Morgunblaðið - 29.11.1963, Qupperneq 22
22
MORGUNBLADID
TOstudagur nðv. Í993
I
Skortur fjármagns og sam
starfs ógnar starfi FRÍ
Starfið óx á liðnu ári þrátt
fyrir miklar hindranir
ÞING Frjálsíþróttasambandsins
var haldið um s.l. helgi eins og
drepið hefur verið á. í skýrslu
stjórnar segir m. a. svo að á
næsta sumri verði helztu við-
burðirnir; meistaramótin í hin-
um ýmsu aldursflokkum, Ungl-
ingakeppni FRÍ í ágúst og lands
keppni íslendinga við lið Vestur
Noregs sem verður í Reykjavík
um mánaðamótin júli—ágúst. Á
erl. vettvangi gnæfa Olympíu-
leikirnir í Tokíó yfir allt og er
það von FRÍ að ísl. íþróttamenn
taki þátt í leikunum, en val kepp
enda íslands hefur enn ekki far-
ið fram.
Skýrslu FRÍ, sem er umfengs-
mikil, er skipt í marga kafla.
Stjórnin sat 34 bókaða fundi á
árinu. Sambandsaðilamir eru 26
íþróttabandalög, héraðs og ung-
mennasambönd. Innan FRÍ störf
uðu að venju tvær fastanefndir,
iaganefnd og útbreiðslunefnd og
auk þess framkv.nefnd vegna
landskepp® Dana og íslendinga.
+ Veikasti hlekkurinn
í kaflanum um „Samstarfið
við sambandsaðila" er drepið
á veikasta hlekkinn í starfi
FRÍ og sagt að „heildin af
sambandsaðilum hefur ekki
nægjanlega starfskrafta til að
sinna hinu frjálsa starfi, sem
skyldi. Þó hefur á s.l. 2 árum
orðið ánægjuleg breyting til
batnaðar hjá nokkrum sam-
bandsaðilum enda hefur
gróskan í starfi þeirra gefið
augljósan árangur á þessu
ári.
Sumir sambandsaðilar gera
góð skil á skýrslum og svara
greiðlega fyrirspumum og
bréfum sem stjóm FRÍ beinir
til þeirra. Hjá öðrum hefur
dráttur orðið á að sinna þess-
um skyldum og hefur það
valdið stjóm FRÍ og fasta-
nefndum ýmsum örðugleik-
um í störfum fyrir heildina.
í sjálfum höfuðstaðnum,
þar sem fjölmennasti sam-
bandsaðilinn er hefur frjáls-
íþróttaráð ekki starfað á
þessu starfsári. FRÍ gerði til-
raun ásamt ÍBR til að koma
þessu í lag og tókst munnlegt
samkomulag að formenn
frjálsíþróttadeilda félaganna
skyldu annast störf frjáls-
íþróttaráðs út þetta ár.
Á Stjóm FRÍ hefur verið beð-
in að útvega þjálfara út á
land. Það er hryggileg staðreynd
að stétt íþróttakennara, sem
getur annazt þjálfun frjális-
íþróttafólks er mjög fámenn og
allir í föstum störfum. Mikil og
krefjandi þörf er að leysa úr
þessum vanda til bráðabirgða ef
auka á útbreiðsiu frjálsíþrótta
og hefur tekizt náin samvinna
við ÍSÍ um að koma á námskeið-
um fyrir væntanlega leiðbein-
endur.
Á FRÍ telur að a-uba mætti
samstarf aðila ef með ein-
hverju móti væri hægt að kosta
erindreka eða landsyfirþjálfara.
Til þess þarf verulegt fjármagn
sem ekki er fyrir hendL
Á Stjórn FRÍ vonar að úr þess
um bráða vanda FRÍ sem að
sumu leyti hefur haft mjög lam-
andi áhrif á heildarstarfið rætist
fljótt en til þess þarf meira en
fjármagnið eitt. í>að þarf gagn-
kvæman vilja og samstillt tök
allra sambandisaðila.
í skýrslu FRÍ er ÍSÍ þökkuð
góð og náin samvinna. Sagt er
frá fulltrúum FRÍ á ráðstefnum
og í nefndum, rætt um mót á
vegum FRÍ og heiðursmerkja-
veitingar en 3 var nú veitt gull-
merki, 5 silfurmerki og 7 eir-
merki fyrir störf í þágu FRÍ.
Rætt um velheppnaða Ungl-
ingakeppni FRÍ og um þjálfun
fræðslu og útbreiðslufundi sem
haldnir voru bæði í Reykjavík
og út um land.
ic Fjárskortur
Ljóst er af skýrslunni að
starfsemi FRÍ inn á við sem
út á við hefur vakið mjög.
Unglingakeppnin gaf mjög
góða raun. Árangur hinna
eldri, bæði meðaltal 10 beztu
í hverri grein og árangur 2
beztu í hverri grein var betri
1963 en var árið áður. At-
hyglisvert er einnig hve
áhugi hefur vaxið úti á landi
og ekki síður hve þátttaka
kvenna hefur aukizt.
En, segir í skýrslunni, ef
einhver von á að vera til að
viðhalda starfinu og efla það
enn frekar, verður hið opin-
bera að skilja starf sérsam-
bandanna og veita talsvert
meira fé til þeirra en verið
hefur.
28 met staðfest
Loks fylgja sérskýrslur út-
breiðslunefndar, sem Svavar
Nýkjörin stjórn FRÍ. Sitjand i Bjöm Vilmundarson, Ingi
Þorsteinsson formaður, Þorbj öm Pétursson. Standandi Örn
Eiðsson, Jón M. Guðmundsson og Svavar Markússon. Á mynd
ina vantar Höskuld Goða Karlsson.
Armann—KR 67:50
ÁRMANN og KR mættust í
Reykjavíkuirmótinu í körfu-
knattleik í fyrrakvöld. Varð
þetta hin mesta og harðasta
barátta, enda þarna um tvö
mjög góð og vel æfð lið að
ræða.
KR-ingar sem í fyrsta leik
sínum skoruðu 100 stig gegn
KFR tókst nú illa upp í byrj-
un leiks og náðu aldrei að
komast nær Ármennitngum
en svo að sex stig skildu.
Voru þeir nú venju fremur
óheppnir með körfuskot og
tókst aldrei að ná sér veru-
lega á strik gegn Ármanns-
liðinu. Lokastaðan varð 67
gegn 50 fyrir Ármann og mun
ójafnari — og reyndar öfugt
— við það sem margir höfðu
búizt við.
Ármann, KR og ÍR eru nú
jöfn í meistaraflokki karla
með tvö stig, en ÍR hefur
aðeins leikið einn leik, en hin
félögin tvo.
Markússon veitti' formennsku og
Laganefndar sem Örn Eiðsson
var formaður fyrir. Laganefnd-
in starðfesti 28 met þar af 4
sett 1963 en 24 frá fyrri árum.
Báðar áttu þessar fastanefndir
í miklum erfiðleikum vegna
þesis hve samstarf sambandsaðila
er slæmt.
Hér með lýkur tilvitnunum og
endursögnum úr skýrslu FRÍ, en
ljóst er að það er ekki aðgengi-
legt fyrir menn fulla áhuga til
að auka og efla starfið að reka
sig hvarvetna á himinháar hindr
anir ýmist fjárhagslegar eða af
slæmu félagslegu starfi í mann-
margri sveit.
MOLAR
Bezti kúluvarpari Svía, Er«
ik Uddebom, hefur sýnt mikla
hæfileika í lytfingum. Nýlega
varð hann Stokkhólmsmeistari
í þungavigt og lyfti saman-
lagt 402.5 kg (125 — 117.5 og
160 kg).
Stúlkur oskast
Stúlkur óskast til veiksmiðjustarfa
nú þegar. Uppl. í verksmiðjunni.
Hf. SAIMITAS
1 1 í þessi blaðahverfi vantar Morgunblaðið nú þegar ■ unglinga, röska krakka eða eldra fólk til að bera blaðið til kaupenda þess.
LYNGHAGA
s Gjörið svo vel að tala við afgreiðslu blaðslns eða 1 skrifstofu.
i I
Sími 2 2 4 8 0