Morgunblaðið - 04.01.1964, Síða 15
MORGU N B LAÐIÐ
Laugardagur 4. jan. 1964
15
Undraverö lækning
krabbameins
Eftlrfarandi fréttir birtust
fyrir skömmu í brezka blað-
inu „Medical News.“
• Veira veldur æxli
á manni
Miklar og margvíslegar
rannsóknir, sem miða að því
að upplýsa hvort veirur geti
valdið krabbameini, íara nú
fram í heiminum. Á 17. heims
þingi lækna, sem haldið var
í New York fyrir skömmu,
skýrði bandaríski læknirinn
og vísindamaðurinn James T.
Grace við Roswell Park Me-
morial stofnunina í Buffalo
frá því, að æxli hefði mynd-
azt í fingri hans eftir að hann
hafði stungið sig á nál. Á
nálinni var veira, sem notuð
hefur verið við tilraunir til
æxlismyndunar í öpum. Æxl-
ið, sem veira þessi veldur er
góðkynjað. Það var af slysni,
að hún komst í fingur vísinda-
mannsins, en viku eftir að
hann stakk sig, fundust and-
efni gegn veirunni í blóði
hans og á fingri hans var að
myndast æxli á alveg sama
hátt og æxlin, sem veira þessi
veldur þegar apar eiga í hlut.
Skömmu síðar voru riokkr-
ir sjálfboðaliðar fengnir og
veirunni sprautað í þá. Enginn
þeirra hafði áður komizt i
tæri við þessa veiru. Æxli
mynduðust í öllum sjálfboða-
liðunum og andefni fannst í
blóði þeirra.
Sýnt hefur verið fram á
að veirur geti valdið illkynj-
uðum æxlum og blóðkrabba-
meini i öðrum dýrum en mann
inum og Grace læknir sagði,
að enginn vafi gæti á >ví leik-
ið, að veirur gætu valdið ill-
kynjuðum æxlum í dýrarík-
inu allt upp til mannsins og
undarlegt væri, að maðurinn
væri alger undantekning frá
reglu, sem næði til allra ann-
arra tegunda dýraríkisins.
• Magakrabbamein
algengast
Átta til tíu sinnum fleiri
karlar en konur látast úr
lungnakrabba í Bandaríkjun-
um og Bretlandi. Kemur þetta
fram í skýrslu, sem Alþjóða
heilbrigðismálastofnunin
(WHO) gaf út fyrir skömmu
og nær yfir árin 1950-til 1960.
Áðurnefnt' hlutfall milli
karla og kvenna er miðað við
aldurinn 65—74 ára, en þegar
komið er yfir 75 ár, látast
fimm sinnum fleiri karlar en
konur úr lungnakrabba.
Rannsóknirnar, sem skýrsl-
an er byggð á sýna, að dauðs-
föll af völdum krabbameins
auksist um allan heim. Maga-
krabbamein er efst á listanum
yfir þær tegundir, sem flest-
um dauðsföllum valda í þeim
25 löndum, sem einkum voru
lögð til grundvallar við rann-
sóknirnar.
• Undraverð lækning
Á nýafstöðnum fundi
brezka læknafélagsins, var
skýrt frá undraverðri lækn-
ingu krabbameins, sem ekki
var hægt að skera burt. Full-
orðinn Breti, sem lengi hafði
stundað dýraveiðar í Kenya.
var að dauða kominn vegna
krabbameins í þekjuvef í
hálsi, en á síðustu stundu var
honum gefið lyf (cyclophos-
phamide) og varð hann al-
heill.
Veiðimaðurinn hafði fengið
æxli í tungu og útfrá því of-
vöxt eitils hægra megin á
hálsi. Eftir að hatxn hafði
verið skorinn upp og hlotið
geislameðferð, fór hann til
Kenya til þess að sækja konu
sína og börn. Honum var sagt
að koma aftur til sjúkrahúss-
ins innan þriggja mánaða til'
rannsóknar, en hann kom
ekki fyrr en að tíu mánuðum
liðnum.
„Þegar hann kom,“ sagði
prófessor Donald Harrison
við Lundúnaháskóla," hafði
ég aldrei séð annað eins. Æxl-
ið í kyrtlinum hafði breiðst
út á öxlina og fram á brjóst.
Veiðimaðurinn leið hræðileg-
ar kvalir og honum var gef-
inn stór morfínskammtur
þrisvar á sólarhring."
Vonlaust var talið að skera
manninn upp og Harrison ákv
að að gera síðustu tilraun til
þess að bjarga honum með
því að gefa honum áðurnefnt
lyf, en í stað þess að gefa
4 img. á hvert kg. líkamans
eins og venja er, gaf hann
veiðimanninum 40 mg á kg.
„Og okkur til mikillar undr-
unar,“ sagði prófessorinn,“
hvarf æxlið nær algerlega á
fjórum dögum.“ Veiðimann-
inum voru alls gefnir þrír
skammtar lyfsins í æð og inn-
an þrigja mánaða var hann
alheill orðinn.
Lyfið sem hér um ræðir
hefur í mörgum tilfellum gef-
ið mjög góða raun, en hins-
vegar hafa orðið nokkur dauðs
föll beinlínis af völdum þess.
Telja læknar óráðlegt að nota
lyfið fyrr en allar aðrar að-
gerðir hafa brugðizt. Lyfið er
gefið í slagæð og aðalvanda-
málið er að dæla því inn í æð
ina, sem nærir æxlið sjálft.
Til þess að gera þetta auð-
veldara er fyrst dælt litarefni
inn í æðina og fylgst með
ferðum þess til æxlisins.
•Skipt um nýru
í mönnum
Fyrir skömmu komu vísinda
menn, sem skipt haia um nýru
í mönnum eða fengizt við
rannsóknir á því sviði, saman
til fundar í Washington. Voru
þar komnir læknar og vís-
indamenn frá mörgum lönd-
um heims, meðal þeirra Jos-
eph Murray, læknir við Pet-
er Brent Bingham sjúkrahúsið
í Boston. Flutti hann fyrir-
lestur og benti m.a. á, að í
hrifningunni yfir hinum
miklu framförum í flutningi
nýra milli manna, mætti ekki
gleymast, að af 211 tilfellum.
(ekki meðtalinn flutningur
milli tvíbura) hefðu aðeins
sex sjúklingar lifað meira en
eitt ár eftir aðgerðina.
Alls hefur verið skipt um
nýru 244 sinnum í heiminum,
þar af hafa þau firnm sinn-
um verið flutt milli tvíeggja
tvíbura og tuttugu og átta
sinnum milli eineggja tví-
bura. 92 þeirra, sem fengið
hafa ný nýru, eru enn á lífi,
en 152 hafa látizt. Þegar tví-
burar eru frátaldir, hafa 144
látizt, en 67 eru á lífi. Af þess
um 67 hafa aðeins 6 lifað leng
ur en ár, eins og fyrr segir.
Murray læknir kvað ekki
hægt að efast um, að nokkur
bjartsýni ætti rétt á sér um
slíkar nýrnaaðgerðir, því að
fyrir tveimur eða þremur ár-
um hefði verið með öllu óhugs
andi að gera þær. Enn væri
þó ógerlegt að segja fyrir um
hvernig hver einstök aðgerð
myndi heppnast. Nefndi hann
sem dæmi sex aðgerðir þar
sem þrjár hefðu heppnazt, en
þrjár misheppnazt, þó að sama
tækni hefði verið notuð og
sjúklingarnir virzt jafn vel
undir þær búnir og jafn hæf-
ir til þess að taka við hin-
um nýju nýrum.
• Skordýraeitur-
sjálfsmorð
Hin síaukna framleiðsla
skordýraeiturs hefur víða
skapað alvarlegt vandamál
og æ fleiri dauðsföll verða
af völdum þess, bæði sjálfs-
morð og af slysni. j
Veggjalúsaeitur, sem verið
hefur á markaðinum í borg-
inni Madras, hefur reynzt
borgarbúum hættulegt, því að
minnsta kosti 50% allra sjálfs
morða í borginni eru framin
með inntöku stórs skammts
af veggjalúsaeitri. Á hverjum
degi eru tveir menn eða
fleiri lagðir inn á sjúkrahús
borgarinnar vegna neyzlu
þessa eiturs.
Samkvæmt upplýsingum
sjúkrahúsanna er það fyrst
og fremst fólk á aldrinum.
15—30 ára, sem reynir að
stytta sér aldur með því að
taka inri lúsaeitrið. Yfirvöld
í Madras hyggjast nú tak-
marka innflutning eitursins
og banna að það verði selt
í eins sterkri upplausn og
verið hefur.
fréttir úr læknisfræði
— Akvæbisvinna
Frammh. af bls. 8
eru óvandvirkir og eða kæru-
lausir, má búast við því að vegg
ir skekkiist, standist ekki mál og
göt og raufar gleymist. Af því
leiðir, að nota þarf loftpressur
til að brjóta göt og raufar og
tnúraranir fá aukagreiðslur
vegna viðbótarvinnu við afrétt-
ingu veggja o.fL
Óvandvirkni múraranna getur
svo leitt af sór aukna undirbún-
ingsvinmu hjá málurunum og
svona mætta lengi telja. Þeir,
sem hér eru nefndir fá auðvitað
hver um sig fulla greiðslu fyrir
sína vinnu, sa-mkvætmt verð-
skrám, en verkkaupinn stendur
berskjaldaður og verður að
greiða allan aukakostnað, sem
Ihonum verður ekki um kennt,
en iðnaðarmennirnir og verk-
takarnir eiga einir sök á. Að
verkin séu unnin í réttri tíma-
röð, skiptir einnig mifelu máli,
þvá verk, sem tmnin eru í rangri
tímaröð hlaða á sig allskyns
aukafeosnaði vegna árekstra á
tnilli starfsgreina, sem stundum
eru svo alvarlegir að úr verður
etkki bætt, þrátt fyrir mikinn
aukakostnað. Styður þetta allt
þá sfeoðun, að nauðsynlegt sé,
að verkin séu í höndum aðal-
verfetaka, sem hafi hag af því,
að verkin í heild gangi snuðru-
laust og séu unnin á þeim tím-
um, sem bentugastir eru verks-
ins vegna. Reykjavíkurborg hef-
ur haft forgöngu um að bjóða
verk út á þennan hátt og hefur
það orðið til þess að opna augu
margna fyrir gagnsemi þessar-
•r tilhögunar. Við höfum of
tengi ríghaldið í pöntunarfélags-
ajónarmiðin og litrið svo á, að
feostnaður við stjórn og skipu-
lagningu vaeri óþarfa milliliða-
kostnaður, sem bezt væri að
komast hjá ef mögulegt væri,
en reynsla annarra þjóða, sem
lengra eru komnar í þessum
efnum, hefur sýnt, að þessi skoð
un er röng.
í sambandi við ákvæðisvinnu
er ýms vinna, eins og t.d. hand-
löngun, sem sérstök þörf er á
að hafa vakandi auga á að sé
ekki misnotuð. Sú vinna er utan
við ákvæðisvinnutaxta-na og
því stöðug ásókn á, að hún sé
sem mest, en-da verkar hún sem
bein kaupbót, sé -hún notuð fram
úr hófi. Um rétt ákvæðisvinnu-
manna gilda ákveðnar reglur og
er það hlutverk verktakans að
gæta þess, að þessar reglur séu
haldnar. Hafi verktakinn allan
veg og vanda af verkinu, liggur
í augum uppi að honum er lifs-
nauðsyn að gegna því hlutverki,
en hafi hann aðeins prósentur
af kostnaði, má hann vera með
afbrigðum samvizkusamur, ef
hann leggur mikið á sig til að
halda þessu í lagi. Einkum er
þetta erfitt, þegar skortur er á
vinnuafli og óvinsælt af þeim,
sem vinna verkin að haldið sé
stíft við þessar reglur, enda
kemur oft fyrir að verfekauparnir
sjálfir slaki til í þessum efn-
um. Uppbygging ákvæðisvinnu
taxtanna er mjög vandasöm og
gera má ráð fyrir, að nokkurra
ára reynslu þurfi til þess að
fullt samræmi skapist á milli
hinna einstöku liða innbyrðis.
Þetta samræimi er engu að
síður mikilvægt fyrir þá sem
verkin vinna, en þá, sem vinn-
una kaupa. Reynslan hefur sýnt,
að innra misræmi taxtanna hef-
ur valdið því, að sum verk eru
ofborguð og þá oftast þau gróf-
ari og vandaminni. Vandameiri
verkin hafa orðið útundan og
stundum svo, að varla eru menn
lengur fáanlegir til að vinna þau
sé önnur vinna í boði.
í samningum um ákvæðis-
vinnutaxtana, mun vera gert
ráð fyrir endurskoðun þeirra,
en slík endurskoðun er varla
framkvæmanleg, nema að til sé
yfirlit (statistik) ytfir heildarút-
komu verka, en þessháttar yfir-
lit verður ekki til nema, að
gögnum sé safnað og úr þeim
unnið á þann hátt, að fyrir liggi
á hverjum tíma, hver sé meðal-
útkoma pr. klukkustund i hverri
tegund . ákvæðisverka ásamt
hæstu og lægstu útkomum.
Séu slík yfirlit til fyrir hverja
starfsgrein, verður fljótlega
vart við, ef óeðlilegar sveiflur
verða upp eða niður, en þær
sveiflur gefa tilefni til athugun-
ar og endurskoðunar eftir fyrir-
fram ákveðnum reglum.
Ýms vandkvæði eru á að koma
þessháttar reglu á hlutina, og
er erfiðast viðfangs hin mikia
eftiirspurn eftir vinnuaifli.
Úrvinnslu gagna þyrftu kunnáttu
menn að gera og myndi sú vinna
vera nofefeuð toostnaðarsöm en
sta-rfsgreinar eru tiltölulega fá-
mennar. Þá þurfa þessar upp-
lýsingar að vera algjörlega hlut-
lausar og því miður eru ekki til
nein samtöfe, sem fyllilega geta
talizt gæta hagsmuna verkkaup-
ans, en það myndi breytazt, ef
ábyrgð verfetakanna yrði meiri,
en bún er nú.
Það má búast við, að menn
yrðu tregir til að samþykkja
siíka skýrslusöfnun, af hræðslu
við skattaytfirvöldin, en þá
bræðslu gætu stjórnarvöld yfir-
unmð með heilbrigðri sköttun
atvinnureksturs, en í þá átt
virðist hafa stefnt nú síðustu
árin.
Mjög varasamt mun vera að
sctja þröngar skorður við út-
komu einistakra verka, því ýmsar
óvenjulegar ástæður geta valdið
misjatfnri útfeomu og er tilgang-
urinn með notkun þessarar vinnu
tilhögunar einmitt sá, að mis-
inunandi eiginleikar einstakling-
anna geti notið sín og nýtzt fyrir ,
þjóðfélagið í heild. Þó má vera
að þar sé nauðsynlegt að setja
einbver takmörk, en endurtæfei
t. d. góð útfeoma sig oft í ein-
stöku verfcum, myndi það koma
fram á heildaryfirliti og skapa
sveiílu, sem tekið yrði eftir. Af
þeim sökum er nauðsynlegt að
setja tiltölulega lágt hámarks-
tafemark á meðaltalsútkomuna,
sem skyldaði endurskoðun. Þeg-
ar svo væri komið að reistar
væru skorður við óeðlilega mikl-
um hagnaði af ákvæðisvinnunni,
má telja eðlilegt að ákvæðis-
vinnumönnum yrði tryggður
r 0
— Arásin
Framh. af bls. 3
líffæri eða önnur álíka mik-
ilvæg. Þó varð að gera upp-
skurð á okkur báðum, hremsa
blóðklepra og fleira, sem nauð
synlegt þótti.“
„Þið voruð þarna við flug-
virkjanám?“
„Já. Við áttum eftir um
vikuundirbúning undir próf,
þegar þetta gerðist og vorum
ekki lengur á spítalanum en
svo, að við gátum lokið próf-
inu fyrir jólin.“
„Halldór er ennþá vestra?"
„Já hann varð að ganga aft
ur undir uppskurð, en er nú
talinn á góðum batavegi og
úr allri hættu.“
„Hvað gerðu þeir svo við
árásarmanninn? “
Enn er ekki lokið nema
undirbúningsrannsókn máls-
ins, og hefur Skaggs verið lát
inn laus gegn tryggingu, en
lægsti tímakaupstaxti, einkum,
ef fallist yrði á að taxtarnir
yrðu endurskoðaðir í heild, af
kunnáttumönnum. Hér hefur
verið stiklað á stóru, en það sem
hér hefur verið minnst á sýnir,
að við ýmsa erfiðleika er að
etja, varðandi framkvæmd verka
í nýbyggingum og mun ekki
veita af að menn sameini krafta
sína til úrlausnar vandamálun-
um.
Illa rökstuddar ádeilur og
uppfhrópanir vegna einstakra
einangraðra dæma, leysa ekiki
vandamálin, en hóflegar umræð-
ur um vandamálin geta leyst
úr læðingi þau öfl, sem megniug
eru að sameinast um raunhæfar
aðgerðir, sem verða mættu til
umbóta í þessum efnum.
Árni Brynjólsson.
hann mun vera vel í álnum.
Aðalréttarhöldin munu hafj-
ast seint í þessum mánuði, en
við Halldór munum ekki
þurfa að mæta þar, þar sem
við höfum lagt fram okkar
vitnisburð um öll málsatvik."
„Heldurðu að þið fáið eng-
ar skaðabætur?“
„Við gerum að sjálfsögðu
skaðabótakröfur, en það mál
mun ekki tekið fyrir, fyrr ein
næsta vetur. Þá munum við
verða að mæta þar vestra i
sambandi við það.“
„Hafið þið nokkuð frétt af
fyrrverandi gestgjafa ykkar,
Jacqueline Owings?"
„Nei“ svarar Ketill „af
henni höfum við engar spurn
ir haft, enda enga eftirgrennsl
an gert í þá átt.“
Ég þakka Katli greiðar og
góðar upplýsingar og kveð
hann og hina vingjarnlegu
fjölskyldu hans. S.K.