Morgunblaðið - 11.10.1963, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.10.1963, Blaðsíða 3
Föstudagur ' - rí*rt ' ' ■ ' 11. okt. 1963 ^ MORGUNBLAÐIÐ — Alþingi Framh. af b'ls. 1 Upp úr kl. 1 tóku alþingismenn að safnast saman í anddyri þinghússins og kl. hálf tvö var gengið í fylkingu til kirkju. Fyrstur fór forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, ásamt biskupi, herra Sigurbirni Einarssyni. Því næst þeir Ólafur Thors forsætis- ráðherra og séra Óskar J. Þor- láksson og svo aðrir ráðherrar og alþingismenn. Dómkirkjuprestur hóf ræðu sína með því að minnast á það, að kristindómurinn hefði ákveð- inn boðskap að flytja mönnum, boðskap trúar og kærleika, fagn- aðarerindi sem fæli í sér lykil til lausnar á vandamálum einstakl- inga og þjóða. Og þennan boð- skap kvaðst hann vilja flytja Ólafur Thors, forsætisráðherra, aldursforseti A Iþingis, stýrir fundi þingsins í gær. Ritarar eru Ólafur Björnsson og Gísli Guðmundsson. — Ljósm. Mbl.: Sv. Þ. mættu vera þjóðinni til gæfu og gengis. Að svo mæltu bað hann þingheim að rísa úr sætum og minnast fósturjarðarinnar. Þingmenn risu á fætur og Ól- afur Thors forsætisráðherra mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. ísland lifi“. Tóku þingmenn undir með ferföldu húrrahrópi. Forset- inn bað síðan Ólaf Thors að taka við fundarstjórn, en sam kvæmt I. gr. þingskapa ber aldursforseta að stjórna þing- fundi, þar til kosning forseta Sameinaðs þings hefur farið fram. — Voru síðan Ólafur Björnsson, 2. þingm. Rvík, og Skúli Guðmundsson, 1. þingm. Norðurlandkj. vestra, skipað- ir þingskrifarar. Var þing- mönnum því næst skipt niður í þrjár kjördeildir til rann- sóknar á kjörbréfum og fundi síðan frestað til kl. 1.30 í dag. Þrír þingmenn taka nú sæti á Alþingi, sem ekki hafa set- ið þar áður. Það eru þeir Matthías Bjarnason, 2. lands- kjörinn þm., Ragnar Arnalds, 5. landskj. þm., og Sverrir Júlíusson, 7. landskj. þm. Forseti fslands, biskupinn yfir íslandi, sr. Ósk ar J. Þorláksson, dómkirkjuprestur, ráðherrar og þingmenn ganga úr kirkju til Alþingishúss ins. með orðum postulans úr 13. versi 16. kapítula I. Korintu- bréfs: „Vakifj, standið stöðugir í trúnni, verið karlmannlegir, ver- ið styrkir, allt hjá yður sé í kær- leika gert“. Hann minntist á hve ríki og kirkja væru samgrónari hér á landi heldur en víða annars- staðar. Og þar sem Alþingi réði mörgum þeirra málum, er kirkj- una varða væri nauðsynlegt að velvilji og skilningur á gildi kristnidómsins og starfi kirkj- unnar væri fyrir hendi á Alþingi. Slíkur skilningur og traust af hendi Alþingis hefði meðal ann- ars komið fram með afhendingu Skálholtskirkju á síðastliðnu sumri. Bar hann fram þá ósk að þessi atburður mætti verða upp- hafið að meira sjálfsforræði kirkjunni til handa í samvinnu við ríkisstjórn og Alþingi. Að lokum vitnaði hann aftur í orð postulans, sem hann nefndi í upphafi ræðu sinnar og kvað það ósk sína til þingmannanna að störf þeirra mættu mótast af þeim orðum. Að lokinni guðsþjónustu hófst fundur í Alþiligishúsinu, með því að forseti íslands las upp foi’setabréf frá 16. sept- ember sl. um, að Alþingi skyldi koma saman til fundar hinn 10. október. Samkvæmt bréfi þessu lýsti hann síðan því yfir, að Alþingi íslend- inga væri sett. Árnaði forseti síðan þingmönnum allra heilla á komandi þingi og bar fram þá ósk að störf þeirra Frá fundi Alþingis í gær. olli nokkurri rigningu eða slyddu á SV-landi. Að öðru leyti var stillt veður og fag- urt um allt land. Suðvestur í hafi er allkröftug lægð, sem virðist hreyfast hratt norður hún fer hér framhjá. Há- þrýstisvæði mikið er yfir Bisk ayaflóa og Bretlandseyjum: Allar lægðir fara því þessa dagana nyrðri leiðina, um íslands og valda mjög breyti legu veðurlagi 640 nemendur í Gagn- fræðaskóla Akureyri, 10. okt.: — Gagnfræðaskóli Akureyrar var settur í Akureyrarkirkju sl. þriðjudag. Séra Pétur Sigurgeirs son flutti bæn, en Sverrir Páls- son, sem gegnir skólastjórastörf um í veikindaforföllum Jóhanns Frímanns, flutti skólasetningar- ræðu. Áskell Jónsson stýrði söng við athöfnina. í skólanum verða í vetur 640 nemendur í 24 deildum, 18 bók- námsdeildum og 6 verknámsdeild um. 37 kennarar starfa við skól- Akureyrar ann, þar af 24 fastakennarar. Ný ir fastakennarar eru: Árni Ólafs son, Gylfi Svavarsson, Jens Sum arliðason og Magnús Aðalbjörns son. Skólinn á enn við mikil hús- næðisvandræði að búa, svo að taka hefur orðið á leigu 6 kennslu stofur, 3 stofur í Húsmæðraskóla húsinu, 2 í Oddeyrarskóla og fundarsal í íþróttahúsinu. Vonir standa til, að stór viðbygging við skólahúsið verði fokheld í haust og fullbúin að ári. — St.E. Sovézk sjónvarpstæki 1 Kommúnistablaðið birti síðast- liðinn miðvikudag stóra frétt um að sovézk sjónvarpstæki væru aS ryðja sér til rúms á íslandi. Var í þessari frétt talið að eins og nú stæðu sakir virtist ýmislegt benda til þess að mikill hluti sjónvarpstækja hér á landi yrði af rússneskri gerð. Kommúnistablaðið fagnar mjög þessum innflutningi rússneskra sjónvarpstækja og útmálar hversu ódýr og ágæt þau séu. Athyglisvert er að það spillir ekkcrt gleði kommúnistablaðsins í grein þess um ágæti hinna sov- ézku sjónvarpstækja, sem nú séu hér til sölu, að eina sjónvarps- stöðin, sem íslendingar geta nú horft á er stöð ameríska varnar- liðsins á Keflavíkurflugvelli. „ Austri“ -karlinn kippist við f gær birtir svo „Þjóðviljinn" aðra grein um sjónvarp. Er það „Austri“ karlinn, sem ritar þá grein í dálka sína á annarri síðu blaðsins. Er liann hinn reiðasti yfir þeim ósköpum sem nú dynja yfir íslenzka þjóð. Austri kveðst ávallt hafa verið mjög fýsandi allrar samvinnu í milli stórvelda í austri og vestri. Síðan kemst hann þannig að orði: „En má ég biðjast undan sam- vinnu eins og þeirri, sem nú er hafin hér á landi, þegar sovézkir flytja hingað ódýr sjónvarpstæki til þess að gera sem flestum fs- lendingum kleift að glápa á for- heimskandi dátasjónvarp her- námsliðsins á Kefiavíkurflug- velli, en megintilgangur þeirrar sjónvarpsstöðvar er að gera landsmenn samdauna hernám- inu“. „Austra" finnst þannig að blaði sínu hafi orðið heiftarlega á í messunni á miðvikudaginn, þeg- ar það birti fagnandi fréttina um að sovézk sjónvarpstæki ryddu sér til rúms á fslandi! Sannleikurinn er auðvitað sá að þegar kommúnistar fréttu af innflutningi rússneskra sjónvarps tækja til íslands fannst þeim sjón varpið, jafnvel á Keflavíkurflug- velli, verða snöggt um betra en það hafði áður verið. Þeir fögn- uðu því að fá tækifæri til þess að horfa á amerískt sjónvarp gegnum rússnesk gleraugu. Framsókn spyr um úrræði Tíminn segir í forystugrein sinni í gær að Viðreisnarstjórnin hafi „veikan meirihluta á þingi“. En hver er fulltrúatala flokk- anna á þingi? Stjórnarflokkarnir hafa samtals 32 þingmenn en stjórnarandstaðan 28. Stuðnings- menn ríkisstjórnarinnar eru þannig fjórum fleiri en stuðn- ingsmenn Framsóknarmanna og kommúnista. Meðal þjóðarinnar hafa komm- únistar og Framsóknarmenn tæp lega 44% atkvæða en stjórnar- flokkarnir um 56% atkvæða. Við reisnarstjórnin er því ekki veik ríkisstjórn, hvorki á þingi eða meðal þjóðarinnar. Það er svo kaldhæðni örlag- anna þegar málgagn Framsókn- arflokksins spyr enn einu sinnl um úrræði Viðreisnarstjórnarinn ar. Núverandi ríkisstjórn hefur stjórnað landinu á fimmta ár. Þjóðin hefur kosið um stefnu hennar og vottað henni traust. Framsóknarmenn og kommúnist- ar hafa hinsvegar aldrei getað bent á nein úrræði til lausnar neinum vanda. Þeir láta við það eitt sitja að rífa niður og reyna að eyðileggja það sem Viðreisn- arstjórnin byggir upn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.