Morgunblaðið - 12.02.1964, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 12.02.1964, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 12. febr. 1964 MORGUNBL \ÐIÐ 9 Helga Jónsdóttir - Minning FÖÐURSYSTIR mín, Heiga Jónsdóttir frá Hvammi í Dýra- firði, verður jarðsett í dag. í minningu hennar vil ég leitast við að skrifa nokkur fátækleg orð og reyna að bregða upp snöggri svipmynd af hinni látnu konu. Þejrri mynd hlýtur að vísu að verða í ýmsu ábótavant, t>ar sem persónuleg kynni okkar hófust aðeins fyrir átta árum, en J>á höfðu langvarandi sjúkdómar slævt iífsþrótt þessarar atörku- sömu kon-u, sem loksins yfirbug aði hana fyrir aldur fram. Helgu hefur verið lýst þannig fyrir mér, að í æsku hafi hún verið fríð og fíngerð kona, skap- rík, myndarleg til allra verka og hefði hún sómt sér vel sem húsfreyja á rausnarbúi. í æðum bennar rann þingeyskt blóð, þó hún væri fædd og uppalin í Dýra firði. Foreldrar hennar voru Jón Þórarinsson, búfræðingur, frá Sigluvík á Svalbarðsströnd, sem lengst bjó í Hvammi í Dýrafirði, og kona hans, Helga Kristjáns- dóttir frá Végeirsstöðum i Fnjóskadal. Eru þau bæði látin fyrir mörgum árum. Heiga var Bjöunda i röðinni af eliefu syst- kinum og það fimmta sem kveð- tir; bræðurnir tveir sem báðir báru nafnið Sigurður, létust í sesku, Lísbet kvaddi í blóma Sífsins og næstelzti bróðirinn, Gunnar, dó fyrir þremur árum. Eftir lifa Jóhann, sem er eiztur eystkinanna, og systurnar Sigur- veig, Kristbjörg, Anna, Valgerð- wr og Vilborg. Helga heitin fæddist á Lækjar ósum við Dýrafjörð 17. nóvem ber 1905, en fluttist ung að Hvammi við sama fjörð. Hún fór snemma að vinna fyrir sér, eins og títt var í þá daga, og var í vist á Þingeyri, ísafirði og víðar. Árið 1931 giftist hún eftirlifandi fnanni sínum Kristni Vilhjálms- syni frá Tungu í Skutuisfirði og stofnuðu þau heimili i Reykja- vík. Lengst bjuggu þau í Kópa- vogi, samtals 18 ár. Börn Helgu og Kristins eru fjögur talsins. Elzt er Auður, bú sett í Reykjavík, gift Guðmundi Sigurðssyni, þá Margrét, búsett í Borgarnesi, gift Magnúsi Andréssyni frá Síðumúla í Borg arfirði, Vilhjálmur Bessi, búsett ur í Reykjavík, kvæntur Sigríði Björg Hóimgeirsdóttur frá Húsa vik, og yngstur er Einar, 16 ára gamall. Barnabörn þeirra eru nú orðin sex. — xxx — Þegar ég kynntist Helgu írænku bjó hún á Þinghólsbraut 25 í Kópavogi. Litla húsið þeirra Kristins stóð í stóru túni, trén kringum það tekin að stækka, sólarmegin baðaði allt í blómum að sumarlagi, enda húsfreyjunni sýnt um ræktun, og hænur spíg- sporuðu um í varpanum. Þegar hún flutti þangað fyrir rúmum átján árum voru örfá hús á Kárs nesinu. Aðstaðan þar var hin erfiðasta, hvorki vatn, rafmagn né frárennsli tengt við húsið og samgöngur erfiðar. Þó tókst Helgu að búa manni sínum og börnum þar hlýlegt heimili. Þeg ar hún flutti þaðan á sl. hausti að Hringbraut 91, sem var sein- asti bústaður hennar hér á jörð, hafði umhverfið tekið allmiklum stakkaskiptum frá því sem áður var; hús höfðu risið upp allt í kring og á bletti hennar,. og nauð synlegustu þægindi komin í hús ið. Ég hygg að Helga hafi kunnað breytingunum vel, enda félags- lynd að upplagi og hafði gam- an af að ræða við fólk. Hún bjó yfir skemmtilegri frásagnargáfu, var orðheppin og hafði sérkenni lega rödd. Er hún mér einkar minnisstæð, þegar hún kom á heimili foreldra minna, og hún og faðir minn, þá farinn að heilsu, rifjuðu upp gamlar end- urminningar frá kæra, gamia heimilinu, sakleysileg bernsku- brek og skemmtisögur af sveit- ungunum. Þá hló Helga oft sín- um dillandi hlátri, sem smitaði frá sér. Helgu Jónsdóttur var margt til listanna lagt, sem of langt yrði hér upp að telja. Hún var húsmóðir góð, handlagin, bók- hneigð og fróð um ýmsa hluti. Þó hún væri lágvaxin og kvenleg, sópaði að henni og hún skar sig úr fjöldanum. Hún kom ætíð til dyranna eins og hún var klædd, lét í ijós skoðanir sínar á hisp- uslausan hátt, hvort sem mönn- um líkaði betur eða ver, var fljót til sátta, raungóð og vildi ölium gott gera. Varð ég við mörg tækifæri vör við hjarta- hlýju hennar og sterkar tilfinn- ingar. Eins og ég sagði í upphafi grein ar þessarar átti Helga Jónsdóttir við langvarandi veikindi að stríða. Hún var rétt liðlega tvi tug þegar heilsuleysi tók að á- sækja hana, sem jókst með ár- unum. Hún barðist hraustlega við örlög sín en varð loks að lúta iægra haldi. Banalega henn ar var stutt. Hún andaðist í Borg arsjúkrahúsinu 3. febrúar sL Dauðinn sótti hana heim i svefnL Blessuð sé minning hennar. Halldóra Gunnarsdóttir. Kranar Rennilokar —4”. Gufukranar, allar teg. Tollahanar Vi”—3”. Rennilokar úr járni 2”—8”. Vald Poulsen hf. Klapparstíg 29. — Simi 13024. BUID jjER A HITAVEITU SVÆÐI? Ef svo er, ættuð þér að færa yð- »r í nyt nýjustu hitastillitækni. Hinn sjálfvirki DANFOSS hita- veituloki fullkomnar þægindi bitaveitunnar. Þessi loki er byggður samkvæmt niðurstöðum á tilraunum og reynslu margra ára. DANFOSS lokunum hefur verið komið fyrir í fjölmörgum ibúð- um, einbýlishúsum og opinber- «m byggingum. HEÐINN Vélaverzlun Seljavegi 2, simi 2 42 60 Skrifstofustúlka óskast til starfa í sendiráði Islands í Bonn (Bad Godesberg). Þýzku-, ensku- og vélritunarkunnátta nauðsynleg. Umsóknir óskast sendar utanríkisráðu- neytinu, Stjórnarráðshúsinu, Reykjavík. Utanríkisráðuneytið, Reykjavík, 10. febrúar 1964. 4ra herb. íbúðarhœð Til sölu er 4ra herbergja íbúð á 1. hæð við Kirkju- teig (110 ferm). Tvöfalt gler. Teppi á gangi og' Hansa gluggatjöld fylgja. Sér inng., hitaveita. Bíl- skúr. — Allar nánari uppl. á skrifstofunnL Skipa- og Fasteagnasalan (Jóhannes Lárusson hrl.) Kirkjuhvoli — Símar 14916 og 13842. Útsala — Stórlœkkað verð Drengja- og karlmannabuxur úr terylene. Drengja- og karlmanna vestispeysur. Mislitar karlmannaskyrtur. Karlmannafrakkar, drengjafrakkar. sel Klapparstíg 40. Tvœr konur geta fengið atvinnu hálfan eða allan daginn. — Uppl. gefur yfirhjúkrunar- konan. Elli og hjúkrunarheimilið Grund. Stúlka getur fengið vinnu hjá okkur nú þegar. Ekki yngri en 20 ára. Uppl. í dag og á morgun á Vöruaf- greiðslunni, Laugavegi 16 (Laugavegs Apóteki) II. hæð. — Uppl. ekki veittar í síma. EFNAGERÐ REVKJAVÍKUR H.F. Höfum gott úrval af þessum eftirspurðu KERTUM í flestar vélategundir. BLOSSI SF. Laugavegi 176 — Sími 23285.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.