Morgunblaðið - 05.03.1964, Síða 20

Morgunblaðið - 05.03.1964, Síða 20
20 MORGUNBLAOIÐ Fimmtudagur 5. marz 1964 \'//EUZABtrti TeRKASÍsP7\ — Já, ég er alveg viss um, að hann verður kominn fyrir þann tíma, svaraði hún og gerði sitt bezta til að trúa sínum eigin orðum. Skömmu síðar fór Ranzi heim til sín. Ruth fylgdi honum út í garð- inn. Hingað til hafðí hún alltaf verið hálfhrædid við hann. I>að var eitthvað í framkomu hans, stolt og afbrýðissemi í sambandi við stöðu hans, sem virtist eins og halda öllum í fjarlaegð frá honum, nema þá fáum útvöld- um. En í kvöld hafði hún ekk- ert orðið vör við þetta. Hann hafði verið eðlilega vingjarnleg ur, og hún var honum þakklát fyrir það. Engu að síður var hún fegin, þegar þessari heimsókn hans var lokið. Nú var aðeins Madge eftir að fást við, en þá gæti hún far- ið að hátta. En Madge reyndist auðveld viðureignar. Hún var orðin eitt- hvað svo þögul, næstum ólund- arleg. Hún færði Ruth kvöldimat á bakka, setti hann frá sér og gekk svo þegjandi út. Ruth gat sér þess til, að hún væri að reyna að verjast gráti. Um leið og Ruth tók til matar síns, tók hún að hugsa um, hvað fólk gæti oft komið manni á vart. Hverjum hefði dottið það í hug fyrir nokkrum klukkustundum, að af öllum þeim, sem þekkt höfðu Lester Ballard, yrði Madge sú eina, sem harmaði frá- fall hans. Ruth lauk brátt við matinn og gekk til svefnherbergis síns. Það var nú, sem hún hafði hugsað með sjálfri sér að fara að hugleiða málið í ró og næði. Þetta var sú stund, sem hún hafði ætlað sér að ganga rólega um gólf og reyna að greiða úr allri þessari flækju, sem hugs- anir hennar voru komnar í. Fyrst og fremst var sú spurning, hvers vegna hún væri orðin svo einráðin í að hlífa Nicky, gefa honum svigrúm til að sleppa burt og svo hin spurningin, hvort þessi ásetningur hennar hefði ekki leitt hana út í þá háskalegu villu að blekkja réttvísina — villu, sem hún myndi iðrast eft- ir síðar meir. En svarið við þess- um spurningum virtist nú orð- ið ekkert sérlega áríðandi. Vit- anlega hafði hún gert þetta af eintómri velvild til Nicky, áð- ur en hún gaf sér tíma til að átta sig á þýðingu sektar hans, og auðvitað mundi hún, ef eins stæði á, fara eins að aftur, og framkvæma fyrst og hugjsa svo. Aðalvandamálið, sem ruglaði fyrir henni nú, var sambandið milli dauða þessara tveggja Lest ec Ballard, og hvernig Nicky væri við málið riðinn. Hún gat vel hugsað sér, að hann gæti myrt mann í reiðikasti, en að hann gæti með köldu blóði tek- ið þátt í yfirlögðu morðsam- særi, var vart hugsanlegt. Líklegast fannst henni af öllu, að Nicky hefði hlaupið á sig í reiðikastai og hatri sínu, og lent óviljandi inn í morðsamsæri, sem annar hefði staðið fyrir, og þar hefði orðið einu morðinu fleira en upphaflega var ætlað. Ruth fór að hugsa um Steph- en. Meðan hún var að því, kom hún auga á nokkuð á snyrti- borðinu sínu. Það var eldspýtu- stokkur. En hvers vegna skyldi eld- spýtnastokkur geta vakið svona sérstaka athygli hennar, ef hann væri ekki eitthvað mikilvægur í sambandi við málið? En þá mundi hún, að þetta var sami stokkurinn, sem hafði legíð á borðinu úti í garðinum þegar hún hafði komið heim um daginn, úr þessari árangurs- lausu heimsókn sinni til Margu- erite. Stephen var alltaf að gleyma eldspýtunum sínum og síðar þennan dag síðdegis, þeg- ar hann hafði komið inn og fundið hana álúta yfir líki Lest- er Ballards, hafði hann engar eldspýtur haft, en hún orðið að útvega honum þær utan úr eld- húsi. Hafði þetca nokkra þýð- ingu? Hún mundi, að um morgun- inn hafði Stephen setið úti í garð inum meðan hún fór inn að hafa fataskipti. Hann hefði getað skil ið stokkinn eftir þá. Og væri svo, hafði þetta enga þýðingu. En setjum svo, að þær hefðu verið skildar eftir seinna •— meðan hún var heima hjá Ranzi? Hún hallaði sér að snyrtiborð- inu, lygndi aftur augiunum og reyndi að muna, hvort Stephen hefði haft nokkrar eldspýtur þar sem þau borðuðu. Hvort þeirra hafði kveikt í vindlingun- um, sem þau reyktu þar? Það var enginn vafi á því, að það hafði Stephen gert. Höndin, sem hafði snert stokk inn, hrökk nú frá honum, eins og hann væri brennandi heit- ur. En samtímis tók hún eftir öðm þarna inni. Hvorki rauð- köflótti klúturinn, sem hún hafði bundið um höfuðið í sund ferðinni, né heldur sólgleraug- un hennar, voru þar sem hún hafði látið þau. Hún vissi upp á hár, að hún hafði lagt hvorttveggja á snyrti borðið. Þetta var hún viss um, því að það var fastur vani. Allt af þegar hún hafði tekið hvort- tveggja af sér, hafði hún lagað á sér hárið fyrir framan speg- ilinn. Þetta var eitt þessara fast- mótuðu hreyfinga, sem aldreí brá út af. En nú hékk klúturinn á snaga á veggnum, en gleraug- un lágu á borði við rúmið henn- ar. Hún var farin að skjálfa, og gat ekki stillt sig um það, enda þótt hún vissi, að svona smá- ræði ætti ekki að geta skelft hana. En áður en varði var hún farin að fara um herbergið, opna skúffur og gá inn í skápa og brátt ^-arð henni ljóst, að það, sem hana hafði gmnað, var raun verulegt. Að vísu var lítið fært úr stað, aðeins var treyja á skökku herðatré, einir skór voru á skökkum stað, blái kjóllinn, sem hún hafði verið í um morg uninn utan yfir sundfötunum, lá á stól í staðinn fyrir á staðn- um þar sem hún hafði komið honum fyrir. Þetta var ekki um að villast. — En til hvers? spurði hún sjálfa sig með örvæntingarfullu hvísli. — Hversvegna í ósköp- unum? Að hverju var verið að gá? BYLTINGIN í R Ú 5 S LANDI 1917 ALAN MOOBEUEAD Neðanjarðarnet var nú tekið að teygja sig yfir Evrópu og inn í Rússland, og því stjórnaði Plek hanov og Sósialdemókratarnir. Þeir áttu sér málgagn, Iskra (eða Neistann, tekið frá Push- kin: „Neistinn skal kveikja bál- ið“* — og sendimenn þeirra *Sjá síðar um þátt Lenins í Iskra. vom sífellt á ferðinni til Rúss- lands með þetta blað og fleiri byltingarrit. Svo hötfðu þeir sínar eigin prentsmiðjur í Rúss- landi sjálfu, hermdarverkadeild- ina, neðanjéirðarstarfsemi til að sjá um pólitíska flóttamenn, og magurt fjármálakerfi. Aðalviðtfangsetfni Plekhanovs og vina hans var að fá eitthvert samhengi í þetta dreifða og ósam stæða félag sitt, ekki sízt sam- hengá í skoðunum og hugsana- gangi; það var nauðsynlegt, að allir vissu, hvert stefnt var, og nákvæmlega hvert markmið þeir hefðu fyrir augum. Meginreglur varð að setja fram — ritaða trúarjátningu hins nýja átrúnað- ar — og koma varð sér saman um starfsaðtferðir. Og til þess að koma þessu í kring, varð að halda þing einhversstaðar utan Rússlands, þar sem fulltrúarnir gætu talað saman að vild, án þess að eiga handtöku á hættu. Það var seinlegt verk að hóa þessu þingi saman, þar eð flokks foringjarnir voru ekki aðeins dreifðir um allt Rússland, eða í útlegð í Síberíu, heldur voru þeir dreifðir út um alla Evrópu aðallega í Englandi, Sviss og Þýzkalandi, og næstum hver einstakur hafði sínar skoðanir á diagskránni og framsetningu hennar. Samt var nú allt kom- ið í kring, árið 1903, og Briiss- el valin sem fundarstaður. Þetta var árangurinn af tuttugu ára starfi Plekhanovs, og jafnvel í svona harðneskjulegum bylting arheimi, var það fullhart fyrir hann, að einmitt á þessari sig- urstund, skyldi hetfjast fall hans. Nýr maður var kominn fram á sviðið. Um eitt að minnsta kosti eru ailar heimildir um Lenin sam- mála: hann var ekki fallegur og jafnvel ekkert etftirtektar- verður í sjón. Hann var lágvax- inn og kubbslegur, með rauðgrátt alskegg, varð snemma sköllóttur og fötin, sem hann var í, voru léleg og p>okandi. Bruce Lock- hart segir: „Við fyrstu sýn var hann líkari matvörukaupmanni utan úr sveit en foringja“. En hégómlegur var hann ekki. „Lenin var sjálfgleymnari flest- um mikilmennum", ritar Ed- mund Wilson. „Hann kærði sig ekkert um að sjá nafnið sitt á prenti, hann kærði sig ekkert um að menn sýndu honum lotningu; honum var alveg sama, hvernig hann leit út, og hann gerði ekk- ert til að sýna, að hann kærði sig kollóttan". Trotsky segir um hann sem ræðumann, að hann hafi verið „tilbreytingarlaus", og Sukhan- ov, sem manna bezt fylgdist með byltingunni úr nálægð, segir, að hann hafi hvorki verið tilfinn- ingaríkur né fyndinn; og undir KALLI KÚREKI Teiknari; FRED HARMAJNi Nei, sjáum til, bara kominn aftur! Gleymdirðu einhverju? — Nei, Kalli minn. — Ég var satt að segja að hugsa um að falast eftir starfinu mínu aftur. — Auðvitað! Þessir peningar end- ast ekki eilíflega. — Þeir eru þegar famir veg allrar veraldar. Og bannsett skepnan líka. Hún sparkaði mér í þymirunna og seðlavöndullinn datt úr vasa min- um. — Og hún gerði sér lítið fyrir og át þá! Svo hljópst hún á brott En það er sveimér 500 dala virði að vera laus við hana. Ég vona að hún hafi fengið ólæknandi magakvilla af þessu. endalok skammrar ævi sinnar, varð hann beinlínis tilbreyting- arlaus. En Sukhanov bætir því við, að á bezta aldri hatfi hann verið geysilega áhrifaríktir og kröftugur ræðumaður, sem gat brotið niður rammflókin kerfi 1 einföldustu og aðgengilegiustu þætti, og svo lamið, lamið, lam- ið þá inn í hausana á áheyr- naum sínum, þangað til þeir voru algjörlega á hans valdi Lenin var eins og flestir ein- beittir menn, afskaplega óbrot- inn og reglusamur í lifnaðarhátt um sínum. Lestir eins og drykkjuskapur voru honum að minnsta kosti aldrei nein freist- ing. Það er sagt, að hann hafi haft ánægju af skák og tón- list, og jafnvel einstöku sinnum iþróttum eins og skautaferðum og veiðiferðum, en við allt þetta hætti hann samt, af þvi að það „tafði hann frá vinnu“. Hann var ekki geðvondur eða daufur í dálílinn: Trotsky segir um hann, að hann hafi stundum get- að verið beinlínis kátur og get- að gert að gamni sinu. Sætti hann hins vegar mótmælum gat hann sleppt sér í reiðikasti og sást þá ekki fyrir. Ef til vill er bezta lýsing sam tímamanns á Lenin sú, sem ligg ur eftir skilyrðislausan aðdá- anda hans, ameríska blaðamann inn, John Reed. Reed lýsir hon- um þannig, á einni örlagastundu byltingarinnar: „Lávaxinn og samanrekinn maður, með stórt höfuð, sem situr á herðunum, sköllótt og hnöttótt. Lítil augu, stutt nef víður munnur klunna- leg haka, nú alrökuð, en skeggið sem hann þekktist á, fyrr og síðar, er tekið að vaxa aftur. Klæddur í ómerkileg föt með alltotf síðum buxum. Of sviplít- ill til að vera hjáguð múgs, elsk aður og tilbeðinn framar flest- um í sögunni. Einkennilegjur al- þýðuleiðtogi — leiðtogi í krafti vits síns einvörðungu; litlaus, kímnilaus, einþykkur, einstæður laus við alla giæsilega sérvizku, en með hæfileika til að útskýra djúpstæðar hugsanir með euv- földum orðum, og leysa úr hlut- lægum vandamálum. Og aUt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.