Morgunblaðið - 15.06.1963, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.06.1963, Blaðsíða 5
Laugardagur 15. júní 1963 HIORCUNBLAÐIÐ 5 Á hvítasunnudag, 2. júní 1963, var stofnfundur Banda- lags íslenzkra St. Georgs- skáta, haldinn í Skíðahótelinu í Hlíðarfjalli við Akureyri. St Georgsgildið á Akureyri sá um undirbúning fundar- ins, en fundinn sóttu, auk Ak- ureyringa, félagar úr St. Ge- orgsgildunum í Reykjavík og Innri-Njarðvík, undir forystu Hans Jörgenssonar, skólastjóra formanns Reykjavíkurgildis- ins. Dúi Björnsson, formaður St. Georgsgildisins á Akureyri setti fundinn og bauð gesti velkomna en skipaði síðan Sigurð Guðlaugsson, Akureyri fundarstjóra, og Sigurbjörn Þórarinsson, Reykjavík, fund- arritara. Hans Jörgensson flutti skýrslu um stofnun nýrra St. eru starfandi gildi í Hafnar- Georgsgilda, en auk þeirra sem fulltrúa áttu á fundinum firði, Keflavík og Selfossi, og teljast þau aðilar að banda- laginu, þótt þau gætu ekki sent fulltrúa að þessu sinni. í stjórn bandalagsins til nsestu 2ja ára voru kosin Dúi Björnsson, Akureyri, formað- ur; Sigurður Guðlaugsson, Akureyri; frú AlJý Þórólfs- son, Akureyri; og Kristján Hallgrímsson, Akurevri. Bandalag íslenzkra skáta mun tilnefna fimmta mann í stjórnina, en ekki var búið að ganga frá þeirri tilnefningu. Heillaóskir bárust fundin- um frá Kai Korup, formanni Landssambands St. Georgs- gildanna í Danmörku, og Frank Michaelsen, Reykjavík. Að loknum fundarstörfum sátu fulltrúarnir að sunnan kvöldverðarboð heimamanna, en síðan var sameiginleg kvöldvaka með ýmsum varð- eldaatriðum, og skemmtu menn sér hið bezta fram eftir kvöldinu. Læknar fjarverandi Árni Guðmundsson verður fjarver- andi frá 5. júní til 8. júlí. Staðgengill Björgvin Finnsson. Arinbjörn Kolbeinsson verður fjar- verandi frá 3. mai um óákveðinn tima. Staðgengill: Bergþór Smári. Friðrik Einarsson verður fjarver- andi til 12. júní. Gunnlaugur Snædal, verður fjar- verandi þar til um miðjan júli. Hannes Finnbogason verður fjar- verandi frá 11. júní til 1 júlí. Stað- gengill er Víkingur Arnórsson. Jón Hannesson verður fjarverandi frá 4.—15. júní. Staðgengill Kagnar Arinbjarnar. Jón Nikulásson fjarverandi júnímán- uð. Staðgengill er Ólafur Jóhannsson. Kristín E. Jónsdóttir verður fjar- verandi frá 31. maí um áókveðinn tíma. Staðgengill Ragnar Armbjarn- ar. Kristjana Helgadóttir verður fjar- verandi til 3. ágúst. Staðgengill er Einar Helgason, Lækjargötu 2, kl. 10—11 nema fimmtudaga kl. 6—7. Símaviðtalstími kl. 11—12 (í sima 20442), og vitjanabeiðnir í síma 19369. Kristján Hannesson verður fjarver- fjarverandi frá 15. júní til júlíloka. Staðgengill er Erlingur f>orsteinsson. Skúli Thoroddsen verður fjarver- andi 24. þm. til 30 júni. Staðgenglar: Ragnar Arinbjarnar, heimalæknir og Pétur Traustason, augnlæknir. Stefán Ólafsson verður fjarverandi til 1. júlí. Staðgengill: Ólafur Þor- steinsson. Þórarinn Guðnason verður fjarver- andi til 18. júní. Staðgengill Magnús Bl. Bjarnason, Hverfisgötu 50; kl. 1.30—3. Á morgun verða gefin saman í hjónaband af séra Þorsteini Björnssyni, frk. Lilja Ólafsdóttir, Drápuhlíð 15, og Guðmundur Arason, Borgarnesi. Gefin verða saman í dag, af séra Jóni Auðuns, ungfrú Jó- hanna Guðný Sigurðardóttir og Gunnar Jón Árnason, rafvirkja- meistarL í dag verða gefin saman í hjónaband í Árbæjarkirkju, Guð- rún Kristín Hallgrímsdóttir og Lárus Sigurðsson. Heimili þeirra MENN 06 = MALEFNlx EINN markverðasti maður- inn, sem kom við sögu í seinni heimsstyrjöldinni, brezki flotaaðmírállinn A. B. Cunn- ingham, dó síðastl. miðviku- dag í leigubifreið í London. Hann var 80 ára. Andrew Cunningham var af þekktri skozkri ætt, og bróð- ir hans var herforingi í brezka landhernum. Hann öðlaðist ekki aðeins æðstu metorð inn- an flotans, heldur var að stríð inu loknu aðlaður sem lávarð- ur af Hindhope. Innan flotans hafði hann viðurnefnið ABC, og annað nafn var ekki notað um hann þar, hvorki af óbreyttum her- mönnum né yfirmönnum. í byrjun seinni heimsstyrjaldar innar var hann yfirmaður flotans í Alexandríu, Miðjarð arhafsflota Breta. Hann réðist snemma í stríðinu inn í höfn- ; ina í Matapan á Ítalíu, þar sem hann sökkti þremur ítölskum beitiskipum og tveimur tundurspillum og skemmdi mörg skip, þannig ' að ítalski flotinn náði sér aldrei eftir það. Næst stjórnaði hann brott- flutningi Bretanna frá Krít sem var talin mikil dirfska. Þegar herstjórn hans varaði hann við að leggja út í hætt- una, svaraði hann þeim með hinum frægu orðum: „Það þarf þrjú ár til að byggja Skip, en það þarf þrjú hundr- uð ár til að byggja upp hefð.“ Frá Alexandríu fór hann til Washington, þar sem hann var formaður brezku flota- nefndarinnar, sem var mynd- uð þar eftir að Bandaríkja- menn drógust inn í striðið 1941. Síðan stjórnaði hann innrás flotans í Norður-Af- ríku. Hann varð síðan full- trúi flotans í herstjórn Banda manna, sem undirbjó og stjórn aði innrásinni í Frakkland, á- samt Allanbrook, sem var full trúi landhersins og Tedder, fulltrúa flughersins. Síðastliðinn laugardag voru gefin saman í hjónaband af séra Árelíusi Níelssyni ungfrú Guð- finna Kristjánsdóttir, kennari, Njörvasundi 35 og Einar Ólafs- son, kennari. Heimili þeirra er að Ölduslóð 46 í Hafnarfirði. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af séra Bjarna Sig- urðssyni, ungfrú Svanhildur Ja- kobsdóttir og Ólafur Gaukur Þór- hallsson. Heimili þeirra er að Bólstaðarhlíð 10. Gefin voru saman í hjónaband í gær, af séra Jóni Auðuns, ung- frú Sigrún M. Ragnarsdóttir og Gísli Árnason, endurskoðandi. Gefin voru saman í hjónaband í gær, af séra Jóni Auðuns, Jón- ína Karlsdóttir og Jakob Óskar Jónsson, skrifstofumaður. Heim- ili þeirra er að Sigluvogi 12. Nýlega hafa opinberað trúlof- un sína ungfrú Guðrún Jónsdóttir Frakkastíg 10, og Hlöðver Dið- riksson, búfræðingur, Kana- um, A-Landeyjum. verður að Hlaðhömrum í Mos- fellssveit. ...með kvöldkaffinu ÞEGAR ÞÉR gistið í Kaup- mannahöfn, getið Jiér lesið Morgunbiaðið samdægurs, — með kvöldkaffinu í stórborg- inni. FAXAR Flugfélags fslands flytja blaðið daglega cg það er komið samdaegurs í blaða- söluturninn í aðaljámbrautar- stöðinni við Ráðhústorgið — Hovedbanegardens Aviskiosk. FÁTT er ánægjule.gra en að lesa nýtt Morgunblað, þegar verið er á ferðalagi vtra eða dvalizt þar. Ódýr vinnuskúr til sölu, Upplýsingar síma 24991. LÍTIÐ HÚS 3 herbergi og eldhús á hæð með góðum iðnaðarkjall- ara, til leigu í Þingiholtun- um. Upplýsingar í síma 34750. Fyrir 17. júní Drengjaskór - Telpuskór — IVIikið úrval — Skóhúsið Hverfisgötu 82. Sími 11-7-88. • Utboð Tilboð óskast í að byggja Rannsóknarstofnun land- búnaðarins á Keldnaholti. Útboðslýsinga og teikn- inga má vitja á skrifstofu Rannsóknarráðs ríkisins Atvinnudeild Háskólans, háskólalóðinni, gegn kr. 2000,00 skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 25. júní n.k. kl. 11:00 f.h. Rannsóknaráð ríkisins. Ibúð 1—2 herb. íbúð óskast sem fyrst, fyrir ein- hleypa stúlku í fastri atvinnu. — UppL í síma 36464 eftir kl. 2 í dag. Heimavinna Stúlkur vanar karlmanna- og dömubuxnasaum óskast. — Einnig vantar stúlku vana kápusaum á verkstæðið. YLUR HF. Skúlagötu 26, III. hæð — Sími 13591. Síldarstúlkur Ráðum síldarstúlkur til Ásgeirsstöðvar, Siglufirði, Óskarsstöðvar, Raufarhöfn og Haföldunnar, Seyðis- firði. Saltaðar voru á þessum stöðvum 31 þúsund tunnur sl. sumar. Stúlkurnar verða flúttar á milli stöðva til að salta sem mest. Upplýsingar gefa Ólafur Óskarsson, Engihlíð 7, simi 12298 og skrifstofa Sveins Benediktssonar, Hafnarstræti 5, sími 14725.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.