Morgunblaðið - 13.08.1964, Blaðsíða 8
8
MORGU N BLAÐID
Fimmtudagur 13. Sgúst 1964
MR ........... .......................................
' •• V/, ■p'V't-r-XKf , v y%jy?ss
í GÆR gafst Mbl. tækifæri
til að ræða við þá finnska
prófessorinn Pentti Kait-
era, en hann er próíessor í
vatnsvirkjafræði og land-
búnaðarverkfræði við
tækniháskólann í Helsinki, 11
og Harald Árnason, fram-
kvæmdastjóra Vélasjóðs
rlkisins. |
Prófessor Kaitera er sá, sem ;■
fann upp hinn svonefnda
finnska plóg, er undanfarin
tvö ár hefir verið notaður | |
mjög mikið við gerð holræsa |
á landi, sem verið er að
þurrka upp. Nú virðist fengin
á því full sönnun, að plógur
þessi er eitt mikilvirkasta og
hagnýtasta þurrkunartæki, |
sem enn hefir verið tekið í |
notkun hér á landi og hefirM
blátt áfram valdið byltingui
í íslenzkum landbúnaði. Nú'
er svo komið að heilt hérað Prófessor Kaitera t.h. og Haraldur Árnason við finnska plÓ£ an.
Finnski plógurinu veldur
byltingu í landþurrkuu
Rætt við höfund hans, pröfessor Kaitara
hefir í notkun átta skurðgröf
ur, sem allar grafa landið
með tilliti til þess, að á næsta
sumri verði það ræst með
finnska plógnum.
Plógurinn sparar gífurlega
gröft opinna skurða og verður
ekki annað séð en reynslan af
honum sé mjög góð, þannig
að holræsin, sem hann grefur
haldist varanleg og fleyti burt
því vatni, sem þeim er ætlað.
Ekki er enn vitað hve plógur-
inn hefir nákvæmlega skilað
miklum holræsagreftri til
þessa, en allt að 2000 km. mun
ekki fjarri lagi. í fyrra gróf
plógurinn yfir 900 km. og í
ár hafa verið í notkun tveir
nýir plógar, en sá er upphaf-
lega var fenginn frá Finn-
landi, er nú til endurbygg-
ingar og lagfæringar í sam-
ræmi við þá reynslu, sern
þegar er fengin af honum.
Finnski plógurinn er raun-
ar samsettur úr tveimur plóg-
um, öðrum stórum, sem plæg-
ir djúpt í jörð niður og lyftir
breiðu jarðvegslagi upp, en
undir honum fer annar plóg-
ur, sem grefur holræsið sjálft
og veltir uppgreftinum úr
ræsinu út undir hinn stóra
plógstreng, sem aðalplógurinn
hefir gert. Litli plógurinn
dregur á eftir sér 30 cm. háa
burstarmyndaðan hólk, sem
ákvarðar lögun holræsisins.
Plógstrengur stóra plógsins
fellur síðan niður í plógfar
sitt og jafnast tiltölulega
fljótt á mjúku mýrlendi, en
eftir verður holræsið neðan
við frost og flytur burtu jarð-
vatnið út í hina vélgröfnu
skurði.
Við spurðum prófessor
Kaitera hvernig hugmynd
hans að þessum plógi hefði
orðið til:
— J>að mun hafa verið 1950
að ég fékk einum nemenda
minna það rannsóknarefni að
athuga hvernig 30 ára gömul
handgrafin lokræsi hefðust
við í mómýrum sagði prófess-
orinn. — I ljós kom að þau
ræsin sem höfðu verið gerð
nógu há héldust vel við. Þetta
kom mér til að leita að ein-
hverju handhægu verkfæri til
að gera þessi ræsi bæði fljótt
og vel, þar sem handgröftur
slíkra ræsa er að sjálfsögðu
mjög dýr. Við höfðum eftir
stríðið öðlast þekkingu á mjög
stórvirkum plógum, sem gátu
plægt djúpt í jörð niður. Og
ég fékk járnsmið í smábæ ein
um í Finnlandi til að útfæra
hugmynd mína um þennan
tvöfalda ræsaplóg. Og það er
einmitt plógurinn, sem þið
hafið nú notað hér í tvö ár.
Smíði þessa plógs var lokið
1957 og þá hafnar tilraunir
með hann heima í Finnlandi.
Þær gáfust vel, þar sem ekki
voru miklir lurkar í jarð-
veginum. Svo er þó, því mið-
ur víða í finnskum mýrar-
jarðvegi. Rætur og viðarbolir
í jarðvegi eru það erfiðasta
verkefni, sem við þurfum að
leysa og ég hef því mikinn
áhuga á tilraunum og starfi
ykkar hér með plóginn. Ef
ykkur tekst með endurbót-
um á plóginn að leysa þennan
vanda, er ég viss um að þetta
verður mjög þarft tæki fyrir
mörg lönd heims, eins og gef-
ur að skilja. Þegar liggur
fyrir að kostnaður við skurð-
gröft með þessu tæki- er að-
eins 1/10 hluti af kostnaði við
gröft annara 1 skurða, sem
leysa eiga svipað verkefni.
Það var Benedikt Bogason
verkfræðingur, sagði prófess-
orinn ennfremur, — sem
fyrstur varð til að benda
ykkur íslendingum á plóginn.
Því miður hafði hann þá ekki
verið mikið reyndur heima í
Finnlandi, en það stafaði fyrst
og fremst af því, að þá var ég
að undirbúa stofnun nýs há-
skóla og var ætlað að vera
rektor hans fyrstu þrjú árin.
Það tók því allan minn tíma.
Það er mjög gleðilegt ef plóg-
urinn verður ykkur íslending
um til þeirra nota, sem ég
vonaði að hann yrði í upphafi,
sagði prófessor Kaitera.
Við spurðum Harald Árna-
son landbúnaðarverkfræðing
hvernig starfið gehgi með
plóginn.
— Við létum, sagði Harald-
ur smiða tvo nýja plóga í
vetur og eru þeir nú í fullri
notkun. Plógurinn hefur
nokkuð verið endurbættur
eftir því sem reynslan hefir
kennt okkur og við höfum
í hyggju að breyta upphaflega
plógnum með tilliti til þess
að hann geti notað minni
dráttarkraft. Við höfum sjald
an tekið skjótari ákvörðun
um vélakaup, en er við höfð-
úm séð finnska plóginn að
störfum hjá prófessor Kaitera
úti í Finnlandi. Nú er svo
komið að ráðunautar skipu-
leggja uppþurrkun lands með
tilliti til að þessi plógur verði
notaður, en það þýðir að mun
stærra svæði er nú hægt að
hafa milli vélgrafinna, opinna
skurða. Að sjálfsögðu verður
þetta nokkuð misjafnt eftir
ástandi jarðvegsins og legu
landsins, sem þurrka skal.
Stundum eru svo fúnir forar-
pyttir í landið að ræsin hald-
ast ekki opin, en þá kemur
til að ræsa það land upp að
nýju, þegar fyrsta umferð
hefur skilað árangri. Ég er
einnig viss um að nota má
plóginn á land, sem þegar
hefir verið ræktað, en er ekki
þornað að fullu, en ekki er
enn rannsakað hvort landið
þolir völtun, sem kann að
vera nauðsynleg, eftir að
plógurinn hefir farið um það.
Prófessor Kaitera telur hins
vegar ekkert til fyristöðu að
þetta verði gert, en bendir á
að þá kunni að vera nauðsyn-
legt að hafa hinn lóðrétta
hníf, sem nú sker fyrir plógn
um, skásettan, svo valtaþung
inn komi síður til -með að
loka ræsinu.
— Tilraunir hafa verið
hafnar með notkun og árang-
ur af verkum plógsins hér
uppi á Kjalarnesi og var þar
reynt að plægja með allt að
18 m. milli ræsa og niður í
6 m. Svo virðist með 10—12
m. bil milli ræsa gefi bezta
raun, eða að þéttari ræsasetn-
ing sé ónauðsynleg. Hinsvegar
þýðir mesta breiddin milli
ræsa hægari þurrkun.
Þá gat Haraldur þess að
Eggert Hjartarson frá
Hvammstanga hefði gert plóg,
sem byggður er á sama grund
velli, en Vélasjóður hefir
fengið einkarétt á þessum
plógi hér á landi. Haraldur
telur að plógur Eggerts hafi
marga kosti til notkunar við
tilteknar aðstæður og muni
því reynt að komast að sam-
komulagi við Eggert án þess
beitt verði þvingunum I sam-
bandi við einkaleyfisréttinn.
Prófessor Kaitera er hér 1
boði Búnaðarfélags íslands,
Véladeildar SÍS, Landnáms
ríkisins og Vélasjóðs og hann
situr hér jafnframt þing nor-
ræna vatnsvirkjafræðinga,
sem um þessar mundir er
haldið hér í Reykjavík.
— vig.
Aðalfundur Kjördæmis-
ráðs á IMorðurlandi vestra
AÐALFUNDUR Kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksirs í Norður-
landskjördæmi vestra var hald-
inn í Víðihlíð í Vestur-Húna-
vatnssýslu þann 19. júlí sl.
Formaður Kjördæmisráðsins,
Baldur Eiríksson, Siglufirði, setti
fundinn og tilnefndi sem fundar-
stjóra Benedikt Guðmundsson,
bónda á Staðarbakka og fundar-
ritara Halldór Þ. Jónsson, Sauð-
árkróki. Baldur Eiríksson flutti
skýrslu stjórnarinnar og rakti
hann-þar þau margþættu málefni
sem stjórn Kjördæmisráðsins
hefur fjallað um. Torfi Jónsson,
bóndi, Torfalæk, gjaldkeri Kjör-
dæmisráðsins, lagði fram reikn-
inga Kjördæmisráðsins. Miklar
umræður urðu á fundinum um
skipulagsmál flokksins í kjör-
dæminu og þau mál sem hæst
ber innan héraðs. Þessir tóku
til máls: Baldur Eiríksson, séra
Gunnar Gíslason, alþingismaður,
Einar Ingimundarson, alþingis-
maður, Axel Jónsson, fulltrúi,
Guðbrandur ísberg, fyrrv. sýslu-
maður, Guðjón Jósefsson, Sigurð-
ur Tryggvason, Halldór Jónsson,
Björn í Bæ, Stefán Friðbjarnar-
son og Eyþór Hallsson.
Umræður voru fjörugar og
kom þar ljóst fram áhugi fund-
armanna fyrir hagsmunamálum
héraðsins og nauðsyn þess að
efla ennfrekar áhrif Sjálfstæðis-
flokksins til farsællar lausnar
þeim vandamálum.
í stjórn Kjördæmisráðsins
voru kjörnir: Baldur Eiríksson,
Siglufirði, formaður, Torfi Jóns-
son, Torfalæk, Sigurður Sigurðs-
son, Sleitustöðum, Björn Daníels-
son, Sauðárkróki, Jóhannes Guð-
mundsson, Auðunnarstöðum. —
Varastjórn: Knútur Jónsson,
Sjglufirði, Pálmi Jónsson, Akri
Árni Guðmundsson, Sauðárkróki,
Guðjón Jósefsson, Ásbjarnarstöð-
um og séra Bjartmar Kristjáns-
son, Mælifelli.
í Flokksráð Sjálfstæðisflokks-
ins voru kjörnir: Jón Stefánsson,
Siglufirði, Jón Sigurðsson, Reyni-
stað, Bjarni Halldórsson, Upp-
sölum, Guðmundur Klemenzson,
Bólstaðarhlíð og Sigurður
Tryggvason, Hvammstanga.
Varamenn í Flokksráð: Baldur
Eiríksson, Siglufirði, séra Bjart-
mar Kristjánsson, Mælifelli,
Björn Daníelsson, Sauðárkróki,
Konráð Eggertsson, Haukagili
VILHJÁLMUR ÁRNASON hrL
TÓMAS ÁRNASON hdl,
LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
l&Rkðarbdnkahúsinu. Súnur 24635 og 1630/
Theodór S Georgsson
málflutningsskrifstofa
Hverfisgötu 42, III. hæð.
Símj 17270
og Guðjón Jósefsson, Ásbjarnar-
stöðum.
Fundarmenn þágu rausnarleg-
ar veitingar í boði Sjálfstæðis-
félags Vestur-Húnvetninga. Á
heimleið komu Siglfirðingar,
Skagfirðingar og Austur-Hún-
vetningar við á Akri og hittu
þar Jón Pálmason, fyrrverandi
alþingismann.
Keflavík
Stúlka óskast til afgreiðslustarfa. Enskukunnátta
nauðsynleg. — Upplýsingar í verzluninni í dag
13. ágúst milli kl. 4 og 6.
Húsgagnaverzlunin GARÐARSHÓLMI.
Stúlka óskast
strax til starfa í Ljósmyndastofu vorri að Suður-
landsbraut 2.
Uppl. í skrifstofunni Garðastræti 35 kl. 4—6 í dag.
GEVAFOTO H.F.