Morgunblaðið - 11.10.1963, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.10.1963, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 11,‘okt. 1963 Hver vill ekki eignast þennan glæsilega farkost ? Skyndihappdrætti Sjálfstæðisflokksins býður yður möguleika á að eignast glæsilega einkabifreið, Mercedes Benz, árgerð 1964 — fyrir aðeins 100 krónur og eftir tæpan mánuð. Sleppið ekki tækifærinu— Koupið miðu strux í dug Skyndihappdrœtti Sjálfstœðisflokksins Helander gefur nýja skýr- ingu á falska nafninu — segir hina eldri eihnig rétta VIÐ réttarhöldin í máli Dicks Helanders, bisk- ups, sem nú standa yfir í Stokkhólmi, hefur að undanförnu verið fjallað um ritvélar þær, sem Hel- lander hafði til umráða, þegar níðbréfin um keppi- naut hans við biskupskosn- ingarnar í Strængnæs 1952 voru skrifuð. Skömmu fyrir biskupskosn- ingarnar keypti Helander tvær ritvélar af gerðinni „Halda“ hjá ritvélakaup- manninum Thure Moldvids- son. Moldvidsson skráir nöfn allra, sem kaupa ritvélar hjá honum, og spurði því Helander að nafni, en hann sagðist heita Georg Arvids- son og vera kaupmaður. Við réttarhöldin yfir Helander 1953, var hann spurður um ástæðuna til þess, að. hann gaf upp falskt nafn. Sagðist Helander hafa gert það vegna þess að hann hefði reynt að fá aðra ritvélina með afslætti, en ekki þótt virðingu sinni samboðið og gripið til þess ráðs að nota ekki sitt rétta nafn. Við yfirheyrslu fyrr í vik- unni var Helander aftur spurður um ástæðuna til þess, að Georg Arvidsson var skráð ur eigandi ritvélanna. Sagði hann þá, að hann hefði gefið upp falskt nafn til þess að forðast ágengni sölumanna. Ilelander Sagðist hann hafa slæma reynslu af mönnum, sem verzluðu með ritvélar og skýrði frá því, að nokkrum árum áður hefði hann keypt ritvél, og eftir það hefði selj andinn komið oft á ári og viljað líta á hana, gera við hana og setja bönd í hana. Helander var bent á. að þess- ari skýringu bæri ekki sam- an við skýringuna, sem hann gaf 1953, en hann sagði, að þær væru báðar réttar. Er dómur féll í máli Hel- anders 1953, fullyrtu sérfræð- ingar ákæruvaldsins, að níð- bréfin hefðu verið skrifuð á ritvél af gerðinni „Halda“, sem Helander tók með sér, er hann yfirgaf guðfræðiháskól- ann í Uppsölum og tók við biskupsembættinu. Aðra rit- vélina, sem hann keypti und- ir fölsku nafni sendi hann háskólanum í staðinn. Sérfræðingar, sem kallaðir hafa verið fyrir rétt í málinu að þessu sinni eru hins veg- ar ekki sammála um, að unnt sé að segja nákvæmlega til um á hvaða ritvél bréfin voru skrifuð. Norskur sér- fræðingur, sem verjandinn kallaði fyrir heldur því fram, að gallinn á stafnum M, sem kom fram í níðbréfinu og var einnig á vél Helanders, hafi verið verksmiðjugalli, en ekki slit. Geti sá galli verið á mörgum ritvélum af gerð- inni „Halda“. Sænsku sér- fræðingarnir, sem ákærand- inn kallaði til vitnis eru hins vegar sammála sérfræðing- unum, sem rannsökuðu málið 1953. Fer nú fram nákvæm athugun á því hver hefur rétt fyrir sér. í gær kom kaupmaðurinn Thure Moldvidsson, fyrir rétt. Sagðist hann muna ó- greinilega eftir viðskiptunum við Helander, en mundi þó, að sér hefði ekki fundizt við- skiptavinurinn líkur „kaup- manni“. Þegar hann var beð- inn að skýra þetta nánar, sagði hann, að viðskiptavin- urinn hefði ekki komið fram eins og maður, sem keypti ritvélar til þess að nota í fyrirtæki sínu. Moldvidsson sagði ennfrem ur, að Helander hefði haft mestan áhuga á verksmiðju- númerum vélanna og letri. Sagði kaupmaðurinn, að Hel- ander hefði komið tvisvar í verzlunina. í fyrra skiptið skrifað niður verksmiðjunúm- er vélanna, en í síðara skipt- ið borið númerin á vélunum sem hann keypti, saman við þau, er hann skrifaði niður. Verksmiðjunúmer annarrar vélarinnar, sem Helander keypti af Moldvidsson, er mjög líkt númeri vélarinnar, sem hann tók með sér úr guðfræðideildinni. Þetta eru sex stafa númer og aðeins tveir síðustu stafirnir eru mismunandi á áðurnefndum vélum. Helander hefur lýst því yfir, að verksmiðjunúm- erin hafi ekki haft neina þýð- ingu. Helander virtist mjög þreyttur, er hann hlýddi á vitnisburð Moldvidsson. Dóms forsetinn bauð honum að draga sig í hlé, en Helander neitaði og kvaðst vilja hlusta á framburð Moldvidsson til enda. S krifs tofus túlka brunatryggingar ALMENNAR TRYGGINGAR hf Óskum eftir að ráða skrifstofustúlku með enslcu ög véritunarkunnáttu. Góð laun. Ekkert unnið á laugard. Umsóknir sendist afr. Mbl. sem fyrst! merkt: „Skrifstofustúlka — 3570“. Röskur og ábyggilegur sendisveinn óskast til léttra sendiferða eftir hádegi. IIÁVARÐUR VALDIMARSSON Hafnarstræti 19 — Sími 14430. VANDIÐ VALID -VELJID ■ - Ú ■ ■■■ ■ .*„• *■ *•'.* ‘* t.i*’. ■■■ 'C■■' ■ . V: /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.