Morgunblaðið - 05.03.1964, Síða 14
14
MORGUNBLAÐID
Fámmtudagur 5. marz 1964
Eigimnaður minn
VERMl’NDl’R EIRÍKSSON,
húsasmíðameistari, Litlagerði 1,
lézt af slysförum þriðjudaginn 3. marz.
Ruth Pálsdóttir.
Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar,
GUÐMUNDUR SIGURÐSSON,
biíreiðastjóri, Laugateigi 5,
lézt 3. marz í Militærhospitalet, Kaupmannahöfn.
Magnfríður Benediktsdóttir og börn.
Faðir minn
GUNNARJÓNSSON
frá Arnórsstöðum
andaðist að Elliheimilinu Grund þriðjudaginn 3. marz. —
Jarðarförin ákveðin síðar.
Fyrir mína hönd, móður minnar og systkina
Ragna Gunnarsdóttir.
Hjartkær sonur okkar, bróðir og dóttursonur
ÞORSTEINN ÖRN INGÓLFSSON
Heiðargerði 38
er andaðist í Landsspítalanum þann 28. febrúar, verð-
ur jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 6.
marz kl. 1,30. Blóm og kransar eru vinsamlegast af-
beðin en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á
líknarstofnanir.
Klara Halldórsdóttir, Ingólfur Sveinsson,
Rósa Ingólfsdóttir, Halldór Ingólfsson,
Guðmunda Guðmundsdóttir.
Jarðarför móður minnar, tengdamóður, ömmu og
systur
JÓNÍNU JÓNSDÓTTUR
fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, föstudaginn
6. þessa mánaðar kl. 2 e.h.
Siggeir Vilhjólmsson,
Sigríður Hansdóttir,
og böm
Agnes Jónsdóttir.
Útför eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður,
ÞORGEIRS SIGURÐSSONAR,
Kársnesbraut 63, Kópavogi,
fer fram frá Foss-vogskirkju laugardaginn 7. marz,
kl. 10,30. —
Athöfninni verður útvarpað.
Ólöf Baldvinsdóttir, börn og tengdaböm.
Minningarathöfn um fósturmóður okkar
MATTHILDI HÓLMFRÍÐI JÓHANNESDÓTTUR
frá Hofsstöðum,
fer fram frá Dómkirkjunni 6.þ.m. kl. 10,30 árdegis.
Jarðsett verður að Fáskrúðarbakka laugardaginn 7. þ.m.
kl. 14.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á
Háteigskirkju.
Áslaug Sigurðardóttir,
Matthildur Kristjánsdóttir.
Kveðjuathöfn um föður minn
SIGURÐ SUMARLIÐASON
skipstjóra frá Akureyri,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. marz kl.
10,30 f.h. — Jarðsett verður á Akureyri.
Athöfninni verður útvarpað. Blóin afbeðin, en þeim,
sem vildu minnast hans, er bent á Slysavarnafélagið.
Kristján J. Sigurðsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
GUÐRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Hvammi, Dýrafirði.
Ólafía Ásbjörnsdóttir,
Hagalín Ásbjörnsson,
Guðmunda Lárusdóttir.
Þakka auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föður míns
KRISTJÁNS JÚLÍUSAR HALLDÓRSSONAR
frá Vöðlum.
Guðrún Kristjánsdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við and-
lát og jarðarför mannsins míns og föður okkar
GUÐMUNDAR E. BREIÐFJÖRDS.
trésmiðs, Kársnesbraut 56.
Sigriður J. Breiðf jörð og börn.
Innilega þakka ég öllum þeim, sem auðsýndu mér virð-
ingu og vinarhug á 90 ára afmæli mínu með heimsóknum,
skeytum og höfðinglegum gjöfum.
Guð blessi ykkui- öll.
Sólveig Einarsdóttir,
Strönd, Vík í Mýrdal.
Öllum þeim sem glöddu mig á sjötugsafmæli mínu þann
25. febr. sl., með heimsóknum, skeytum og gjöfum, þakka ég
hjartaniega og bið Guð að blessa þá ævinlega.
Sigríður Jóhannesdóttir.
VORIÐ
ER í NÁND
PANTIÐ
TÍMANLEGA
VGLKSWAGEN ER ÆTÍÐ UNGUR
„BREYTINGAR“ til þess eins „AÐ BREYTA TIL“
hefir aldrei verið stefna VOLKSWAGEN
og þess vegna getur Volkswagen elzt að árum
en þó haldist í háu endursöluverði. — Engu
að síður er Volkswagen í fremstu röð tækni-
lega, því síðan 1948 hafa ekki færri en 900
gagnlegar endurbætur farið fram á
honnm og nú síðast nýtt hitunarkerfi.
ý Gjörið svo vel að líta :nn og
okkur er ánægja að sýna yður
Volkswagen ög afgreiða hann
fyrir vorið.
FERÐIST í VOLKSWAGEN
Varahlutaþjónusta Volkswagen er
þegar landskunn.
Ari Kristinsson
sýslumnður
Hádegisstjarna af himni
er horfin að sævi,
snöggt eins og logandi leiftur
á ljósbláu hveli.
Héraðshöfðinginn ungi
er hniginn í valinn.
Drúpa nú dalir og strendur,
döggvaðar tárum.
Man ég á ævinnar morgni
við mættumst í fyrstu:
Hugprúður, hraustur og gilaður
mér hendi þú réttir.
Hiógu þér veigar á vörum
og vonir í brjósti.
Sönn voru orð þín og eiðar
og ákveðin stefna.
Ljúft er að vaka og vinna,
er vonirnar rætast,
unnanda íslenzkra byggða
©g útverði traustum. —
Sárt er því vinur að sakna
og sjá þig ei lengur,
fjöiskyidufaðinnn góði
og frændanna sómi.
Veit ég, að önd þín mun vaka,
þótt virðist nú sofnuð, —
umvafin árgeislabirtu
og angandi vori
Handan við móðuna mikiu
við mætumst að lokum,
heilir og glaðir í hjarta
á heiðríkum degi.
FJÞ.
Perlon
snyrtivörur
nýkonmar.
Au-sturstræti 7.
Stálbor&búna&ur
plastbúsáhöld
PÁLL SÆMUNDSSON, heildverzlun
Laugaveg 18a. — Sími 14202.
Sendisveinn
óskast nú þegar halfan eöa allan daginn.
IHifftibuntir/í
Aðalstræti 6, VII. hæð.