Morgunblaðið - 11.10.1963, Qupperneq 22
MORCUNBLAÐIÐ
.- .Vi ';.v f ...r'
Föstudagur 11. okt. 1963
Setinafi
ræsir bílinn
Smitiafc
Fyrsta flokks
rafgeymir
sem fullnægir
ströngustu kröfum
SMYRILL
LAUCAVECI 170 - SIMI 12260
Afmælismót Fram með fjöl-
breyttri dagskrá m.a. old boys leik
fá uppg-efið hvaða einustakling
ar verða með, en væntanlega
verður hægt að gefa það upp
á morgun.
IsLmeist. Fram
mæta FH
og vítakeppni
fer fram
VERTÍÐ handknattleiksmanna
hefst um helgina og það verður
nóg um að vera bæði á laugardag
og sunnudag að Hálogalandi, en
þá efnir Fram til afmælisleikja
í tilefni 55 ára afmæli félagsins.
Á laugardagskvöldið verður
margt skemmtilegt á dag
skrá, m.a. old boys leikur milli
Fram og Ármanns, vítakeppni,
þar sem margir okkar beztu hand
knattleiksmanna reyna með sér
í vítaköstum — og nokkrir leik
ir í yngri aldursflokkum. Rúsín
an í pvlsuendanum verður svo
leikur Fram og FH í meistara-
flokki karla á sunnudagskvöldið.
— Það verður því ekki annað
sagt, en handknattleiksvertíðin
byrji fjörlega.
Á Afmælismót
Sem kunnugt er, átti Fram
55 ára afmæli á þessu ári — og
í því tilefni hefur verið efnt til
margvíslegra afmælisleikja í
knattspyrnu. En nú er hand-
knattleikur á dagskrá og hefur
Fram Hálogaland til umráða n.k.
laugafdagskvöld og sunnudags-
kvöld.
if Vítakastskeppni
Á Iaugardaginn leikur
Fram nokkra afmælisleiki, i
2. flokki kvenna við Ármann,
í mcistaraflokki kvenna við
Víking, I 4. flokki karla við
Val og í 2. flokki við ÍR. Allir
þessir leikir verða í styttra
lagi, eða 2x10 mín. Á laugar
daginn fer einnig fram víta-
keppni. Langt er síðan efnt
hefur verið til slíkrar keppni
hérlendis. Margir okkar beztu
handknattleiksmanna verða
með í keppninni — fulltrúar
frá öllum Reykjavíkurfélögun
um nema KR, einnig verða
Hafnfirðingar með í keppn-
Gunnlaugur verður væntanlega
með i vítakeppninni.
inni. Keppninni er þannig
hagað, að hvert félag sendir
tvo fulltrúa, þ.e. einn vita-
kastasérfræðing ásamt mark-
verði. Síðan reyna tvö félög
með sér í einu. Cm útslátta-
fyrirkomulag er að ræða og
fellur það félag úr, sem tapar.
— Ekki hefur enn þá tekizt að
★ Old boys
Skemmtilegur liður á laugar
dagskvöldið verður einnig old
boys-leikur milli Fram og Ár-
manns — árgerð 1960 og þar um.
Þar koma margir kappar fram
t.d. Sveinn Ragnarsson, Orri
Gunnarsson, Kristján Oddsson
og Jón Elíasson frá Fram og hjá
Ármanni Sigurður Nordal, Kjart
an Magnússon, Pétur Pálsson,
Halldór Sígurgeirsson, Magnús
Þórarinsson o.fl.
fslandsmeistaramir
Leikur íslandsmeistaranna
innanhúss, Fram og íslandsmeist
aranna utanhúss FH, fer svo
fram á sunnudagskvöldið. Það
hefur jafnan ríkt mikil spenna
þegar þessir aðilar hafa mætzt
og er ekki að efa að svo verður
einnig nú. Bæði liðin hafa æft
vel að undanförnu. Þess má geta,
að leiktími verður 2x30 mínútur.
Erlingur — einn af yngri leikmönnum Fram — skorar.
Á sunnudagskvöldið fara einn
ig fram leikir í 1. flokki og 3.
flokki karla og mætir Fram
Þrótti í 1. flokki, en KR í 3. fL
Fyrstu leikir á laugardag hefj
ast kl. 20, en á sunnudag kl. 20,15.
3700 íþróttarog konur
taka þátt í lokapruf u Japans
í DAG hefjast „litlu Olympíu-
leikarair“ í Tokíó. (Mihermt í
gær að þeir hæfust þá). í þeim
taka þátt 3700 þátttakendur frá
29 löndum. Leikarnir standa til
16. okt. Öll dagskráin er sniðin
sem mest í líkingu við það er
verður á Olympíuleikpnum að
HWNWBHMMMMHM
Brasiliskir knattspyrnu-
menn nota oft örfandi lyf
— segir kunnur brasiliskur þjálfari
VEL ÞEKKTUR knattspyrnu
þjálfari í Brasilíu, Joao Sald-
hana, sem áður var þjálfari
hins heimsfræga liðs Bota-
fogo, hefur nýlega leyst frá
skjóðunni um það, að það sé
algengt meðal knattspyrnu-
manna í Brasilíu að nota deyfi
lyf fyrir og meðan á mikilvæg
um leikjum stendur.
Saldhana hefur skrifað
dómsmálaráðherra landsins
bréf, þar sem hann nefnir
mörg ákveðin og tiltekin
MMMMMnMM
dæmi um misnotkun deyfi-
lyfja meðal knattspyrnu-
manna. Bætir hann því við að
eftir slíka leiki séu leikmenn
irnir mjög aðframkomnir, en
gufuböð séu mikið notuð til að
fjarlægja og eyða áhrifum
hinna örfandi lyfja.
ári, enda ætla Japanir sér að
finna hvar skórinn kreppir að
með undirbúning hinar miklu
íþróttahátíðar.
Gestgjafarnir, Japanir, senda
3300 þátttakendur í þessa „loka
prufu“ en frá 28 löndum öðrum
koma 413, flestir frá Vestur-
Þýzkalandi 117. Mörg lönd eiga
einn þátttakanda t.d. Noregur.
Keppandi þaðan er Norðurlanda
methafinn í langstökki kvenna
Berit Töien.
Að Japan á svo marga keppend
ur á mótinu á m.a. rót sína að
rekja til þess að meistaramót
Japans í 11 greinum íþrótta fer
Enska
knottspyrnon
13. umferð ensku deildarkeppn-
innar fór fram f. hluta þesaarar
viku og urðu úrslit þessi:
1. deild.
Aston Villa — Everton 0—1
West Ham — Burnley .... i—i
N. Forest — Leicester ... 2—0
Blackburn — Bolton ,... 3—0
Liverpool — Sheffield W. 3—1
Sheffield U. — Ipswich 3—1
Stoke — Arsenal 1—2
2. deild.
Bury — Derby 1—2
Northampton — Huddersfield 1—0
Leeds — Middlesbrough 2—0
Manchester City — Plymouth 1—1
Portsmouth — Swansea 0—0
Sunderland — Newcastle ....... 2—1
Efstu liðin í I. deild eru þá þessi:
1. Manchester U . 17 stig.
2. Tottehham .. 17 —
3. BLaekburn 17 —
4. Sheffield U. 17 —
5. N. Forest 16 —
6. Arsenal .......................... 16 —
í II. deild eru Swindon og Sunder-
land efst með 19 stig, en 1 þriðja sæti
er Leeds með lflstig.
fram í sambandi við keppnina.
Keppni í 9 greinum íþrótta af
þeim 22 greinum, sem keppt verð
ur í á „litlu leikunum“ fer fram
á sömu stöðum og Olympíukeppn
in verður að ári. Þetta er keppni
í frjálsíþróttum, sundknattleik,
fimleikum ,skylmingum, róðri,
siglingum, hjólreiðum og skot-
fimi.
í frjálsíþróttakeppninni
verða meðal þátttakenda 4 heims
methafar karla og 5 heimsmet-
hafar í kvennagreinum. Af karl
mönnum eru það Pennel í stang
arstökki, Conolly í sleggjukasti,
Rolants Belgíu í hindrunarhlaupi
og Bill Baillie sém á heimsmet
í 20 km hlaupi. Af kvenfólki má
nefna Tamara Press, Ozolinu
heimsmethafa í spjótkasti og
Balas heimsmethafa í hástökki.
Júgóslnvnr
keppi við
heimslið
FORMAÐUR alþjóðaknatt-
spyrnu sambandsins Englend
ingurinn Sir Stanley Rous
gerði það að tillögu sinni á
fundi sambandsins um sl.
helgi að Júgóslavar stilltu
upp sínu bezta knattspyrnu-
liði og mættu úrvalsliði úr
öðrum heimshlutum. Ágóðinn
af leiknum skyldi renna til
þeirra, sem misst hafa allt sitt
í jarðskjálftunum í Skopljc.
Tillagan hlaut öflugt fylgi
formanns Evrópusambandsins.