Morgunblaðið - 24.03.1964, Page 32
Iliifffl
LEKTROLUX UMBOÐIÐ
ÍAVMVÍM tt iúai 21809
70. thl. — Þriðjudaffur 24. marz 1964
Hér sjást aðstæður Faðir drengsins stingur hendinni inn í holu
þá. sem bjargaði lifi hans. (Ljósm. MbL: Sv. Þ.)
Steinveggur fellur
ára barn
yfir sjo
SÍÐDEGIS í gær gerðist það við
Álfheima í Reykjavík að stein-
veggur féll niður í skurð og yfir
7 ára gamlan dreng, Kristján Ara
Einarsson, Álfheimum 29. Er ]>að
talið ganga kraftaverki næst, að
drengurinn skyldi lífi halda eftir
slys þetta, en það mun úrslitum
hafa ráðið, að hola var undir á
skurðbotninum, og hlífði það
drengnum, sem er óbrotinn, að
því er talið var í gær, en hins-
vegar marinn.
Nánari atvik voru þau, að unn-
jð hefur verið að því að grafa
skurð vegna hitaveitunnar í
hverfinu. Hefur þurft að grafa
meðfram steinveggjum, og varð
slysið við Álfheima 19.
Níu
gabba
ara
telpur
slökkviliðið
í GÆR var slökkviliðið gabbað
út. Var hringt og sagt að eldur
væri í portinu bak við Laugaveg
47. Fóru slökkviliðsbílar á stað-
inn, en þar var enginn eldur. —
Sökudólgarnir náðust þó, því
slökkvistöðin hélt símanum. —
Reyndust það vera tvær 9 ára
gamlar teipur. Kom í ljós að þær
(hafa áður leikið þann leik að
gabba leigubíla.
Freysteinn efstur
á Skákþmginu
AÐ LOKNUM 3 umferðum á
Skákþingi íslands er Freysteinn
Þorbergsson efstúr í Landsliðs-
floktki með 3 vinninga. í 2.-4.
sæti eru þeir Trausti Björnsson,
Bragi Kristjánsson og Hilmar
Viggósson með 2 vinninga hver.
4 umferð var tefld í gærkveldi,
en 5. umferð verður tefld í
ikivöld í Breiðfirðingabúð.
Jarðvegurinn við umræddan
vegg er a mestu möl. Eftir rign-
ingarnar um helgina, og ekki sízt
vegna skýfalls þess, sem í Reykja
vík varð laust eftir hádegi í gær,
hefur mölin losnað og hrunið
fram. Að síðustu hrundi umrædd
ur veggur ofan í skurðinn.
Er veggurinn hrundi, var Krist
ján Ari að leik niður í skurðin-
um, að því er bezt er vitað. Féll
veggurinn, sem var 50 cm hár,
15 cm þykkur og 9 metra langur,
niður í skurðinn, og yfir Kristján
Ara. Svo vildi til, að þar sem
hann var staddur í skurðinum,
var hola í botninum, og bjarg-
aði það lífi Kristján Ara, að því
er talið er.
Verkamenn hlupu til eftir að
slysið varð og tókst að lyfta
veggnum ofan af barninu, sem
síðan var flutt í Slysavarðstof-
una til rannsóknar.
Togararnir f ái að veiða innan
12 mílna
svæðum
ÚTGERÐARRÁÐ Bæjarútgerðar
Reykjavíkur samþykkti sam-
hljóða á fundi sínum í gær að
fela forstjórum fyrirtækisins að
hreyfa því innan Félags ísl.
botnvörpuskipaeigenda, að ís-
lenzkum togurum verði heimil-
uð veiði á ákveðnum svæðum og
ákveðnum tímum innan 12 mílna
markanna, svo og að veiðar með
netum og nótum verði takmark-
aðar um hrygningartímann á
uppeldis- og hrygningarsvæð-
um.
Fund útgerðarráðs í gær sátu
þeir Sveinn Benediktsson (for-
maður), Einar Thoroddsen, Guð
mundur Vigfússon og Hjörtur
Hjartar. Ingvar Vilhjálmsson,
sem einnig á sæti í ráðinu, var
fjarverandi.
Útgerðarráðið ræddi á fundi
sínum aflabrest togaranna og á-
stæðurnar fyrir honum, og var
eftirfarandi samþykkt gerð með
samhljóða atkvæðum:
„Framkvæmdastjórunum er
falið að hreyfa því innan Fé-
lags íslenzkra botnvörpuskipa
eigenda, að félagið leiti eftir
því, að íslenzkum togurum
verði heimiluð veiði á ákveðn
um takmörkuðum svæðum
innan landhelgi á vissum árs-
tímum, enda sé þess gætt, að
ekki séu stundaðar togveiðar
á hrygningarsvæðum eða upp
eldissvæðum nytjafiska.
Jafnframt séu fiskveiðar ís
lenzkra fiskiskipa með netum
og nótum takmarkaðar um
hrygningartímann á hrygning
ar- og uppeldissvæðum“.
a vissum
'v ,/
og tímum
Morgunblaðið sneri sér í gær
til í>orsteins Arnalds, forstjóra
BÚR, og spurðist fyrir um að-
draganda þessarar samþykktar.
Þorsteinn sagði:
— Eins og kunnugt er, hefur
afli togaranna verið mjög rýr
undanfarin ár, og á það aðallega
rætur sínar að rekja til þess, að
með útfærslu fiskveiðitakmark
anna misstu togararnir verulegan
hluta af beztu veiðisvæðum sín-
um.
Formaður Mennta-
málaráðs í Blaða-
mannaklúbbnum í
kvöld
BLAÐM ANN AKLÚBBURINN
verður opinn í kvöld í I>jóð-
leikihúskjallaranum og hefst
kvöldið kl. 9.30 að venju. Gestur
klúbbsins verður Helgi Sæmunds
son, formaður Menntamálaráðs,
og mun ihann svara spurningum
um menningarmál.
Sérstakur blaðamannaréttur
verður framreiddur. Blaðamenn
eru hvattir til að fjölmenna og
mega þeir taka með sér gesti.
— Jafnframt þessu má geta
þess, að togararnir voru útilok-
aðir um árabil frá beztu mörk-
uðum sínum, sem voru í Bret-
landi. Afleiðingin af minnkandi
afla og verri markaðsaðstöðu hef
ur orðið sú, að erfiðara hefur
verið að ráða skipshafnir, þar
sem þetta hefur rýrt launakjör
sjómannanna jafnt og afkomu
útgerðarinnar.
— Togararnir hafa reynt að
bæta sér upp veiðitjón á heima
miðum með því að leita á fjar-
lægari mið, svo sem til Yestur-
Grænlands og Nýfundnalands,
en veiðiferðir þessar eru bæði
kostnaðarsamar og gefa nú orðið
oft lítið í aðra hönd.
— Ég verð að segja, að mér
finnst vægast sagt mjög óeðli-
legt, að við, sem búum við ein
Framhald á bls. 31.
Borað í heitt í
Vestmannaeyjum
Vestmannaeyjum, 23. marz. —
ÞEGAR borinn, sem hér er að
leita að fersku vatni, var kom-
inn niður á 240 m. dýpi, fór að
koma 25 stiga volg leðja upp
með honum. Reiknast bormönn-
um svo til að við borendann sé
um 40 stiga hiti. Enginn hér
bjóst við heitu vatni, þegar bor
að yrði eftir ferska vatninu.
— Fréttaritari
Mbl. hringdi til ísleifs Jóns-
sonar, verkfræðings, sem hefur
haft með borunina í Vestmanna-
eyjum að gera. Honum fannst
þetta ekki eins merkilegt og leik
mönnum, sagði að þetta væri
bara venjulegiur jarðhiti og
ekki mætti búast við að Vest-
mannaeyingar færu að fá heitt
vatn í holuna. Búið er að fóðra
borholuna í Eyjum með stálrör-
um, svo hún er nú alveg þétt
niður á 200 m. dýpi og þegar
ekki fellur lengur inn í hana,
fer velgjan að segja til sín. Jarð
vegurinn hitnar svolítið niður og
að einhverju leyti er þetta nún-
ingshiti.
Vonin til að fá vatn í Vest-
mannaeyjum byggist á því að
gizkað er á að nokkur hundruð
metrum niðri sé fastaberggð,
sömu basaltlögin og í landi. Þau
nái út fyrir Vestmannaeyjar.
Ef sjórinn falli ekki niður í þau
geti verið að finnist þverlög með
vatni sem berist úr landi. En
niður í það er borinn ekki kom-
inn.
Árni Tryggvason.
Árni Tryggvason sendi-
herra ■ Svíþjóð
ÁKVEÐIÐ HBFUR verið, að
Árni Tryggvason, hæstaréttar-
Vikukaup kvenna upp í 4000 kr.
með bónuskerfinu í frystihúsi
ÓLAFSVÍK, 23. marz. — Afli
hefur verið mjög góður frá því
um miðja sl. viku, þó dálítið
misjafn,/eins og alltaf gerist. í
gær var afii frá 8 lestum í 32
lestir, sem Stapafell var með. Afli
þriggja hæstu báta frá áramót-
um, sem róið hafa bæði með línu
og net er: Stapafell 728 lestir,
Steinunn 539, Valafell 492, allt
miðað við slægðan fisk. Hinn
aflasæii skipstjóri á Stapafelli er
Guðmundur Kristjónsson.. Geng-
ið hefur mjög vel að verka afla
þennan sem á iand hefur komið
undanfarið hjá hinum tveim
frystihúsum staðarins og eins í
saltfiskverkunarstöðinni. Er það
ekki sízt að þakka hinu svokall-
aða bónuskerfi, sem tekið hefur
verið upp hjá frystiihúsunum,
sem komið hefur fram í því að
afköst hafa aukizt til mikilla
muna og ennfremur er betri nýt-
ing hráefnis. Jafnframt hefur
vinnutími stytzt að sama skapi.
Þá mó geta þess að vikukaup
kvenna hefur komizt upp . um
4000 kr. með hinu nýja fyrir-
komulagi.
1
1 gær lestaði hér Drangajökull
frystan fisk til útflutnings 9000
kassa af fiskflökum frá frystihús
unum hér i Óiafsvík. Enn-
fremur voru fryst fiskflök flutt
frá frystihúsinu á Hellissandi
hingað til Ólafsvíkur í sama skip.
En Drangajökull mun ekki hafa
komizt inn í Rifshöfn vegna
dýpkunarframkvæmda þar og
kom því hinn nýi Ennisvegur i
góðar þarfir fyrir flutning á hin-
um frysta fiski — H. K.
dómari, verði skipaður ambassa-
dor íslands í Svíþjóð og hefur
sænska ríkisstjórnin fyrir sitt
leyti fallizt á það, segir í frétta-
tilkynningu sem blaðinu barst í
gær frá utanríkisráðuneytinu. •
Árni Tryggvason er maður
liðlega fimmtugur, sónur hjón-
anna Tryggva Árnasonar tré-
smiðs í Reykjavík og Arndísar
Jónsdóttur. Hann varð stúdent í
Reykjavík 1930, cand juris frá
Háskóla íslands 1936 og hæsta-
réttardómari 1945 og hefur gegnt
því embætti síðan. Þess má geta
að Árni Tryggvason hefur verið
verið formaður íslandsdeildar
norrænu lögfræðingamótanna og
ritstjóri Nordisk domsamling,
Kona hans er Sigrún Ögmunds-
dóttir.
Mbl. hringdi til Árna í gær-
kvöldi og spurði hvað hann vildi
segja í þessu sambandi. Ég heí
lítið að segja. Mér var boðið
þetta og mig langar til að reyna
það. Ég er búinn að vera í rétt-
inurn í 18 ár. Ég þekki mjög vel
til í Svíþjóð og vonast til að
geta gert eitthvert gagn þar.