Morgunblaðið - 30.06.1963, Side 23
Sunnudagur 30.iúní 1963
TMORGVHBLAÐ1Ð
23
Herdís Jónsdóttir - Minnigarorö
HINN 23. þ. m. andaðist hér í
Reykjavík frú Herdís Jónsdóttir.
Hún var fædd 6. júlí 1884, og
hefði því orðið 79 ára að aldri
hinn 6. næsta mánaðar, ef henni
hefði orðið lífs auðið. Foreldrar
hennar voru Valgerður Jóhanna
Jónsdóttir í Skipholti Ingimund-
arsonar og Jón Sveinbjörnsson,
bóndi á Bíldsfelli í Grafningi.
Ólst hún upp í Bíldsfelli. 10. okt.
1908 giftist hún Sigurði Odds-
syni, sem lengi var skipstjóri og
síðar hafnsögumaður hér 1
Reykjavík. Hann andaðist 9.ap-
ríl 1942. Bjuggu þau hjón, með-
an samvistir entust, í húsinu nr.
30 við Laugaveg, og eignuðust
8 börn. Nöfn þeirra eru: Stein-
unri, Jón, Elín (dáin), Oddur,
Þórleif, Sveinbjörn, Málfríður
Andrea og Sigríður Herdís.
Sá, sem þessar línur ritar,
kynntist Herdísi Jónsdóttur að
vísu ekki mikið, en nóg til þess
að kunna að mestu ýmsa góða
kosti í fari hennar og skapgerð-
areiginleika. Hún var kona skap-
mikil, tíguleg í framkomu og var
yfir henni reisn eigi alllítil, svo
að segja mátti að sópaði af henni,
eins og stundum er komizt að
orði. Hún var hreinlynd og hrein
skilin og sagði jafnan meiningu
sína skýrt og skorinort, hver sem
í hlut átti. Samt þoldi hún illa
óhróður um náungann, og vék
jafnan talinu að öðru, þegar last-
yrði um fjarstadda menn tóku að
falla í návist hennar. Það var og
eitt einkenni hennar, að er börn
hennar uxu úr grasi og stofnuðu
sín eigin heimili, taldi hún sér
skylt að leyfa þeim að lifa eigin
lífi og vildi ekki koma þar mik-
ið við sögu, en það hendir suma
foreldra, eins og kunnugt er, að
vilja hafa of mikil afskipti af
börnum sínum fullorðnum og
högum þeirra. Sýnir þetta heil-
brigðan hugsunarhátt þessarar
konu, sem þó mun í eðli sínu
hafa verið stjórnlynd nokkuð og
stórráð.
Eins og títt er um þá menn,
er tilheyra skapgerðarflokki Her
dísar, sýndi húr oft sína beztu
hlið, þegar erfiðleika bar að
höndum og eitthvað reyndi á.
Komu þá raungæði hennar í ljós.
Þannig tók hún að sér uppeldi
tveggja barna dóttur sinnar (El-
ínar), er hún var burtu kvödd
úr þessum heimi. í stuttu máli
má segja, að Herdís hafi tilheyrt
hinum góða, gamla „skóla“ ís-
lenzkra eiginkvenna og hús-
mæðra, er lifðu fyrir heimili sín
og fjölskyldu og áttu þar bæði
sinn heim og himin.
Nokkur kynni hafði ég af
manni Herdísar, Sigurði Odds-
syni, hafnsögumanni. Hann var
ólíkur konu sin:.i og að sumu
leyti algjör andstæða, — ljúfur
maður í viðmóti, gleðimaður, en
þó við hóf. — Samt var hjóna-
band þeirra með ágætum, og get-
ur svo jafnan orðið, þar sem ólík-
um lyndiseinkunnum er ekki att
saman til orustu, heldur kennt
að vinna saman og bæta hvor
aðra upp.
Og nú er þessi svipmikla kona
gengin „veg allrar veraldar."
Hún hafði lokið myndarlegu dags
verki og hvergi níðst á því, er
henni var til trúað. Það er ætl-
un vor margra, að gott sé slíkum
mönnum úr heimi að hverfa.
Gretar Fells.
Fædd 6. júlí 1884.
Dáin 23. júní 1963
Af konum fara litlar sögur.
Mönnum yfirsést oft yfirlætis-
laus hetjuskapur unninn dag eft-
ir dag alla ævina, innan veggja
heimilisins, þolinmæði, iðjusemi,
góðvild — og af öllu þessu er
góðvildin mest og það sem gefur
lífinu mest gildi.
í Geografisk Tidsskrift 9. bindi
1887 er lýsing A. Feddersen á
Reyniviðarhríslunni á Bíldsfelli
í Grafningi, sem einna frægust
var hér á landi fyrir hæð og feg-
WRANGLER
Buxurnar
1. Ósvikin Western
snið.
2. Framleiddar úr hinu
sterkofna 133/4 OZ
Sanforized Denim.
S. Styrktarsmellur á öll-
um vasaendum.
4. Framleiðslugæði eru tryggð
frá hinum þekktu Blue Beil
verksmiðjum í Bandarikj-
unum.
5. Allar stærðir fáanlegar.
VINNUFATABÚÐIN
REYKJAVÍK
Verzlun
BJÖRNS GUÐMUNDSSONAR
V estmannaey jar
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA
Keflavík, Sandgerði.
VERZLUNIN ÁSGEIR
Siglufirði
VERZLUNIN SKEMMAN
Ólafsvík
urð. Hæð hennar var 19 fet og
stóð hún í brekku austan í svo-
nefndri Sauðhúsahæð. Upp af
rótinni komu 8 stofnar.
Líkt og fjöllin gefa sveitunum
svip, fá byggðamenn einatt svip
umhverfis og æskustöðva. Heil-
steyptar og glæsilegar persónur
rísa upp úr láglendi hvers-
dagslifsins og ein þeirra var Her
dís Jónsdóttir.
Herdís var dóttir þeirra Val-
gerðar Jónsdóttur, Ingimundar-
sonar í Skipholti og Jóns Svein-
björnssonar á Kluftum í Ytri-
hrepp í Árnessýslu. Hún ólst upp
á Bíldsfelli hjá föður sínum Jóni
Sveinbjörnssyni og stjúpu sinni
Málfríði Kolbeinsdóttur við
venjuleg kjör á sveitarheimili,
þar sem allir vinna og allir vinna
saman. f ytra skilningi var lífs-
saga hennar alveg samhljóða
sögu þúsunda annarra góðra
kvenna í landinu. Hún vex á
þeim tíma, þegar konum var
bæði með lögum og venjum
varnað alls náms og váxtarskil-
yrða, nema þeirra sem heimilin
og vinnan veittu.
Hin góðu áhrif heimanað bar
hún inn á sitt eigið heimili er
hún árið 1908 giftist Sigurði
Oddssyni, skipstjóra og síðar
leiðsögumanni dönsku varðskip-
anna hér við land. Eignuðust
þau 8 börn og eru sjö þeirra á
lífi, öll gift og búsett hér í bæn-
um. Þau eru: Steinunn gift Gunn
ari Hall, Jón giftur Ástríði Jóns-
dóttur, Oddur giftur Guðfinnu
Björnsdóttur, Þórleif gift Hirti
Jónssyni, Sveinbjörn giftur
Helgu Kristinsdóttur, Málfríður
gift Herði Þorgilssyni, Herdís
gift Sveini Finnssyni. Elín dóttir
þeirra hjóna var búsett í Dan-
mörku og gift Axel Bisp og eru
þau bæði látin fyrir mörgum ár-
um, en tvö börn er þau áttu,
Nanna og Niels ólust upp hér
heima hjá ömmu sinni. Mann
sinn missti Herdís árið 1942 er
hann fórst með norsku skipi. Var
hann leiðsögumaður þess hér við
land, en það fórst á tundurdufli
út af V,estfjörðum. Barnabörn
Herdísar og Sigurðar eru orðin
25 og barnabarnabörn 8.
f bæ eins og Reykjavík á þeim
tíma, sem börn Herdísar og Sig-
urðar ólust upp var starf hús-
móður með stóran barnahóp þrot
laus vinna. Það kom heimilinu
því að miklu liði hve dugmikil
og óvenjulega fjölhæf Herdís var
til allra starfa og var þess enn
meiri þörf þar sem maður henn-
ar vegna starfa síns var fjarver-
andi um lengri eða skemmri tíma.
Einnig var hún þeim móðurlega
eiginleika gædd, að henni var
auðvelt að skilja og ná þeim á-
hrifum á börnin að þau elskuðu
hana og virtu samfara góðum
uppeldisáhrifum. Áhrif hennar
urðu þeim gott veganesti til full
orðinsáranna. Sama gildir um
tengdabörn hennar og barnabörn,
sem kveðja hana með söknuði,
en þó í þeirri vissu, að þannig
Ijúki fögru lífi. Persóna hennar
og saga verður þeim ávalt falleg
endurminning.
Sjálf gekk hún örugg til móts
við hið óráðna í trúnni á Guð
vors lands — á lands vors Guð.
Gunnar Hall
ÞEGAR Herdís Jónsdóttir hverf-
ur af sviði okkar jarðarbarna
þá lætúr að líkum að þeir, sem
henni voru kunnugastir láta hug-
ann reika yfir farinn veg.
Ég þekkti hana í 30 ár. Ég ber
til hennar mikinn góðhug og
liggja margfaldar ástæður til
þess. Hennar vegna þarf ég ekki
að lýsa hug mínum til hennar í
blaðagrein, en það eru margir
sem þekkja hana minna eða ekk-
ert og þessi kona var slík, að ef
mér tækist að bregða upp örlítilli
svipmynd af henni, sannri svip-
mynd, þá gæti það orðið ein-
hverjum til gagns að lesa.
Ég tel að hún hafi verið um
margt fyrirmyndarkona. Fyrir
nálega 30 árum kom ég fyrst á
heimili þeirra hjóna Herdísar og
Sigurður Oddssonar, hafnsögu-
manns. Heimilið var stórt, börn-
in mörg, myndarbragur og reisn
yfir öllu. Vegna starfa Sigurðar
á sjónum lentu búsáhyggjurnar
mest á húsmóðurinni. Það var
mikið starf, en Herdís var alin
upp í hörðum skóla, svo sem títt
var um það leyti, sem hún ólst
upp, og hún stjórnaði heimilinu
af meðfæddum skörungsskap og
rausn. Þótt maður hljóti að dást
að því hversu geysilegu starfi
þessi kona gat afkastað í þágu
heimilis og barna, þá verður mér
nú, á þessari kveðjustund, ennþá.
starsýnna á ýmislegt annað í fari
hennar, gott og fagurt. Hún átti
8 tengdabörn, sem öll virtu hana
og þótti vænt um hana. Ég hygg
að þar hafi aldrei borið nokk-
urn skugga á. Þetta eitt segir
æði mikla sögu af þessari konu.
Hún var mikil búkona, hrein-
lynd og höfðingi að eðlisfari.
Hún hlustaði aldrei á hallmæli
um nokkurn mann og hafði í
heiðri fornar dyggðir. Hún var
góðviljuð og sterk. Þessi áhrif
fylgdu börnunum, sem vorú sam-
hent og komu oft til hennar á
bernskuheimilið. Þar var hátt
undir loft og vítt til veggja. Þar
bauð hún okkur veizlu, bein í
baki og tíguleg. Þannig mun ég
minnast hennar alla stund. Her-
dísi Jónsdóttur fylgir góður hug-
ur margra manna. Veit nokkur
betra nesti í þessa ferð?
Hjörtur Jónsson.
Kventöskur
og veski
frá Englandi
Tökum upp í fyrramálið
stórkostlegt úrval af
Kventöskum
og Veskjum
frá Englandi.
50 — 60 tegundir og litir.
Skoðið gluggaútstillingu
8KÓVAL
Austurstræti 18, (Eymundssonarkjallara).
Ódýrir
Karlmannaskór
Frá Póllandi
Seljum á morgun og næstu daga.
Ódýra
Karlmannaskó
gataða með gúmsóla. Mjög vandaðar gerðir.
Verð aðeins kr: 265.— og 269.—
Karlmannasandalar
með svampinnleggi í sóla. — Verð aðeins kr: 187.— '
Skóbúð Austurbæjar
Laugavegi 100.