Morgunblaðið - 19.06.1964, Blaðsíða 17
j Fostudagur 19. Júnt 1984
MORCUNBLADIÐ
17
I
i
i
Brugðiðupp myndum
úr Fjallkirkjunni
LISTAHÁTÍÐINNI er lokið.
Seinasti liðurinn í hátíðarsýn
Bjarni smiður (Þorsteinn Ö.
Stephensen) á sviðinu á Arn-
arhólL
ingunum voru myndir úr Fjall
kirkju Gunnars Gunnarsson-
ar, brugðið upp í Þjóðleikhús
inu sl. þriðjudagskvöld fyrir
fúllu húsi leikhúsgesta, að við
stöddum forseta Islands, for-
setafrú, ráðherrum og fleiri
gestum.
Lárus Pálsson ■ og Bjarni
Benediktsson tóku saman
þætti þá sem þarna voru sýnd
ir úr Fjallkirkjunhi. Það hef
ur áður verið gert hér með
góðum árangri að vinna þann
ig myndir upp úr skáldsögum
til að bregða þeim upp á sviði
þegar leikarar fluttu svonefnt
Kiljanskvöld með þáttum úr
verkum Halldórs Kiljans Lax-
ness. Hér hefur verið unnið á
svipaðan hátt, teknar kunnar
persónur úr verkinu, í þetta
sinn allar úr sömu skáidsög-
unni, og þær látnar kynna sig
sjálfar með eigin orðum —
töluðum við lítinn snáða.
Uggi, litli rauðkollurinn,
hlustar með stór augu og opin
munninn á allan þennan vís-
dóm. Björn Jónasson, heitir
drengurinn sem leikur Ugga
og gefur ekkert eftir sem mót
leikari með áhugasvip sinn
og mismunandi jánkun. Leik
húsgesti furðaði nokkuð á því
í lokin, að svo líflegur strák-
ur skyldi ekki einu sinni þá
spretta upp og hlaupa út. En
það gat Björn ekki, því það
óhapp hafði hent er sýningin
var hálfæfð, að hann fótbrotn
aði. í stað þess að hoppa og
skoppa á sviðinu, var honum
því komið fyrir í sæti í myrkr
Á kvöldvökunni á Arnarhóli 17. júní voru fluttar tvær myndir úr Fjallkirkjunni. Hér sjást
Ketilbjörn á Knerri (Valur Gislason), og leikstjórinn Lárus Pálsson, Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
inu áður en hverri mynd var
upp brugðið. Og tókst ágæt-
lega að leysa þennan vanda.
Persónurnar úr Fjallkirkj-
unni, sem brugðið er upp, eru
allar svo kunnar að hver og
einn á þær sjálfsagt að nokkru
lagaðar til í sínum eigin hug
arheimi. Kemur hún þá kann
ski ekki alveg heim við þá
mynd serp leikarinn hefur
dregið upp. Sumar myndirn
ar vilja ekki falla saman til
fulls. Svo var hjá fréttamanni
Mbl. um Ketilbjörn á Knerri,
afa á Knerri, þennan skrýtna
karl með nefið, sem Valur
Gíslason leikur hressilega.
Aðrar myndirnar urðu aftur
á móti meira lifandi, þegar
þær birtust á sviðinu, svo sem
Bjarní smiður, sem Þorsteinn
Ö. Stephensen leikur. Aðrar
persónur, sem kynntar voru,
eru Begga gamla, sem Anna
Guðmundsdóttir gerði
skemmtilega, Selja (Helga
Bachman), sem mér finnst
full fríð og varla nógu blíð
í fasi fyrir móður Ugga, Greip
ur faðir hans (Rúrik Haralds
son), sem of lítið kom fram
til að gefa nokkra mynd, syst
urnar Sigga Mens, sú káta og
illgjarna (Herdís Þorvalds-
dóttir) og María Mens, sú sí
grátandi (Guðbjörg Þorbjarn
ardóttir) og strákarnir Bjössi
(Stefán Thors) og Maggi (Þór
arinn Eldjárn). Leikstjórinn,
Lárus Pálsson, er sögumaður
— skáldið.
Sýningartími var hálfur
annar kiukkutími. Mátti heyra
að lekihúsgestum þótti feng-
.ur að þessum myndum af
kunnum og kærum persónum.
Voru leikarar, leikstjóri og
höfundur kallaðir fram hvað
eftir annað. Lýsti Gunnar
Gunnarsson í stuttu ávarpi
skuld sinni við leikhúsgesti
fyrir móttökurnar, leikara
fyrir flutninginn og leikstjóra
og höfunda myndanna fyrir
leikbúnað þeirra. En þeir
þökkuðu skáldinu með áköfu
lófatakL — E. Pá.
- Þjóðhátíðin i Reykjavík
Framh. af bls. 12
efni lýðveldishátíðarinnar fyrir
20 árum við ljóð eftir Kjartan
Gíslason á Mosfelli, Erlingur Vig
fússon söng einsöng í verkinu.
iÞótti það vel við eiga við 20
ára afmælishátíðahöld lýðveldis-
ins.
1 Á Laugardalsvellinum lék
Lúðrasveitin Svanur á sama tíma
undir stjórn Jóns G. Þórarins-
eonar og kl. 17:00 hófst dagskrá
þar með ávarpi Baldurs Möllers,
formanns ÍBR, sem ræddi m.a.
um gróandann í íþróttalífinu fyr
ir 20 árum og hvatti til afreka,
að menn mættu gera hið mesta
©g gefa hið bezta þjóð sinni til
farsældar. Fóru þar fram íþrótta
sýningar og íþróttakeppnir, sem
sagt er frá á íþróttasíðu.
Fjölbeytt dagskrá um kvöldið
Þegar kvöldvakan á Arnarhóli
hófst kl. 20.00 um kvöldið með
leik lúðrasveitarinnar Svanur
var enn gott veður, allt að því
logn og eins milt og getur orðið
á sumarkvöldum á Islandi, enda
var mannhaf um allan Arnarhól
inn, á Stjórnarráðsblettinum og
nærliggjandi götum. Kvöldvök-
una setti Valgarð Briem, ritari
Þjóðhátíðarnefndar og á eftir lék
Svanur „Hvað er svo glatt“.
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri, flutti stutta ræðu, sem birt
er annars staðar í blaðinu. Að
ræðu hans lokinni lék lúðrasveit
in Svanur Reykjavíkurmars eft
ir Karl O. Runólfsson undir
stjórn höfundar. Og prófessor
Richarð Beck flutti kveðjur frá
Vesturríslendingum.
Nú var tekið upp léttara hjal.
Félagar úr karlakórnum Fóst-
bræðrum sungu með aðstoð Svav
ars Gests og hljómsveitar, nokk
ur skemmtileg lög, Eygló Viktors
dóttir og Erlingur Vigfússon
sungu dúetta úr Sardasfurstinn-
únni og fleiri tvísöngslög. Þá voru
fluttar tvær myndir úr Fjall-
kirkju Gunnars Gunnarssonar,
kynntar hinar þekktu persónur
Bjarni smiður (Þorsteinn Ö. Step
hensen) og Ketilbjörn á Knerri
Aldrel hefur sést fjolmennarl barnaskemmtun i Reykjavík en bar naskemmtunin á Arnarhóli á
þjóðhátiðardaginn. Hér skemmta dvergarnir sjö börnunum. Ljósm.: Sv. Þorm.
Það var fjörugt í Lækjargötunnl
(Valur Gíslason) undir stjórn
Lárusar Pálssonar, sem las svör
Ugga litla.
Nú var komið að atriði, sem
aðrar stærri þjóðir munu vafa-
laust öfunda okkur af. Tveir
píanósnillingar, sem heimsborg-
irnar keppast um að fá til sín í
hljómleikasali sína, Rússinn
Vladimir Askenazy og Banda-
ríkjamaðurinn Malcolm Frager,
léku á útiskemmtun verk eftir
Bach og Rachmaninoff fjórhent
á tvo flygla, sem komið hafði ver
ið fyrir á pallinum. (Mun þjóð-
hátíðarnefnd hafa haft af því
þungar áhyggjur að veður spillti
því að hægt yrði að fara út með
svo dýr hljóðfæri, en veðurguð-
irnir björguðu því).
Að lokum flutti Ómar Ragn-
arsson nýja gamanþætti og gam
anvísur, við mikinn hlátur þjóð-
hátíðargesta, sem kunna sýni-
lega að meta garhanmál hans og
var það síðasta atriðið á dag
skránni.
Þá upphófst að venju dansinn
á götunni. Dansað var á þremur
stöðum. Léku Hljómsveit Svavars
Gests á Lækjartorgi, Lúdó-sext-
ettinn í Aðalstræti og Hljómsveit
Magnúsar Randrup á Lækjar-
götu. Auk þess léku og söng J. J.
kvintettinn til skiptis á dans-
stöðunum. Svavar Gests kynnti
og las kveðjur sem bárust þjóð-
hátíðargestum frá íslendingum
erlendis og á rúmsjó. Var mikið
fjör 1 dansinum og settu ung-
stúdentarnir með hvítu kollana
sína mikinn svip á dansstaðina,
eins og reyndar á götulífið allt
17. júní, svo fjölmenmr sem þeir
eru orðnir.
Hátíðinni var slitið kl. 2 frá
Lækjartorgi. Eins og ætíð vill
verða, sem mikill mannfjöldi er
saman kominn, hafa ætíð ein-
hverjir einstakhngar drykkju-
læti í frammi og verða þeir á-
vallt áberandi eftir að annað
fólk er farið heim. Mun ekki
hafa borið meira á því en áður
nema síður sé í þetta skipti.