Morgunblaðið - 24.03.1964, Qupperneq 23
/
Þriðjudagur 24. marz 1964
MORGUNBLADIÐ
23
Vigfús J. Guttormsson
SÚ írétt barst mér fyrir
skömimu, að létinn væri í Vestur-
heimi Vigfús Jónsson Guttorms-
son. Vigfús var fæddur í Suður-
Múlasýslu, 16. nóv. 1874 og eru
ættir hans kunnar af Aust-
fjörðum. Mijög ungur fluttist
Ihann með foreldrum sínum vest-
ur urn. haf og settust þau að í
Nýja-íslandi. I>ar fæddist svo
albróðir Vigfúsar, Guttormur J.
Guttormsson, skáld. Vigfús gift-
ist 5. febrúar 1899 Vilborgu
Árnason. f>au bjuggu á ýmsum
etöðum á þessum slóðum, en sett
ust síðan að á Lundar í Manitoba
fylki og bjuggu þar æ síðan.
Þau hjón eignuðust þrjár dætur
og þrjá sonu. Vilborg reyndist
manni sínum frábær eiginkona
og heimili þeirra hjóna var
þekkt víða fyrir gestrisni og
höfðingssikap hjónanna. Vigfús
Guttormsson var gæddur ágæt-
um gáfum. Hann var ljóðskáld-
gott eins og bróðir hans, þótt
eigi yrði hann eins víðkunnur
sem hann. Ljóðabók gaf hann út,
sem hann nefndi „Eldflugur11.
Mikið orti hann og af tæikifæris-
ljóðum og kom fram í þeim
mörgum listrænn smekkur og
prýðilegt vald á íslenzku máli,
en móðurmáli sínu unni hann
mjög og var víðlesinn í íslenzkum
bókmenntum. En það mun hafa
verið á sviði tónlistarinnar sem
Vigfús hafði sérstaka hæfileika.
Á erfiðum árum frumbýlisins
leitaði hann um langan veg til
þess að læra á hljóðfæri og
ekkert tækifæri lét hann ónotað
til að heyra góða tónlist. Hann
var lengi söngstjóri og orgelleik
ari á Lundar og náði þar mark-
verðum árangri við oft erfið skil
yrði. Það er táknrænt að kvöld-
ið, sem hann lézt, sat hann við
orgelið sitt og lék. Vigfús var
ljúfimenni og yfir allri fram-
komu hans heiðríkja göfugs hug-
arfars og velvildar. Margir héð-
an að heiman komu á heimili
þeirra hjóna og ég er viss um, að
þeir munu minnast þess með
hlýhug og þakklæti. Vigfús var
frændmargur og vinsæll og skrif
aði ýmsum hér heima og fylgdist
af áhuga með íslenzkum mál-
efnum. Hann langaði oft til ís-
lands, þótt eigi yrði úr þeirri
för. Vigfús var einn þeirra
mörgu landa vestarnheims, sem
með sóma vann fósturlandi sínu
margt til þarfa, en lyfti um leið
merki hins bezta í fari og arfi
íslendinga. Þetta megum við
heimamenn gjarna muna og
þakka. Hann var einn þeirra,
sem fjarri fósturjarðarströndum
hafa ritað með starfi sínu merk-
an kafla í sögu íslendinga. Ég
veit, að margir munu senda konu
hans og fjölskyldu hlýjar kveðj-
ur og blessa minningu þessa
ágæta vinar og sanna íslendings.
Bragi Friðriksson.
Héraðshöfðinginn n Flögu
Vík í Mýrdal, 13. febrúar.
í DAG var til moldar oorinn frá
Grafarkirkju, Vigfús Gunnarsson
á Flögu í Skaftártungu. Mikill
fjöldi fólks var við útförina,
víðsvegar aðkomið á tugum bíla,
og minntust menn ekki að hafa
éöur séð jafnmargt fólk saman-
komið við útför í Skaftártungu.
Flaga var ættaróðal Vigfúsar
og þar átti hann heima alla tíð,
en hann lézt liðlega 93 ára að
aldri. Vigfús var kvæntur Sigríði
Sveinsdóttur prests Eiríkssonar
i Ásum. Sjö voru börn þeirra
Ihjóna, en sex eru nú á lífi. í dag
er tvíbýli á Flögu og búa þar
Gísli Vigfússon og Sveinn Páll
Gunnarsson.
Auk þess sem Vigfús bjó miklu
rausnarbúi á Flögu, gegndi hann
Htilda Hlíf
Kristjánsdóttir
F. 17/2 1938. D. 19/1 1964
KVEÐJA FHÁ VINKONU
Við lékum okkur saman við læk
og skógartjörn
litlar sveitastúlkur, ung og
saklaus börn.
Glöð voru okkar æskuár með
ævintýraþrá
enginn veit nær sorgin skyggir
okkar brá.
Nú hefur lækur lífsins borið þig
á braut
burt úr þessum heimi og læknað
alla þraut.
Hinstu sendi ég kveðju og kæra
þökk til þín
þú varst alla tíma æskuvina mín.
Þó að hérna megin bresti okkar
bönd
bið ég þess af alhug þig leiði
\ Drottins hönd.
H. J.
ýmsum opinberum trúnaðarstörf-
um fyrir sveitarfélag sitt um
árabil og var forusta hans bæði
traust og farsæl. Hann var mót-
aður af stórfenglegu umhverfi og
sannur fulltrúi þess. Vigfús var
mikill að vallarsýn, höfðingi í
lund, gæddur hreysti og tápi vík-
ingsins. Hann verður ætíð talirnn
til þeirra stórbrotnu sveitarhöfð-
ingja, sem aldrei yfirgáfu átt-
haga sína. Það er einmitt slík
þjóðhollusta, sem er ekki af-
skræmd, heldur sönn, og því
gulli betri.
Eins og kunnugt er, stendur
Flaga í þjóðbraut, þar sem marg-
ur hefur verið á ferð um torfarn-
ar slóðir. Þeir eru orðnir margir,
sem hafa hlotið skjól og fyrir-
greiðslu á Flögu. Þjónustan, góð-
vildin, hjálpsemin, myndarskap-
urinn og rausnin, sern' Vigfús og
Sigríður létu þreyttum ferða-
mönnum í té um áratugi, hvort
heldur var að degi eða nótu.
Þessir góðu eiginleikar eru aðals
merki íslenzku þjóðarinnar og
mun þessi alkunna og marglof-
aða ges'trisni á Flögu halda uppi
minningunni um Flöguiheimilið
gamla í þakklátum hugum fjöl-
margra landsmanna. Þess vegna
streymdu hlýjar kveðjur og þakk
ir úr öllum áttum til Flögu í dag.
ÍTtför Vigfúsar var gerð af
mikilli rausn. Allir, sem komnir
voru að Flögu fyrir hádegi í dag,
á þriðja hundrað manns, snæddu
þar árdegisverð. Þá hófst hús-
kveðjan, en hana hélt séra Páll
Fálsson í Víik. Síðan var haldið
til Grafarkirkju. Þar talaði sókn-
arpfesturinn séra Valgeir Helga-
son í Ásum og að lokinni at-
höfninni í kirkju jarðsöng sr.
Valgeir. Þá var enn gengið til
kirkju, en síðan var öllum boðið
að Flögu til að þiggja þar góð-
gjörðir á ný. Var þar stöðugt
margmenni fram á kvöld. Veður
var gott og milt, er hinn merki
og ógleymanlegi héraðsihöfðingi
á Flöeu var kvaddur.
% — Fréttaritari.
Árssell Jónsson
F. 7. 5. 1889. D. 9. 3. 1964.
KVEÐJA FRÁ BARNABÖRNUM
Nú fylgja þér til hvílunnar
barnabörnin þín
og helga þér að síðustu
hjartablómin sín.
Með dögg í skyggðum augum þau
segja í hinzta sinn:
Við kveðjum þig og þökkum þér,
elsku afi minn.
Við kveðjum þig og þökkum þér
fyrir allt og allt.
Þú vermdir okkur alltaf þegar
okkur var kalt.
Við vorum lindir þínar, en þú hið
tæra fljót:
Vigfús Gunmarsson, Flögu.,
F. 26/12 1870 — D. 3/2 1964.
Fallinn er stynkur stofn
stóðst hann vel þessa raun
aldur var orðinn hár
uppsker nú sigurlaun.
Lífið er lán og gjöf
líknsömum guði frá
ljós hans um láð og höf
lýsi á mædda brá
Karlmenni kvaddi heim
kær var hann öllum hér
lifði við lán og seim
lífsorku bar með sér
Uppnæmur ekki var
eitthvað þó blési í mót
góðvild til guma bar
gott tré á sterkri rót.
Á Flögu hann fæddur var
á Flögu var degi eytt.
blómgaðist búið þar,
brögnum ,þó mörgum veitt.
Háttprúð við hlið hans stóð
hrund ein og styrkti hann,
börn áttu blíð og góð.
Birtu sló á þann rann.
Margt hafði maður reynt,
mörgu hann kom í verk
ekkert fór af því leynt
öndin var heil og sterk
Mörg fögur minning er
maðurinn ástsæll var,
gott urntal góðurn ber
gengnum til helgunar.
Heima'byggð harmar nú
hugsterka soninn sinn
er ungan með ást og trú
ól hann við 'arm og kinn.
Með kærleik hann kvaddur er,
kominn í fegri heim
af lífi hans ljóma ber.
Lifum í bjarma þeim.
Valgeir Heigason.
ATHUGIÐ
að borið saman við útbreiðslu
er iangtum ódyrara að auglýsa
i Morgunblaðinu en öðrum
blöðum. ,
með kærleiksríkan faðminn það
kom okkur í mót.
Að una í þeim faðmi fannst
okkur jafnan sælt.
Við hamingjuna sjálfa var
hjúfrað og gælt.
í þrá og trega minnumst við þess
sem horfið er.
En þó er alltaf það eftir sem vi8
eigum frá þér.
Við ætíð munum geyma það
á öruggum stað:
í brjósti okkar höfum við búið
vel um það.
Og barnabörnin kveðja þig elsku
afi minn,
og sjá þig hverfa brosandi
í sólskinið inn.
VÉLSETJÁRI
ÓSKAST STRAX
GENERAL® ELECTRIC
í*\lM\(;\SiiLIMHISTlKI
eru heimskunn fyrir gœði,
endingu og smekklegt utlit
■ ^
h’i'íór-
Steikarofn með tíma-
rofa og Grillteini.
Sjálfvirk
BRAUÐRIST
Sjálfvirkt
VÖFFLUJÁRN
sem einnig
má steikja á.
PONNUR
\ 2 stærðir
Hentugar — Ódýrar.
Straujárn
með og án gufu.
■x
Ryksuga
Ný gerð með þremur
stillingum á sogkrafti.
Innbyggð snúra, sem
dregst út við notkun.
Kynnið yður þessa
nýju gerð.
Útsölustaðir:
H.f. RAFMAGN, Vesturgötu 10.
HEIMILISTÆKI sf., Hafnarstræti 1.
LAMPINN, Laugavegi 68.
V. LONG, Hafnarfirði.
ELECTRO, Akureyri.
og hjá umboðinu.
ELECTRIC hf.
Túngötu 6. — Sími 15355.