Morgunblaðið - 24.03.1964, Side 8
8
MORGU NBLAÐIÐ
Þriðjudagur 24. mars 1964
Viðreisnarsjóður Evrdpuráðsins og jafn-
vægi í byggð landsins
Ur ræðu Þorvaldar Garðars
Kristjánssonar í sameinuðu
þingi s.l. miðvikudag
Síðast liðinn miðvikuidag flutti
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
framsöguræðu fyrir tillögu til
þingsályktunar, sem hann flyt-
ur í sameinuðu þingi, um aðstoð
frá Viðreisnarsjóði Evrópuráðs-
ins í þeim tilgangi að stuðla að
jafnvægi í byggð landsins.
Hóf hann mál sitt með að
víkja að umræðum um jafnvægi
í byggð landsins, sem verið hef-
ur mjög á dagskrá hin síðari ár
og mælti síðan:
Tilflutningar fólks innanlands
þurfa ekki að vera óeðlilegir.
Breytt tækni og atvinnuhættir
geta gert slíkt óhjákvæmilegt.
Slíkt hefur þjóðin undirgengizt
og verður að vera viðbúin að
undirganglast. En slík þróun á
ekki og þarf ekki að þýða það,
að meginhluti þjóðarinnar setjist
að á litlum eða takmörkuðum
hluta landsins. Nú um áratuga-
skeið hefur þróunin stefnt um
of í þessa átt. Þessir fólksflutn-
ingar stafa ekki nema að nokkru
um atvinnuháttum. Gæði lands-
leyti að breyttri tækni og breytt
ins og náttúruauðlindir eru að
finna víðsvegar um landið og
geta verið hagnýttar víðsvegar
um landið með þeirri tækni og
atvinnuháttum, sem við búum
við. Fólksflutningar utan af
landsbyggðinni til Reykjavíkur
og nágrennis eru því tvímæla-
lauet þjóðhagslega óhagstæðir, ef
þeir fara fram úr ákveðnu marki.
En hér kemur fíeira til en það,
sem metið verður beinlníis í töl-
um og fjárhagsútreikninguim.
Menning okkar, erfðir og saga er
tengd við ísland allt. Heilir lands
hlutar mega ekki leggjast í eyði
eða ganga svo saman að fólks-
fjölda, að áhrifa þeirra gæti lít-
ils eða einskis á þjóðlífið. Það
væri að glata fortiðinni á kostn-
að framtíðarinnar. Þjóðmenning
okkar gefur okkur rétt og mátt
tíl frelsis og sjálfstæðis. Þjóð-
menning okkar er bundin við Is-
land allt.
Sögur herma að landið hafi
verið alnumið á 60 árum. Það er
okkar hlutverk nú, að halda því
öilu í bygglð. Þá á ég ekki við,
að ekkert bóndabýli megi fara
í eyði og jafnvel, að engin hrepp
ur megi fara í eyði, heldur hitt,
að við höldum byggð uppi, þar
sem nútímatækni og atvinnuhætt
ir leyfa. Hér þarf sérstakra að-
gerða við,- f því skyni hafa marg
ar þingsályktanir verið samþykkt
ar á Alþingi og löggjöf sett. Svo
mjög hefur verið rætt um þetta
vandamál hér á háttvirtu Al-
þingi, að ég sé ekki ástæðu til
að vera fjölorður um það út af
fyrir sig. Mín hugsim beinist og
frekar að úrræðum til þess að
leysa vandann. Þannig er til-
komin þingsályktunartillaga sú,
sem hér liggur fyrir til urnræðu.
Á vegum Evrc"uiráðsins er
svokallaður Viðreisnarsjóður,
(Resettlement Fund) sem hefur
það hlutverk að aðstoða Evrópu
lönd við lausn vandamála, sem
stafa af tilflutningi fólks, þar
með talið landflóttamanna. Sjóð
ur þessi var stofnaður 16. apríl
1956, af 8 aðildarríkjum Evrópu
ráðsins og var ísland eitt þeirra.
En hin ríkin voru: Belgía, Frakk-
land, Vestur-Þýzkaland, Ítalía
Luxembourg, Grikkland og
Tyrkland. Síðan gerðist Kýpur
aðili að sjóðnum árið 1962. Þessi
sjóður gegnir hlutverki sínu með
því að veita lán eða tryggingu
fyrir lánum til framkvæmda sem
ætlað er að skapa nýja mögu-
leika til lífsiframfæris, þar sem
þess gerist þörf vegna tilflutn-
inga fólks. Aðildarríki sjóðsins
hafa lagt honum til stofnfé, að
upphæð 6,7 milljónir dollara. Þar
af er framlag íslands 10 þúsund
dollarar.
Síðan Viðreisnarsjóðurinn tók
til starfa árin 1957 til ársloka
1962, hefur hann veitt lán sam-
tals að upphæð 25,4 millj.. doll-
ara og árið' 1963 námu lánin 5,5
milljónir dollara, eða alls nema
nú lánin frá upphafi 30,9 millj-
ónum dollara. Lán þessi eru til
15 eða 20 ára með 5 — 6% árs-
vöxtum. Lánin skiptast þannig
á aðildarríkin, að
Páskafrestun — þing kemur
aftur saman 1. apríl
ÞINGFIJNDUM fyrir páska
lauk sl. föstudag. Alþingi
mun koma saman eftir þessa
frestun 1. apríl nk. Á þessu
reglulega Alþingi hafa nú
verið haldnir 72 fundir í neðri
deild, 62 fundir í efri deild og
56 fundir í sameinuðu Alþingi.
Þing var sett 10. október, en
var frestað 21. desember og
kom saman aftur 16. janúar.
Þingfundir munu sennilega
standa í u.þ.b. mánuð eftir
páska, þar til Alþingi verður
slitið. Þetta er þó án ábyrgðar
og aðeins spádómur þing-
fréttamanns Mbl.
29 MÁL AFGREIDD
Á ÞESSU ÞINGI
Það sem af er þingi hafa
verið rædd og afgreidd 16
stjórnarfrumvörp og 4 frum-
vörp þingmanna. Þá hafa ver-
ið samþykktar 9 þingsálykt-
unartillögur, ein hefur verið
felld, um vantraust á ríkis-
stjórnina, en það var 7. nóv-
ember sl. á afmæli rússnesku
byltingarinnar, ein hefur ver-
ið afgreidd með rökstuddri
dagskrá, um skipun rannsókn-
arnefndar, en það var 27. f.m.
Fjöldi fyrirspurna hefur kom-
ið fram og hefur þeim verið
svarað og þær ræddar. Til
þessa er tala þeirra 18 og er
þar skemmst að minnast
fyrirspurnar um alúmíníum-
bræðslu og olíuhreinsunar-
stöð.
Mörg mál liggja nú fyrir
þinginu og útvarpsumræða er
væntanleg, um þingsályktun-
artillögu kommúnista um yfir
lýsingu þingisins, um hvað
séu höfuðatriði utanríkis-
stefnu Íslands.
ftalía hefur hloti?12,7 millj. doll.
Vestur-Þýzkaland 11,3 — —
Grikkland 4,0 — —
Tyrkland 2,4 — —
Kýpur 0,5 — —
Fyrstu árin var aðalverkefni
sjóðsins bundið við flóttavanda-
mál Vestur-Þýzkalands. Með því
að það vandamál er nú í þessu
sambandi að mestu úr sögiunni,
hefur starfsemi sjóðsins síðustu
árin beinzt einkum að Grikk-
landi, Tyrklandi, ítalíu og Kýp-
ur. í þessum löndum hafa vanda-
málin aðallega risið atf fólks-
flutningum innan hvers lands.
Aðstoð Viðreisnarsjóðsins hefur
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
hér ekki miðað fyrst og fremst
að því að skapa fólkinu lifsskil-
yrði þar sem það leitar, heldur
eigi síður hitt, að bæta aðstöð-
una í þeim landshiutum, sem
fólkið flytzt frá til þess að
stöðva fólksflóttann, þ.e. við-
halda jafnvægi í byggð lands-
ins.
Hér er um að ræða hliðstsefð
vandamál og þau, sem við höf-
um við að glíma. Spurning er því
hvort við getum hagnýtt okkur
aðstoð Viðreisnarsjóðsins með
svipuðum hætti og þessar þjóð-
ir hafa gert. Til þess að skýra
þetta nánar, þykir mér rétt að
g(era grein fyrir lánum, sem
Viðreisnarsjóðurinn hefur veitt
í þessu skyni.
Eins og ég hefi áður sagt eru
lán þau, sem Viðreisnarsjóður-
inn hefur veitt til Vestur-Þýzka
lands tengd vandamálum land-
flóttafólks og hafa þau verið
notuð einkum til húsbygginga í
Vestur-Þýzkalandi.
Til Grikklands hefur Viðreis.i
arsjóðurinn lánað 3,25 milljón-
ir dollara til framkvæmda í
norð-vesturhluta landsins, Epir-
us. Þessi hluti Grikklands var
álitinn eiga við mesta örðug-
leika að stiríða m.a. vegna erf-
iðra og ónógra samgangna, vegna
of einhæfs atvinnulífs, þ.e. ó-
nógs iðnaðar, og vegna skorts á
rafmagni. Gríska stjórnin gerði
á sínum tíma 5 ára áætlun um
jarðabætur, samgöngubætur,
virkjanir, verkfræðslu og íbúða-
og hótelbyggingar í þessum
landshluta og gengur lán Við-
reisnarsjóðsins til framkvæmda
í sambandi við þá áætlun. Þá hef
ur sjóðurinn lánað 500 þúsund
dollara til stofnunar verkstæðis-
skóla í Aþenu með heimavist
fyrir um 600 nemendur. Enn-
fremur hefur verið veitt 200
þúsund dollara lán til eflingar
tækni og iðnskóla, sem stofnað-
ir hafa verið af Tæknistofnunni
í Aþenu.
Til Tyrklands hefur sjóðurinn
lánað 1,5 milljónir dollara til
Tæknistofnunar nálægra aust-
urlanda, sem hefur aðsetur í
Ankara og var féð einkum notað
til kaupa erlendis á tækjum til
verkstæðiskennslu, sivo og á
ýmsum öðrum iðnkennslutækj-
um. Þá hefur sjóðurinn lánað til
Tyrklands 870 þúsund dollara
íöðru skyni, svo sem til stofnun
ar fyrirmyndarbýla og byggða-
hverfa í sveitum landsins og til
bygigingar smáíbúðarhúsa í Ank
ara.
Til ítalíu hefur Viðreisnarsjóð
urinn lánað 6 milljónir dollara
til að setja upp verkstæðisskóla
í 5 borgum Ítalíu á vegum Upp-
byggingarstofnunar iðnaðarins
þar í landi. Lánaðir hafa verið
600 þúsund dollarar til bygging-
ar alþjóðlegs verkstæðisskóla í
Salerno. Ennfremur hafa verið
lánaðir 360 þúsund dollarar til
byggingarsamvinnufélaga ít-
alskra verkamanna í Frakklandi.
í því skyni að örva félagslega
og efnahagplega þróun Sikileyj-
ar hefur sjóðurinn lánað 5 millj-
ónir dollara til framkvæmda í
borginni Gela í sambandi við
nýjan iðnað, sem settur var þar
á laggirnar.
Lánsféð fór til byggingar á í-
búðum fyrir verkamenn og til
bygginga félagsheimila, sjúkra-
húsa, íþróttamannvirkja og
skóla. Þá hefur sjóðurinn lán-
að 2,1 milljón dollara til hús-
bygginga fyrir ítalska verka-
menn, sem flutzt hafa til Ástra-
líu.
Til Kýpur lánaði Viðreisnar-
sjóðurinn á s. 1 .ári 500 þúsund
dollara til vatnsveitna og skóla-
bygginga í sveitum Kýpur. Lánið
var veitt með því, að talið var
að vatnsskortur stæði í vegi
fyrir efnahagslegum og félags-
legum framförum. Einnig var tal
ið, að bæta yrði ástand barna-
fræðslunnar í sveitum, til þess
að unglingar gætu síðar verið
tækir í verkstæðis- og iðnskóla.
Það, sem ég hef nú greint frá
lánveitingum Viðreisnarsjóðsins
sýnir, að hann hefur látið til sín
taka margháttuð verkefni. Margt
af því, sem þar er um að ræða
er alls óskylt okkar vandamál-
um. Hins vegar eru aðrar fram-
kvæmdir, sem sjóðurinn hefur
lánað til svipaðar eðlis, eða
jafnvel hliðstæðar þeim, sem til
greina gætu komið hér á landi,
til þess að stuðla að jafnvægi í
byggð landsins. Tökum t, d.
Vestfirði.
Samkvæmt skýrslum um
mannfjölda á Vestfjörðum hefur
íbum þar fækkað um 19,7% á
hálfri öld eða á tímabilinu frá
1912-1962. Hér er um nokkra sér-
stöðu að ræða, því að þetta er
kjördæmið á landinu, þar sem
um beina fólksfækkun hefur
verið að ræða. Að nokkru leyti
hefur þetta verið óhjákvæmileg
afleiðing af þróuninni í tækni
og atvinnuháttum landsmanna
og af því leyti er ekki um að
sakast. En þó að þróunin hafi
verið óhagstæð þessum lands-
hluta síðustu hálfa öld, er- ekki
þar með sagt, að svo þurfi að
vera framvegis eða í næstu fram
tíð. Þvert á móti erum við nú
þar á vegi staddir í tæknilegu
og atvinnulegu tilliti, að við höf-
um efcki einungis möguleika til
að stöðva þennan fólksflótta frá
Vestfjörðum, heldur og að snúa
þróuninni við. En það eigum við
að gera vegna þess, að það er
þjóðhagslega hagkvæmara að
öðru jöfnu, að búa fólkinu lífs-
skilyrði, þar sem það er, heldur
en þar sem það leitar.
En hverjar eru þær orskair
fól'ksflóttans frá Vestfjörðum,
sem við ættum að hafa tök á
að ráða við. Ástæðurnar eru
aðallega tvenns konar. Annars
vegar einhæfur atvinnurekstur,
hins vegar ófullnægjandi að-
stæður til félagslegra og menn-
ingalegra iðkana að nútima hátt-
um og venjum.
Einn höfuðvandinn við að
eiga er einangrun og samgöngu-
leysi hinna einstöku afmörkuðu
byggðarlaga meirihluta ársins.
Skipuleggja þarf byggðina svo
hér verði ráðin bót á, í samræmi
við nútíma þarfir ög lifnaðar-
hætti. Stefna þarf að því að
koma upp sem öflugustum
byggðasvæðum, sem myndi eina
heild atvinnulega, menningar-
lega ag félagslega. Slík þróunar-
svæði á að mynda um höfuðstað-
inn Isafjörð og nágrenni og á ég
þá ekki aðeins við Bolungarvík,
Hnífsdal og Súðavík, heldur
einnig Suðureyri, Flateyri og
Þingeyri. En eitt þýðingarmesta
skilyrði til þess, að svo geti
orðið eru öruggar samgöngur
milli þessara staða, jafnt að
vetri sem að sumri. Til þess að
svo megi verða, þarf að gera
jarðgöng gegnum Breiðadals-
heiði.
Hliðstætt þróunarsvæði eða
kjarna byggðarinnar á Vest-
fjörðum þarf að mynda um
Patreksfjörð, Bíldudal og Tálkna
fjörð og þriðja aðalbyggða-
svæðið ætti að vera með Hólma-
vík og Drangsnes.
Með því að leggja áherzlu á
myndun slikra þróunarsvæða
fengist sá grundvöllur, sem þétt-
býlið skapar fyrir nútima at-
vinnuháttum og menningar- og
félagsiifi.
Byggðathverfi þarf að efla á
nokkrum stöðum í sveitum Vest-
fjarða, menningarlegar mið-
stöðvar, félagslegar miðstöðvar
og þjónustu miðstöðvar í þágu
landibúnaðarins. Slí'k byggða-
hverfi þarf að efla á Reykhólum
og t. d. í Reykjanesi við ísa-
fjarðardjúp.
Ein orsök vandamálanna á
Vestfjörðum er fábreyttni at-
vinnulífsins. Höfuðverkefni er
að bæta úr þessu með því að efla
þar iðnað. Margs konar smáiðn-
aður getur þar verið rekinn með
jafngóðum árangri og annars
staðar á landinu. Auk þess hafa
Vestfirðir skilyrði á ýmsum
sviðum til jafns við aðra lands-
hluta, til að vera hlutgengur að-
ili á öld þeirrar stóriðju, sem
vonandi er nú að renna upp hér
á landi. Ég nefni nú aðeins eitt
í því sambandi. Þegar ákveðin
var staðsetning Sementsverk-
smiðjunnar þótti ýmsum eins
koma til greina, að staðsetja
hana á Patreksfirði eða í Ön-
undarfirði, og sumir kunnáttu-
menn töldu, að þar væru að-
stæður hér á landi heppilegastar
til framleiðslunnar. Meðal ann-
ars með tilliti til innanlands-
markaðarins var ekki horfið að
því ráði að reisa sementsverk-
smiðju á Vestfjörðum.'En e£
við förum að framleiða sement
fyrir erlendann markað, sem við
reyndar höfum lítillega gert nú
þegar og virðast geta orðið
möguleikar á, þá á vissulega að
taka til athugunar, að fram-
leiðsluafköst verði aukin með
nýrri sementsverksmiðju í Ön-
undarfirði eða Patreksfirði.
Ég ætla mér ekki þá dul, að
fara að telja hér upp allt það,
sem hugsanlega kæmi til greina
til eflingar byggðarinnar á Vest-
fjörðum, enda þykir sumurn
kannske nóg komið. En mín
skoðun er sú, að allt það sem ég
hér hefi nefnt, séu verkefni, sem
vel geti komið til álita, að Við-
reisnarsjóður Evrópuráðsins fáist
til að ljá lið .
Ég hef hér talað um Vestfirði,
Það er annars vegar vegna þess,
að Vestfirðir hafa nokkra sér-
stöðu við alla aðra landsluta,
eins og ég áður hefi greint, og
það er hins vegar vegna þess*
að þar er ég staðháttum kunnug-
astur. En þetta þýðir það alli
ekki, að aðstoð frá Viðreisnar-
sjóði Evrópuráðsins geti ekkl
komið til greina við úrlausn
verkefna annars staðar á land-
inu. Mér virðist, að það geti
líka komið til greina við úr-
lausn svipaðra verkefna í ein-
stökum kauptúnum, kaupstöðum
og sveitum norðanlands og
austan.
Ég sagði áðan, að jafnvægi t
byggð landsins hefði oft verið á
dagskrá hins háa Alþingis og ég
Framh. á bls. 12