Morgunblaðið - 19.06.1964, Side 24
24
MORGUNBLAÐIO
Föstudagur 19. júní 1964
I JOSEPHINE EDGAR~
29
FIAI SYSTIR
Ég fór inn aftur og hitti Minnu
í forstofunni. Þegar ég sagði
henni, hvernig ástatt væri fyrir
Dan, hristi hún höfuðið. — Hún
lætur myrða sig einhvern dag-
inn . . eins og hún fer með karl
mennina, sagði gamla konan.
Skömmu seinna kom Jakes og
afhenti mér peningana aftur.
— Hahn var farinn þegar ég
kom þangað. Gamli vagninn
hans hafði komið. I>ér þekkið
gamla ekilinn, sem ekur honum.
Hann hafði verið að leita hans
allt kvöldið. Að minnsta kosti
fór hann með hann heim. Hann
þagnaði. — Að minnsta kosti
skal ég hafa augun hjá mér fram
vegis, þegar ég er að aka með
frú Dan.
Ég þakkaði honum -fyrir og
hann fór ú,t, en rétt í sama bili
komu Woodbourne og Soffía til
kvöldverðar.
Soffía fór á undan inn í setu-
stofuna. — Rósa, sagði hún, —
hvað var Jakes að, gera hingað
á þessum tíma dags?
— Hann fylgdi mér heim.
Hún glápti á mig; — Og hvar
hafðir þú verið?
— Ég fór út til hans Dans.
Dans Brady. Hann kom hingað
til að myrða ykkur Woodbourne
lávarð. Hann beið hérna fyrir
utan.
lega. Soffía sendi honum aðvör-
unarmerki í áttina til mín og
vafði svo örmunum um háls
hans.
Ég sá hann taka hana í fang
sér og kyssa hana á berar axlirn
ar. En yfir höfuðið á honum sá
ég fallega andlitið á henni af-
myndað af viðbjóði. Ég lokaði
dyrunum og minntist þess, að
ég hafði séð einmitt þetta sama,
eftir að hún giftist Dan, og ég
minntist líka þess, sem veslings
Dan hafði sagt í kvöld.
En hver var maðurinn? Það
gæti þó ekki verið sjálfur piit-
urinn minn, hann Brendan?
Mér var óglatt og kalt. Ég fór
að hugsa um það, sem Brendan
hafði einu sinni sagt við mig,
um að lifa með þeim, sem mað-
ur elskaði ekki, og ég minntist
líka svipsins á Soffíu þegar hún
leit á Brendan. . . Fyrir mann-
eskju, sem hafði tekið það í sig
að lifa eins og Soffía gerði,
hlaut ástin að vera hrein opin-
berun — og kona eins og Soffía
mundi ekki hika við að grípa
hana, ef hún ætti einhverntíma
kost á því að frosna hjartað í
henni yrði raunverulega snortið.
Það var komið fram undir
morgun þegar ég sofnaði loksins,
kúguppgefin. Ég_ vaknaði ekki
fyrr en klukkan um tíu, þegáft-
Minna frænka færði mér te og
ristað brauð, og ég mundi eftir
bréfunum mínum til Brendans
og Marjorie, sem ég hafði gleymt
að setja í póst. Ég flýtti mér að
klæða mig, batt hár á mér í hnút
með bandi, eins og ég hafði gert
í skólanum, og læddist niður stig
ann með bréfin í hendinni. Þegar
ég gekk fram hjá stofu Sofííu
kallaði hún: — Rósa-
Ég gekk inn með tregðu.
Soffía sat við skrifborðið sitt.
Hún var í einhverjum gisnum
slopp og hárið var snúið upp af
handahófi, en mér fannst það
aldrei hafa verið jafnfallegt.
Kaffibakki stóð á litlu borði og
við gluggann lá bröndótti köttur
inn og svaf í sólskininu.
Borðið var allt þakið reikn-
ingum og svo ávísunum, sem ég
gat mér til, að væru með rit-
hönd Woodbournes — að
minnsta kosti voru þær ekki
með hennar hendi. Hún var að
setja reikningana og ávísanirnar
í umslög, sem hún svo skrifaði
utan á og frímerkti.
Hún leit upp og sagði: — Ef
þú, ert að fara í póstkassann,
hvort sem er, bíddu þá eftir
bréfunum mínum. . .
Þegar hún hafði lokið við bréf
in sneri hún -að mér og brosti
mejS alvörusvip en einbeittlega,
og rétt út_ höndina eftir mínum
bréfum. Ég roðnaði og rétti
henni þau. Hún leit á áritanirn-
ar. Hún rétti mér strax aftur
bréfið til Marjorie, en hélt hinu,
sem var til Brendans.
— Ég hélt þú hefðir lofað að
hitta hann ekki aftur?
— Ég lofaði aldrei að skrifa
honum ekki, svaraði ég ólund-
arlega.
Hún sagði hóglega: — Ég skal
ekki rífa það upp, ef þú segir
mér hversvegna þú ert að skrifa
honum.
Ég ypti öxlum og lét sem mér
væri alveg sama, en hjartað í
mér hamaðist. — Ég skrifaði
bara til að segja hohum, hvað
mér þætti það leitt ef hann
missti atvinnuna sína, fyrir
min klaufaskap og ef hann
ætlaði til Ástralíu. . .
— Ástralíu? Hún hrökk við og
skipti litum. — Brendan • til
Ástralíu? Hvenær?
— Ég veit ekki. Hann hefur
verið að tala um þetta undan-
farið.
— Til hvers ætlar hann þang-
að?
— Hann segir, að þetta sé nýtt
land með mörgum tækifærum.
Hann segir, að þar gildi það,
hvaðan maðurinn sé, en ekki,
hver faðir hans hafi verið eða
hvar hann hafi gengið í skóla.
— Já, sagði hún og augun ljóm
uðu. — Já, ég skil það. En hvað
ætlar hann að gera þar?
— Temja veðhlaupahesta. Hr.
Vestry ætlar að gefa honum með
mæli.
— Ég skil.
— Hann hefur verið að spara
BYLTINGIN I RÚSSLANDI 1917
ALAN MOOREHEAD
Woodbourne, sem var að
kveikja sér í vindli, leit upp.
Þau Soffía horfðu lengi hvort
á annað.
— Hvern fjandann var Jakes
að hugsa? sagði hann. — Hvers-
vegna kallaði hann ekki á lög-
reglumann og lét hann taka
Brady fastan?
— Dan er brjálaður, Rósa,
sagði Soffía. — Hann hefði get-
að gert þér mein.
Ég hristi höfuðið. Nei. Dan
mundi aldrei gera mér neitt. En
honum líður svo illa, Soffía.
Það er alveg hræðilegt að sjá,
hvað honum líður illa.
Hún' gekk að mér og kyssti
mig, en ég gat séð í speglinum,
yfir öxlina á henni, að hún
sendi Woodbourne augnatillit og
að hann kinkaði einbeittlega
kolli á móti. Hún brosti til mín
og sagði í blíðum gælutón: —
Við skulum tala um þetta á morg
un. En lofaðu mér því að fara
aldrei ein út á kvöldin, Rosa
mín.
Ég var afskaplega þreytt og
ringluð og það var eins og ég
sæti föst í einhverju tilfinninga-
feni, sem ég gæti ekki rifið mig
upp úr. Enginn sagði mér nema
hálfan sannleikann, allt virtist
falskt undir fögru yfirborði. Ég
sagði, þurrlega: — Mér finnst
ég alltaf vera að gefa þér ein-
hver loforð.
Ég bauð þeim góða nótt og
fór út, en áður en hurðin féll
að stöfum, sá ég í sama spegl-
inum, að Woodbourne lávarður
ávarpaði hana eitthvað höstu-
99
Og Sukhanov heldur áfram:
„Allt í einu og fyrir augum okk-
ar allra, sem vorum sokknir í
hversdagslegt strit byltingarinn-
ar, skein bjart, blindandi og
framandlegt merki. . . Rödd Len-
ins, sem heyrðist beint frá lest-
inni, var „rödd utan frá“. Það
var kominn einhver tónn í bylt-
inguna, sem var . . . nýstárlegur,
hörkulegur og dálítið ærandi“.
Múgurinn reyndi að brjótast
inn gegn um glerhurðina fyrir
biðsalnum, og æpti á foringja
sinn. Aftur kvað Marseillaise
við og undir kastljósinu var
Lenin þeyst út og upp í einn
brynvarða bílinn. Þar fordæmdi
hann aftur „þessi skammarlegu
heimsvaldasinna-fj öldamorð“, og
bíllinn lagði af stað undir kast-
ljósinu, með Lenin innanborðs,
yfir Sampsonbrúna, en á eftir
fóru hljómsveitirnar, fánarnir,
múgurinn og hermennirnir.
Skrúðgangan var stöðvuð öðru
hverju við götuhorn, svo að
Lenin gæti flutt fleiri ræður.
Loksins var komið að húsi
Kshesinskayu, þar sem bolsje-
víkaflokkurinn hafði nú komið
sér vel fyrir. Einnig þar skinu
öll kastljósin og á svölunum
héngu fánar. Af svölunum á ann
arri hæð ávarpaði Lenin enn
lýðinn, og var nú orðinn hás.
Hann hamaðist enn gegn ófriðn-
um, og að sögn Sukhanovs, tók
einkennileg breyting að verða á
hermönnunum, sem stóðu í
kring. Þeir voru ekkert hrifnir
af því, sem Lenin var að segja.
Þeir vildu verja Rússland. Hann
heyrði einn þeirra segja: „Við
ættum að reka byssustingina okk
ar í svona náunga“.
Bolsjevíkaverðir vörnuðu öll-
um inngöngu, sem vildu ryðjast
inn í húsið, en Sukhanov slapp
samt inn, og undir glæsilegum
salarloftum komst hann upp í
herbergin á annarri hæð.
„í borðsalnum uppi var borið
fram te og smáréttir. . . Sigri-
hrósandi og glaðir gengu fyrir-
menn bolsejvíka um gólf í eftir-
væntingunni eftir veizlunni með
foringja sínum, sem þeir sýndu
alveg sérstaka lotningu."
Zinoiev var einnig þarna kom-
inn, en enginn virtist veita hon-
um teljandi eftirtekt. Samt heils
aði Lenin honum vingjarnlega —
þegar hann kom inn frá ræðunni
á svölunum „brosti hann, glennti
upp augun með gleðisvip, hall-
aði úfna hausnum og fór með
mig inn í borðsalinn".
Þegar kvöldverðinum var lok-
ið flutti innsti hringur bolsje-
víkanna sig niður á neðri hæð-
ina, og þar var hinn formlegi
flokksfundur haldinn, og velkom
andaræðurnar hófust aftur. Loks
stóð Lenin upp til að svara þeim.
Hann hóf ræðu sína með hvassri
árás á Petrograd-sovétið eða
stefnu þess, og kvað það vera
að leika í hendurnar á borgara-
stéttinni. Hann sagði, að steypa
yrði bráðabirgðastjórninni, og
verkamennirnir, hermennirnir
og bændurnir sjálfir yrðu að
taka við stjórninni. Bændurnir
ættu að taka jarðirnar tafar-
laust. Vopnaðir verkamenn ættu
að stjórna verksmiðjunum.
Kapítalisminn skyldi þurrkaður
út. Engar málamiðlanir skyldu
samþykktar milli bolsjevíka og
annarra flokka. Hvað snerti
Chkheidze og aðra foringja
Ex-Com, þá þá væru þeir ekki
annað en „þjóðfélagslegir skó-
sveinar", og yrðu að þurrkast
út.
Þessi þrumuræða stóð í tvær
klukkustundir. Sukhanov lýsir
henni þannig, að hún hafi verið
eins og „þrumuveður, sem gekk
fram af ekki einungis mér, villu-
trúarmanninum, sem hafði rek-
izt þarna inn af tilviljun, held-
ur og öllum þeim sanntrú.uðu.
Ég er alveg viss um, að enginn
þarna hefur búizt við neinu þessu
líku. Það var rétt eins og öllum
höfuðskepnunum hefði verið
sleppt lausum og andi heimseyð
ingarinnar, sem þekkti hvorlú
nein takmörk né efasemdir,
hvorki mannlega erfiðleika né
mannlega þaulhugsun, væri
þarna sveimandi í móttökusal
Kshesinskayu, uppi yfir höfðum
töfraðra lærisveina“.
Þegar þessu var öllu lokið,
æptu flokksfélagarnir fagnaðar-
óp, og ekki með neinni tregðu,
en, að sögn Sukhanov, var efa-
svipur á andlitum þeirra. Eng-
inn vissi, hvað hann ætti að
segja. „Augu þeirra reikuðu um,
ósýn, og báru vött um fullkomna
ringlun: lærimeistarinn hafði
gefið lærisveinum sínum eitt-
hvað um að hugsa".
„Ég fór út á götuna. Mér
fannst eins og ég hefði verið
laminn í höfuðið^ með barefli,
þetta kvöld. . . . Ég dró að mér
eins mikið og ég <gat af hreinu
vorloftinu og hafði nautn af.
Það var þegar orðið allbjart,
morguninn var rétt að hefjast“.
12. kafli.
Júlídagarnir.
Um miðjan aprílmánuð, full-
um mnáuði eftir að byltingin
hafði hafizt, lifði Petrograd enn
í pólitískri æsingu og tauga-
óstyrk, eins og venjulega vill
verða, þegar stjórnarbylting er
í nánd. Á þessum tíma er borg-
KALLI KUREKI
Teikncui; FRED HARMAN
— Það er allt í lági með hana
þessa þó hún sé komin til ára sinna.
Hvar er Gamli? Ég vil ekki að hann
sjái mig fara með þessa.
— Hann situr inn í kofanum og
er áhyggjufullur vegna þess að við
sögðum honum að prófessor Boggs
væri eins góð skytta og Buffalo-Bill.
— Hvar á prófessorinn heima
í bænum?
— í gistihúsinu. Ætlarðu að láta
hann hafa þessa byssu svo hann geti
skotið Gamla?
— Ef mér tekst það sem ég ætla
mér skýt ég þeim báðum skelk í
bringu — en hvorugur verðux skot-
inn til bana.