Morgunblaðið - 12.02.1964, Qupperneq 3
MORGUMBIABIÐ
3
Miðvikudagur 12 fpbr. ,19,64
Unnið að uppsetningu á „sjóðara“ verksn/iöjunnar. — Ljósm.: Sigurgeir.
Full afköst gefa hálfrar milljón
króna útflutningsverðmæti
Fiskimjölsverksmiðja Einars Sigurðs-
sonar í Eyjum tekin til staría
NÝ síldar- og fiskimjölsverk-
smiðja tók til starfa í Vest-
manr • /jum um helgina, eign
Einars Sigurðssonar, útgerðar
manns. Full afköst verksmiðj-
unnar verða 2.500 mál a sólar-
hring, en til að byrja með
verða afköstin þó aðeins 1.500
mál.
Hafizt var handa um fram-
kvæmdir í aprílmánuði síðast
liðnum og var byrjað á véla-
uppsetningu strax og verk-
smiðjuhúsið var tilbúið. Menn
frá Vélsmiðjunni Héðni hafa
• * rið í Eyjum mánuðum sam-
an til að setja upp vélarnar,
en raflögn hafa annazt raf-
virkjar frá Haraldi Eiríks-
syni.
Hin nýja verksmiðja hóf að
taka á móti síld í þrær sínar
miðvikudaginn 5. febrúar og
munu þær taka fuligerðar um
20 þúsund mál. I>á er í ráði
að hefja byggingarfram-
kvæmdir innan tíðar við stóra
mjölgeymslu, sem verður 1500
* rmetrar að flatarmáli.
Gert er ráð fyrir, að 20—25
manns komi til með að starfa
við verksmiðjuna og verður
væntanlega unnið á vöktum
ef um áframhaldandi veiði
verður hjá síldarbátunum.
Með tilkomu hinnar nýju
síldarbræðslu stóraukast
mögt • .kar til síldarmóttöku
í Vestmannaeyjum, en það
hefur háð bátaflotanum veru-
legu, að fjölmargir bátar hafa
orðið að sigla með aflann alla
leið til Reykjavíkur frá veiði-
svæðinu á Síðugrunni og þar
fyrir austan. Miðað við
ir um sólarhringssiglingu
fram og aftur geti þeir lagt
upp í Eyjum.
í viðtali viS Morgunblaðið í
gær sagði Einar Sigurðsson:
— Bræðslan hófst á mánu-
dagsmorgun og þá voru 7 þús-
und mál í þrónum. Fyrsti
mjölpokinn var tilbúinn eftir
hádegi og þá var það gert til
gamans að losa mjölið úr hon-
um aftur. Svo skrifuðu allir
þeir, sem hafa unnið að bygg-
ingu verksmiðjunnar, nöfn sín
á pokann, sem verður * ymd-
ur sem minjagripur, kannski
rammaður inn.
— Þetta gengur ágætlega,
þótt ýmsir byrjunarörðugleik
ar hafi gert vart við sig. Verk
smiðjan afkastar 1500 málum
á sólarhring eins og • -t var
ráð fyrir og eftir svo sem
vikutíma mun hún starfa með
fullum afköstum, 2500 málum.
— Mjölið er gott og lýsið
fallegt. Útflutningsverðmæti
framleiðslunnar á sólarhring
eru um 300 þúsund krónur, en
’ * i’ða um hálf milljón á sólar-
hring þegar unnið verður með
fullum afköstum. í sumar geri
ég úf 9 báta á síld, þar af 3
stóra stálbáta.
— í haust eru liðin 40 ár
frá því ég hóf starfrækslu í
Vestmannaeyjum, aðeins 18
ára gamall, nýkominn út úr
Verzlunarskólanum. Ég var
Svo ungur að ég mátii ekki
• 'ia fyrirtæki í eigin nafni
svo ég varð að gera það á
nafni móður minnar.
— Framkvæmdastjóri við
verksmiðjuna, sem kölluð
verður Fiskimjölsverksmiðja
Einars Sigurðssonar, er Hilm-
ar Kriátjánsson, sagði Einar
að lokum.
I * ykjavík vinna sildarbátarn-
Hilmar Kristjánsson, framkvæmdastjóri hinnar nýju verksmiðju, Einar Sigurðsson, og Ólafur
Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðv arinnar. — Ljósim.: Sigurgeir.
Fyrsti pokinn fyllist af ágætu síldarmjöli: — Ljósm. Sigurgeir.
Síldin hrúgast upp i þrónni. —
Ljósm.: Siigurgeir.
STAKSTE! Wl!
Verkföllin og dreifbýlið
VESTURLAND, blað Sjálfstæðis
manna á ísafirði, birti fyrir
skömmu forystugrein undir þess-
ari fyrirsögn. Segir þar í upp-
hafi, að margvíslega lærdóma
hafi n-.itt draga af verkföllun-
um miklu, sem gerð voru í des-
ember. Sá veigamesti sé, að verk-
fallsvopnið sé löngu orðið úr-
elt til þess að tryggja afkomu
og hag vinnandi stétta.
Síðar í forystugreininni er
rætt um á.hrif verkfallanna hér
syðra á líf og starf fólksins úti
á landi. Er þar komizt að orði
á þessa leið:
„f verkföllunum miklu í des-
ember gekk svo langt, að rrenn
voru reyrðir i átthagafjötra.
Verkfall suður í Faxaflóa var
látið bitna af ofurþunga á fólk-
inu í dreifbýlinu. Flugsamgöng-
ur voru stöðvaðar, samgöngur
á sjó sömuleiðis, og í Iandshlut-
um, sem ekkert vegasamband
hafa að vetrarlagi, eins og sums
staðar hér á Vestfjörðum, voru
ibúarnir króaðir inni og komust
hvorki að heiman né heim*
Flutningar á lifsnauðsynjum
voru stöðvaðir með verkfalls-
valdi, og við lá, að atvinnu-
rekstur í mörgum greinum stöðv
aðist vegna skorts á ýmsum
rekstrarvörum. Svo langt var
gengið í vitleysunni, að menn
fengu ekki einu sinni póstinn
sinn afgreiddan.
Þessi verkföll við Faxaflóa
voru þannig látin bitna á heil-
um landshlutum, sem ekki höfðu
neitt til saka unnið og ekki átt
í neinu verkfalli, né gátu haft
nein áhrif á gang deilunnar“.
Endurskoðun vinnu-
löggjafar nauðsynleg
f forystugrein Vesturlands
segir síðan:
„Slíkir atburðir leiða hugann
að því, hvort ekki né nauðsyn-
legt að Alþingi taki á sig rögg
og setji nýja og viðunandi vinnu
löggjöf. Það mál hefur verið
rætt árum saman og virðast
flestir á einu máli um knýjandi
nauðsyn þess, að endurskoða og
endurbæta gildandi vinnulög.
gjöf, sem orðin er n-.jög úrelt“.
Gort Framsóknarmanna
Mikið er hvað moldin rýkur.
Nú gorta Framsóknarmenn af
því, að það sé „árangur jákvæðr
ar stjórnarandstöðu“ þeirra,
sem birtist í flutningi ríkis-
stjórnarinnar á merkum umbóta-
málum á Alþingi í þágu land-
búnaðarins. Því fer víðs fjarri
að Framsóknarmenn og þeirra
ábyrgðarlausa framkoma eigi
minnsta þátt í flutningi þessara
merku umbótamála. Alþjóð man
hina heimskulegu og ofstækis-
fullu baráttu Frarr.íóknarmanna
gegn stofnlánadeild landbúnað-
arins fyrir nokkrum árum. En
með myndun stofnlánadeildar-
innar og tryggingu tekjustofna
hennar varð lánasjóði landbún-
aðarins forðað frá því gjald-
þroti og öngveiti, sem Fram-
sóknarmenn og vinstri stjórnin
skildu við þá í. Nú lánar stofn-
lánadeilidin árlega á annað
hundrað milljóna króna til upp-
byggingar í sveitum landsins.
Er það meira fé en nokkru
sinni hefur verið lánað í því
skyni. Auk þess hefur veðdeild
Búnaðarbankans verið stórlega
efld. Gegn öllum þessum. umbót-
um hafa Framsóknarmenn bar-
izt af þrákelkni og afturhaldi.
Umbótafrumvörpin, sem ríkis-
stjórnin nú hefur lagt fyrir AI-
þingi og miða að stuðningi við
aukna ræktun, súgþurrkun og
framkvæmdir í sveitum lands-
ins, eru fyrst og frem.it verk
ríkisstjórnarinnar og flokka
hennar. Framsóknarmenn hafa
þar hvergi nærri komið.
y1