Morgunblaðið - 08.12.1963, Side 20

Morgunblaðið - 08.12.1963, Side 20
20 MORCUN*nAÐIÐ Sunnudagur 8. des. 1963 Stefán Vagnsson — Minning Fæddur 1889. Dáinn 1963. ÞANN 1. nóv. s.l. andaðist í sjúkrahúsinu á Sauðárkróki Ste- fán Vagnsson fyrrv. bóndi á Hjaltastöðum í Blönduihlíð, síð- ar bókhaldari Mjólkursamlags Skagfirðinga. Stefán var fæddur 25. maí 1889 í Miðhúsum í Blönduihlíð í Skagafirði. Foreldrar hans voru Vagn bóndi í MiðhÚ9uim f. 16/10 1852, d. 19/4 1898 Eiríksson hreppstjóra í Djúpadal Eiríks- sonar frá Djúpadal og prests á Staðarbakika Bjarnasonar bónda í Djúpadal Eiríkssonar. Hefir þessi ættleggur búið i Djúpadal síðan sneroma á 18. öld og býr þar enn, er það Djúpadalsætt sem allmargt merkra manna og nokkurra þjóðkunnra er frá komið. Móðir Stefáns og kona Vagns var Þrúður f. 18/10 1855, d. 21/7 1938. Foreldrar hennar voru Jón ' Björnsson, bóndi, Miðhúsum og kona ' hans Þrúður Jónsdóttir héraðskunnur hagyrðingur um sína daga. Að Stefáni stóðu góðir og traustir ættstofnar á báðar hliðar. Hann var kynborinn Skagfirðingur. Sefán missti föður sinn er hann var 9 ára og ólst upp á vegum móður sinnar sem var mikil dugnaðarkona. Dvaldi einnig um skeið á þeim árum hjá Aðalbjörgu móðursystur sinni á Arngerðareyri við ísa- fjarðardjúp. Hann lauk prófi frá gagnfræðaskólanum á Akureyri vorið 1910 með góðum vitnis- burði. Var svo barnakennari í Skagafirði á árunum 1910 - 1918. Bóndi á parti af Flugumýri 1920- 21 móti tengdaföður sínum, bóndi á Sólheimum í Blönduhláð 1921- 1922. Keypti Hjaltastaði og bóndi þar 1922-1941, brá þá búi og flutti til Sauðárkróks, var þar búsettur til æviloka. Þar hafði hann næstu árin ýms störf s. s. barnakennsla á vetrum og verkstjórn hjá Síldarverksmiðju ríkisins á Siglufirði árin 1943-46 o.fl. Árið 1947 varð hann skrif- stofumaður eða bókhaldari Mjólkursamlags Skagfirðinga, og gegndi því starfi með mikilli prýði þar til harrn lagðist bana- leguna. Stefán bjó ávallt snotru búi, þó verðfallið -eftir fyrri heims- styrjöldina og kreppan eftir 1930 kæmi hart við hann eins og marga fleiri og hömluðu stærri framikvæmdum. Jafnframt voru honum falin mörg trúnaðarstörf fyrir sveit sína og hérað. Hann sat í hreppsnefnd Akrahrepps frá 1922-1937, í skattanefnd 1922- 1940, átti sæti í skólanefnd í mörg ár o.m.fl. Hann var kosinn endurskoðandi reikninga Búnað- ansambands Skagfirðinga 1931 og starfaði að því óslitið til 1949 og endurSkoðandi Kaupfélags Skag- firðinga frá 1944-1957. Hann átti sæti í fasteignamatsnefnd Skaga fjarðar á árunum 1939-40, sem varamaður Jóns á Reynistað. Lokis átti hann í mörg ár sæti i stjórn Sögufél. Skagf. og á Sauðárkrók hafði hann á hendi ýmis trúnaðarstörf fyrir bæjar- félagið. Störf sín öll rækti hann af mikilli samvizkusemi svo að þar mátti engu skeika. Kennari var hann svo góður að gamlir lærisveinar minnast kennslu hans enn í dag með ánægju og þakklæti., Stefán var fríður maður og allur hinn gjörfulegasti, hann var á yngri árum mjög vel íþrótt um búinn, hafði æft þær mjög á Akureyri. Eftir að hann kom úr skóla, tók hann mikinn þátt í starfi ungtmennafélaganna, var t. d. brautryðjandi knattspyrnunn ar um miðbik Skagafjarðar. Hann var einnig góður sundmað ur og var sundkennari í Varma- hlíð vorin 1913-1918. Stefán var traustur maður og hófsamur og sérstakt prúðmenni sem ekki vildi vamrn sitt vita, góður drengur og hjálpfús vin- i Mjn sínum. Hann hafði mjög fjöl- |hæfar gtáfur, var vel máli farinn og þó enn snjallari að rita niður j hugsanir sínar, sum sendibréf hans voru með snilldarbrag, fuku þá með lausavísur, því hann var góður hagyrðingur og sumar vísur hans bráð smellnar, þó hann héldi þeim lítt á loftL Jafnframt var hann listaskrifari. Hann var ráðinn ritari sýslu- nefndar Skagafjarðarsýslu á öll- um aðalfundum hennar frá 1939- 1962 að báðum árunum meðtöld- um, eða þar til hann lagðist bana leguna í byrjun febrúar 1963. Hann var því orðinn eins og samgróinn sýslunefndinni og störfum hennar. Það þótti því til finnanlegt skarð fyrir skildi er Stefán gat ekiki mætt á síðasta sýslufundi. í því sambandi má geta þess að á sýslufundum eink um í táð Stefáns varð það all títt ef kátleg ummæli eða atvik báru | á góma, að miðar með lausavís- um flugu þar um borð. Var Ste- fán þar jafnan framarlega í j flokki, og vakti glaðværð fund- armanna. i Þó margt væri stórvel um Stefán, verður hann ef til vill minnisstæðastur Skagfirðingum fyrir glaðlyndi hans, græsku- laust gaman, Og einstakt lag á ■ að koma samferðamönnunum í gott skap. í þröngum hring í j hópi vina sinna var hann hrókur j fagnaðar og neytti þá óspart |fyndni sinnar og frásagnargáfu. I Veit ég, að margir eiga ógleym- anlegar minningar frá slíkum samfundum, og í banalegunni tók hann á móti gestum sínum með sömu hlýjunni og bros á vör eins og svo margsinnis áður. Fylgdi hann í því efni heilræð- um Hávamála, að glaður og reifur | skyldi gumna hverr uns sinn bíður bana. | Við útför Stefárus sem fram fór á Sauðárkróki 9. þ.m. kom ber- lega í Ijós hve sterk ítök Stefán Vagnsson átti í hugum Skagfirð- inga. >ó vetur væri kominn og allra veðra von, var þar fjöl- menni samankomið. En það at- hyglisverðasta var að þarna var fólk úr nær öllum sveitum Skaga fjarðar, jafnvel komið um lang- an veg yst utan af Skaga, utan úr Fljótum og framan úr Skaga- fjarðardölum til þess að kveðja þennan prýðilega Skagfirðing síðustu kveðju. I Stefán kvæntist 19/7 1918 eft- irlifandi konu sinni Helgu. dóttur Jóns Jónassonar, bónda, á Flugu (mýri og f. k. hans Ingibjargar Jónasdóttur. Helga er góð kona sem reyndist manni sínum góð- ur förunautur. Börn þeirra eru i þessi: Ingibjörg húsfreyja Sauð- lárkrók, Geirþrúður húsfreyja |Reykjavík, Jón bifvélavirki Sauðárkrók, Eiríkur Hauikur mál ' ari Sauðárkrók og Sigríður Hrafnhildur húsfreyja Sauðár- krók. Jón Sigurðsson, Reynistað. KYNNING tókst ekki með okk- ur Stefáni Vagnssyni fyrr en eftir 1920, og urðu fyrstu sam- skipti okkar af einskærri tilvilj- un. En sú er ráun á orðin eftir 40 ára náin kynni, að engir menn hafa orðið mér meira virði heldur en hann. Um langt skeið hefur Stefán verið kunnur mörgum mönnum j víða um land sem gáfumaður og snjall hagyrðingur. Vísur hans eru sjaldgæflega vel gerð- ar kjarnstökur, jafnframt ljósar , og látlausar, líkast því sem þær væru sjálfgerðar, enda urðu þær til á merkilega skömmum tíma. Þegar safnað var til útgáfu á skagfirskum ljóðum, var sótt fast eftir því við Stefán, að hann leyfði prentun nokkurra vísna eftir sig. Því neitaði hann harðlega. Sýnir fátt betur hve fjarri hann var því að láta á sér bera eða vilja halda sér fram. Ljóðasafninu hefði vissu- lega orðið ávinningur að stök- um hans. Þetta skiptir þó ekki málL Ljóð hans eru gædd vængj um. Þau munu mörg lifa lengi, þótt þó kæmust ekki í safnið. Stefán var þaulkunnugur ís- lenzkum skáldskap, fornum og nýjum. Og engan mann hef ég þekkt svo ljóðnæman sem hann. Minnið var frábært, einkum á sögu og ljóð. Hann kunni utan að heila kvæðabálka úr Heims- kringlu og Eddu, auk þess sem hann hafði jafnan á hraðbergi heil kvæði eftir seinni tíma höf- unda. Engan mann hef ég heyrt lesa kvæði betur en hann. Þar orkaði mestu næmur skilningur hans og innlifun í efnið, ásamt fögrum og látlausum fram- burði. Sem ræðumaður naut hann sín ág stlega. Eru mér í ljósu minni ýmsar ræður, sem hann flutti við viss tækifæri og á gleði.nótum. Alvara og góðlát- leg kímni héldust í hendur — og einmitt í réttum hlutföllum. Alvaran átti jafnan grunntóninn. Kímnin var sem aukaþáttur efnis, en markviss og fór vel, því að maðurinn var með ágætum grómlaus og vandur um velsæmi. Stefán vakti jafnan eftirtekt, hvar sem hann fór og hvar sem hann var. Bezt naut hann sín í fámennum hópi góðra vina, því að hann var umfram allt sam- ræðusnillingur. Því olli skáldleg hugkvæmni hans, fyndni og góð- látlegt fjör. Þótt hann væri í hópi lærðra gáfumanna, hlaut hann jafnan að móta svip á sam- neytið. Allir hlustuðu og nutu. Ljúfastar eru mér í minni stundirnar þá er ég var gestur hans og þeirra ágætu hjóna. Þá valdi hann oft einn mann eða fleiri að auki til samneytis. Og ekki skorti hann hugkvæmni og nærgætni til að velja þá menn til móts, er áttu samléið um hugðarefni og viðræður. Þær stundir voru mér sönn yngilind og andleg heilsubót. Má geta þess hér af því, hve vel var að orði komizt, að um hann sagði merkur læknir og gáfumaður, að hann væri „andlegur heilsu- brunnur.“ Rausnarlund hans og sjálfboð- in hjálp, er hann oftlega veitti vinum sínum, var einstæð. Nú er hann horfinn okkur, augun hans lokuð, höndin köld, borðið autt. En hjá okkur, sem þekktum hann, munu minning- arnar geymast ófölskvaðar um fjölhæfan og sérstæðan gáfú- mann, tryggðavin og dáðadreng. Kolbeinn Kristinsson. t t FÁA menn hef ég hitt fyrir á lífsleiðinni, sem ég hefði fremur kosið að eiga nágrenni við en Stefán Vagnússon. Því var við brugðið af öllum, sem nokkuð þekktu til hans, hversu skemmti- legur hann var í tali, ótæmandi brunnur fróðleiks og gaman- mála. En hann var eigi síður mikill alvörumaður, og honum brást hvorki rökvísi né rökfimi til þess að halda vel á þeim mál- um, sem honum voru hugfólgin. Mest var þó um það vert, sem verður ekki með orðum lýst, við- mót hans allt, hina sérstöku hlýju málrómsins, þann anda góðmennsku og drenglundar, sem frá honurn stafaði. Fyrirsjóninni þóknaðist að haga því svo, að hér voru jafnan mikil fjöll á milli frænda og langir vegir milli vina. Fundum okkar Stefáns bar allt of sjald- an saman, og þeir voru of stutt- ir hverju sinnL Þetta varð hins’ vegar til þess, að ég hafði af honum með einu móti öðru vísi kynni en þeir, sem honum voru nærlendir. Hann var óþreytandi að skrifa, bæði bréf og ýmsar frásagnir. Dálítið úrval þessara frásagna er prentað í síðara bindi Grá- skinnu hinnar meiri. En það er ekki nema lítið brot alls þess, sem hann sendi mér. Sumt af því fékk ég einungis til þess að lesa og endursendi. Um sumt af því, sem enn er í mínum vörzlum tók Stefán fram, að það mætti ekki prenta. Hann færði það einungis í letur sér til gamans og sendi það mér til skemmtun- ar. Stefán var snillingur að skrifa bréf. Þeir menn, sem gefa sér tíma til slíks nú á dögum, verða fágætari og fágætari. En bréf hans voru ekki neinir smáseðlar, þau voru löng og rausnarleg. Og þau voru rituð af þeim léttleik og því fjöri, að manni fannst hann sjálfur vera þar lifandi kominn. Það var kunnugt í héraði og raunar ýmsum víðara um land, að Stefán Vagnsson væri vel hagmæltur. En svo örlátur sem hann var á aðra hluti, sem gátu orðið málvinum hans til skemmt unar og fróðleiks, var honum ótamt að flíka vísum sínum og alveg fjarri skapi að láta þær fara lengra. Og það, sem meira var: Hann lagði enga rækt við þessa íþrótt sína. Varla er of djúpt tekið í árinni, þótt fullyrt sé, að Stefán hafði til þess flest eða öll skilyrði að verða einn allra bezti hagyrðingur samtíðar sinn- ar, ef hann hefði lagt sig fram að iðka þá list, tjá sig í vísum sínum, ydda þær og fága. Það má virða honum til hlédrægni og lítillætis, að hann stundaði þetta svo lítið og hélt því enn minna á loft, kom aldrei til hug- ar að efna til vísnakvers eða jafnvel leggja sinn litla skerf til Skagfirzkra Ijóða. En samt hygg ég, að annað og meira hafi undir búið. Hann var gagnkunn- ugur öllu því, sem bezt var í íslenzkum skáldskap að fornu og nýju, smekkvís og dómvis á það, sem af bar. Þetta meinaði hon- um að bera til þess brunns nokk- uð það, sem væri í meðallagi. Til þess var hann ekki nógu lítilþægur. Hann hefði áreiðan- lega borið kinnroða fyrir að láta frá sér fara undir sínu nafni mörg þeirra ljóðakvera, sem aðr- ir hafa miklazt af. En þegar hann örsjaldan leyfði sér að vera ekki einungis hagyrðingur, heldur skáld, og sarnt án þess að láta það fara margra á milli, þá gat glytt í það, sem hann bjó í rauninni yfir. Þetta er t.a.m. símskeyti, sem hann sendi sjötug um frænda sínum: Fölnar nú á björkum blað byljir hrista lauka. Hausta tekur, húmar að. Hræðast aldrei skaltu það: Vorsins dísir veita þér sumarauka. Mér er nær að halda, að þær séu ekki allfáar, Ijóðabækur hinna minni spámanna, þar sem leitun sé á öðru eins stefi. Eng- inn veit nema Stefán hafi ort fleira en nokkurn grunaði, ein- ungis fyrir sjálfan sig, sem hon- um þótti annars vegar of gott til þess að bera það út á hræsi- brekku og hins vegar ekki nógu gott til þess að vera í þeim fé- lagsskap, sem hann mat mest. En þó að þau Ijóð hafi öll verið ókveðin, þá veit ég, að þau voru til og hljóta að vera einhvers staðar geymd í hinum mikla sjóði tilverunnar og eilífðarinn- ar. « N. HJÁ ANDRÉSI Glæsilegt úrval af karlmanna fötum og frökkum Herradeild: Peysur í úrvali íslenzkar, franskar, ítalskar, margir litir. Skyrtur poplin og nælon. Náttföt Treflar Sokkar Bindi og margt fleira. Fyrir drengi: Peysur Skyrtur Hanzkar Náttföt Dömudeild: Dömukápur með skinnum. Terylenekápur nýkomnar á kr. 1495.— Peysur Blússur • Slæður Hanzkar Undirfatnaður o. fl. í fjölbreyttu úrvali.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.