Morgunblaðið - 04.10.1963, Side 23
Föstudagur 4. ökt. 1963.
MORCUNBLADIÐ
23
— S. /. B. S.
Framh. af bls. 3
kollinum aftur, og um þetta
segir Dr. Sigurður Sigurðs-
son, landlæknir, m. a. £ blað-
inu Reykjalundi, sem út kem
ur um helgina' : *
„Á um það bil 30 árum hef-
ur berkladauðinn lækkað um
99 af hundraði, og er það
meiri og þó einkum hraðari
árangur en annars staðar
þekkist. Skráðum berklasjúkl
ingum hefur fækkað mjög, en
þó ekki að sama skapi. Aðeins
lítill hluti sjúkrarúma berkla
hælanna er nú notaður fyrir
berklasjúklinga, og á öðrum
sjúkrastofnunum dvelja þeir
örsjaldan. Nýsmitun meðal
barna og unglinga er orðin
fátíð miðað við það, sem áður
gerðist, enda fækkar smitandi
berklasjúklingum ár frá ári.
En þrátt fyrir allan þennan
góða árangur tel ég mér enn
skylt að bera fram varnaðar-
orð. Smitunar- og sýkingar-
hætta er enn fyrir hendi í
þjóðfélaginu. Hún þarf ekki
að minnka að sama skapi, sem
smitunaruppsprettum fækk-
ar, því að jöfnum höndum
eykst þá fjöldi þeirra, sem
næmir eru fyrir veikinni.
Hver uppspretta getur því
valdið margföldum usla á við
það; sem áður var. Andvara-
leysi í berklavörnum þjóðar-
innar gæti því haft hinar alv-
arlegustu afleiðingar: Höfum
ávallt hugfast, að berklaveik-
inni hefur ekki verið að fullu
útrýmt, meðan einstaklingar
eru til í landinu, sem smitazt
hafa af berklaveiki".
Íkróttir
— Svipmyndir
Framh. af bls. 8
svarar, „Minn Guð neytir þó
matar“. Hann var vanur að færa
honum mat, setti hann ávallt við
fótstallinn. Rétt sem hann segir
þetta, kemur sólin upp. Konung-
ur bendir á hana og segir, „Þetta
er minn Guð“. Síðan snýr hann
sér að líkneskinu og slær það
þungu höggi. Hleypur þá undan
því aragrúi af rottum. „Þetta er
þinn Guð, Guðbrandur", segir
hann og bendir á rotturnar. Nú
hlaupa bændur til og ætla að
komast brott á bátum sínum, en
komast hvergi. Allir bátarnir eru
hriplekir. Gefast þeir þá upp og
konungur þvingar þá til að taka
skírn til kristinnar trúar.
Á meðan bifreiðin heldur á-
fram eftir ríkisvegi norður á
bóginn yfir Dofrafjöllin sem eru
1026 metra yfir sjávarmál, fer
hugur minn gandreið um óra-
vegu„ og hvert sem augað lítur
blasa við hinar fegurstu myndir
í öllum áttum.
Hugrún
— Honduras
Framh. af bls. 1
nefnd bandalagsins dvalizt í
Tegucigalpa, og átti nefndin að
gera tillögur um ný kosningalög
í landinu.
SÍÐUSTU FRÉTTIR:
Formaður sendinefndar Banda
lags Ameríkuríkja, Victor F.
Goytia, sem nú dvelzt í Teguci-
galpa, skýrði frá því í símtali í
kvöld, að skothríð hefði heyrzt
á götum borgarinnar. Mætti
telja, að ekki færi byltingin jafn
friðsamlega fram, og byltingar-
menn vildu vera láta.
Fréttir, sem bárust í kvöld frá
fulltrúum „United Fruit Comp-
any“, voru á sömu leið.
Framh. af bls. 22
fimi í leikfimisal Breiðagerðis-
skólans í vetur, eins og undan-
farið, og hefur aðsókn verið
geysimikil. Kennari verður Hall-
dóra Árnadóttir, sem kennt hef-
ur frúaflokknum við miklar
vinsældir. Æfingatímar verða
mánudaga og fimmtudaga kl.
8.15-9 s.d. Kennsla hefst n.k.
mánudag.
Old boys
í vetur verða einnig æfingar
hjá „old boys“-flokki á vegum
Ármanns. Æft verður á þriðju-
dögum og föstudögum kl. 9-10
s.d. í íþróttahúsinu við Lindar-
götu.
Drengir
Þá tekur fimleikadeild Ár-
manns upp það nýmæli að koma
á fimleikaæfingum fyrir unga
drengi. Kennt verður í leikfim-
isal Laugarnesskólans, og verð-
ur Skúli Magnússon kennairi.
— Hækkerup
Framh. af bls. 1
ur séu á þeirri skoðun, að snúa
eigi inn á jákvæðari brautir, að
því er viðkemur höftum og bönn
um. Er Hækkerup sagður hafa
haldið því fram, að grípa þurfi
til annarra ráða en banna — sem
ekki hafi reynzt óbrigðul — til
þess að stuðla að því, að á fót
verði komið í Suður-Afríku þjóð
félagi, sem laust sé við kynþátta-
hatur. Jafnrfamt taldi Hække-
rup, að nauðsyn bæri til þess,
að S.Þ. gerðu ráðstafanir til að
tryggja frið og ró í Suður-Af-
ríku, meðan á óhjákvæmilegum
þjóðfélagsbreytingum stæði.
• Frá því var skýrt síðar í dag,
að formaður sendinefndar Kongó
lýðveldisins, Theodore Idzim-
buir, hafi lýst því yfir við blaða-
menn, að tillögur Norðurland-
anna væru þess virði, að þær
yrðu athugaðar nánar.
• Utanríkisráðherra Nígeríu,
Jaj Washuku, lýsti tillögunum á
þann hátt, að þær væru athyglis-
verðar, en lagði á það áherzlu,
að mikið væri undir því komið,
hvernig Suður-Afríka og helztu
viðskiptalönd þess litu á málið.
Það er loks haft eftir frétta-
mönnum í dag, að Hækkerup
hafi sagt Norðurlönd einhuga um
nauðsyn myndunar sérfræðinga-
nefndar (þjóðfélagsfræðinga o.
fl.), sem unnið gæti að lausn
þeirra vandamála, sem óhjá-
kvæmilega muni segja til sín,
verði breytt um þjóðfélagshætti
í Suður-Afríku.
• Hermt var í kvöld, að fyrir
dyrum stæði fundur Halvard
Lange, utanríiksráðherra Norð-
manna, og Lord Home, utanrík-
isráðherra Bretlands. Haft er eft-
ir mjög áreiðanlegum heimild-
um, að brezku fulltrúarnir hjá
S.Þ. hafi lagzt gegn tillögum
Norðurlandanna.
— Ben Bella
Framh. af bls. 1
Ben Bella setti E1 Hadj frá em-
bætti, þótt hann hafi verið leið-
togi skæruhermanna, er Alsír
barðjst fyrir frelsi.
Ben Bella hefur nú tekið öll
völd, skv. grein 59 í stjómar-
skrá landsins. Þar segir, að for-
setanum beri að gera þær ráð-
stafanir, sem nauðsynlegar eru,
til þess að tryggja sjálfstæði
þjóðarinnar, sé um að ræða yf-
irvofandi hættu.
Er forsetinn hafði flutt ræðu
Unglingstelpa
óskast til sendiferða á skrifstofu vora.
sína í þinginu í dag, báru 13
fulltrúar frá Kabýlíu fram frum
varp, sem var einróma sam-
þykkt. Þar sagði, að nauðsyn
bæri til þess, að eining héldist
í Alsír. Myndu allar uppreisn-
artilraunir, sem mjðuðu að því
að rjúfa þessa einingu, mistak-
ast. í frumvarpinu var jafn-
framt tekið fram, að ekki skyldi
beita valdi til þess að leysa
það vandamál, sem nú er glímt
við. »
Ejnn þingfulltrúa Kabýlinga,
Areski Hermouche, sem nú hef-
ur snúið baki við Ben Bella,
skýrði frá því í dag, að til bar-
daga hafi komið milli stjórnar-
hermanna og uppreisnarmanna.
Sagði hann bardagana hafa átt
sér stað undanfarinn hálfan
mánuð, og hefðu uppreisnar-
menn oft afvopnað andstæð-
inga sina.
Annar þingmaður, sem tekið
hefur höndum saman við upp-
reisnarmenn, Mourad Ouss-
edik, sagði í Miahelet í dag, að
mikil eining ríkti í Kabýlíu um
málstað uppreisnarmanna. Sagði
hann uppreisnarmenn einnig
eiga fylgi að fagna meðal stjórn
arhermanna.
Frumvarp þingfulltrúa Kabýl
íu er talinn mikill sigur fyrir
Ben Bella, sem talinn er hafa
sýnt stjórnvizku, er hann lýsti
því yfir, að hervald yrði ekki
vopn stjórnarinnar í baráttunni.
Engin staðfesting hefur feng-
izt á fréttum um bardaga.
stolið
í FYRRADAG kom til Reykja-
víkur stór, yfirbyggður vöru-
flutningabíll utan af landi. ók
bílstjórinn víða um bæinn og af-
fermdi vörur, en læsti síðan
bílnum um nóttina. I gærmorgun
hóf hann enn að afferma, en
uppgötvaði þá, að poki með
TVz kg af hreinsuðum dún var
horfinn. Er hér um allmikið
verðmæti að ræða því kíló af
dún mun kosta 1500—1800 kr.
Pokinn var merktur Kaupféiagi
Borgfirðinga, Borgarnesi. Ef ein-
hverjir skyldu geta gefið upplýs-
ingar um mál þetta, eru þeir
vinsamlegast beðnir að gera rann
sóknarlögreglunni aðvart.
„Jólaös“
í bókabúðum
ÞAÐ hefur verið eins mikil
og jafnvel meiri — ös í bóka-
búðum nú síðustu dagana og |
mest gerizt á Þorláksmessu.
Viðkiptavinir bóksalanna i
hafa þessa daga aðallega ver- ‘
ið skólafólk á öllum aldri og \
mest ber þar á barnaskóla-'
fólki, enda fjölmennast.
Svcinn Þormóðsson tók)
mynd í Bókaverzlun,
Isafoldar í Austurstræti í)
Verzlunarstjórinn, Sig-
gær
ríður Sigurðardóttir, sagði að
sérstaka athygli verzlunar-
fólksins hefði vakið hve ung-
lingarnir voru kurteisir og
prúðir. Allir hefðu skilið
vanda afgreiðslufólksins og
beðið rólegir. Fólkið hefði
haft ánægju af að afgreiða
unga fólkið.
iriitiiþJWbiþ
Morgunblaðið vantar nú þegar duglega krakka, unglinga eða
eldra fólk til blaðadreifingar víðs vegar í Reykjavík.
í þessi hverfi í Vesturbænum:
FÁLKAGÖTU - HRINCBRAUT vestanverða
SÖRLASKJÓL BRÆÐRABORCARSTÍG og HACAMEL
í þessi hverfi í Austurbænum:
CRETTISGAT A innanverð — HVERFISCATA
innanverð — SKEGCJ AGAT A — LAU FÁSVEG
LAUCAVECINN innanverðan og SKÚLACÖTU
1 Ennfremur í þessi hverfi:
KLEPPSVECUR - EFSTASUND - KLEIFARVEG
HERSKÓLAKAMPUR við Suðurlandsbraut
LAUGATEIGUR - LAUGARÁSVEGUR -
GODHEIMA - LANGAGERÐI -
LANGHOLTSVEG milli 1 - 108
Talið við Morgunblaðið strax. Sími 22480.