Morgunblaðið - 05.04.1964, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.04.1964, Blaðsíða 2
z MORCUNBLAÐÍO Sunnudagur S. april 1964 j Mýtt íslenzkt leikrit r Hvað segja Danir um lokunartíma sölubúða? TILRAUNALEIKHÚSIÐ Gríma hefur haft tvær sýn- ingar á nýju íslenzku Ieikriti, Reiknivélinni, eftir Erling E. Halldórsson, og er hann einn- ig leikstjóri. Þriðja sýning verður nú á m.á.nudagskvöldið, en þá verður gagnrýnendum hoðið. Myndin er úr leiknum: Brynja Benediktsdóttir og Þorleifur Pálsson. Kynning á verkum Davíðs Stefáns- sonar í DAG kl. 4:00 verður haldin kynning á verkum. Davíðs Stef- ánssonar í hátíðasal Háskólans á vegum bókmenntakynningar- nefndar stúdentaráðs. Kristinn E. Andrésson magist- er flytur erindi um skáldið. Helga Bachmann lei'kkona og stúdentarnir Böðvar Guðmunds- son, Elísabet Guttormsdóttir, Sverrir Hólmarsson og Þorleif- ur Hauiksson lesa úr vedkum skáldsins. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Fyrirlestur um bandarísk verka- BANDARÍSKUR verkalýðsleið- togi, Mr. David Lasser, sem hér er staddur á vegum fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna, flytur al- mennan fyrirlestur í dag kl. 2 e. h. í Iðnó um viðhorf í banda- rískum verkalýðsmálum og starf verkalýðssamtaka vestra. Mr. Lasser er forstöðumaður hagdeildar sambands rafmagns- iðnaðarmanna í Bandaríkjunum og er nýkominn úr þriggja mán- aða ferðalagi um Evrópu til þess að kynna sér verkalýðsmál þcr. BREYTING sú, sem gerð hefur verið á lokunartíma sölubúða hér lendis hefur vakið mikið umtal og að vonum eru ekki allir á eitt sittir um þá nýbreytni. Eftirfarandi grein birtist í kvennaþætti Politiken 22. marz, en ritstjóri þess þáttar er Lise Nörgaard. Er þar vikið að sam- bærilegu viðfangsefni: I flestum brezkum borgum eru búðir opnar lengur daglega en í dönskum borgum, enda er venja hjá Bretum, að búðirnar hafi lokað til skiptis einn virkan dag í viku. Bretar geta líka keypt fleira en sælgæti og pylsur á sunnudögum, því þótt búðirnar séu þá lokaðar, þá eru opnir götu markaðir í öllum stærri bæjum á sama hátt og í Frakklandi. Eigi að síður vilja brezkar hús- mæður nú færa opnunartíma búð anna í nýtízkulegra horf, svo þær hafi endrum og eins tækifæri til að geia innkaup að kvöldi til. Skoðanakönnun, sem neytenda- samtökin brezku gengust fyrir meðal 5000 neytenda, verka- manna, handverksmanna, ein- hleypra og giftra, sýndi að meirihlutinn óskaði eftir að lengja verzlunartímann til kl. 10 Galdra-Loftur verður sýndur á Akureyri Gunnar Eyjólfsson fer með hlutverk Lofts Akureyri, 3. apríl. LEIKFÉILAG Akureyrar hefur hafið æfingar á sjónleiknum Galdra-Lofti eftir Jóhann Sig- urjónsson. Leikstjóri er Ragn- hildur Steingrímsdóttir, sem jafn framt leikur Steinunni, en Gunn- ar Eyjólfsson fer með hlutverk Lofts. Aðrir aðalleikendur verða Þórey Aðalsteinsdóttir (Dísa) og Marinó Þorsteinsson (Olafur). Fréttamönnum gafst í morgun kostur á að ræða stutta stund við Ragnhildi Steingrimsdóttur, leikstjóri, Jóhann Ögmundsson, formann L. A., og Gunnar Eyj- ólfsson, leikara, en hann hafði skroppið norður til skrafs og ráðagerða við forystumenn leik- félagsins og til að vera á æfingu hér í gærkvöldi. Jóhann kvað stjórn L. A. telja það einstaka heppni að takast skyldi að fá Gunnar norður til að taka að sér þetta vandasama hlutverk og satt að segja hefði hann ekki verið of bjartsýnn, þegar hann hringdi til Gunnars og bar ’ipp erindið. En Gunnar svaraði þá þegar stutt og lag- gott: „Jú, ég skal með ánægju koma, ef ég fæ mig lausan“. Síðan var talað við þjóðleikhús- stjóra, sem gaf fúslega samþykki sitt eftir að hafa borið málið undir Þjóðleikhúsráð. Nú er fastráðið að Gunnar komi norður, þegar sýningum á Hamlet lýkur seint í apríl og sýningar á Galdra-Lofti munu geta hafizt í maíbyrjun Jóhann Ögmundsson kvað stjórn L .A. vera afar þakkláta þjóðleikhús- stjóra, Guðlaugi Rósinkranz, og þjóðleikhúsráði fyrir skilning á málinu og góðviljaða fyrir- greiðslu, enda væri ráðning Gunnars hingað einstakur happa fengur leiklistarlífi bæjarins. Gunnar Eyjólfsson sagðist 40 FARAST Madras, Indlandi, 4. apríl Kvennaskólahús í bænurn. Madurai, um 560 km. frá Madras, hrundi í dag. Fórust a. m. k. 40 manns í rústunum. Talið er að flestir hinna látnu hafi verið námsmeyjar við skólanu. 'hlakka til að glíma við Loft hér nyrðra, enda væri hann það hlut verk, sem hann hefði tekið einna mestu ástfóstri við. Galdra- Loftur var fyrsta hlutverkið, sem hann lék eftir að hann kom heim til íslands að loknu leik- listarnámi. Hann sagðist ekki standast mátið þegar sér byðist ag leika það. Galdra-Loftur var síðast sýndur hér á Akureyri 1927-28, en þá fóru með aðalhlutverkin Haraldur Björnsson (Loftur), Svava Jónsdóttir (Steinunn), Sigríður Stefánsdóttir (Dísa) og Steinþór Guðmundsson, klæð- skeri, (Ólafur). — Sv. P. vikulega, auk þess sem 1290 af þessum 5000 óskuðu þess að hafa nokkrar búðir opnar á sunnu- dögum. Það eru einkum verkamenn, sem starfa úti, einhleypir jafnt sem giftir, sem vilja þessa breyt- ingu, en húsmæður, sem vinna heima hafa einnig áhuga á að fá tækifæri til að taka eiginmenn sína með sér, þegar þær ætla að gera stór innkaup. Neytendastofnunin álitur, að hljóti einnig að vera áhugamál fyrir kaupmennina að samhstfa opnunartima verzlananna þörf- um neytenda og réttast sé að láta hvern og einn kaupmann ráða fram úr því, hve lengi hann telur sér hagkvæmt að hafa verzlun sina opna. Sambærilegar uppástungur hafa mætt harðri mótspyrnu i Danmörku bæði af hálfu kaup- manna og einnig frá samtökum verzlunarmanna. Eigi að síður má telja öruggt, að samibærileg skoðanakönnun í Danmörku muni leiða til svipaðrar niður- stöðu og í Bretlandi, því einnig hér hefur þjóðfélagið og staða kvennanna í því tekið miklurtt breytingum á síðustu 20— 3 ár- um. LSA og Panama taka aftur upp stiórnmálasamband Washington, 3. apríl — (AP) STJÓRNIR Bandaríkjanna og Panama komust í dag að samkomulagi um að koma aft- ur á stjórnmálasambandi og skiptast á sendiherrum hið fyrsta, jafnframt því sem undinn verði bráður bugur að því að leysa ágreiningsefni þeirra. Var samkomulag ríkj- anna undirritað á fundi stofn unar Ameríkjanna og voru fulltrúar aðildarríkjanna allra viðstaddir. Sjóbirtingsveiðin liafin SJÓBIRTINGSVEIÐIN hófst að vanda 1. apríl sl. og hafa Reyk- víkingar Og aðrir lagt leiðir sínar í sjóbirtingsárnar á Suðurlandi, og verður sjálfsagt fjölmennt þar nú um helgina. Ekki hefur fréttst af aflabrögðum annað en að reytingsveiði mun hafa verið í Þorleifslæk í Ölfusi, og að þeir, sem fóru í Staðará á Snæfells- nesi, muni ekki hafa haft erindi sem erfiði. — Það eru einkum ár í Árness-, Rangárvalla- og Skafta fellssýslum, sem Reykvíkingar reyna við sjóbirtinginn í. álfu. Spmvinna um vís- indarannsóknir FYRIR nokkru var haldinn í Strasbourg fundur í Evrópuráðs- nefnd, sem fjallar um æðri menntun og rannsóknir. Dr. Þór- ir Kr. Þórðarson prófessor sat fundinn af íslands hálfu í boði Evrópuráðsins. Á fundinum var •nest áherzla lögð á umræður um tvö mál: tungumálakennslu og samvinnu um vísindaiðkanir, en einnig var rætt um fram- haldsnám kandidata, akademiskt frelsi, samræmingu tæknifræðslu og fleira. Rædd var tillaga um að koma á fót evrópskri miðstöð til rann- sókna á aðferðum við kennslu nútímamála og til dreifingar á þekkingu um tungumálanám. — Þá var rætt um samstarf Evrópu ríkja um að koma á fót vissum vísindastofnunum við háskóla í álfunni. Hefur komið í ljós, að það er ofvaxið einstökum háskól- um að hafa með höndum ýmsa rannsóknastarfsemi, sem dýr tæki og mjög sérhæft starfslið þarf til. Hafa Evrópumenn því dregizt aftur úr á ýmsum svið- um, einkum í samanburði við Bandaríkjamenn, og evrópskir vísindamenn flutzt vestur um haf af þeim sökum. Nokkuð hefur verið gert til að sameina krafta Evrópuríkja á þessum vettvangi. t. d. með þvi að setja á stofn Kjarnórkustofnun Evrópu í Genf, sjólíffræðistofnun í Napoli og háloftarannsóknastofnun i Jungfrauhooh. Hins vegar er tal- ið nauðsynlegt að koma upp fleirj slíkum Evrópustofnunum. (Frétt frá upplýsingadeild Evrópuráðs). Síðdegis í dag kallaði Lyndon B. Johnson, forseti, forystumenu beggja deilda Bandaríkjaþings á sinn fund til að skýra þeim frá efni samkomulagsins og mark- miði. Sagði hann meginefni þess það, að hið fyrsta yrði skipzt á sendimönnum er fengju það hlut verk að grafast fullkomlega fyr- ir um orsakir ágreinings ríkj- anna með það fyrir augum, að hann verði endanlega leystur. — Sagði forsetinn, að samkomulag- ið hefði verið undirritað án nokk urra skilyrða. Milligöngu um sættir hafði Juan Bautista de Lamalle frá Perú. Ríkið og hlutverk þess DR. BENJAMÍN Eiríksson banka stjóri flytur erindi á vegum Heimdallar F.U.S. í Valhöll nk. þriðjudagskvöld 7. apríl um RÍKIÐ OG HLUTVERK ÞESS. I erindi sínu mun banikastjórinn gera grein fyrir viðhorfum hinna ýmsu stjórnmálastefna til rikis- valdsins. Þetta er fjórði fyrirlest- urinn á vegum Heimdallar í vet- ur í flokki fyrirlestra um þjóð- félagsmál, en þá hafa verið skil- greind og rædd ýmis grundvall- aratriði þjóðfélagsins. Ll 4 v H.Ob rrr—rv“v— NA !5 hniiitr SV 50 hnútar k Sn/úitmt * Cii V Skúrir E Þrumar W.:á KMnkit H Hmi\ HHMtt L £m*t 1 í GÆBMORGUN var góð- S-Grænland er búizt við vax- viðri um allt land, logn og andi SA-átt og nokikurri rign- 2-4 st. hiti. Vegna lægðar við ingu á Suður og Vesturlandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.