Morgunblaðið - 15.06.1963, Side 2
2
MORCUISBLAÐIÐ
Laugardagur 15. júní 1963
Fjölbreytt hátíðahöld
þjóðhátíðard agin
M.a. útiskemmtanir, iþróttasýningar,
ræður og dans á götum úti
AÐ vanda verða fjölbreytt há-
tíðahöld í Reykjavík á þjóffhá-
tíðardaginn, mánudaginn 17. júní,
og verður hátíðahöldunum nær
öllum útvarpað. Hátíðamessa
verður í Dómkirkjunni, útisam-
komur á Austurvelli og Arnar-
hóli og um kvöldið verður stig-
inn dans á þremur stöðum í mið-
bænum, þar á meðal Lækjartorgi.
íþróttamót og sýningar verða í
Laugardal. há verður merki dags
ins selt á götum bæjarins, að
þessu sinni teiknað af Þór Sand-
holt, og táknar landbúnaðinn, en
undanfarin ár hefur merkið verið
gert í anda hinna ýmsu atvinnu-
vega,
Þjóðhátíðarnefnd Reykjavikur
skýrði blaðamönnum frá dagskrá
hátíðahaldanna í gær. Nefndina
skipa Ólafur Jónsson, formaður,
Bragi Kristjánsson, Böðvar Pét-
ursson, Einar Sæmundsson, Reyn
ir Sigurðsson, Jens Guðbjörns-
son, Jóhann Möller Valgarð
Briem og Guðmundur Ástráðs-
son.
Ólafur Jónsson skýrði frá því
að það væri borgarsjóður, sem
bæri kostnað við undirbúning og
framkvæmd hátíðahaldanna. Á
fjárhagsáætlun Reykjavíkurborg-
ar væri gert ráð fyrir 400 þús.
kr. til að standa straum af 17.
júní svo og brennum þeim, sem
bærinn stendur fyrir um hver
áramót.
Hátíðahöldin á mánudaginn
hefjast með því að kirkjuklukk-
um í Reykjavík verður samhringt
kl. 10 f.h., og stundarfjórðungi
síðar leggur forseti Borgarstjórn-
ar, frú Auður Auðuns, blómsveig
frá Reykvíkingum á leiði Jóns
Sigurðssonar.
Kl. 10:30 leika lúðrasveitir
barna og unglinga við Elliheimil-
ið Grund og Hrafnistu.
Hin eiginlegu hátíðahöld hefj-
ast kl. 13:15 með því að fólk safn-
ast saman á þremur stöðum, við
Melaskóla, Skólavörðutorg og
Hlemm, en síðan verður gengið
í skrúðgöngu að Austurvelli með
lúðrasveitir og skáta í farar-
broddi. Kl. 13:45 setur Ólafur
Jónsson, form. Þjóðhátíðarnefnd-
ar hátíðina og síðan verður geng-
ið til kirkju.
í Dómkirkjunni prédikar séra
Bjarni Jónsson, Kristinn Hallsson
syngur einsöng og Dómkórinn
syngur. Organleikari er dr. Páll
ísólfsson.
Að lokinni guðsþjónustu, kl.
14:25, mun forseti íslands, herra
Ásgeir Ásgeirsson, leggja blóm-
sveig frá íslenzku þjóðihni að
minnisvarða Jóns Sigurðssonar.
Lúðrasveitir leika síðan þjóð-
sönginn.
Kl. 14:25 flytur Ólafur Thors,
forsætisráðherra, ræðu af svöl-
um Alþingishússinu og kl. 14:40
verður ávarp Fjallkonunnar flutt,
einnig af svölum Alþingishússins.
Ljóðið, sem flutt verður að þessu
sinni er eftir Gest Guðfinnsson,
Kristín Anna Þórarinsdóttir flyt-
ur.
Kl. 15 hefst barnaskemmtun á
Arnarhóli, sem Klemens Jónsson
stjórnar og kynnir. Þar leikur
lúðrasveit drengja, Þorsteinn
Einarsson, íþróttafulltrúi flytur
ávarp, flutt verður atriði úr Dýr-
in í Hálsaskógi, Baldur og Konni
skemmta, barnakór syngur, stutt
atriði verður flutt úr Pilti og
stúlku, leikþátturinn „Pétur
pylsa og Kalli kúla“ verður flutt-
ur af Bessa Bjarnasyni og Árna
Tryggvasyni og Savannatríóið
syngur.
Oft hefur viljað við brenna
að foreldrar hafi týnt börnum
sínum í mannfjöldanum á úti-
skemmtun 17. júní og hefur því
verið ákveðið að setja upp barna
gæzlu í Alþýðuhúskjallaranum,
þar sem foreldrar geta vitjað
týndra barna sinna. Um kvöldið
verður slík bamagæzla einnig í
afgreiðslu SVR við Lækjartorg.
Kl. 16:15 leikur Lúðrasveit
Reykjavíkur á Austurvelli undir
stjórn Páls Pampichler Pálssonar.
Kl. 16:30 hefjast hátíðahöld á
Laugardalsvellinum með því að
lúðrasveit leikur, en síðan flytur
Baldur Möller, formaður ÍBR
ávarp. Þá verður skrúðganga
skáta og íþróttamanna. Að henni
lokinni verður sýnd glíma, fim-
leikar, akrobatik júdó þjóðdans-
ar og boðhlaup jafnframt því sem
keppt verður í ýmsum frjáls-
íþróttagreinum. Fer keppni og
sýningar fram samtímis. Leik-
stjóri verður Jens Guðbjörnsson
en Atli Steinarsson og Örn Eiðs-
son kynna.
Óþœgilegt að
fá slíka gesti
— en við getum lítið gert, segir flug-
málastjóri um Stig Englund
MBL. átti í gær tal við Agn-
ar Kofoed-Hansen, flugmála-
stjóra, og innti hann eftir því
hverjum augum Flugmála-
stjórnin liti á flug Svíans
Stig Englunds, sem ienti öll-
um að óvörum á Keflavíkur-
flugvelli í fyrradag eftir flug
yfir Atlantshaf með bilað
radíó. —
Agnar sagði að það væri
ekki mikið sem flugmála-
stjórnir gætu gert í málum
sem þessum. Þær væru fyrst
og fremst ráðgefandi, en ekki
lögregla. Flugmálastjórnirnar
gæfu upplýsingar um veður
og önnur flugskilyrði, og
krefðust gagna af flugmönn-
um um flugið. Flugmálastjóm
in íslenzka gerir að sjálfsögðu
þá kröfu til flugmanna á sínu
flugstjórnarsvæði að þeir hafi
radíósamband við hana. En í
því efni hefði Englund þessi
haft afsökun sökum þess að
radíótæki hans hefðu bilað,
þótt að vísu væri skömmu
eftir að hann lagði af stað.
„Hið eina alvarlega í þessu
máli“, sagði flugmálastjóri,
„var að Englund flaug hingað
án þess að hafa flugáætlun.
En hann flaug fyrir neðan
2000 fet, þannig að líkur fyrir
því að hann mætti nokkurri
umferð voru litlar."
Flugmálastjóri ítrekaði að
lokum að flugmálastjórnirnar
væm fyrst og fremst ráðgaf-
andi. „Ef maðurinn vill fljúga
í 50 tima í einni lotu er það
hans mál, og við getum ekk-
ert við því sagt. En svona
heimsóknir em hvimleiðar og
óþægilegt að fá svona gesti.“
Kl. 20 hefst kvöldvaka á Arnar-
hóli með leik lúðrasveitarinnar
Svans. Valgarð Briem, ritari
Þjóðhátíðarnefndar setur kvöld-
vökuna. Lúðrasveitin leikur,
Karlakór Reykjavíkur syngur og
síðan flytur Geir Hallgrímsson,
borgarstjóri, ræðu.
Þá flytur Valdimar J. Líndal,
dómari frá Winnipeg, kveðju frá
Vestur-fslendingum en fjöldi V-
íslendinga er nú staddur hér sem
kunnugt er. Þá verður sunginn
einsöngur og tvísöngur og loks
gamanþátturinn „Konja Ingólfs"
eftir Svavar Gests.
Að kvöldvökunni lokinni hefst
dans á þremur stöðum í miðbæn-
um, á Lækjartorgi, þar sem
Svavar Gests stjómar. í Aðal-
stræti þar sem Ludósextettinn
leikur og í Lækjargötu þar sem
hljómsveit Guðmundar Finn-
björnssonar leikur. Hljómsveit
Björns R. Einarssonar mun leika
til skiptis á öllum stöðunum.
Dansað verður til kl. 2 eftir
miðnætti en þá verður hátíða-
höldunum slitið frá Lækjartorgi.
Þjóðhátíðarnefnd beinir þeim
tilmælum til manna að þeir komi
fram með prúðmennsku og setji
ekki leiðindasvip á hátíðahöldin
með drykkjuskap.
í Morgunblaðinu á morgun,
sunnudag, verður birt auglýsing
frá Þjóðhátíðamefnd, þar sem
hver einstakur dagskrárliður
verður auglýstur nákvæmlega.
Matthías Kjartansson flettir
plötuskrá Philips, sem hann
mun velja úr 100 plötur.
um. Kl. 4 í gær hittu blaða-
menn síðan kaupandann í
skrifstofu Rauða krossins.
Hinn heppni plötukaupandi
reyndist vera Matthías Kjart-
ansson, birgðavörður hjá Raf-
magnsveitu ríkisins, til heim
ilis að Nýbýlavegi 24B. Mattihí
as kvaðst lengi hafa ætlað að
kaupa plötuna en ekki átt leið
niður í bæ. í gær hefði hann
hins vegar þurft að finna
lækni sinn, og komið við í
Fálkanum í leiðinni.
— Eg hafði reyndar lesið
um þetta milljónasta eintak í
blöðunum um moxguninn án
þess raunverulega að veita
því eftirtekt, og fór þess
vegna með plötuna heim án
þess að líta í umslagið.
— Þar tók konan mín við
henni og ætlaði að fara að
leika hana, þegar hún varð
vör við skjalið frá Rauða
krossinum. Eg hélt að hún
væri að gera gys að mér þeg
ar hún sagði mér frá þessu
ÞSSUjónasta platan
seldsst i lyrradag
MILLJÓNASTA eintak All
Star Festival plötunnar sem
Flóttamannastofnun Samein-
uðu þjóðanna gefur út, var
sett hér á markaðinn í fyrra-
dag ásamt 350 öðrum plötum.
Þegar fyrsta daginn seldust
nærri allar plötumar, þeirra
á meðal milljónasta eintakið,
en kaupenda þess hafði verið
heitið hundrað plötum eftir
eigin vali úr plötuskrá Philips
hljómpiötufyrirtækisins.
í gær gaf sig fram maður
á skrifstofu Rauða krossins í
Reykjavík og kvaðst daginn
áður hafa keypt þessa plötu í
hljómplötuvérzluninni Fálkan
— Hefurðu nokkuð hugleitt
hvaða plötur þú ætlar að
kaupa?
— Nei, ég hef ekkert velt
því fyrir mér. Eg hefði fyrir
sjálfan mig mestan áhuga á
einhverri klassik, en það eru
fleiri á heimilinu, svo ég býst
við að það verði sitt af hverju.
Ekki ætlar Rauði krossinn
að láta staðar numið í plötu-
sölunni að svo komnu. Ný
sending er væntanleg í verzl
anirnar á næstunni, Nú þeg-
ar hafa verið seldar hér 1050
plötur, en vafalaust eiga marg
ir enn eftir að koma því í
verk að kaupa hana, sem eru
ákveðnir að fá hana.
-Vi
Skátamót fyrir Suð-Vesturiand
í SUMAR, 4. — 7. júlí munu
skátar úr Skátafélagi Akraness
standa fyrir skátamóti fyrir skáta
af Suðvesturlandi í Botnsdal. Er
mót þetta haldið að tilhlutan
Bandalags íslenzkra skáta, sem
liður í „ferðaárinu", sem nú
stefnt að með auknum ferðalög-
um skáta.
Dagskrá mótsins er í stómrn
dráttum þessi:
Fimmtudagur 4. júlí: Komið á
mótsstað eftir hádegi og tjöld
reist. KI. 20.00 er mótsetning og
síðan varðeldar.
Föstudagur 5. júlí: Fyrir há-
degi eru ýmsar æfingar og keppn
ir í skátaíþróttum og áherzla
lögð á almenna þátttöku. Eftir
hádegi verða gönguferðir á nálæg
fjöll svo sem Botnssúlur
og að Glym hæsta fossi landsins
og í Hvalstöðina. Um kvöldið
verður varðeldur kl. 21.00, en
síðan næturleikir (stuttir) fyrir
þá sem óska.
Laugardagur 6. júlí: Fyrir há-
degi ýmsar æfingar og leikir, en
eftir hádegi hefjast keppnir í
skátaíþróttum og hópsýningum.
Kl. 16.30 heimsóknir almennings
og er óskað eftir að fólik komi
helzt ekki á öðrum tíma. Fara
þá fram ýms hópsýningaratriði.
Um kvöldið kl. 20.30 hefst aðal-
varðeldurinn. Laugardagurinn er
heimsóknardagur ylfinga og ljós
álfa og verður sérstök dagskrá
fyrir þá strax eftir hádegi.
Sunnudagur 7. júlí: Fyrir há-
degi er skátamessa og mun sr.
Guðmundur Þorsteinsson frá
Hvanneyri prédika.
Mótslit fara fram kl. 16.00, en
síðan verða tjöld upp tekin og
haldið heim.
Tjaldbúðimar:
Hinu fagra tjaldbúðasvæði í
kjarrinu í Botnsdal verður skipt
milli þriggja tjaldbúða: drengja-
skáta-, kvenskáta- og fjölskyldu-
tjaldbúða.
í fjölskyldutjaldbúðunum er
ætlast til að eldri skátar, sem
þess óska dvelji ásamt fjölskyldu
sinni ýmist allt mótið eða hluta
af þvL Ættu sem flestir skátar
að nota þetta tækifæri. Þátttöku-
gjald er kr. 50.— fyrir hverja
fjölskyldu og er matur ekki innl-
falinn í því gjaldi, en brauð,
mjólk og fisk verður hægt að
kaupa á staðnum. Fjölskyldu-
búðir voru í fyrsta sinn skipu*
lagðar á landsmóti skáta á Þing-
völlum s.l. sumar og þóttu gefast
mjög vel.
Fyrir skáta er mótsgjald 200
kr. og þá innifalinn mikill hluti
matarefnis og mótsmerki o. fl.
Skátafélög sunnanlands og
vestan eru nú í óða önn að undir-
búa þátttöku sína og jafnvel
víðar að er vonast eftir að skát-
ar komi, því að allir skátar eru
að sjálfsögðu velkomnir í Botns-
dal í sumar, en þar hafa Akra-
nesskátar tvisvar áður haldið vel
heppnuð fjölmenn skátamót eða
1957 og 1960. Það er vonandi að
sem flestir skátar geti notfært
sér það að dveljast í Botnsdal
4. — 7. júlí n.k.
Þátttökutilkynningar sfcáta
berast til viðkomandi foringja,
en þeir senda þær til Sigurðar
B. Sigurðssonar á Akranesi (sím-
ar 512 og 599), sem fyrst.