Morgunblaðið - 24.10.1963, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 24. okt. 1963
Hjartans þakkir til systkina minna, frænda Og vina,
sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, blómum
og skeytum á 70 ára afmæli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Sophus Magnússon frá DrangsnesL
Þakka auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
GUÐLAUGAR MAGNÚSDÓTTUR
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Bjarni Karlsson.
Bezt að aug'ýsa í Morgunblalinu
Volkswagen '55 - '58
Vil kaupa vel með farinn Volkswagen árgerð 1955
til 1958. Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir föstu-
dagskvöld merkt: „Mikil útborgun — 3628“.
3—4 herb. íbúð í Reykjavík eða nágrenni óskast
til leigu nú þegar eða síðar.
Upplýsingar í síma 13835.
Föðursystir mín
ELÍN JÓNSDÓTTIR
Vitastíg 11,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn þann
25. þ.m. kL 10,30 f.h.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabba-
meinsfélag íslands.
Fanney Jónsdóttir.
Útför eiginmanns míns
BJÖRNS JÓHANNSSONAR
kennara,
Hverfisgötu 63, Hafnarfirði,
fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 25. þ.m.
kl. 2 — Blóm vinsamlega afþökkuð.
Elísabet Einarsdóttir.
Maðurinn minn og fósturfaðir
LÚÐVÍK GRÍMSSON
fyrrverandi skipstjóri,
Glerárgötu 10, Akurejrri,
sem andaðist 17. þ.m. verður jarðsunginn frá Akur-
eyrarkirkju laugardaginn 26. þ.m. kl. 2 e.h.
Bióm eru vinsamlega afþökkuð. Þeim sem vildu
minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélagið.
Júlíana Tómasdóttir,
Trausti Sveinsson.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför
JÓHÖNNU GUÐMUNDSDÓTTUR
Þingeyri.
Höskuldur Steinsson,
Ólafur Steinsson,
Guðríður Andrésdóttir, Cluty,
og fjölskylda.
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og jarðarför mannsins míns,
föður okkar og tengdaföður
ÁRNA SVEINBJÖRNSSONAR
HellnafellL
Sérstaklega viljum við þakka frú Áslaugu Sigur-
björnsdóttur, séra Magnúsi Guðmundssyni og Ragnari
Guðjónssyni fyrir þeirra hjálpsemL
Guð blessi ykkur öll.
Herdis Gísladóttir, börn og tengdabörn.
Yfirlýsing
VEGNA fyrirspurna til skxif-
stofu Háskóla íslands og orð-
róims, er út 'hefir breiðzt manna
á meðal, er öQilum, sem hdut eiga
að miáli, hér með til vitundar gef-
ið, að Stefán Rafn ritihöfundur
er ekíki innritaður í guðfræði-
deild Hásfkiólans né neina aðra
deild hans, og hefur ekki sótt uan
innritun. Til innritunar í deiíldir
Háskólans er gerð sú krafa, að
menn hafi stúdentspróf eða aðra
menntun, er Háskólaráð metur
jafngiida. Stafar þetta af einfald-
ri og brýnni nauðsyn á traustri
undirbúningsmenntun undir há-
skólanám.
Þá skal og tekið fram, að stúd-
entar guðfræðideildar haía sitt
eigið deildarfélag, sem hefir fudlt
sjáilfstæði innan þeirra vébanda,
sem reglugerð Háskólans setur
stúdentum. Fédagið hefir og lýð-
ræðislega lqjörna stjórn úr hópi
stúdenta sjálfra. Hafa stúdentar
það alveg á sinu valdi hverjum
þeir af góðvild sinni bjóða á
fundi eða í ferðalög með sér,
enda er samikomudag manna inn-
an deildarinnar, jafnt kennara
sem stúdenta, í ailla staði hið
lij úfmannlegasta.
Reyikjavík, 18. ofct. 1963
Jóhann Hannesson
forseti guðfræðideildar.
Sheaffers
með 14kgulloddi
er penninn, sem
/>ér getib gefið
með stolti,
(eða eignast)
Hinn 14K gulloddur er steypt-
ur inn í bolinn til aukins styrk
leika og fegurðar. — Sterk
klemma heldur pennanum ör
ugglega í vasa yðar. Það eru
margir aðrir kostir, sem gera
þennan penna kjörinn til gjaf
ar eða eignar, en takið
SHEAFFER’S penna yður í
hönd og ritið nafn yðar og
þér sannfærist um gæði hans.
Fáanlegur með skrúfblýanti
og/eða kúlupenna í næstu rit-
fangaverzlun.
SHEAFFER‘S-umboðið
á íslandi.
Eyill Guttorrasson
Vonarstræti 4.
Sími 14189.
Kvöldvaka verður haldin I félagsheimilinu við
Skeiðvöllinn fimmtudaginn 24. okt. kl. 20,30.
Allar Fákskonaur og konur Fáksmanna velkomnar.
NEFNDIN.
Stúlka óskast
Stúlka óskast til afgreiðslustarfa í brauðsölubúð
strax.
JÓN SÍMONARSON H.F.
Bræðraborgarstíg 16.
M. O. G. T.
Stúkan Frón nr. 227.
Fundur í kvöld kl. 20,30 á
Fríkirkjuvegi 11. — Venjuleg
fundarstörf. — Frá Breiða-
fjarðareyjum: Á. K. — Kvik-
mynd frá Grænlandi. — Kaffi
eftir fund. — Æ. t.
Stúkan Andvari nr. 265.
Fundur í kvöld kl. 8,30 í GT
húsinu. Fundarefni. Kosning
og innsetning embættismanna
og önnur fundarstörf. Kaffi-
samsæti vegna afmælis br.
Jóns B. Helgasonar. Félagar
og aðrir templarar fjöimenn-
ið. — Æ.t
Óumdeild tœknileg' goóói
- *
Hagstœtt verð
OAtcffrt/M/fcfqA. h.f
0 SarriDandshusin-u Rvik',
Ahugi á
djáknastarfi
VEGNA yfirlýsingar forseta guð-
fræðideildar háskólans, er birzt
hefur í dagblöðunum, vil ég leyfa
mér að gefa eftirfarandi skýr-
ingu:
Mér er það fyllilega ljóst, að
ég er ekki innritaður nemandi í
guðfræðideild, enda mun eigi
þurfa embættispróf í guðfræði til
að gerast djákni.
Hins vegar hef ég fengið munn
legt samþykki allra (fjögurra)
prófessora deildarinnar fyrir því
að sækja kennslustundir og fyr-
irlestra þar, og hef ég gert það
þær vikur, sem liðnar eru af
yfirstandandi kennslumisseii.
Ástæða fyrir þessu námi mínu
þar er, eins ©g fram kom í við-
tali við dagblaðið Tímann, áhugi
á djáknastarfi. Gazt mér vel að
hugmyndinni, þegar sú ný-
breytni var upp tekin að vígja
Einar Einarsson til djákna 1
Grímsey. Langaði mig því til að
auka þekkingu mína í guðfræði
til þess að vera nokkuð undir það
búinn, ef svo skyldi fara, að
kirkjuyfirvöldin tækju þáá kvörð
un að fjölga djáknum í landinu 1
náinni framtíð.
Fyrirsögn viðtalsins í Tíman-
um var á ábyrgð blaðsins.
Reykjavík, 23. október 1963
Stefán Rafn.
Kynnisferð
sjávarútvegsins
sem efnt er til á vegum Skipstjóra og stýrimanna-
félagsins „ALDAN“ í tilefni af 70 ára afmæli fé-
lagsins, hefst þriðjudaginn 29. október.
Verður þá flogið til Gautaborgar og dvalið þar í tvo
daga á hinni miklu sjávarútvegssýningu. Þaðan
flogið til Kaupmannahafnar og dvalið í fimm daga.
í Svíþjóð og Danmörku verða þegin boð og farið
í heimsóknir til skipasmíðastöðva og fleiri fyrir-
tækja tengdra sjávai'útveginum.
Þátttakendur geta framlengt dvölina eða komið
fyrr heim og þeir sem óska geta tekið þátt í auka-
ferðum til Hamborgar og Esbjerg.
Enn eru fáem sæti laus í þessa fróðlegu og skemmti
legu ferð og er þátttaka öllum heimil. Skal fólki
bent á að hér ei um sérstaklega ódýra og hagkvæma
ferð að ræða.
Upplýsingar veittar á skrifstofu „ÖLDUNNAR"
sími 23476 og á skrifstofu okkar.
Ferðaskrifstofan
5UIMMA
Bankastræti 7, sími 16400.