Morgunblaðið - 11.07.1964, Blaðsíða 23
MORCU N BLABIB
23
taugardagur 11. júlí 1964
Mikil laxveiði í
Hvítá þéssa viku
ÁGÆT laxveiði hefur verið í
Hvítá síðustu viku. Hefur Kristj-
án Fjeldsted í Ferjukoti fengið
é annað hundrað laxa í vikunni.
Mbl. átti stutt símtal við
# Kristján í gær og spurði um veið
ina. Kristján sagði að lítil veiði
hefði verið fram að mánaamót-
um júðní—júlí, með allra minnsta
sem hann myndi eftir, og kenndi
hann það þurrkimum. En eftir að
fór að rigna um miðja vikuna
sem leið, glæddist veiðin og várð
ágæt þessa viku. Kvaðst Kristján
vera búinn að fá um 400 laxa
í alít núna. Annars bjóst hann
Alberf stundor
sjómælingar
við Eyjnr
VARÐSKIPIÐ Albert stundar
um þessar mundir sjómæling-
ar við Vestmannaeyjar undir
stjórn Gunnars Bergsteinsson-
ar. Vegna óhagstæðs veðurs
hafa þær gengið fremur treg-
lega þar til í fyrradag, er
veður batnaði til muna. Sér-
stök áherzla verður lögð á að
kanna svæðið umhverfis
Surtsey og hefur skipið verið
þar einnig til aðstoðar land-
mælingamönnum. Ný og full-
komin tæki til sjómælinga
hafa verig sett upp um borð
í Albert og einnig stendur til
að setja um borð bor til að
ná í sýnishorn af botnlagi til
rannsókna fyrir Atvinnu-
deild Háskólans.
— íþróttir
Framh. af bls. 22
t»r og vel leikandi varnarmað-
ur, auk þess að vera stórhættu-
leg langskytta, eins og bezt
kom fram í leik K.R. og Vals
fyrir nokkrum dögum. Annars
var leikur liðsins ekki nærri
nógu samstilltur og eins og vilj-
inn til ■ að gera vel væri ekki
fyrir hendi hjá sumum leik-
mönnum.
Bæði liðin léku prúðmannlega
og var óvenjulítið um gróf brot.
Kormákr.
Unglingameist-
aramót íslands
IUNGLINGAMEISTARAMÓT »
íslands í frjálsum íþróttum t
verður háð á Laugardalsvell- i
inum í dag og á morgun og J
lýkur á Melavelli á mánudags I
kvöld kl. 8. Keppnin í dag í
hefst kl. 3, en á morgun kl. 2. /
Ýmsir snjallir íþróttamenn J
keppa á mótinu bæði úr Rvik \
og utan af landi. Má þar nefna i
KR-ingana Ólaf Guðmunds-
son, Einar Gíslason, Þorvald
Benediktsson, Halldór Guð-
björnsson og Þórarinn Ragn-
arsson; ÍR-ingana Kjartan
Guðjónsson, Skafta Þorgríms-
son, Erlend Valdimarsson og
Þormóð Svavarsson. Af utan-
bæjarmönnum má nefna Karl
Stefánsson og Sigurð Sveins-
son, HSK og Sigurð Hjörleifs-
son, HSH.
Happdrætti
Ármanns
DRBG4Ð hefur verið hjá borgar-
fógeta í happdrætti handknatt-
leiksdeildar Glímufélagsins Ár-
manns,
Vinninga hlutu eftirtalin
BÚmer:
. 2248: Sjónvarp
| 1886: Transistor utvarpstæki
^ 630: Myndavél
2391: Rafmagnsrakvél
við að aftur væri að draga úr
núna, ef þurrkur yrði.
Kristján hafði frétt að mikill
lax mundi vera í Grímsá og gríð-
armikill lax í Langá, hafi Sést þar
mikill lax í neðri hluta árinnar.
Lítil seoi engin
síldveiði í gær
LÍTIL sen?. engin síldveiði
var í gær, en veður var >ó
gott á miðunum og skipin far
in að tínast út eftir landleg-
una.
Ægir tilkynnti um síld út af
Langanesi og munu allmörg
skip hafa farið þangað en
ekki var vitað um neina
veiði. Var miki's' koimunni á
þeim slóðum.
Húsfyllir á hver ja
sýningu
ÍSAFIRÐI 10. júlí. — Leikflokk
ur frá Leikfélagi Reykjavíkur
hefur að undanförnu ferðast um
Vesturland og Vestfirði og sýnt
gamanleikinn „Sunnudag í New
York“ við mjög góða aðsókn og
frábærar undirtektir.
Tvær sýningar voru á ísafirði
í gærkvöld og í fyrrakvöld við
húsfylli í bæði skiptin. í kvöld
sýnir LR á Patreksfirði, síðan á
Bíldudal, en þaðan liggur leiðin
í Strandasýslu og síðan austur
Norðurland.
— H. T.
IVlanns sakn-
að ■ Eyjum
í FYRRADAG var auglýst eftir
49 ára gömlum manni í Vest-
mannaeyjum, Sigurbirni Guð-
jónssyni, sem ekkert hefur spurzt
til síðan 25. júní. Er hann bú-
settur í Eyjum og þar sást síðast
til hans. Lögreglan í Vestmanna-
eyjum tjáði blaðinu í gærkvöldi
að enn hefði ekkert frétzt af Sig-
urbirni.
Svend Dipo Petersen
Nýr skrifstofu-
stjóri Eimskips í
Höfn
í DAG tekur Svend Dipo Peter-
sen við starfi skrifstofustjóra hjá
Eimskipafélagi íslands í Kaup-
mannahöfn. Hann hefur starfað
í s'krifstofu félagsins þar frá
ársbyrjun 1927 eða í rúmlega 37
ár og reynzt hinn traustasti
starfsmaður.
Ásberg Sigurðsson, sem nú
lætur af starfi skrifstofustjóra,
befur svo sem kunnugt er verið
skipaður sýslumaður Barðstrend-
inga frá 1. ágúst að teija.
— Talstöðvarnar
Framh. af bls. 2
og útvegsmanna en á síðastliðn-
um vetri náðist um það sam-
komulag fyrir milligöngu síma-
málaráðherra, að leyfðar yrðu
langdrægari stöðvar, ef óskað
yrði, en þeim aðeins leyfð afnot
af senditíðni á tíðnisviði, sem
ætlað er strandarstöðvum, í sam-
ræmi við alþjóðareglur. Jafn-
framt er sömu aðilum heimilt að
hafa, eftir sem áður, aflminni
stöðvar til viðskipta á milliskipa-
tíðnum.
Reglur þessar gilda jafnt um
alla, án undantekninga.
Reynt hefur verið að ganga
eins langt til móts við útvegs-
menn og fært þykir í þessu atriði
og eini sjáanlegi agnúinn á þvi,
að þessi tilhögun komi að notum
er sá, að stjórnendur skipanna
hafi ekki áhuga á því að sam-
band náist.
Að lokum skal á það bent, að
stöðvar þessar, sem um hefur
verið rætt hér að framan, eru ein
göngu reknar með eiginhags-
muni viðkomandi síldarkaupenda
og útvegsmanna fyrir augum. En
þess misskilnings hefur einmitt
gætt í sambandi við þessi mál, að
hér væri um hina almennu radíó-
þjónustu póst- og simamálstjórn-
arinnar milli skipa og lands að
ræða.
Póst- ög símamálastjórnin vinn
ur stöðugt að því. að bæta þjón-
ustu strandarstöðva sinna, bæði
með endurnýjun tækja stöðv-
anna, svo og með endurbótum og
aukningu símakerfisins í land-
inu.
Vorið 1960 var tekin í notkun
fullkomin strandarstöð á Raufar-
höfn, til þess að bæta þjónustuna
við bátaflotann fyrir norðaustur
landinu. Samskonar þjónusta við
bátaflotann var opnuð á Norð-
firði vorið 1963 og er nú verið að
stórbæta allan tækjabúnað þeirr-
ar stöðvar.
Að sjálfsögðu mun póst- og
símamálastjórnin halda áfram að
endurbæta hina almennu strand-
arþjónustu í landinu, ásamt síma
kerfinu almennt. Þegar því er lok
ið munu undanþágur, sem hér
hafa verið nefndar, væntanlega
verða óþarfar og því hverfa.
Þess má að lokum geta, að f
Vestmannaeyjum annast strand-
arstöð póst- og símamálastjórnar-
innar alla fyrirgreiðslu fyrir
bátaflotann samkvæmt sérstök-
um reglum. Hefur það fyrirkomu
lag gefið ágæta raun og hafa út-
vegsmenn víðar sýnt áhuga á því
og hafa það til athugunar.
Féll af hestbaki
Valdastöðum, 6. júlí. —
ÞAÐ slys vildi til 6. þ.m. að
Einar Ólafsson, bóndi að Bæ í
Kjós (frá Lækjarhvammi) féll
af hestbaki, og fékk slæmt höf
uðhögg. Var hann að smala fé
Er hann nú rúmliggjandi.
— St G.
Auglýst eítir
trillu Irá
Stykkishólaii
UM MIÐJAN dag í gær auglýsti
Slysavarnarfélag íslands eftir 8
tonna trillu, Báru frá Stykkis-
hólmi, sem fór frá landi á Rifi
á miðvikudag og ætlaði að koma
aftur inn til Stykkishólms í fyrra
dag. Á bátnum eru tveir menn,
Haukur Bjarnason og Jens Þor-
valdiseon.
Trillan fór frá Stykkishólmi á
skak á mánudag en leitaði inn
aftur vegna veðurs. Fór hún svo
frá Rifi á miðvikudag og bjugg-
ust mennirnir tveir við að fara
inn til Stykkishólms á fim/mtu-
dag. í gær hafði ekkert til rill-
unnar spurzt og var því aug-
lýst eftir henni.
í fyrri kvöldfréttatíma útvarps
ins var þess getið, að trillan
væri komin fram. Mun sú frétt
ekki hafa verið með öllu rétt,
því að i seinni kvöldfréttum voru
skip og bátar á Breiðafirði beðin
að hlusta á bátabylgju mijlli kl.
22 og 23. Var þá haft samband
við ýrnsa báta og taldi einn sig
hafa haft samband við Báru í
Rifi á miðvikudag og sögðust
þeir Haukur og Jens þá ætla að
halda til hafnar á lau.gardag.
Var því ákveðið að fresta eftir-
grennslan þar til í dag, ef bát-
urinn kemur ekki fram.
Hæstu vinningar
happdrættis
Háskólans
FÖSTUDAGINN 10. júlí var dreg
ið í 7. flokki Happdrættis Háskóla
íslands. Dregnir voru 2,200 vinn-
ingar að fjárhæð 4,020,000 krón-
ur. —
Hæsti vinningurinn, 200,000 kr.,
kom á heilmiða númer 27946. Báð
ir heilmiðarnir voni seldir í um-
boði Guðrúnar Ólafsdóttur, Bóka
verzlun Sigfúsar Eymundssonar,
Austurstræti 18.
100,000 króna vinningurinn
kom á hálfmiða númer 16885.
Einn hluturinn var seldur í um-
boði Guðrúnar Ólafsdóttur, ann-
ar í Kaupfélagi Hafnfirðinga,
Hafnarfirði, sá þriðji í Stykkis-
hólmi og sá fjórði hjá Ólafi Jó-
hannssyni, Kópavogi.
10,000 krónur:
1348 9568 10806 14935 15129
16512 18147 19050 19976 20402
22351 23504 23608 26483 27945
27947 29186 37659 41311 42931
43141 56030 47173 56209 51275 53531 54079
(Birt án ábyrgðar)
E I N af aðalæðum Hitaveit- 4
unnar sprakk á Laufásvegi
við Njarðargötu um fimmleyt-
ig í gærmorgun. — Er þetta i
gömul æff, sem liggur um
Laufásveg vestur um bæinn.
Mikill þrýstingur var á vatn-
inu, sem gaus úr æðinni og
flæddi það um húsagarða og
niður á Sóleyjargötu. Safnað-
ist mikið vatn á lóð dagheimil
isins Laufásborgar, sem er á
horni Njarðargötu og Laufás-
vegar, en ekki er kunnugt um
að vatnsflóðið hafi valdið
skemmdum. Var þegar hafin
viðgerð á æðinni.
(Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.)
Bindindis- og
umferðarmála
sýning
í DAG og á mogun, sunnudag,
verður haldin í Reykjavik bind-
indis- og umferðarmálasýning.
Sýningin verður í Góðtemplara-
húsinu og á bifreiðastæðinu utan
við húsið. Um 15 aðilar standa
að sýningunni .
Sýning þessi er á vegum Bind-
inaisfélags ökumanna og Is-
lenzkra ungtemplara. Er þetta í
annað sinn, sem þessir aðiiar
efna til slíkrar sýningar. Hia
fyrri var haldin 1962.
Inni í Góðtemplarahúsinu
munu fyrirtæki, sem verzla með
hluti til bifreiða, ferðalaga og
fi„ sýna varning sinn, en nokk-
ur bifreiðaunfboð gefa fólki kost
á að skoða nýjustu gerðir bif-
reiða, sem þau flytja til lands-
iris, á bifreiðastæðinu við Góð-
templarahúsið.
í samabandi við sýninguna
mun Lúðrasveit Reykjavíkur
leika úti fyrir Góðtemplarahús-
inu í dag kl. 15—16 og á morgun,
sunnudag, kl. 15—16. Þá mun
ómar Ragnarsson skemmta á
sýningunni á sunnudag kl. 16.00.
Cullleil hafin á
ný
GULLLEITIN á Skeiðarár-
sandi er hafin aftur og hafa
átta menn undir forystu Bergs
Lárussonar leitað þar í nokkra
dag að Ieifum gullskipsins,
sem talið er að strandað hafi
fyrr á öldum í nágrenoi
Ingólfshöfða.
Fréttaritari blaðsins á
Kirkjubæjarklaustri sagði i
gær, að ekkert væri vitað um
á.ran,gur að leitinni en hún er
stunduð af kappi með mæii-
tækjum, sem eiga að gefa tii
kynna ef gullfarmur leynist
þar sem farið er yfir sand-
inn. Leitarflokkurinn hefur
til umráða skriðbila og vatna-
dreka til flutninga á smærri
bilum yfir fljótin.