Morgunblaðið - 11.10.1963, Page 24
notið Sparr
221. tbl. — Föstudagur 11. október 1963
JLBMJ .
CALCULATOn S
H.BENEDIKTSSON HE.J
Alþjóðleg erfða-
fræðistofnun
hér á landi?
Atomorkunefndin og ítalskur
erfðafræðingur hafa áhuga
ÉRLENDIR erfðafræðingax
hafa nú fengið augastað á ís-
landi sem séríega heppilegum
stað undir erfðafræðistofnun,
þar sem rannsakaðir verði
erfðaeiginleikar manna. í
júnímánuði k'om ítalskur pró-
fessor í ’érfðafræði, L. L. Cav-
alli-Sforza, sem hefur m. a.
sent skýrslu þar sem hann
telur fsland af ýmsum ástæð-
um sérlega heppilegan stað
fyrir rannsóknir á mannlegum
erfðum, til bandarísku Atom-
orkunefndarinnar og hefur
hún beðið hann um að stinga
ekki upp á slíkri stofnun við
aðra, fyrr en málið hefur ver-
ið athugað þar. En Atom-
orkunefndin hefur sérstakan
áhuga á ránnsóknum mann-
legra erfða með tilliti til
skaða, sem atómgeislar gætu
valdið.
Einnig kom hér í fyrra
hrezkur erfðafræðingur, dr.
Stewart Spichett frá Cam-
brid,ge og athugaði möguleika
til erfðarannsókna hér. Ef til
kæmi mundi slík erfðastotnun
rekin með nýjustu vísinda-
legum aðferðum með elektron-
iskum heilum og öðrum nú-
tíma tækjum, að því er próf.
Cavalli-Sforza tjáði próf. Ni-
els Dungal.
L.L. Cavalli-Sforza er pró-
fessor í erfðafræði við háskól-
ann í Pavía á Ítalíu o!g ein-
hver fremsti maður í erfða-
fræði í heiminum, einkum
með tilliti til erfða á eigin-
leikum manna. Er hann fékk
þá hugmynd að athuga mögu-
leika til erfðarannsókna á ís-
landi, benti bandaríska atom-
orkunefndin • honum á próf.
Dungal, sem var honum innan
handar meðan hann dvaldist
hér í viku og átti viðræður
við ýmsa aðila, svo sem Sig-
urð Sigurðsson, landlækni,
Klemenz Tryggvason, hag-
stofustjóra, Einar Bjarnason,
erfðafræðing o. fl.
Hefur hann nú sent próf.
Dungal skýrslu þá um málið,
sem hann samdi og hefur sent
ýmsum aðilum, auk þess sem
hann hefur í bréfi skýrt hon-
um frá fyrrnefndum viðbrögð-
um Atomorkunefndarinnar. —
Upphaflega hafði prófessorinn
hugsað sér að snúa sér til
Ford Foundation, sem hefur
yfir miklu fé að ráðá og á-
huga á hinum stærstu vanda-
málum mannkynsins, svo sem
þeirri miklu mannfjölgún, sem
ógnar veröldinni og hefur m.a.
áhuga á lausn þess vandamáls
með rannsóknum varðandi
takmörkun barnaeigna og erfð
um. En nú mun próf. Cavalli-
Sforza sem gagt biða með það
þangað til frekar heyrist frá
Atomorkunefndinni.
ísland sérlega heppilegur
staður
Próf. Cavalli-Sforza kemst
að þeirri niðurstöðu í skýrslu
sinni að ísland sé sérlega vel
fallið til rannsókna á erfðum
mannlegra eiginleika. Telur
hann upp ýmis atriði skoðun
sinni til stuðnings, fyrst og
fremst þann mikia áhuga á
ættfræði sem hér ríkir. Þa tel-
ur hann það mikinn kost að
mannf jöldi er hér lítill og ekki
mikið um tilflutningá, en viss
hópur blandaður annarri þjóð
í Kanada, sem gæti orðið til
vísbendingar um greiningu á
mismun af völdum umhverfis.
Fólk er hér vel upplýst og því
skilningsgott á slíka rannsókn
og heilsugæzla í góðu lagi,
sem er til mkilla bóta. Segir
prófessorinn að hér séu glögg
gögn til að rekja erfðir mikils
hlúta þjóðarinnar aftur til
1700, en þó betri gögn aftur
til 1800. Telur hann af mörg-
um ástæðum ísland sem sagt
ákjósanlegt til rannsókná á
erfða eiginleikum og leggur
til að erfðafræðilegum rann-
sóknum verði beitt hér.
í skýrslunni gerir prófessor-
inn áætlun um kostnað, og
telur að 100 þús. dalir á ári í
fimm ár muni duga.
Framhald a bls. 23.
Síldarverð við Suður-
og Vesturland ákveðið
UNDANFARNAR vikur hefur
Verðlagsráð sjávarútvegsins,
síldardeild Suður- og Vestur-
landssvæði, unnið að verðákvörð
un á fersksíld, veiddri við Suð-
ur- og Vesturland, þ. e. frá
Hornafirði vestur u-m að Rit.
Samkomulag varð um eftirfar-
andi verð, sem gilda fyrir tima-
bilið 1. september til 31. des.
1963, að undanskilinni síld til
heilfrystingar, sem gildir tíma-
biiið 1. september 1963 til febr.
1964.
Síld til heilfrystingar:
a, - Stórsíld (3—6 stk.
í kg.) pr. kg. .. kr. 1,84
b. Smásíld (5—10 stk.
í kg.) pr. kg. .. — 1,05
Verðið miðast við það magn,
sem fer í vinnslu. Vinnslumagn
teist innvegin síld að frádregnu
því magni, er vinnslustöðvarnar
skila í síldarverksmiðjur. Vjnysiu
stöðvarnar skulu skila úrgangs-
síld í verksmiðjur seljendum að
kostnaðarlausu, enda fái selj-
endur fullt bræðslusíldarverð.
Varðandi stærðarfiokkun sild-
Lýðræ&issinnar efna til ráb-
stefnu um kaupgjaldsmál
Eiga enga aðild að „xáðstefnu" ólaglegrar
Alþýðusambandsstjórnar
SVO sem kunnugt er hefur
tlþýðusamband íslands boðað
il ráðstefnu til þess að ræða
;aupgjaldsmál. Hin ólöglega
oiðstjórn Alþýðusambandsins
loðaði til þessarar ráðstefnu
æð þeim sérstaka hætti, að
iringja í nokkur verkalýðsfélög
em að mestu voru valin eftir
•ólitiskum litarhætti, t.d. var
Terzlunarmannafélagi Reykja-
íkur, næststærsta aðildarfélagi
tlþýðusambandsins, ekki boðin
wtttaka, þótt íélagið eigi nú í
harðri baráttu um nýja samn-
inga og kjarabætur. Vegna þessa
g.jörræðis, „Alþýðusarrtbands
stjórnarinnar“ ákváðu stærstu
verkalýðsfélögin í Reýkjayík,
að Dagsbrún frátalinni, að efna
til fundar með verkalýðsfélög-
unum í Reykjavik og nágrenni
til þess að ræða ástand og horf-
ur í kaupgjaldsmálum. Fundur
verður haldinn í Félagsheimili
múrara og rafvirkja í dag og
hefst kl. 5 e.h.
Að gefnu tilefni skal það tek-
ið fram að Fulltrúaráð verka-
lýðsfélaganna í Réykjavík mun
ekki eiga neina aðild að hinni
svokölluðu ráðstefnu Alþýðu-
sambandsins, sama gildir um
þau verkalýðsfélög, sem ekki
vilja lúta forústu hinnar ólöglegu
stjórn Alþýðusambandsins. Þessi
félög munu ráða ráðum sínum,
ræða þann vanda, sem nú steðj
ar að launþegum og freista þess
að finna raunhæfar leiðir til úr-
bóta og efla samstöðu sina í
hagsmunamálunum.
Félögin sem standa að fund-
arboðinu eru Iðja, félag verk-
smiðjufólks, Sjómannafélag
Reykjavíkur, VB. “» Félag ísl.
rafvirkja.
arinnar skuli eftirfarandi ákvæði
gilda:
Þar sem ekki verður við kom-
ið að halda afla báta aðskildum
í síldarmóttöku, skal stærðar-
sýnishorn gilda sem grundvöllur
fyrir hlutfalli milli báta innbyrð-
is.
Greiðsla fyrir móttekna síld
til heilfrystingar skal byggjast
á endanlegri nýtingu.
Sild til flökunar: í súr, fryst-
ingu, salt eða aðrar verkunar-
aðferðir pr. kg., kr. 1.12. Verð
þetta miðast við innvegið magn,
þ.e. síldina upp til hópa.
Síld, ísvarin til útflutnings í
skip pr. kg., kr. 1.50. Verð þetta
miðast við innvegið magn, þ.e.
sildina upp til hópa.
Kortiff sýnir stöffvar og J
1 væntanlegar hreyfingar felli-
I bylsins „Flóru“. Kl. 18.00 á
I miffvikudag hafði hann farið
I yfir Kúbu og var sem næst á
23° N og 69° V. Um hádegi í
' gær var sveipmiðjan á 27° N
I og 65° V, þ. e. suffur af Ber-
I rounda. Þá er gert ráff fyrir aff 1
„FIóra“ haldi áfram í norð-
austur meff 20 hnúta hraða á
I klst. og verði komin norffur á
) 37° N og 50° V kl. 10 á laug- 1
I ardagsmorgun. Frá þeim staff
eru yfir 3400 km til fslands.
Síld til vinnslu í verksmiðjur
pr. kg., kr. 0.87. *
Síld til skepnufóðurs pr. kg,
kr. 1.00.
Verðin eru öll miðuð við, að
seljandi skili síldinni á flutnings-
tæki við hlið veiðiskips.
Seljandi skal skila bræðslusíld
í verksmiðjuþró og greiði kaup-
andi kr. 0.03 í flutningskostnað
frá skipshlið.
(Frá Verðlagsráði sjávar-
útvegsins)
Fimm ára dreng-
ur fyrir bíl
Fluttur meðvitundarlaus í sjúkrahús
UM FJÖGUR leytið í gærdag
varð 5 ára drengur, Gunnar
Tryggvason, Tungu við Lauga-
veg, fyrir bíl móts við heimili
sitt, með þeim afleiðingum að
hann var fluttur meðvitundar-
laus í Landsspítalann. Var Gunn
ar þó að komast til meðvitund-
ar er Mbl. vissi síðast til og
var ekki talinn alvarlega meidd
ur, nema hvað hann hafði hlotið
heilahristing?
Gunnar varð fyrir fólksbíl, sem
ekið var austur Laugaveg. Seg-
ir bílstjórinn, að hann hafi
skyndilega hlaupið í veg fyrir
bílinn, og hafi hann ekki orðið
drengsins var fyrr en í þann
mund að hann skall á bílnum.
Gunnar barst framan á bíln-
um 10—15 metra, meðan hann
var að hemla, en kastaðist síð-
an frá honum í götuna. Var hann
meðvitundarlaus, er að var kom
ið.
Gunnar var fluttur í Slysavarð
stofuna og þaðan á Landsspítal
ann. Var líðan hans eftir atvik-
um í gærkvöldi.
Sykurverð
stígur um
allt að 10%
í
FRÉTT AP fréttastofunnar
gær segir aff verff á sykri
hafi tekiff nýtt stökk á mark-
aðnum í London. Hafi þa®
komizt upp í 82 pund og 10
shillinga tonniff og hafi þaff
stigiff um 3 pund á þrenMir
^dögum eftir aff fréttir bárust
um eyðileggingu fellibylsins,
sem gekk yfir Kúbu.
Verffiff á Lundúnamarkaff-1
inum hefir á tæpum tveimur
mánuðum stigið um 32 pund
og 10 shillinga.