Morgunblaðið - 24.10.1963, Blaðsíða 22
22
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 24. okt. 1963
Bretiond vnnn 2-1
„Heimsliðið66 lék á hálfri
ferð - Greaves beztur á vellinum
HUNDRAÐ þúsund manns voru viðstaddir á Wembley-leik-
vanginum í gær er landslið Englendinga sigraði „úrvalslið
heimsins“ með 2 mörkum gegn 1. Áætlað er að um 250 millj.
manna um heim allan hafi séð leikinn í sjónvarpi. Þetta var
því afmælisleikur fyrir brezka sambandið, sem eftir verður
munað. —
Englendingar sóttu mun meir í fyrri hálfleik, en það var
ekki fyrr en rétt um miðjan síðari hálfleik að fyrsta markið
kom og að verðskulduðu, voru það Bretar er það skoruðu.
Ekkert mark.
Þegar á fyrstu mínútu mun-
aði ekki nema hársbreidd að
Englendingar tækju forystu. —
Boby Charlton sendi til Jimmy
Greaves sem af þröngu færi
skaut þrumuskoti í fang Jash-
ins markvarðar.
Aftur, 15 mín. síðar var Jasíh-
in markvörður að gera næstum
hið ómögulega til að verja skot
Greaves. Einnig áttu Bobby
Smith og Eastþam ágæt skot
— en Jashin var alltaf til taks
og varði glæsilega.
★ Á hálfri ferð.
Það kom greinilega í ljós að
„heimsliðið" lék ekki nema á
hálfri ferð í þessum hálfleik og
oft sáust hryllileg mistök í sam-
Danir
unnu
Arsenal
3-2
10 þúsund áhorfendur m.a.
leikmenn úr „heimsliðinu”
o.fl. sáu úrvalslið Kaupmanna
hafnar sigra mjög óvænt lið
Arsenal í seinni leik liðanna
í bikarkeppni irálli borga. f
fyrri leiknum (í Kaupmanna-
höfnk höfðu Arsenal-menn
unnið mjög létt 7-1.
Með þann sigur að baki
hafa þeir slegið Kaupmanna-
höfn úr keppninni og komist
í 2. umferð í þessari bikar-
keppni með samtals 9 mörk
gegn 4.
En frammistaða Dana var
óvænt og góð í Lundúnum í
gærkvöidi.
vinnu milli „línanna" — bak-
'varða - framvarða - framherja.
En ekki sízt þess vegna bar mik-
ið * á mörgum frábærum sending-
•um og athöfnum sem voru meist
aralega uppfærð. Hálfleik lauk
með 0—0.
Síðari hálfleikur hófst með
upplögðu mark^ækifæri fyrir
Englendinga, en Euzaguirre frá
Chile sem hafði tekið við bak-
varðastöðunni í hálfleik af Djal-
ma Santos frá Brasiliu, bjargaði
á marklínunnL
Merkið — og markið.
Á 8. mín. hafnaði knöttur-
inn í fyrsta sinn í marki „héims-
liðsins" en markið var eikki
viðurkennt þar sem Greaves
gerðist ólöglegur á því augna-
bliki sem skotið var.
Á 21. min. kom fyrsta markið.
Það var í Englands hag og hróp-
in sem heyrðust ætluðu allt að
sprengja. Þetta var skemmtileg-
asta mark leiksins. Bobby Smith
lék knöttinn inn í vítateig
„Heimsins“ lét sem hann ætl-
aði að skjóta og gabbaði mark-
vörðinn til að kasta sér til varn-
ar á þeim stað sem skotið gæti
komið. En meðan markvörður-
inn stökk, breytti Smith ráða-
gerðinni, sneiddi boltann til
Greaves sem sendi fasta send-
ir.gu til Paine innherja sem var
óvaldaður og hanri sendi laust
í marknetið, — markvörðurinn
lá eftir gabb Smits.
Eftir þetta kom góður kafli
hjá „heimsliðinu“ og' Seeler
Puskas og di Stefano áttu allir
mjög góð marktækifæri — en
mistókst öllum. '
ic Jafnað.
Á 37. mín. jafnaði „heims-
liðið“. Það var Skotinn Dennis
Law sem markið skoraði. Upþ-
tökin átti Uwe Seeler, sendi til
Puskasar og hann sólóaði' uþp
miðjuna og setti alla ensku vörn-
ina úr jafnvægi. Síðan sendi
hann knöttinn í eyðu og upp-
hófst kapphlaup milli Law og
enska markvarðarins. Law var
fyrri til, fékk vippað til hliðar
og síðan í mannlaust markið.
ic Sigurmark.
Þetta var eins og merki fyr-
ir aukin afrek Englendinganna.
Og 3 mín fyrir leikslok færði
Greaves sigurinn heim. Augna-
bliki áður hafði bæði hann og
Smith skotið í þverslá marks
„heimsliðsins", og voru þó í
ágætri aðstöðu,
★ Liðin.
Beztir í „heimsliðinu“, sem
notaði alla þá leikmenn sem í
það voru. tilnefndir, voru mark-
verðirnir Jashnin og Soskic frá
Jugóslavíu. Þeir gerðu báðir
kraftaverk í markinu. í mið-
varðalínunni var Pophular frá
Tékkóslóvakíu beztur og Law í
framlínu, ásamt með Spánverj-
anum Gento.
En það kom skýrt í ljós að lið-
ið hafði enga samæfingu haft.
Menn sáu öll smáatriði útfærð á
bezta hátt, allt það fínasta,
sem hægt er að sýna í knatt-
spyrnu, en möguleikar voru
eyðilagðir með því að leikmenn
reyndu að fara á eigin spýtur
gegnum ensku vörnina.
Þar á móti sýndu Englendingar
hina máttugu liðssamvinnu og
hafi nokkur skorið sig úr í því
liði sem öðrum betri þá var það
Jknmy Greaves sem var sérlega
ágengur og vel vinnandi. Hann
verðskuldar heitið „bezti knatt-
spyrnumaðurinn á vellinum"
þetta kvöld.
„Heimsliðið“ átti samtals að
baki 663 landsleiki og þar stóð
Puskas sem meistari allra með
89 landsleiki. Samanlagður lands
leikjafjöldi Englendinga var 198
leikir og var Manchesterleikmað-
urinn Bobby Oharlton þar efstur
á blaði með 46.
Það verður barizt við körfuna í kvöld.
Reykjavík gegn
af Keflavíkurf
Fyrsti stórviðburður körfuknatt-
leiks að Hálogalandi í kvöld
úrvali
Fyrsta körfuknattleikskeppni
vetrarins verður að Hálogalandi
í kvöld kl. 8.15. Og körfuknatt-
leikmennirnir bjóða ekki upp á
af lakara taginu er þeir hefja
vetrarkeppnina. Úrvalslið Reykja
víkur mætir í kvöld úrvali
Bandaríkjamanna af Keflavík-
urflugvelli og fyrirfram er vitað
Blað-
burðar>
börn
óskast
II
I þessi blaðahverfi vantar Morgunblaðið nú þegar
unglinga, röska krakka eða eldra fólk til að bera
blaðið til kaupenda þess.
Mávahlíð — Háteigsveg — Karlagötu
Lambastaðahverfi á Seltjarnarnesi —
Breiðagerði — Safamýri — Framnes-
veg — og Laugaveg, neðst.
Gjörið svo vel að tala við afgreiðslu
skrifstofu.
blaðsins eða
Sími 2 2 4 8 0
að leikurinn verður jafn og
skemmtilegur.
Liðin mættust fyrir einni viku
suður á Keflavíkurflugvelli og
skyldu jöfn eftir venjulegan
leiktíma. í framlengingu tókst
Bandarikjamönnum að vinna
með 'samtals 64—61 stigi.
Nú breyta Reykvikingar liði
sínu til batnaðar þar sem sumir
er ekki gátu verið með suður
frá verða með nú. En Kefla-
víkurmenn tefla fram sama úr-
valsliði og treysta á að það dugi.
Lið Reykjavíkur er skipað
landsliðsmönnum í öllum stöðum
— annað hvort leikmönnum úr
landsliði eða unglingalandsliði.
Liðið er þannig skipað.
Þorsteinn Hallgrímsson ÍR
Hólmsteinn Sigurðsson ÍR
Guðm. Þorsteinsson ÍR
Ólafur Thorlacius KFR
Birgir Birgis Á
Davíð Davíðsson Á
Agnar Friðriksson ÍR
Anton Bjamason ÍR
Gunnar Gunnarsson KR
Einar Bollason KR
Leikurinn er haldinn til fjár-
öflunar fyrir • Körfuknattleiks-
sambandið sem vonast eftir að
sjá sem flesta áhorfendur að
þessum leik — sem án efa ms
fullyrða að verður tvísýnn o;
skemmtilegur.
Ensku
knnttspyrnon
MARKIHÆSTU leikmennirnir í Eftffw
la-ndi eru nú J>essir:
1. deild.
Greaves (Totteniiam) 16 mörlt
Baker (Arsenal) 13 —
Strong (Arsenal 11
Hateley (Aston Villa) 10
Pace (Sheffield U.) 10
Charnley (Blackpool) 9
McEvoy (Blackburn) 9
Smith (Tottenham) Hunt (Liverpool) 9
8 —
Law (Manchester U.) 8 —
2. deild. Dawson (Preston) 15 \
Saunders (Portsmóu th) 11
Gibson (MiddlesBrough) 10 —
Large (Northampton) 9
Allchurch (Cardiff) 8 —
Keyan (Manchester City) 8 —
3. dcild. Lelghton (Barnsley) 16 i
Biggs (Bristol Rovers) 13 —
Dougan (Peterborough) 12 —
Lister (Oldiham) 12 —
4. deild. Mcllmoyle (Carlisle) m
Stufobs (Torquay) 1ö —
Carr (Workington) 11 —
Green (Bradford City) U —