Morgunblaðið - 15.06.1963, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.06.1963, Blaðsíða 23
Lau'gardagur 15. júní 1963 MORGtJNBLADIÐ 23 — Protumo Framhald af bls. 1. skipa sérstakan dómstól til þess eð rannsaka Profumo-málið, áður en umræður um það hefj- ast í Neðri málstofunni n.k. mánu dag. Fullvíst þykir, að Verka- xnannaflokkurinn muni krefjast þess á þingfundinum, ef stjórn- in hefur ekki skipað dómstól- inn áður en hann hefst. Ekkert hefur verið skýrt frá efni viðræðna Macmillans við Brooke og Dilhorne í dag. Eins og kunnugt er lagði Dilhorne skýrslu sína um öryggishlið Profumo-málsins fyrir ráðuneyt- isfund s.L miðvikudag. Efni skýrslunnar hefur ekki verið gert heyrum kunnugt, en haft er eftir áreiðanlegum heimild- um, að niðurstaða hennar sé sú, að samband Profumos og ung- frú Keeler hafi ekki stofnað öryggi landsins í hættu. Sendiherra Sovétríkjanna í London, Alexander Soldatov, gaf í dag út yfirlýsingu þess efnis, að Ivanov flotamálafulltrúi væri é engan hátt riðin við mál Prof- umos. Lögfræðingurinn Michael Edd owes, sem ritaði Macmillan bréf- ið í gær, var lögfræðingur ung- frú Keelar í sambandi við mál Johns Edgecombe frá Vestur- Indíum, en hann var dæmdur í f angelsi fyrir árás á blökkumann- inn Lucky Gordon. 1 bréfi sínu segist Michael Eddwoes hafa spurt ungfrú Keel- er að því, hvort hún hefði á eama tímabili haft náin sam- skipti við Profumo hermálaráð- herra og Ivanov flotamálafull- trúa, hafi hún játað því og hann hafi skilið, að þetta gæti haft alvarlegar afleiðingar Öryggi landsins. Lögfræðingurinn seg- ir: „Ég spurði ungfrú Keeler hvort Ivanov hefði beðið hana að fá einhverjar upplýsingar hjá Profumo. Hún svaraði því ját- andi og sagði, að Ivanov hefði viljað vita hvenær Vestur-Þjóð- verjum yrðu afhentir kjarna- oddar á eldflaugar, en hún sagð- ist ekki hafa fengið upplýsingar um þetta". Eddowes segist ekkert hafa að- hafst varðandi mál þetta fyrr en í marz s.l. Þá segist hann hafa skrifað brezku leyniþjón- ustunni bréf með upplýsingum um allt, sem hann vissi varð- andi Ivanov. Eddowes skrifaði bréfið eftir að Profumo neitáði í Neðri málstofunni nánum kunn ingsskap við ungfrú Keeler. í bréfi sínu til leyniþjónustunnar lagði Eddowes til, að mennirnir, sem staðið hefðu í nánu sam- bandi við ungfrú Keeler á sama tímabili og Profumo, yrðu kall- aðir til yfirheyrslu. Hann sagði, að leyniþjónustan hefði fullviss- að hann um, að Macmillan yrði skýrt frá efni bréfsins daginn eftir að það barst. Hins vegar virtist ekkert mark hafa verið tekið á bréfinu og þess vegna taldi harm rétt að skrifa Mac- millan persónulega, ef ske kynni að hann hefði ekki fengið fyrra bréfið í hendur. Meðal stjórnmálamanna í Bretlandi þykir fullvíst, að Mac millan verði krafinn sagna í þing inu um hvort hann hafi vitað um bréf lögfræðingsins til leyni- þjónustunnar og hvers vegna ekki, þar sem hann er yfirmaður hennar. í kvöld lagði Macmillan af stað til sveitaseturs síns skammt frá London. Þar mun hann dvelj ast um helgina og undirbúa þing ræðuna um Profumo-málið. For- sætisráðherrann hefur boðað alla þingmenn íhaldsflokksins á fund klukkustund áður en þingið kem ur saman á mánudag. Er talið að hann ætli að kanna hve mikils stuðnings hann nýtur meðal þing mannanna. — Geimferð Framhald af bls. 1. mila yrði á lofti allt að sólar- hring. Segja þeir, að hún verði send út í geiminn á sömu braut og Bykovsky, áður en hann lendir. ■jíf Krúsjeff skýrði Wilson frá geimferðinni Þeir fyrstu, sem fengu að vita um geimskotið, utan þeirra, sem við það störfuðu, voru Har- old Wilson, formaður brezka Verkamannaflokskins og brezk- ir fréttamenn, sem voru ásamt honum í skrifstofu Krúsjeffs for- sætisráðherra. Wilson hafði kvatt forsætisráð- herrann og gengið til dyra ásamt fréttamönnunum, þegar síminn á skrifborði Krúsjeffs hringdi. — Krúsjeff tók upp heyrnartólið og bað gestina að doka við. Þeir heyrðu, að hann sagði m.a. í sim- ann: „Ágætt, ágætt, ég er mjög ánægður og stoltur." Síðan sneri hann sér að gestum sínum og sagði: „Hér fáið þessa fregn tíu mínútum á undan öllum öðrum. Mannað geimfar er nú á braut umhverfis jörðu. Þetta er ham- ingjudagur fyrir þjóð vora.“ Wilson gekk til Krúsjeffs, rétti honum höndina og sagði: „Má ég vera fyrstur til að óska yður til hamingju, Nikita Sergej- vits j. “ Fréttamennirnir spurðu Krús- jeff hvort geimfarinn væri karl- maður eða kona. Hann sagði, að geimfarinn væri karlmaður. — Fréttamennirnir spurðu einnig hvort senda ætti annað geimfar á loft í dag. Krúsjeff vildi ekk- ert fullyrða. Forsætisráðherrann ræddi við Bykovsky í síma í dag. Bykovsky talar til stöðva á jörðinni Mikið var um að vera í Moskvu í dag vegna geimskots- ins. Moskvubúar söfnuðuát sam- an á götunum og fylgdust með fregnum af geimfaranum. Var útvarpað um hátalara, sem kom- ið hafði verið fyrir á mörgum húsum. Heyrzt hefur til Bykovsky í ýmsum löndum. í Danmörku heyrði rannsóknarstöðin í Rude Skov til geimfarans, sem nefndi nafn sitt með stuttu millibili. Önnur orð geimfarans gátu vís- indamenn ekki greint. Vísinda- menn í Jddrell Bank í Englandi, heyrðu rödd Bykovskys kl. 5,30 Franzmenn um borð í togaranum Brezkir froskmenn fara niður í sjóinn athuga skemmdir. — Togarinn Frh. af bls. 24 ist svo, að það geti áhættulauat siglt heim til Frakklands, þar sem fullnaðarviðgerð fer fram. — Ég er mönnum hér á Akur- eyri mjög þakklátur fyrir hjálp semi og fyrirgreiðslu í sambandi við þetta óhapp og komu skips- ins hingað. Það er alltaf erfitt að verða fyrir slíku, svona fjarri heimastöðvum, en gott að finna vinsamlega greiðvikni Akureyr- inga, sem ég vona, að við eig- um eftir að hafa góð samskipti við framvegis. — Sv. P. í dag. Talsmaður stöðvarinnar sagði, að greinilega hefði heyrzt til geimfarans. Benti allt til þess, að hann væri að senda athug- unarstöðvum í Sovétríkjunum upplýsingar. f Svíþjóð heyrðu menn einnig rödd geimfarans. Gáfaðastur Sovétgeimfara Fimmti geimfari Sovétríkj- anna, Valeri F. Bykovsky, er 28 ára, fæddur 2. ágúst 1934 í smá- borginni Pavlova-Pasad, nálægt Moskvu. Faðir hans er járnbraut- arstarfsmaður. Bykovsky gekk í félagsskap ungkommúnista árið 1952, og árið eftir gekk í flug- herinn. 1955 lauk hann prófi við skóla flughersins. Næstu fjögur árin var hann orustuflugmaður í einni flugdeilda hersins. Hann hefur verið sæmdur heiðursmerk inu „Rauðu stjörnunni", en mjög sjaldgæft er að menn séu sæmd- ir því heiðursmerki á friðartím- um. Síðustu árin hefur Bykovsky stundað nám við verkfræðinga- háskóla hersins ásamt öðrum geimförum. Bykovsky er kvæntur Valen- tínu Mikhailovnu, 25 ára aðstoð- arstúlku á rannsóknarstofu. Þau eiga þriggja mánaða gamlan son. Þegar Tass-fréttastofan skýrði frá frá geimferð Bykovskys sagði hún m.a., að hann væri gáf- aðastur þeirra geimfara, sem Sovétríkin hefðu sent umhverfis jörðina. Rólegur flugmaður, en snarráður ef vanda bæri að hönd um og fljótur að taka ákvarð- anir, mikill íþróttamaður og framúrskarandi fallhlífarhermað 11. geimfarinn Eins og áður segir, er By- kovsky fimmti geimfari Sovét- ríkjanna. Bandaríkin hafa sent sex geimfara á loft, en tveir þeirra fóru ekki umhverfis jörð- ina og voru aðeins stutta stund úti í geimnum. Bandaríkjamenn hafa tilkynnt að þeir muni ekki senda fleiri geimför af gerðinni Mercury út í geiminn. Næst sendi þeir geim- far af gerðinni Gemini. Verður það væntanlega í árslok 1964. Gemini geimfarið mim hafa tvo menn innanborðs. Fundur æðstu manna árlega Krúsjeff tekur tillögu Wilsons vel Moskvu, 14. júní — (NTB) HAROLD Wilson, formaður brezka Verkamannaflokks- ins, ræddi við Krúsjeff for- sætisráðherra í Moskvu í dag, en eins og kunnugt er hefur Wilson dvalizt í borginni und anfarna daga. Að fundi þeirra loknum ræddi Wilson við fréttamenn og sagði m.a., að Krúsjeff hefði tekið vel til- lögu sinni um, að æðstu menn Sovétríkjanna, Banda- ríkjanna, Bretlands og Frakk lands, kæmu saman til fund- ar árlega í sambandi við fundi Allsherjarþings Sam- einuðu þjóðanan. Wilson sagði, að hann og Krúsjeff væru sammála um, að nær óhugsandi væri, að algert bann við tilraunum með kjarn- orkuvopn yrði samþykkt, án þess að haldinn yrði fundur æðstu manna. Einnig sagði hann, að eining hefði ríkt á fundi þeirra um fleiri mál. Þar á meðal upp- töku Kína í SÞ og ýmsar endur- bætur á starfsháttum samtak- anna. Hins vegar sagði Wilson, að sjónarmiðin hefðu verið ólík, þegar rætt var um málefni Ber- línar og Þýzkalands. Þó virtist ýmislegt, sem fram kom við við- ræðurnar, benda til þess, að von væri nýrra viðræðna um þessi máL Byggingarlóð — íbúð Þriggja herbergja íbúð á jarðhæð, ásamt byggingar- lóð til sölu á einum fegursta stað í Kópavogi. — Samþykkt teikning af einbýlishúsi getur fylgt. Upplýsingar í síma 24647 eftir kl. 5. Ltanborðsmótorar Viðgerða- og varahlutaþjónusta. Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16. Sími 35-200.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.