyldi hún þyngdarleysi betur en þeir. — Fréttamennirnir töldu, að Lud- Framh. á bls. 23 BRÚÐHJÓNIN á myndinni búa sem sjá má í Vestur- Berlín. Brúðurin Christel Wel sch, sem er 18 ára, flýði frá Austur-Berlín fyrir ári ásamt 14 öðrum. Komust þau í fljótabát yfir ána Spree. Faðir Christel býr enn í Austur- Berlín og í von um að sjá hann héldu brúðhjónin að múrnum. Dilhorne lávarður. íraksher brýtur Kúrda á bak aftur af mikilli grimmd Damaskus, 14. júní — (AP) E I N S og kunnugt er lagði nær helmingur alls herliðs íraks til atlögu við skæruliða Fyrrv. iögfræðingur Keeier segir ivanov hafa beðið hana að njósna Macmillan efnir til skyndi- fundar vegna Profumo-málsins London, 14. júní (NTB-AP) HAROLD Macmillan forsætisráð herra Breta, ræddi i dag við tvo nána samstarfsmenn sina, Henry Brooke, innanríkisráð- herra og Dilhorn lávarð, einn æðsta mann á sviði dómsimála í landinu. Sem kunnugt er, fól Macmillan Dilhorn lávarði að gera skýrslu um hlið þá á máli Profumos, er varðaði öryggi landsins. Brooke innanríkisráð- herra var kallaður heim úr leyfi til þess að sitja fundinn og er talið, að til hans hafi verið boð- að vegna þess að í gær barst forsætisráðherranum bréf frá Michael Eddowes, fyrrv. lögfræð- ingi Christine Keeler. í bréfinu segir Eddowes, að ungfrú Keel- er hafi sagt honum, að sovézki flotamálafulltrúinn Yevneni Ivan ov hafi farið þess á leit við hana, að hún fengi Profumo til þess að upplýsa hvenær Vestur- Þjóðverjum yrðu afhent kjarn- orkuvopn í sambandi við kjam- orkuher Atlantshafsbandalags- ins. Núverandi lögfræðingur ung- frú Keeler hefur fyrir hennar hönd neitað þessum ummælum. í kvöld var opinberlega skýrt frá því í London, að bréf Edd- owes hefði verið rannsakað ná- kvæmlega og niðurstaðan væri sú, að þar væru engar nýjar upplýsingar. Stjórninni hefði áður verið kunnugt um allt, sem þar er skýrt frá. Talið er að Macmillan muni Framh. á bls. 23 Kúrda í norðurhéruðum landsins um helgina, og í dag var skýrt frá því, að herinn hefði nú á valdi sínu nær allt það landssvæði við landa- mæri Tyrklands, sem áður var í höndum Kúrda. Fregn- ir frá Beiruth herma, að ír- aksher hafi sýnt mikla grimmd í baráttunni við Kúrdana. Þorp hafi verið jöfnuð við jörðu, bóndabæir brenndir til ösku og óbreytt- ir borgarar miskunnarlaust drepnir, þar á meðal konur og börn. Áður en fraksher lagði til at- lögu gegn Kúrdum, hafði stjórn landsins skorað á þá að leggja niður vopn og lýsa hollustu sinni við hana. Kúrdarnir neituðu að verða við þessum kröfum. Þegar stjórn Arefs tók við völdum í febrúar sl., eftir að Kassem hafði verið ráðinn bani, féllust Kúrdar á að gera vopna- hlé og viðræður um sjálfsstjórn þeirra hófust í Bagdad. Ekkert samkomulag náðist og boðað var til fleiri funda. Þegar allt kom fyrir ekki, tóku Kúrdar upp vopn að nýju. Foringi Kúrda er, sem kunn- ugt er Mustafa Barzani. Óstað- festar fregnir hermdu um miðja vikuna, að hann hefði verið hand tekinn af stjórnarhernum, en engin staðfesting hefur enn feng- izt. — 115 Vestur- íslendingur í heimsdkn KEFL A VÍKURFLU G VELLI, 14. júní. — Kl. 11,30 í morgun lenti hér Britannia-vél frá Canadian- Pacific Airlines með 115 far- þega, sem allir voru Vestur- Íslendingar í heimsókn til ætt landsins. Flugvélin kom frá Vancouver, og var ætlunin að fljúga beint til Keflavíkur, en vegna mótvinda þurfti flug- vélin að Ienda í Syðra-Straum firði í Grænlandi og taka þar benzín. Starfsmenn Ferða- skrifstofu ríkisins tóku á móti farþegunum. Meðal þeirra eru níu Sigurdson og tólf John- son. Fólkið er á öllum aldri, allt frá ungbörnum upp í gam almenni. __b. Þ. — Sjá bls. 10. Sovézkur geimfari á braut umhverfis jðrðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.