Morgunblaðið - 11.07.1964, Qupperneq 14
14
MORGU N BLAÐIÐ
Laugardagur 11. júlí 1964
Arí Jósefsson
HVÍ hann? Við slíkan hryggileg-
an atburð stöndum við orðvana
aí þyt dauðans og getum aðeins
spurt: Hví hann, svo ungijr og
djarfur?
>á koma minningar daga og
ára; samvera, vinátta, sorg og
gleði.
Ari Jósefsson var mjög vel
gerður maður tii líkama og sál-
ar og hann var ekki trauður til
tryggða. Við höfðum ekki þekkzt
lengi, þegar ég veitti athygli
raunsönnum mannkostum hans:
Hreinlyndi og dirfsku, hjálpfýsi
og heilsteyptri drenglund. Skoð-
anir á þjóðféiagsmálum og ein-
staklingum voru oft gagnólíkar.
Hann var opinskár og ör til at-
hafna, bráðskarpur námsmaður,
hanwhleypa til starfa og ein-
hver sá maður, sem var það
íjarst að iúta lágt eða beita
skjalli og smjaðri. Lypjuskapur
og hálfvelgja voru honum viður-
styggð. Hann var ævinlega heill
og trúr félögum sínum og vin-
um. Við áttum saman góðar
etundir í þögn og í lifandi gleði.
Restir m;nn eru falir. Suma
virðist það ekki skaða, en aðrir
bíða þess aidrei bætur á sálu
sinni. í>ví miður hef ég aðeins
kynnzt fáum mönnum, sem ekki
væru falir með einhverjum hætti.
Lótt Ari Jósefsson væri ekki bor
t
inn til veraldlegrar auðlegðar,
er það einlæg sannfæring mín,
að honum hefði a 1 drei komið
til hugar að skipta á grundaðri
sannfæringu sinni í neinu máli,
þótt það færði honum persónu-
legan ávinning. Heldur myndi
hann hafa barizt einn, þótt við
ofurefli væri að etja og tekið
ósigri af sannn karlmennsku.
En í dýpt viíundar þessa unga,
djarfhuga baráttumanns, leynd-
ist viðkvæm lund og rík tján-
ingarþörf, sem leitaði fegurðar
og birtist í fáeinum Ijóðum, sem
eftir hann liggja.
f*að er trú mín, að við lifum
af líkamsmissinn. í>ótt andi og
líkami pessa íturmennis hafi nú
skiiið samvistir, munu þær
mörgu myndir, sem minnjngam-
ar geyma um góðan dreng, verða
syrgjendum til hnggunar.
Ég veit, að hann kunni illa.
mærðinni, en þessi fágæta lífs-
gleði og kraftur, einlæga löngun
til að helga sig og vinna rétt-
um málstað, góður vilji ög þrá
eftir fegurð í lífi, 1 iist, getur
ekki verið að engu orðin?
í>ví grátum við ekki en mun-
um. Bragi Kristjónsson.
— Útvarp Rvík
Framh. af bls. 6
gerð jarðarinnar. Lauk þar einu
bezta fræðsluerindi, sem flutt
hefur verið í útvarpið lengi. Að
þessu sinni vék hann m.a. að
orsökum jarðskjálfta, en talið
er, að jarðskjáiftar orsakist af
misgengi jarðlaga, enda verða
þeir oftast náiæ.gt sprungum i
jarðskorpunni. En hvað veldur
misgangi jarðlaganna er hins
vegar ekíki að fullu kannað, en
nokkrir forvitnir Bandaríkja-
menn hafa i hyggju að bora i
gegnum yztu jarðskorpuna
(minnst 6. km. niður frá sjávar-
botni), til að freista þess, að fá
úr þessu skorið.
Á laugardaginn hélt Jónas
Jónasson uppi skemmtilegum
og fróðlegum samræðum við
hljómlistarmenn „í vikulokin“.
Jónas er í stöðugri sókn sem út-
varpsmaður, og eru þættir hans
með vinsælasta dagskrárefni vik-
unnar. Veldur þar miklu um,
að hann er mjög fundvís á
skemmtilega menn til að rabtoa
við. Á laugardagskvöidið var
fíutt leikritið „Hetja gegn vilja
sínum“ eftir Sergio Pugliese. Síð-
an var vikunni fylgt til grafar
með dansi og hljóðfæraslætti,
likt og þegar Beinteinn í Krókn-
um var jarðsettur.
Sveinn Kristinsson.
Eiginkona mín,
VILBORG GHÐNADÓTTir
Faxabraut 6,
andaðist að sjúkrahúsi Kefiavíkur 10. júlí.
förin ákveðin siðar.
ÞórSur Kristinsson.
Jarðar-
Eiginmaður minn,
ÁSMUNDUR JÓNSSON
lézt þann 9. júlí síðastiiðinn.
Eiginkona og dætur.
SIGURSTEINN JULIUSSON
Njálsgötu 86,
lézt í Borgarspítalanum lO.júlL
Aðstandendur.
Þökkum innilega samúð og hluttekningu við fráfall
og jarðarför bróður okkar,
KRISTJÁNS ANDRÉSSONAR
Sigurður Andrésson,
Björg Andrésdóttir.
Innilegt þakklæti til allra hinna mörgu er sýndu
samúð og hlutt.ekningu við fráfall Og jarðarför
GUÐMUNDU SIGURÐARDÓTTUR
Akranesi.
Jóhannes Sigurðsson og dætur.
í>ökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur sam-
úð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginkonu minn-
ar, móður og tengdamóður okkar,
SIGRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Strandgötu 19, Ólafsfirði.
Bémharð Ólafsson, Aðalsteinn Bemharðsson,
Aðalheiður Pétursdóttir, Sveinn Hjörleifsson,
Freydís Bernharðsdóttir, Guðmundur Williamss.
Margrét Pálsdóttir, Óli Svcinn Bemharðsson,
Rakel Kristbjörnsdóttir, Hreinn Bernharðsson.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu og
vinarhug við andlát og útför mannsins míns, föður,
tengdaföður og afa
JÓNASAR GUDMUNDSSONAR
Lýsudal.
Guð blessi ykkur 611.
Ásgerður Ágústsdóttir,
Guðmundur Jónasson,
Kristján Jónasson, Sigurbjörg Pétursdóttir,
Gunnar Jónasson, Svanfríður Guðmundsdóttir,
Haraldur Þorsteinsson, Vilborg Gísladóttir,
Sigríður Jónasdóttir, Friðgcir Ágústsson,
Inga Jónasdóttir, Jóhannes Kristinsson,
Sigurbjörg Jónasdóttir, Flosi Þórarinsson,
og barnabörn.
Perlonsokkarnir frá
TAUSCHER
vinna sér sífellt
meira álit.
Eftirspurnin vex
dag frá degi.
Fylgist með fjöldan-
um og notið
TAUSCHER-sokka.
LEYFI8HAFAR
Vinsamlegast hafið
samband við okkur
sem fyrst, til að
geta fengið sem
bezta afgreiðslu.
Umboðsmenn:
ÁGÚST ÁRMANN HF.
Sími 22-100.
Hjólbaroaviðgerð Ves turhœjar
AUGLYSIR
Höfum fyrirliggjandi eftirtaldar stærðir af hjólbörðum og slöng-
um: — Einnig hvíta hringi.
520x10 4 strl. 590x14 4 strl. 500x16 4 strl.
480x12 4 — 650x14 4 — 550x16 4 —
520x12 4 — 700x14 4 — 600x16 6 — Fín.
550x12 4 — 750x14 6 — 600x16 6 — Gróf.
560x12 4 — 800x14 6 — 650x16 6 — Gróf.
520x13 4 — 560x15 4 — 650x16 6 — Fín.
560x13 4 — 590x15 4 — 700x16 6 — Gróf.
590x13 4 — 640x15 4 — 750x16 6 — Gróf.
640x13 4 — 640x15 6 — 750x16 6 — Fín.
670x13 6 — 670x15 6 — 825x16 12 — Fín.
700x13 6 — 710x15 6 —
725x13 6 — 760x15 6 — 165x380 4 —
520x14 4 — 820x15 6 — 135x380 4 —
560x14 4 — 145x330 4 —
Við veitum yður þjónustu alla daga, helga, sem virka frá kl.
8.00 árdegis til kl. 23.00 síðdegis.
HjólbarHaviðgerB Vesturbœjar
við hliðina á benzínafgreiðslu ESSO við Nesveg. — Sími 23120.