Morgunblaðið - 19.06.1964, Side 19

Morgunblaðið - 19.06.1964, Side 19
Föstudagur 19. juní 1964 MORGU NBLAÐIÐ 19 - Á söguslóðum Framhald af 10. síðu. endur. Allar veita eyjar þess- ar auganu fjölbreytta fegurð og hvíld, þegar horft er til suðurs. í norðvestri djarfar fyrir Reykjanesskaganum, þegar veður er fegurst. Þá tekur við Heiðin há og Hellis- heiði með Skálafelli. Þar aust ur af rís Ingólfsfjall í ölfusi, breitt og bunguvaxið. Síðan koma Laugardalsfjöllin, en nær og í réttri röð frá vestri til austur, Búrfell í Gríms- nesi, Hestfjall og Vörðufell á Skeiðum. f hánorðri breiðir Langjökull úr sér, bak við Kálfstinda að vestan og með Jarlhettur eins og ísaum að austanverðu. Nær eru Hreppa fjöllin, þá Bjólfell, Skarðs- fjall á Landi og austast Búr- fell við Þjórsá. Þar austur af rís Hekla í tign sinni og feg- urð. Sést hún að jafnaði mjög vel frá Bergþórhvoli, því að lítt skyggir á hana, nema veð- ur. Austur af henni gnæfir svo Þríhyrningur eins og kór- óna yfir vesturhluta Fljóts- hlíðarinnar. Þá taka við Tinda fjöll að baki „Hlíðarinnar“, en austur af þeim hinn svip- mikli og ógleymanlegi Eyja- fjallajökull. Milli þeirra er Goðaland og Þórsmörk og sér allvel til hennar frá Berg- þórshvoli. Austan við Eyja- fjöll mætir svo auganu Péturs ey í Mýrdal, sem stendur eins og fjarlægur vörður út við hafið. öll er þessi útsýn svo mikil og fögur, að hún gleymist ekki þeim, sem við hana hafa búið. Oft hefir verið grafið í bæj arstæðið á Bergþórshvoli í leit að fornminjum. Fyrstur hóf þar rannsóknir Sigurður Vigfússon, árin 1883 og 1885. Fann hann m.a. sviðna viðar- búta og skyrleifar, sem hann ialdi vera frá dögum Njáls og Bergþóru. Mjög er nú dregið í efa, að svo hafi getað verið. Næstur framkvæmdi rann- sóknir 6 staðnum Matthías Þórðarson þjóðminjavörður. Fóru þær fram árin 1927 og 1928. Var þá grafinn út Bæjar hóllinn, þar sem nú standa fjós og hlaða. Fundust þar lengst niðri — næst óhreyfðri jörð — brunaleifar og ýmsir munir, sem sumir gætu verið frá Njálsdögum. Eru allir þeir munir geymdir á Þjóðminja- safninu í Reykjavík. Síðast- ur rannsakaði staðinn árið 1951 Kristján Eldjárn þjóð- minjavörður. Gróf hann upp allstórt svæði í Bæjarhólnum vestanverðum. Kom hann þar vestast niður á brunaleifar af stóru fjósi, sem vel gæti verið ján Eldjárn ritað mjög ítar- lega og fróðlega grein, um allar fornminjarannsóknir á Bergþórshvoli í árbók Forn- leifafélagisins 1951—1952. Vís ast þangað öllum þeim, sem áhuga hafa á þessum efnum. Eins og áður er sagt varð Bergþórshvoll prestsetur árið 1876. Prestar í Landeyjaþlng um hafa síðan verið sem hér segir: 1. Guðjón Hálfdánarson, 1876—1882. 2. Halldór Þorsteinsson, 1882—1898. 3. Magnús Þorsteinsson, 1898—1904. 4. Þorsteinn Benediktsson, 1905—1919. Sat á Krossi. 5. Sigurður Norland 1919—1922. 6. Jón Skagan, 1924—1945. 7. Sigurður Haukdal, 1945— í dag eru Landeyjar ahnar og betri heimur en áður var. Með fyrirhleðslu Þverár, Af- falls og Ála 1945—1947 gjör- breyttust öll skilyrði þar til samgangna og aukinnar rækt- unar. Síðan hefur tæknin unn- ið þar sín undraverk með hin- um stórvirku vélum. Vötn eru öll brúuð og bílvegur kominn heim að hverju byggðu bóli. Á stprum svæðum, þar sem áður voru fen og foræði, er nú kafgróið þurrlendi og töðu- vellir. Landeyjar virðast stefna hratt að því, að verða með beztu jarðræktarsveitum þessa lands. Njáll hinn spaki, ók fyrstur manna skarni á hóla á íslandi. Hann var því í rauninni fyrsti jarðræktarfrömuður íslend- inga. Presturinn, sem nú sit- ur Bergþórshvol, séra Sigurð- ur Haukdal, er búhöldur góður. í hans tíð hafa tún öll verið sléttuð að fullu og færð mjög útj, einkum til vesturs. Aukin ræktun á staðnum og vaxandi áhöfn virðast haid- ast í hendur. Er vel þegar frægir staðir stefna að því, að verða höfuðból í annað sinn. Má þá segja að fortíð og nú- tíð leggist á eitt um það, að gjora garðinn frægan. Jón Skagan. Jóhanna Biarnadóttir Minmngarorð ÞAÐ er eims og konan sé einn hluti Guðdómsins. Hún gerir okkur mennina að mönnum, lað ai fraim það bezta í sél okkar og vedtir okkur þrek. Og góð móðir fómar öllu fyrir bömin sín, leiðir þau, verndar og varð- veitir bæði lífs og liðin. Jóhanna Bjarnadóttir, Þórs- götu 14, var fædd 15. september 1892, dáin 12. júní 1964. For- eldrar hennar voru Sigríður Þorvarðardióttir prests Jóns- sonar, síðast á Prestbakka á Síðu, og Bjarni Jónsson frá Mörk á Síðu. Jóhanna giftist Jónasi Jónssyni, baupm., Þórs- götu 14, og þar hefir heimiii þeirra lengst af verið. Ég sá Jóhönnu sá.1. unga, fagra og glæsilega, og ég sá hana líka, er dauðinn hafði sett merki sitt á hana. Hún var alltaf konan og móðirin. Á sam búð hennar og eiginmannsims bar aldrei skugga, og barnaböm in voru henni jafn hjartfólgin og eigin börn. Ég þekkti móður Jóhönnu sál. og tvær móður- systur, önnur var amma mín. Þær báru allar svipmót Þor- varðaættarinnar að útliti og sál argöfgi máttu ekkert aurnt sjá né vita, án þess að reyn að hjállpa og hjúkra. Jóhanna sál. líktist þeim mjög, bar glögg merki þess að vera af góðum stofni. • Enginn veit hvað sæla er, nema harnn hafi reynt sorg og þjánimgar. Og við, sem vorum fædd fyrir síðustu aldamót höf- um reynt það, að Lifið er harður skóli. En þá er námið Mika því meira virði. Jóhanna sáll. reyndi líka sárar raunir, en sólksins- stundirnar bættu þær upp. Hún eignaðist góðan mamn. Framan af voru þau örmsauð, en með sameiginlegu átaki bruitust þau fram til bjargálna. Þar kom Bæði voru þau hjón einlæg- lega trúuð, báðu í sameiningu fyrir sér og öðrum. Og það er eins og frá trúuðu fólki geisli blessun tll samferðamannanna. Enginn snauður fór frá þeim hjónum, án þess þau reyndu að rétta hjálpandi hönd. Og lík- lega er bezta eignin meðvitund- in um að hafa gert vel, og hlý- hugur samferðamannanna. Skömmu fyrir andlát sitt dreymdi Jóhönnu sál., að tveir englar væru kornnir til að sækja sig. Draumurinn gladdi hasa mjög, og heimvonin var örugg. Hún var örþreytt, hafði lengi verið veik, oftast sárþjáð. Þá er hvíldin líkn. Það vekur alltaf hryggð hjá eiginmahni og börnum, þegar góð kona og móðir hverfur sjónum. En hún er ekki dáin, heldur sefur hún. fram hinn sígildi sannleiki lífs- ins, að ekkert fæst nema unnið sé til þess, sýnd árvekni og hóf- semi. Guð blessi þig, frænka min, Hans eilífa miskunnsemi verndi þig og varðveiti. Hannes Jónsson. Borðstofustúlku vantar að Mæðraheimilinu Hlaðgerðarkoti í Mos- fellssveit. — Uppl. á skrifstofu Mæðra- styrksnefndar Njálsgötu 3 sími 14349. sokkar eru seldir í tízkulitum u m a 111 1 a n d . Verð kr. 37.00. SÍÐASTLIÐINN stmnudag var 10. sýning á Sardasfurst- innunni í Þjóðleikhúsinu. — Ragnar Björnsson stjórnar nú hljómsveitiríni. Hann tók við stjórn hljómsveitarinnar á ní undu sýningunni. Aðsókn hef ur verið góð og oftast upp- selt. óperettan verður aðeins sýnd til 30. þ.m., en þá kem- ur russneski ballettinn og verður þá að hætta sýningum á Sardasfurstinnunni. Lcikhús gestum skal bent á, að oft er vandkvæðum bundið að ná í aðgöngumiða á síðustu sýn- ingar. Næstu sýningar verða á laugardag og sunnHdag. — Myndin er af Eygló Viktors- dóttur í aðalhlutverkinu. Isabella Góðir kvensokkar \ verða að vera — fallegir — fara vel — og endast lengi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.