Morgunblaðið - 15.06.1963, Síða 22
22
MORCVNBLAÐIÐ
Laugardagur 15. júní 1963
Fram vann Val á vítaspyrnu
og hefur forystu
Þófkenndur leikur i gærkvöldi
FRAM tók hreina forystu í fs-
landsmótinu í gærkvöld með
því að sigra Val með 1 marki
gegn engu. Hefur Fram þá 6
stig eftir 3 leiki og er eina liðið
í deildinni sem ekki hefur tapað
lek, Valur og Akranes hafa 4
stig. Alla leiki sína hefur Fram
unnið með 1—0, tvo þá fyrstu
með sjálfsmarki og leikinn í gær
á vítaspyrnu, sem mörgum fannst
Leik KR og
IBA frestað
SAMKVÆMT leikjaskrá um
knattspyrnumótin í ár átti
leikur KR og Akurnesinga að
fara fram á Laugardalsvell-
inum í kvöld kl. 20.
í gær var Mbl. tilkynnt
símleiðis að leiknum væri
frestað og óákveðið mun vera
hvenær hann fer fram. Ástæð
an var sögð sú, að verið væri
að undirbúa völlinn fyrir 17.
júnímótið.
Þjóðhátíðin virðist hafa kom
ið flatt upp á einhverja.
strangur dómur. Má segja að ekki
sé glæsibrag fyrir að fara þegar
svo er um efsta lið deildarinnar.
En það eru mörkin sem telja
— hvernig sem þau eru gerð og
Fram á nú sterkasta möguleika
til titils þó enn sé löng leið
framundan.
★ Þófkendur leikur:
Leikurinn í gær var ekki stór-
brotinn en Framarar áttu þó
sigurinn ef eitthvað var. Sam-
spil þeirra var jákvæðara en Vals
og sérstaklega munaði um það
að framverðir Fram réðu lögum
og lofum á vallarmiðju og byggðu
upp, þar sem aftur á móti fram-
verðir Vals sáust varla í leiknum
og liðið því sundurslitið og bit-
lausara en vonir stóðu til.
Valsmenn höfðu er frá eru
taldar fyrstu mínúturnar þar
sem Fram átti góð marktækifæri,
tögl og hagldir í fyrri hluta fyrri
hálfleiks, enda léku þeir undan
strekkingsivindL En er á leið
hálfleikinn sóttu Framarar sig
er framverðirnir náðu sínum
undirtökum á miðjunni og sóttu
stundum hart að marki Vals.
Þó voru Valsmenn næstum búnir
að taka forystu í fyrri hálfleik
upp úr hornspyrnu — en skallað
var framhjá.
Forysta Fram.
1 síðari hálfleik héldu Fram-
arar undirtökum í leiknum
og á 6. mín. fengu þeir sér
dæmda vítaspyrnu er Balvin
var hindraður inni í vítateign
um. Guðjón Jónsson bak-
vörður skoraði örugglega úr
vítaspymunni og það varð
, eina mark leiksins.
"*ílr á leið náðu Valsmenn aftur
frumkvæði í sínar hendur en
sóknin var máttlausari en skyldi,
bæði vegna þess að stuðning
framivarðanna vantaði og eins
vegna klaufaskapar framherj-
anna.
ýt Liðin.
Beztir í liði Fram voru Guð-
jón bakvörður, sem sjaldan
brást, Hrannar miðvörður og
Baldvin miðherji sem er fljótur
og óvenjulega ákveðinn af ísl.
knattspyrnumanni að vera.
Hjá Val bar vörnin hita og
þunga dagsins en athygli vakti-
Hermann hinn ungi miðherji, sem
ber sig vel að og gerir margt
laglega en skortir hörku í skot
sín. — A.St.
Úlfar Teitsson er einn hinna efnilegustu frjálsíþróttamanna. Ilann
hefur nú tvívegis sigrað í langstökki. Ljósm. Mbl. Sv. Þ.
Jóhann Eyjólfsson
Ólafsson berjast
og Olafur Ág.
um sigurinn
Sá heppni fœr
híl á þriðjudag
i firmakeppni i golfi
SNEMMA á þriðjudagsmorgun-
inn fær einhver heppinn íslend-
ingur nýja og glæsileg-a bifreið
— og getur sótt hana sama dag
og notið sumars og framtíðarinn
Joson-Clork
keppnin í golíi
Á SUNNUDAGINN verður háð
á golfvelli Golfklúbbs Reykja-
víkur í Grafarholtslandi ein af
stærri forgjafarkeppnum G.R.
Hefst keppnin laust upp úr átta
og eru leiknar 18 holur fyrir
hádegi og 18 eftir hádegi. Þessi
36 holu keppni er háð um styttu,
sem nokkrir velunnarar golf-
íþróttarinnar á Keflavíkurflug-
velli gáfu G.R., til minningar um
látinn félaga, sem fórst af slys-
förum hér á landi.
Þó hér sé um forgjafarkeppni
að ræða má af henni marka í
hve góðu formi félagar í G.R.
eru, en nú er aðeins þrjár og
hálf vika í landsmótið en það
fer fram á Akureyri dagana 11.
til 14. júlí n.k. Þess skal sér-
staklega getið, að öllum er
heimill ókeypis aðgangur, að
golfvellinum á sunnudaginn.
ar með öllum þeim kostum og
hlunnindum sem því fylgir að
eiga bíl.
Þennan mor.gun verður dregið
í bílhappdrætti því sem skíða-
deild íþróttafélags Reykjavíkur
hleypti af stokkunum til að losna
úr skuldum og Ijúka við bygg-
ingu eins glæsilegasta skíðaskála
sem reistur hefur verið hér á
landi. Margir hafa heimsótt skál
ann og allir ljúka upp einum
munni um bygginguna sjálfa og
staðsetninguna í einhverju bezta
skíðalandi umhverfis Reykjavík.
Það er mikið átak fyrir lítinn
félagshóp að reisa slíka bygg-
ingu sem kostar um 1,5 millj kr.
Það er líka mikið átak fyrir slík
an hóp að efna til bíthappdrætt
is á 5 vikum. En IR-ingar hafa
oft sýnt að þeir geta vel einbeitt
sér að verkefnunum. 0,g nú er
lokasóknin hjá þeim hafin. Þeir
heita á alla sem styðja vilja IR
og alla sem styðja vilja að auk
inni og bættri aðstöðu fyrir ,<kíða
íþróttina að draga ekki að kaupa
miða. Menn slá margar flugur í
höggi við hver miðakaup — og
einhver verður svo heppinn að fá
nýja glæsilega Renault-8 bifreið
fyrir andvirði eins miða.
Miðarnir eru seldir í happ-
drættisbifreiðinni sem alltaf er
þar sem fólk er flest samankom-
ið. Einn liður þjóðhátíðarinnar
hjá íþróttaunnendum gæti verið
að stuðla að vexti. ag viðgagi
skíðaíþróttanna með því að
freista gæfunnar í happdrætti
skíðadeildar IR, en þjóðhátíðar-
dagurinn er síðasti söludagurinn.
FIRMAKEPPNI Golfklúbbsins
hefur aldrei verið eins umfangs-
mikil og nú. 270 firmu tóku þátt
í henni og er nú svo komið að
aðeins tveir meistarar eru ósigr-
aðir, þeir Jóhann Eyjólfsson sem
leikur fyrir Mars Trading og Ól-
afur Ág. Ólafsson sem leikur
fyrir bifreiðastöð Steindórs. ÍJr-
slitin verða í dag og má búast
við góðum leik og harðri keppni
því keppnin hefur verið mjög
Meistararnir sem berjast Jóhann
Eyjólfsson og Ól. Ág. Ólafsson.
jöfn og skemmtileg fram til
þessa.
Á miðvikudagskvöldið hélt
firmakeppnin áfram og fóru leik-
ar, sem hér segir:
Mars Trading Company vann
Regnbogann s.f., Þvottahúsið
Bergstaðastræti vann Verzlunina
Þrótt, Bifreiðastöð Steindórs
vann Efnagerðina Val, og Ottó
Michelsen vann Vátr. Sigfúsar
Sighvatssonar.
Jóhann Eyjólfsson lék sinn
bezta leik í sumar, setti vallar-
met fyrir 9 holur, eins og þær
eru núna, og gjörsigraði Gunnar
Þorleifsson. Gunnar var 6 holur
„niður“ eftir 9 og átti úr því
aldrei neina von.
Albert Wathne sigraði meist-
arann Ingólf Isebarn eftir harðan
og skemmtilegan leik.
Ólafur Ág. Ólafsson rétt marði
Þorvarð Árnason eftir framlengd
an leik. Keppnin millj þeirra var
frá upphafi til enda mjög spenn-
andi.
Ólafur Hafberg vann íslands-
meistarann Ottar Yngvason eftir
jafnan leik.
Á fimmtudagskvöldið fóru
fram undanúrslit í firmakeppn-
NORRÆNA Sundkeppnin hefur
nú staðið í mánuð. Af 74 sund-
stöðum hefur verið synt í 52.
Þessa daga er verið að hefja
starfrækslu hinna 22.
Á þeim 4 vikum sem liðnar
eru af keppninstímabilinu munu
um 13 þúsund íslendingar hafa
synt eða um 31% þess fjölda,
sem þarf til þess að þátttaka
Islands aukist um 50% frá grund
vallartölu þeirri (28088), sem
okkur er gert að ná.
Viðhorf almennings til keppn-
innar hefur verið ágætt. Sund-
iðkanir hafa aukist og þátttak-
an í keppninni fram að þessu
mun betri en hún var 1960. I
Reykjavík hafa þegar synt 200
metrana um 7000 borgarar en
þar syntu 1954 rúml. 16 þúsund.
Á Akureyri hafa þegar synt 11%
íbúanna og í Vestmannaeyjixm
inni og fóru leikar, sem hér seg-
ir:
Jóhann Eyjólfsson (Mars Trad-
ing) vann Albert Wathne (Þvotta
húsið) og Ólafur Ág. Ólafsson
(Bifreiðastöð Steindórs) vann
Ólaf Hafberg (Óttó Michelsen).
Eftir þessi undanúrslit standa
tveir „meistarar" einir ósigraðir,
Jóhann Eyjólfsson ( Mars Trad-
ing Co) og Ólafur Ág. Ólafsson
(Bifr.st. Steindórs). Úrslitakeppn
in verður í dag á hinum nýja
velli Golfklúbbs Reykjavíkur I
Grafarholti. Keppnin hefst upp
úr hádeginu í dag og má búast
mjög harðri keppni, því báðir
eru keppendurnir reyndir kylf-
ingar með meistaratitla og eru
báðir í góðri þjálfun nú.
um helmingur þess fjölda, sem
syntu 1960, en þá syntu fleiri
200 m en í nokkurri annarri
Norrænni Sundkeppni.
Nú þegar allir sundstaðir verða
opnir til afnota er vonandi að
íbúar í næsta nágrenni við þá
noti sem fyrst tækifærið til þes3
að iðka sund og synda 200 metr-
ana, því að sumir þessara sund-
staða eru aðeins opnir í 3—5
vikur.
Haldi sú góða þátttaka áfram,
sem hefur verið til þessa, munu
auðveldlega nást 42 þús. þátttak-
endur, en sá fjöldi mun færa
íslandi þá aukningu, sem erfitt
verður fyrir hinar Norðurlanda-
þjóðirnar að komast fram úr,
Framk væmdan ef nd
Norrænu Sundkeppninnar.
Fyrstu 4 vikurnar
auka sigurvonirnar