Morgunblaðið - 05.03.1964, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.03.1964, Blaðsíða 13
FimmtudagUr 5. marz 19S4 MQRGUNBLAÐIÐ 13 Deilt um biorgunarlaun í HÆSTARÉTTI hefur verið kveðinn upp dómur í máli, er reis út af strandi m.s. Xisse frá Holíandi, en skipið strandaði undan Melrakkasléttu þann 21. ágúst 1960. í málinu var um það deilt, hvort um björgun hefði verið að ræða af há.lfu m.s. Þor- steins og m.s. Asks, en þau skip náðu nt.,s. Nisse á flot. Málavextir eru sem hér segir: Laust eftir rriiðnætti 21. ágúst 1960 srandaði m.s. Nisse frá Rotterdam, 640 þungalestir að stærð, við Ásmundarstaðareyjar út af Melrakkasléttu. Skipið var á leið frá Raufarhöfn til Akur- eyrar og var tómt að öðru leyti en því, að það var með kjöl- festu (ballest) 170 tonn, sem var sjór í botntönkum skipsins. Skip- stjóri sendi strax út neyðarkall og gerði síðan tilraunir til að ná skipinu út með eigin vélarafli, en án árangurs. í það, hefði eigi þurft annað en að koma út varpankerum og dráttarvír á þann hátt, er skip- stjóri m.s. Nisse lýsti í fram- burði sínum. Á sama hátt hefði skipshöfn m.s. Nisse getað haldið skipinu frá að flatreka upp að grynningum, áður en það flaut. Áuk framanritaðs reisti stefndi og lækkunarkröfu sína á því, að matsupphæð m.s. Nisse væri allt of há, miðað við verðgildi skips- ins, því að samkvæmt matsgerð, framikvæmdri í Hollandi þ. 21. des. 1960 af kunnáttumönnúm, sé skipið þar metið á 300.000 hol- lenzk gyllini, en skv. matsgerð er fram fór 22. ág. 1960 hér á landi hafði skipið verið metið til verðs á 5.7 miillj. ísl. kr., þar með talin brennsluolía, sem í skipinu var. í héraðsdómi, sem staðfestur var í hæstarétti, segir svo m.a. í forsendum: Um kl. 3 kom m.b. Þorsteinn f>H 285 á strandstaðinn, en hann hélt þangað hinu nauðstadda skipi til aðstoðar samkvæmt beiðni Raufarhafnarradíós. Litlu síðar eða um kl. 3.30 kom m.s. Askur KE 11 á vettvang. Skip- stjóri hins strandaða skips ósk- aði eftir aðstoð og hófu skipverj- ar á m.b. Þorsteini og m.b. Aski (þegar björgunaraðgerðir. Unnu skipin síðan sameiginlega að björgunaraðgerðum og um kl. 9.45 rann skipið út af skerinu. Var skipið síðan dregið inn á ytri höfnina á Raufarhöfn. Stefnendur í málinu, Jónas Rafnar f.h. eigenda m.s. Asks og Benedikt Sigurjónsson f.h. eig- enda m.b. Þorsteins gerðu kröf- ur á hendur eigendum hins strandaða skips til greiðslu björg unarlauna og fyrir tjón og kostn að í sambandi við björgunarstarf ið, kr. 1.140.000.00 í heild, en í tilteknum hlutföllum til hvors aðila um sig, svo og vaxta og málskostnaðar. Stefnendur reistu kröfur sinar é því, að hér hefði verið um full- komna björgun að ræða. Töldu þeir útilokað, að skipið hefði náð sér á flot af eftirgreindum ástæð um: Þegar sjór hefði fallig að, myndi framendi skipsins hafa borizt upp á grynningarnar. Jafn vel þótt framendi skipsins hefði ekkert hreyfst, sem þó megi telja óhugsandi, hefði skipið lent á skeri, sem var bakborðsmegin, rétt um bóg skipsins, strax við fyrstu hreyfingu. Þá verði að telja útilokað, að hægt hefði verið að breyta stefnu skipsins með því að leggja stýrinu i stjórn borða og láta vélina vinna áfram, þar sem steinn sá, sem undir stjórnborðshliðinni var, hefði Ikomið í veg fyrir það. Ekki verði heldur rök að því leidd, að hægt hefði verið að koma út léttbát skipsins, taka í hann varp enkeri með nægilega löngum vir ©g róa honum frá skipinu í hæfi lega fjarlægð frá því. Til þess Ihafi hvorki verið nægilegt dýpi við skipshliðina, né báturinn nógu stór. Ennfremur hafi verið svo mikil ókyrrð við skipshlið- ina, að slík tilraun hefði verið dærnd til að misheppnast. Stefndi krafðist þess, að stefnu krafan yrði lækkuð að mati dóms ins og hvor aðila yrði látinn bera sinn kostnað. Hann reisti kröfur sínar á því, að hér hefði eingöngu verið um létta aðstoð að ræða, en ekki björgun. Taldi hann, að m.s. Nisse hefði verið komið það vel á flot um flóð, að það hefði komist út af eigin véla krafti og til þess að rétta skipið þannig ,að það gæti siglt út, eins ©ig það gerði, er m.s. Askur tók „Skipið m.s. Nisse frá Rotter- dam var strandað, þegar m.b. Þorsteinn og m.s. Askur komu að því. Eins og aðstæðum hefur verið lýst á strandstað, þar sem um var að ræða miklar grynn- ingar og stórgrýttan botn og að sker var framanmegin við skip- ið bakborðsmegin, sem braut á, svo og með tilvísan til framburð- ar vitna að öðru leyti, sem að björgunarstörfum unnu eða fóru á strandstaðinn, verður, þrátt fyrir staðhæfingar skipverja á m.s. Nisse, að telja óvíst, og raun ar ósennilegt, að skipið hefði af eigin rammleik náð sér á flot, þar sem ætla má, samkvæmt þeirri vindátt sem var, er skipið strandaði, að framendi þess hefði borizt lengra upp á grynningar- nar, þegar sjór féil að. En sam- kvæmt vottorði Veðurstofunnar í Reykjavík, sem lagt hefur verið fram í málinu, hefur veðurhæð komizt mest í 5 vindstig á þeim sólarhring, sem skipið strandaði. Ekkj verða heldur rök að því leidd, að hægt hefði verið að koma út léttbát skipsins, taka í hann varpankeri með nægilega löngum vír og róa honum frá skipinu í hæfilega fjarlægð frá því, þar sem grynningar voru miklar við skipið og ókyrrð við skips’hiliðina. Enda segir um þetta m.a. i álitsgerð Gunnars Berg- steinssonar, sjómælingamanns, sem lögð hefur verið fram í malinu, að til þess að slík ráð- stöfun gæti komið að haldi, þurfi haldbotn að vera góður, svo að ankerið nái góðri festu. En senni lega hafi verið þarna um að ræða grýttan botn og lélega festu. Samkvæmt framanrituðu var umrædd hjálp m.b. Þorsteins og m.s. Asks til handa hinu strand- aða skipi björgun, en ekki að- stoð.“ Þá var talið, að virðingargerð hinna dómkvöddu matsmanna hefði ekki verið hnekkt. Dómurinn komst að þeirri nið- urstöðu, að með tilliti til máls- atvika væru björgunarlaun til handa stefndu í heild hæfilega ákveðin kr. 450.000.00, er skipt- ist þannig, að 70% upphæðarinn- ar falli í hlut eiganda m.s. Asks, en 30% hennar í hlut eigenda m.b. Þorsteins. Þá voru og til- dæmdir vextir og málskostnaður ákveðinn í heild kr. 70.000.00 fyr ir héraðsdómi og kr. 28.000.00 fyrir Hæstarétti og skyldi stefndi greiða þann kostnað af hendi. Þá var viðurkennt, að stefnendur ættu sjóveðrétt í skipinu fyrir upphæðum þessum. Ljósmyndari blaðsins (Sv. Þ.) tók þessa mynd fyrir nokkru inn á Kirkjusandi þar sem stór krani hafði oltið um koll. íslendingar áttu 54 skip í smíðum um sl. áramót Skipastóllinn alls 144.254 brúttólestir jókst um rúmlega 7 þús. lestir i SKIPASKOÐUN ríkisins hefur nýlega sent frá sér bæklinginn „Skrá yfir íslenzk skip 1964“. Sýnir hann m.a. að þilfarsskipa- stóll landsmanna var um ára- mótin 144.245 brúttólestir að stærð. Árið 1963 bættust 52 ný skip í flotann og um áramótin voru í smiðum heima og erlendis 54 skip. 1. janúar 1964 voru skráð ís- lenzk þilfarsskip samtals 144,254 brúttórúmlestir, og hafði skipa- stóllinn aukizt á árinu um nálægt 3500 brúttórúmlestir. Á árinu voru strikuð út af skipa skrá 39 skip, samtals 3701 rúm- lest, þannig að raunverulega hafa bætzt í flotann rúmlega 7000 brúttólestir á árinu. í stað þessara 39 skipa, sem strikuð voru út af skipaskránni á árinu 1963, hafa íslenzkum skipastól bætzt 52 ný skip á ár- inu. Af þessum skipum eru 4 vöru- flutninga- og farþegaskip, en þau eru: Bakkafoss, Mánafoss, Hvíta- nes og Djúpbáturinn Fagranes. Tveir olíubátar, hvor 27 brúttó- lestir, voru smíðaðir hér á landi á árinu. Hin nýju skipin 46 eru öll fiskiskip, og flest stálskip. Fiskiskipin 859 talsins Ef litið er á hvernig skipastóll- inn íslenzki skiptist í skipagerðir, þá eru í eigu íslenzkra aðila 1. janúar 1954, 36 farþega- og flutn- ingaskip, samtals 50.339 brúttó- lestir, en auk þess 6 olíuflutn- ingaskip, samtals 14.882 rúmlest- ir og 4 litlir olíubátar. Fiskiskipin eru alls 859 talsins, þar af 43 tog- arar, 30.027 rúmlestir, 138 fiski- og hvalveiðiskip yfir 100 rúm- lestir eru samtals 22.676 brúttó- xúmlestir, en fiskiskip með þil- fari undir 100 rúmlestum eru 678 talsins og samtals 22.488 rúm- lestir brúttó. Það er athyglisvert, að í fyrsta skipti um þessi áramót er saman- lögð síærð fiskiskipanna yfir 100 brúttórúmlestir orðin meiri en þilfarsskipanna undir 100 rúm- lestum, því fjöldi stærri fiski- skipanna fer ört vaxandi í ís- lenzka skipastólnum. Þá eru aðeins ótalin ýmis skip er hafa með höndum sérstök verk efni, t.d. 5 varðskip, 3 björgunar- skip, 2 dráttarskip, 2 dýpkunar- og sanddæluskip, 1 mælingaskip og 6 lóðs- og tollbátar. í Skrá yfir íslenzk skip 1964 er líka skrá yfir skip í smíðum mið- að við 1. janúar 1964. 54 skip í smíðum Alls voru í smíðum erlendis 40 fiskiskip fyrir íslenzka aðila um áramótin. 12 skip, voru I smíðum innan- lands, og tvö vöruflutningaskip í smíðum erlendis, en það eru Mælifell, skipadeildar SÍS í smíð um í Noregi og frystiskip Jökla hf. í smíðum í Skotlandi. Fróðlegt er að athuga ýmis atriði í sambandi við fiskiskipin í smíðum erlendis. Af þessum 40 fiskiskipum eru aðeins 4 tréskip, þannig að 90% af íslenzkum fiskiskipum í smíð- um erlendis eru nú stálskip. Að- Gljáfaxi í skíðaflugi til A-Grænlands Á rnánud. fór Gljáfaxi DC-3 flug vél Flugfélags íslands, í svonefnt skíðaflug til austurstrandar Grænlands. Er þá komið fyrir á vélinni sérstökum skíðum, sem smíðuð voru á hana í Minnea- polis, og lendir hún á ísnum úti fyrir hinum strjálu byggðum á austurströnSinni ^em- ekki er hægt að komast að á skipum nema einu sinni á ári og stund- um ekki það, og ekki hafa flug- velli. Vegna einangrunar þessara staða frá umiheiminum gerði Kgl. i Grænlandsverzlunin samning við JFlugfélaig íslands í fyrrasumar um að félagið sendi flugvélar í skíðaflug þangað til að skipta um mannskap og flytja póst, tæki og aðrar nauðsynjar. Sl. vor var farið slíkt flug í fyrsta skipti og svo aftur í september í haust, 6-7 ferðir hverju sinni. Gljáfaxi lagði svo aftur upp í eina slíka ferð í gær, undir flugstjórn Jóhannesar Snorrasón- ar, en aðrir voru Jón Ragnar Steindórsson flugmaður og Henn ing Finnbogason, vélamaður. Munu þeir fljúga til Meistaravík- ur, Scoresbysunds, Danebong og Danmarkshavn. eins 3 þessara skipa eru rúmlega 100 brúttólestir, hin eru langflest um 200 og upp í 320 brúttórúm- lestir að stærð. í Noregi eru í smíðum um ára- mótin 24 stálfiskiskip fyrir ís- lenzka aðila, í Danmörku 3 tré- skip, í Svíþjóð 1 tréskip og 1 stál- fiskiskip, í Hollandi 3 stálfiski- skip, í Englandi 2 og 6 í Austur- Þýzkalandi. »Innanlandssmíðin er hinsvegar mest tréskip, 10 talsins, og er stærð þeirra frá 15 og upp í 160 brúttólestir. Tvö stálskip eru nú í smíðum innanlands, stálfiski- skip i smíðum í Stálvík hf., Arn- arvogi, og farþega- og flutninga- bátur fyrir Breiðafjörð, sem er í smíðum í Stálskipasmiðjunni hf., í Kópavogi. Þetta er mikil viðbót við skipa- stólinn á síðastliðnu ári og á þessu ári, en svo til öll þau skip, sem nú eru í smíðum, munu verða skráð á þessu ári. Þó nýsmíði hafi verið mikil undanfarið, þá er hlutur inn- lendra skipasmíðastöðva lítill. — Blandast -víst engum hugur um það lengur, að brýn nauðsyn er að auka innlenda stálskipasmíði, þannig að viðhald og endurnýjun þessara skipa geti farið fram að verulegu leyti innánlands. Hrossagaukur farinn að hneggja Á SUNNUDAG var einn af starfs mönnum blaðsins .. Þingvöllum ásamt tveimur öðrum. Þóttust þeir félagar þá heyra hrossagauk hneggja í vesturátt. Mbl. bar þetta undir Finn Guð mundsson, fuglafræðing, sem sagði að engin dæmi væri uim að hrossagaukurinn hefði komið svo snemrna. Hann kemur venjulega í byrjun apríl, en eitt árið '<x>m hann þó seint í marz. Aftur á móti er gvolítill slæðingur af hrossagaukum hér allt árið og er hugsanlegt að veðurblíðan hafi valdið því að einh. er þeirra sé farinn að láta frá sér heyra. — Ef þetta væri rétt, að heyrzt hefði í hrossagauk, kvaðst Finn- ur telja að hann hefði haft vetur setu hér. Ekki væri ástæða til að halda að farfuglar kæmu fyr til lands- ins vegna veðurblíðu, því þeir væru víðs fjarri og vissu ekkert um veðurlag á íslandL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.