Morgunblaðið - 15.06.1963, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.06.1963, Blaðsíða 3
Laugardagur 15. júní 1963 MORCU1SBLAÐ1Ð MIKIL vinnugleði ríkti á Frí kirkjuvegi 11, er fréttamaður og ljósmyndari Morgunblaðs- ins komu þangað í heimsókn í gær. Á skilti yfir inngangin- um stendur: Skrifstofum Saka dómara er lokað í dag vegna flutnings að Borgartúni 7. Fyrstan hittum við að máli Aðalstein Guðlaugsson, skrif- stofustjóra. — Eruð þið ekki fegnir að flytja — Jú, mjög svo. Við fáum til umráða 3. og 4. hæð í Borg artúni 7. Húsnæðið þar er ó- líkt rýmra og hentugra en STAKSTEINAR Ragnar Vignir, Aaðalsteinn Guðlaugsson og Kristmundur Sigurðsson fyrir framan kassahlaðann sem hefur að geyma fingrafara- og myndasafn tæknideildarinnar. Barnsfaðernísmál flutt í Borgartún 7 hér, enda var orðið alltof þröngt, sumsstaðar margir menn í hverju herbergi. — Hvað vinna margir hjá embættinu? — Um 45 manns. — Hvé lengi hefur Saka- dómari haft aðsetur sitt hér á Fríkirkjuveginum? — Allt frá stofnun embætt isins, 1940. Eg hef unnið hér í 15 ár, og allan þann tímá hefur staðið til að flytja. Það hefur verið mjög áhættusamt að reka þessa starfsemi í timburhjalli, sérstaklega með an sakaskráin var hér. Marg- ir hefðu orðið fegnir, ef hún hefði brunnið. Svo er hér fjöldi af óinniheimtum sektum. Rétt í þessu kemur Stein- grímur Gautur Kristjánsson inn, en hann sér einmitt um innheimtu sekta. — Hvernig eru heimturnar? spyrjum við hann. — Þær eru sæmilegar. Við látum stinga þeim í steininn, sem ekki borga. Um eitt skeið var einn settur inn á dag. Það var þegar verið var að innheimta smásektirnar. Þeg ar menn greiða ekki slíkar sektir. er auðséð að það staf- ar af vilja- en ekki getuleysi, svo að sjálfsagt er að beita valdi. Frí í tugthúsinu til að fara á síld í næsta herbergi er Hauk- ur Bjarnason að tala í sím- ann. Hukur er flutningastjór- inn. — Heyrðu vinurinn, segir Haukur í simann, þetta stend ur hálf illa af sér með þig.. Nei, það borgar sig ekki að áfrýja bara til þess að komast á síld. Ef þú hagar þér eins og maður, þá færð þú frí í steininum þangað til í haust. Það stendur alls ekki til að setja þig inn í bráð .. Jú, jú, við erum vinir. Vertu blessaður. Haukur leggur símatólið á og snýr sér brosondi að mér. — Þessi ætlaði að áfrýja dómi til þess að tefja framkvæmd hans og komast á síld. Ann- ars stendur hann í fleiri mála- ferlum. Hann réði sig nýlega í vinnu hjá bónda nokkrum, er lofaði honum tuttugu og fimm hundruð krónum í kaup. Svo þegar hann fékk ekki útborg- aðar nema tvö þúsund og fimm hundruð krónur, fór hann í mái við bónda. Þarna er einnig staddur Har aldur Jóhannesson, sem sér um óskilamuni. Hann segist verða um kyrrt á Fríkirkju- vegi í nokkra daga. 18.—21. júní verða frá 2 til 6 e.h. af- greiddir óskilamunir. Það, sem eftir verður og orðið er yfir ársgamalt, verður svo selt á uppboði. Á neðri hæðinni er Ragnar Vignir, forstöðumaður tækni- deiidar rannsóknárlögreglunn ar, að raða niður í kassa alls konar tækjum, sem notuð eru við rannsóknir. — Það verður geysilegur munur að koma í nýja hús- Halldór Þorbjömsson raðar bókum I nýju skrifstofunni ;;inni. Hlín Torfadóttir ber út byss- ur, sem gerðar hafa verið upp tækar. næðið, segir Ragnar. Við þurfum taisvert husrými fyr- ir söfn, sem við eigum. í fingrafarasafninu erum við komnir upp í númer 1080 af afbrotamönnum, en við tökum jafnóðum út fingraför þeirra, sem deyja, og fæstir þessarra manna verða langlífir, enda lifa þeir yfirleitt mjög óheilsu samlegu lífi. Við geymum heldur ekki fingraför þeirra, sem komast yfir áttrætt, því þá teljast þeir orðnir skaðlaus ir. Svo eigum við fingraför af nokkrum hundruðum ung- linga og 15—1600 saklesingj- um. — Myndasafn af afbrota- mönnum er einnig til hér og mikið filmusafn. Við tökum myndir af öllum slysum, elds voðum og öðrum vofeiflegum atburður. Allt þetta hafur- task fyllti 30 stóra pappakassar Umferðarmál þrefalt fleiri en 1953. Kristmundur Sigurðsson, yf irmaður umferðardeildar, er að taka við lyklunum að nýju herbergjunum, þegar við komum inn til hans. — Mikið verð ég feginn að flytja, segir Kristmundur, við vorum 3 hérna í sama herberg inu. Það var alveg óvinnandi. í Borgartúni fáum við 4 her- bergi til umráða og fögnum við bæði því, að fá bætt vinnu skilyrði og ekki síður bættri aðstöðu þeirra, sem mæta þurfa hjá okkur. Það var þannig hérna, að hver fylgd- ist með annars yfirheyrslum. Verkefni umferðardeildarinn- ar hafa vaxið geysilega. Þau mál, sem við fáum nú til með ferðar, eru þrefalt fleiri en fyrir 10 árurn. Það er ekki einungis árekstrum, sem fjölg ar, heldur einnig slysum. Or- sökin er bæði aukin umferð, hraði og tillitsleysi fólks við aðstæður. Nýja húsið vígt með barnsfaðernismáli. Nú förum við og skoðum nýja húsnæðið. Það er á 2 hæð og mjög vistlegt. Við hittum Halldór Þorbjörnsson, saka- dómara, í skrifstofu sinni. — Eg er búinn að koma öllu fyrir hér á nýja staðnum og kann ágætlega við mig, segir Halldór. í morgun kl. 10,45 kvað ég upp eina dóminn, sem kveðinn hefur verið upp hér Hann var í barnsfaðernismáli og fór svo, að stefndi var dæmdur faðir. Búslóðin borin út í bifreið. Ilaukur Bjarnason er lengst til hægri. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.). Einar tekur undir með Hannibal Eftir þá yfirlýsingu Hannibafs Valdimarssonar að ioknum kosn- ingum, að flokkur hans boðaði nú stríð en ekki frið, hafa menn ekki farið í grafgötur um, að kommúnistar hyggjast enn einu sinni stofna til pólitískra verk- falla í þeim tilgangi að „hnekkja viðreisninni“ og svífast þess ekki að ganga algerlega í berhögg við yfirlýstan vilja þjóðarinnar í j kosningunum. Einar Olgeirsson, formaður Kommúnistaflokksins, skrifar svo grein í málgagn sitt í gær um kosningaúrslitin, þar sem hann áréttar hótanir Hanni- bals og boðar „hörð átök“, sem kommúnistar ætli að standa fyr- ir. Leynir sér því ekki, að kommúnistar hafa hleypt í sig kjarki að kosningunum loknum, þrátt fyrir fylgistapið, og telja nú óhætt að opinbera verkfalls- fyrirætlanir sínar, þó að þeim af ótta við kjósendur hafi ekki þótt ráðlegt að flíka þeim fyrir kosningarnar. Enginn þarf að ganga þess dulinn, hver tilgang- ur þeirra er. Kommúnistar játá nú sjálfir, að fyrir þeim vaki að æsa tii pólitískra verkfalla, sem þeim er jafnljóst og öðrum, að aðeins geta orðið til tjóns. Ný vinnubrögð nauðsynleg Alþýðublaðið ræðir káup- gjaldsmálin í forystugrein í gær og segir m.a.: „Kjaramál verkalýðsfélaganna eru nú eitt stærsta verkefnið, sem ieysa þarf á farsælan hátt. Árum saman hafa verkalýðsfé- lögin hér fetað kauphækkunar- leiðina nær eingöngu og upp- skorið sáralitla kjarabót. Á sama tíma hafa verkalýðsfélögin á Norðurlöndum fetað nýjar leið- ir, samið um aukna ákvæðis- vinnu og vinnuhagræðingu sam- hliða því sem þau hafa samið um tiltölulega Iitlar kauphækk- anir, sem reynzt hafa raunhæf- ar. Vinnubrögðin hafa verið allt önnur í nágrannalöndum okkar en hér. Og árangurinn hefur einnig orðið annar. Verkalýðsfé- lögum á Norðurlöndum hefur tek izt að bæta kjör launþeganna mun meira en tekizt hefur hér. Það mun áreiðanlega verða farsælast fyrir íslenzka launþega að taka stéttarbræður sína á Norðurlöndum sér til fyrirmynd ur. Fyrsta skrefið í þá átt verð- ur að vera það að íslenzka verka- lýðshreyfingin leysi kommúnista frá störfum úr forystu samtak- anna. Að því ber að stefna.“ Mundu taka unp sams konar harðstjórn f viðtali því, sem birtist hér í blaðinu ’fyrir skömmu við einn af fyrrverandi flokksmönnum Kommúnistaflokksins, Ragnar Gunnarsson, ræðir hann m.a. við- horf flokksforystunnar til lýð- ræðisskipulagsins og segir: • „Flestir eiga að vonum erfitt með að trúa því, að forystumenn „Sósíalistaflokksins“ hér á Iandi mundu falla fyrir þeirri freist- ingu, ef þeir kæmust til valda, að taka upp sömu stjórnarhætti og upp hafa verið teknir í komm únistaríkjunum. Þetta er þó hinn mesti misskilningur, því að full- víst má telja, að þeir fetuð'u troðn ar slóðir, ef þeir kæmust til valda, enda bendir fátt til þess, að þeir séu svo frumlegir í hugs- un, að þeir færu að fitja upp á nýjungum í framkvæmd hins kommúniska skipulags".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.