Morgunblaðið - 08.01.1964, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 08.01.1964, Qupperneq 2
MORGUNRLAOID Miðvikudagur 8. Jan. 1964 Þýzkir segja gosið skaða gofstöðvar þorsksins Vart vísindalega rökkstuddar fullyrðingar, segir Jón Jóns- fiskifræðingur son, MORGUNBLAÐINU barst í gær einkaskeyti frá Bremer- haven, þar sem haft er eftir talsmanni Sambands þýzkra togaraeigenda, að eldgosið kunni að hafa alvarlegar af- leiðingar fyrir þorskveiðar á næstu árum. if Blaðið hafði tal af Jóni Jónssyni fiskifræðingi í gær- kveldi og spurði hann álits á þessum ótta Þjóðverja. — Kvaðst Jón ekki sjá, að hann hefði við gild rök að styðjast. Símskeytið hljóðaði svo: Bremerhaven, 7. jan. frá AP. Talsmaður Sambands þýzkra togaraeigenda sagði í dag, að ótt azt vaeri, að gosið undan strönd tslands kynni að skaða mjög þorskveiðar þar. Sagði talsmaður inn áætlað, að gosið muni valda eyðileggingu á hrygningarstöðv- um þorsks á um það bil eitt hundrað fermílna svæði — og það svæði, þar sem þorskurinn hafi hrygnt í um það bil þúsund ár, á timabilinu marz til mai á vorin. Þýzkir sérfræðingar telja, að þvi er maður þessi sagði, að það kunni að taka nokkur ár að finna nýjar hrygningarstöðvar, ef þorskurinn hrekst frá gossvæð- inu. Sem fyrr segir spurði Mbl. Jón Jónsson, fiskifræðing álits á þess um ummælum og taldi hann þau ekki eiga við rök að styðjast. „Ég veit ekki hvaða maður það er, sem hefur látið hafa eftir sér þessar fullyrðingar“, sagði Jón — „en þær geta varla verið byggðar á vísindalegum rann- sóknum, því að mér er ekki kunn ugt um, að erlend rannsóknar- Hin látna hét Guðný Si^urðard. EINS og Morgunblaðið skýrði £rá í gær, beið 71 árs gömul kona bana á Akureyri á mánudags- fcvöld af afleiðingum umiferða- slyss. Konan hét Guðný Sigurðardótt ir, til heimilis að Gleráreyrum 14, Akureyri. skip, hvorki þýzk né annarra þjóða, hafi gert neinar rannsókn ir í sambandi við gosið í Surts- ey“. Og Jón bæti við: „Það er mjög vafasamt, að gosið skemmi hrygningarstöðvar þorsks, þar sem hrygning þorsks og allra nytjafiska okkar, annarra en síldar, fer fram alllangt ofan við botninn. Rannsóknarleiðangur Fiskideild arinnar seinni hluta nóvember- mánaðar sl. gaf ekki til kynna neina röskun á dýralífi í nánd við gosstaðinn. Þorskurinn hrygnir á öllu svæð inu frá Hornafirði og allt norð- ur meö Vestfjörðum, þótt megin hrygningin fari fram á Selvogs- banka. Hann ætti því ekki að Landlega á Akranesi LANDLEGA hefur verið hér í gær og í dag. Nú er hann á suð- vestan, 8—10 vindstig til djúp- anna. Hávaðarok var í allan dag og fáir eru á ferli í bænum nema í bílum. Unnið er af kappi við að koma söluturninum í lag, sem brann að innan í gær. — Oddur. Sem fæstir. Framh. af bls. 1 fara til Tókíó í lok mánaðarins í stað sex ráðherra, eins og áð- ur hafði verið ákveðið. Þá telur Johnson forseti æski- legt, að utanríkisráðherra lands- ins og landvarnaráðherra séu aldrei báðir í senn utan höfuð- borgarinnar. Ráðstafanir þessar eru fyrst og fremst byggðar á aðstæðum rík- isstjórnarinnar daginn, sem Kennedy forseti var myrtur. — Þann dag voru sex ráðherrar fjarri Washington — auk forset- ans og varaforsetans, sem sam- an voru í Dallas. Voru ráðherrarnir sex allir í sömu flugvélinni, ásamt sex að- stoðar-ráðherrum, á leið til fyrr- greindra viðræðna í Tókíó. Vél- inni var, sem kunnugt er, þegar snúið við er fréttist um atburð- j dánarson, ina í Dallas. vera á flæðiskeri staddur, þótt nokkurra fermilna svæði kynni að lokast af völdum gossins“. Að lokum sagði Jón Jónsson, fiskifræðingur: „Fiskideildin mun að sjálfsögðu reyna eftir beztu getum að fylgjast með hugsanlegum áhrifum gossins á fiskistofna á þessu svæði. En ég sé ekki, að neitt bendi til þess, að gosið geti haft bein áhrif á hrygningu þorsks á komandi vetr arvertíð“. Sæluhús Vegamálastjómarinnar á Þorskafjarðarheiði, sem reist var 1956. Sæluhúsin á F róðárheiði og í Kerlingarskarði á Snæfellsnesi eru af sömu gerð. umgengm i en skemmdarverk sæluhúsum sjaldgæf í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær kom m.a. fram, að skemmdar- verk hefðu verið unnin á sælu- húsi Vegagerðarinnar á Fróðár- heiði. Voru ljós og hitunartæki í ólagi, enda þótt nýlega hafi verið dyttað að þeim. Morgumblaðið hafði í gær sam- band við Jón Víðis, sem hefur umsjón með sæluhúsum Vega- gerðarinnar, og spurði hamn um urmgengni í þeim. Jón kvað skemmdarverk mjög sjaldigæf í sæluhúsunum', en hins vegar væru umgemgnishættir misjafnir. Helztu sæluhús Vegagerðarinn- ar eru burstarhúsin svonefndu á Þorskafjarðarheiði, Fróðárheiði og í Kerlimgarskarði. Auk þeirra má geta hússins á Holta- vörðuheiði, sem er elzt. Sagðist Jón ekki vita til þess, að skemimd a.-verk hefðu verið unnin í neinu þessara húsa, en stundum hafi verið gemgið sóðalega um. Einnig kvað Jón dæmi þess, að gestir hafi þvegið sæluhúsin hátt og lágt eftir gistingu og skilið eftir sbemmtileg þaklcarávöirp í gesta- bókum. Þá hafði blaðið tal af Eimari Guðjohmsen, framkvaemdastjóra Ferðafélags Islands. Hafði hann sömu sögu að segja og Jón, að rmeintar skemmdir vaeru sjald- gæfar, en kvað hirðuleysi og sóðaskap mjög áberandi, einkum þar sem auðvelt er að aka að húsumum, eims Og t.d. í Hvítárnes skálmum. Sagði Einar, að ekiki væri fámennum hópi um að kenna, heldur miklum fjölda ferðamanna, jafnt inmlendra sem erlendra. Sæluhús Ferðafélagsims eru 8 talsins. Síðan var rætt við Henry Hálf framkv.stjóra Slysa- vainarfélags íslands, sem komið Russell endursendir frið- arverðlaun A-þjóðverja London, 7. jan. NTB. • Heimspekingurinn Bertrand Russell, lávarð- ur, skýrði frá því í dag, að hann muni endursenda Karl Von Ossietzky- heið- ursmerkið, sem austur- þýzka „Friðarráðið“ sæmdi hann fyrir nokkru. Kveðst hann gera svo í mótmæla- skyni við það, að austur- þýzk yfirvöld halda enn í fangelsi Hanz Brandt, sem sat í sömu fangabúðum nazista og Von Ossietsky. Russell lávarður kvaðst hvað eftir annað á síðustu tveim árum hafa beint þeim tilmælum tii austur-þýzku stjórnarinnar, að hún léti Bcrtrand Russell. Brandt lausan úr fangelsl, en nú sé kominn tími til að mál- ið verði opinbert gert. Russell var sæmdur Ossietz- ky heiðursmerkinu 16. maí sl. Hann kvaðst hafa veitt því viðtöku þá, sökurn þess, að hann hefði’ dáðst að Karli von Ossietzky eins og öðrum þeim, er hugrekki höfðu til þess að berjast gegn Hitler, þá veldi hans stóð sem hæst. Heinz Brandt, sem Russell hefur óskað að verði látinn laus, er blaðamaður, sem flýði frá Austur Þýzkalandi til Vest ur Þýzkalands árið 1958. Árið 1961 var hann staddur í Ber- lín og hvarf þá skyndilega. Síðar kom í ljós, að hann hafði verið handtekinn af A- þýzku lögreglunni. í maí 1962 var hann dæmdur af a-þýzk- um dómstóli til 13 ára hegn- ingarvinnu fyrir njósnir. hefur upp 36 sæluhiúsum og skip brotsmannaskýlum víðs vegar um landið. Kvaðst Henry hafa komið í flest húsin síðastliðið sumar, og Xiefði umgengni verið ágæt, einkum í þeim, sem eru í þjóðbraut. Engar skeimmdir hefðu verið neins staðar, en á einstaka afsikekktm stað, hefðu útileguveiðiimenn gireiinilega haft aðsetur nokkurn tíma og gengið nokkuð á vistirnar. Nehru tekur sér hvíld í nokkrar vikur Rætl um hugsanlegan efftirmann hans Nýju Dehli, 7. jan. — (AP) if JAWAHARLAL Nehru, forsætisráðherra Indlands, hefur ákveðið að taka sér al- gera hvíld frá störfum í 2—3 vikur, að ráði lækna sinna. Hafa greinileg merki þreytu og lasleika sézt á honum að undanförnu, og hefur hann þó unnið fullan venjulegan starfstíma dag hvern. í opin- berri tilkynningu um ákvörð- un Nehrus segir, að blóðþrýst ingur hans hafi verið of hár síðustu dagana og telji lækn- ar hans óhjákvæmilegt, að hann fái algera hvíld um hríð. Fregn þessi hefur sem vænta má ýtt undir umræður stjórn- málamanna í Indlandi og víðar, itm hugsanlegan eftirmann Neh- rus. Koma helzt til tals, að því er AP hermir, frú Indira Ghandi, dóttir Nehrus, sem er 46 ára að aldri, og innanríkisráðherrann, Lal Bahadur Shcistri, sem er sex tugur. Segir AP, að meðal for- ystumanna Kongress-flokksins eigi frú Indira Ghandi öflugri stuðning en ráðherrann. Hún er Skipulagðri leit að Bárði Jóns- syni hætt SKIPULAGDRI leit að Bárði Jónssyni, BorgarXioltsibraut 37A Kópavogi, hefur verið hætt. Hann hvarf að heiiman frá sér 30. des. síðastliðinn. Bárður er 68 ára að aldiri og var hann bóndi í Mýrdal mestan hluta ævinnar, en fluttist að Traðarkoti í StokkseyrarhreppL fyriir 2 árum og s.l. vor til dótt- ur sinnar og tengdasonac í Kópa vogi. Mjög umfangismikil leit hefur verið gerð að Bárði. Lauk henni 3. janúar, en þann dag var leitað úr þyrlu og gengið á fjörur. — Skipulögð lei-t mun ekiki faxa fram auftur að sinnL sögð hafa svipaðar skoðanir og faðir hennar, — og þó hallast heldur meir en tii vinstri en hann, svo líklegt er talið, að hún fengi traustari stuðnging vinstri arms flokksins, er Krishna Men- on, fyrrverandi landvarnaráð- herra hefur forystu fyrir. Shastri tilheyrir aftur á móti miðarmi Kongress-flokksins — en hann er talinn öllu liklegri til þess að geta eflt einingu inn- an flobksins en frúin. Stjórn-. málaferiill hans er sagður með fádæmum snurðulaus og hann er talinn einkar vitur maður og heiðarlegur í alla staðL Nehru, forsætisráðherra er nú 74 ára að aldri. Orðrómur hefur verið á kreiki öðru hverju um, að hann væri Xialdinn æðakölk- un, en læknar hans hafa neitað að staðfesta það. f UMSÖGN um jólatónleika Sin- fóníuhljómsveitar Islands, sem birtist í Mbl. 3. þ.m., féll niður svohljóðandi setning: Stjórnandi hljómsveitarinnar var Páll Pampichler Pálsson, og leysti hann sitt hlutverk af hendi með þeirri nákvæmni og snyrti- mennsku, sem viðfangsefnin gáfu tilefni tiL J. Þ,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.