Morgunblaðið - 13.08.1964, Page 13
1 Fimmtudagur 13. ágúst 1964
MORCUNBLAÐID
13
Á fimmta tímanum á þriðjudag valt fólksbíll uppi á Sandskeiði.
Lögreglubíll og sjúkrabíll fóru á vettvang, en mættu bílnum á
leiðinni í bæinn. Sneru þeir þá við, óku fram fyrir hann við
Geitháls og stöðvuðu. Bíllinn laskaðist allmikil á þakinu. —
(Ljósm.: Mbl. Sv. 1».).
Fréttabréf um:
Alþjdðaskák-
mót stúdenta
Kraków 28. 7.
EFTIR undanrásirnar var frí og
keppendum var boðið að sjá
Auschwitz eða Oswiecim eins og
Pólverjar nefna borgina. Aus-
chwitz er um það bil 60 km frá
Kraków. Lagt var af stað í heið-
skíru veðri og brennandi sólar-
þi'a.
í fangabúðunum í Auschwitz er
nú allt umhorfs eins og þegar
þær voru leystar undan ánauð
nazista í, lok síðari heimsstyrj-
aldarinnar, og hafa Pólverjar
lagt áherzlu á að varðveita þar
allt sem bezt. Þarna myrtu naz-
ístar um 4 milljónir manna af
ýmsu þjóðerni, en langflest voru
fórnardýrin af Gyðingakyni. —
Staðurinn geymir minningar um
hræðilegustu hörmungar, sem
yíir manninn hafa dunið.
Við sáum heil fjöll af illa með-
förnum skóm, stóra hauga af
gleraugum, tannburstum og öðru
slíku, sem voru jarðneskar eigur
þeirra, er þarna *létu lífið. Átak-
anlegt var að sjá stóra hauga af
litlum barnaskóm. Börnin gátu
ekki unnið og voru drepin strax
í gasklefum, nema þau væru tví-
burar. Læknar nazista gerðu til-
raunir á tvíburum. í einu her-
bergi sáum við nokkur tonn af
mannahári. Fangarnir voru
krúnurakaðir og hárið sent til
þýzkra verksmiðja, sem spunnu
úr því voðir. Og þarna sáum við
voðir úr mannahári. Það var
undarleg tilfinning að horfa á
þessa stóru hrúgu af mannahári
og hugleiða örlög þeirra, sem
einu sinni báru það. Á einum
stað í hrúgunni voru litlar telpu-
fléttur með laglega hnýttri hvítri
slaufu, sem nú var aðeins farin
að gulna.
I gasklefunum gátu nazistar
drepið um 30 þús. fanga á sólar-
hring. Líkin voru brennd í ofn-
um, sem gátu á 20 mínútum gert
þrjá mannslíkama að duftinu
einu. Askan var að mestu grafin,
en sumt var sent til Þýzkalands
og notað til áburðar.
Markmið nazista virtist ekki
aðeins hafa verið að útrýma Gyð-
ingum, heldur beittu þeir og hin-
um ótrúlegustu pyntingaraðferð-
um „í tilraunaskyni". í gasklef-
unum notuðu þeir eiturgasið
Cyclon B. Fanginn deyr af súr-
efnisskorti, en þessi eiturgasteg-
und hefur þann eiginleika, að
hún vekur hjá fórnardýrinu ógur
lega angist meðan á dauðastríð-
inu stendur. Eitt kg af Cyclon B
gat deytt 1000 fanga á 5 mínút-
um. En nazistar minnkuðu magn-
ið af eiturgasinu, þar til dauða-
stríðið tók 20 mínútur til 1 klst.,
„í tilraunaskyni". Þarna eru klef-
ar, þar sem menn voru sveltir í
hel, og fangarnir vitskertir af
hungri átu hver annan. Einnig
eru þarna klefar, þar sem fang-
arnir urðu að standa vegna
þrengsla, „Stehcelle“. Þeir eru
tæpur fermetri að flatarmáli,
gluggalausir og án loftræstingar.
Þar létu nazistar í hverjum klefa
fimm fanga standa um nætur, og
síðan urðu fangarnir að vinna á
daginn. Þegar þeir loks gátu ekki
meira blasti dauðinn við.
Þannig mætti lengi telja án
þess þó að geta til nokkurrar
hlítar lýst, hversu hræðilegir at-
burðir hafa þarna gerzt.
í 1. umferð í úrslitum tefldum
við gegn Kúbu. Stefán hafði
svart á móti Rodriguez og tefldi
byrjunina veikt. Kúbumaðurinn
fórnaði peði fyrir sterka sókn, en
Stefán fórnaði skiptamun á móti
til að ná uppskiptum. Eftir það
var staðan jafnteflisleg. Óviljandi
þrálék Kúbumaðurinn, þannig að
sama staðan kom upp þrisvar og
Stefán krafðist jafnteflis. Guð-
mundur Lárusson fékk þegar í
byrjun gott tafl gegn Rabassa og
vann örugglega. Bragi tefldi
Pirc-vörn gegn Garcia. Hann
fékk þröngt tafl í byrjun, lék ó-
nákvæmum leik og fékk ekki við
neitt ráðið eftir það. Guðmundur
Þórarinsson fékk snemma gott
tafl gegn Fernandez og vann lag-
lega.
2. UMFERB, UNDANRÁSIR
Hvítt: A. Kapengut, Sovétríkin.
Svart: Bragi Björnsson, ísland.
1. e4 d6
2. d4 Rf6
3. Rc3 g«
4. Be2 Bg7
5. h4 0—0
6. h5 c5
7. d5 b5
8. Bxb5 Rxe4
9. Rxe4 Daðf
10. Rc3 Bxc3t
11. bxc3 Dxb5
12. Re2 Dc4
13. Dd2 Ba6
14. hxg6 fxg6
15. De3 Dxd5
16. Rf4 Df7
17. Re6 Rc6
18. f4 Hfc8
19. Rg5 Dc4
20. Rxh7 Hf8
21. Rxf8 Hx
22. g3 Hf6
23. Df3 Re5
24. Da8f Kg7
....................................
i
| Einkafrásögn peninga-
] falsara Hitlers -
| hann hefur nú skýrt fréttamanni frá
| mestu peningafölsun sögunnar
Stuttgart, 11. ágúst — AP
FYRIR tuttugu árum létu
1 nazistar frá sér fara mill-
1 jónir falskra pundsseðla.
1 Þeir voru svo vel gerðir, að
H Englandsbanki varð að
1 grípa til sérstakra ráðstaf-
§ ana. Meðal ráðamanna í
s Þýzkalandi gekk peninga-
§j framleiðslan undir nafn-
1 inu „Operation Bernhard“,
s nefnd eftir manninum, sem
3 stóð að baki þessum að-
1 gerðum, tilnefndur, sakir
1 sérþekkingar sinnar. Hann
1 heitir Bernhard Krúger.
1 Hann var ofursti í þýzka
3 hernum, og stjórnaði tækni
3 deild öryggisþjónustunnar.
1 Honum var falið að stjórna
i framleiðslu 140 milljón
Í sterlingspunda.
3 Kriiger, sem aldrei var
3 dæmdur fyrir þátt sinn í þess
3 ari stórfelldu fölsun, býr nú
3 í Stuttgart, og stjórnar launa
3 greiðslum í rafmagnsfyrir-
3 tæki. Hann segir sjálfur, að
§§ yfirboðarar siínir hafi ekki
= einu sinni hugmynd um for-
3 tíð sína.
3 Nafn hans hefur lengi legið
3 í gleymsku, en komst þó aftur
3 í fréttirnar nýlega, er a-þýzkt
3 blað hélt því fram, að hann
H hefði borið ábyrgð á dauða
3 fjöigurra manna, sem unnu
3 með honum að peningafram-
3 leiðslunni.
3* Saksóknari í V-Þýzkalandi,
3 sem hefur haft það mál til at-
3 hugunar, segir, að ekkert sé
3 hæft í þeim áburði. Fréttamað
ur, sem leit'aði til Krúgers,
fékk hann nú — eftir miklar
efasemdir — til að segja sög-
una af peningaframleiðslu naz
ista.
Krúger er af miðstéttarfólki
kominn, og lagði Stund á verk
fræði.
„Ég gekk í nazistaflokkinn
á kreppuárunum. Þegar stríð-
ið brauzt út. þá var ég yfir-
maður þeirrar deildar, senj
bjó til fölsk skilríki handa
njósnurum þriðja ríkisins.“
Vegna þessarar reynslu
hans, kom Walter Schellen-
berg, yfirstormsveitarforingi,
til hans einn góðan veðurdag,
og tilkynnti, að framvegis yrði
Krúger að stjórna framleiðslu
á fölskum pundseðlum. „Þú
hefur verið valinn til að gera
falska pundseðla," sagði
Schellenberg. „Við óskum eft-
ir því, að aðeins Gyðingar
verði látnir starfa með þér.“
Krúger lét boð út ganga til
allra fangabúða, þar sem Gyð
ingar voru, að nann óskaði
eftir að fá til sín sérfræðinga
í leturgreftri, prentlist og lík-
um fögum. Síðan var „verk-
smiðjan" sett á stofn við fanga
búðirnar í Sachsenhausen,
nokkrum mílum fyrir norðan
Berlín.
„Þeir, sem að þessu unnu
með mér“, segir Krúger,
„fengu betra fæði og aðbúnað,
en gerðist í fangabúðunum."
Það tók þá um eitt ár að
fullgera „klysjurnar“, pappír-
inn og blekið, sem til þurfti.
Erfiðast var að ná réttum
pappír, en hann er gerður sér-
staklega úr hráefnum frá
Asíu. Hann fékkst þó um síð-
ir, Oig þá frá Svíþjóð.
„Eftir að við höfðum unnið
sleitulaust í eitt ár, þá tókst
okkur að framleiða seðla, sem
voru nákvæmlega eins og
brezku seðlarnir .Við notuð-
um aðeins einu sinni hvert
seðilnúmer, og haldin var ná-
kvæm skrá yfir þau.“
Fyrirskipanir Krúgers voru
að framleiða eina milljón
seðla af ýmsum upphæðum á
mánuði, en vegna hráefnis-
skorts — pappír vantaði —
varð framleiðslan „aðeins“
um 400.000 seðlar á mánuði.
„Allt, sem ég gerði var að
framleiða þá. Dreifingin
heyrði öðrum til,“ segir Krúg-
er. „Eftir því, sem ég veit, þá
munu um 10-25% seðlanna
hafa komizt í umferð erlendis.
„Eftir þeim var hins vegar
tekið, og þannig varð komið
í veg fyrir efnahagshrun í
Englandi."
Er Krúger var að því spurð-
ur, hvort það væri rétt, að
allir Gyðingarnir, sem að
seðlagerðinni unnu, hefðu ver
ið teknir af lífi, þá sagði hann:
„Vitleysa“. Engum þeirra var
gert mein. Er þriðja ríkið var
að falli komið, þá fór hópur-
inn frá einum felustað til ann
ars, unz þeir lentu í höndum
Bandaríkjamanna við Ebensee,
í Austurríki.“
Sjálfur gaf Krúger sig fram
við Bandaríkjamenn 5. maí
1045. Þá var hann hafður í 8
vikur í fangelsi í Rastatt í
Austurríki. Þaðan fékk hann
síðan að halda í bíl sínum, og
síðar gaf hann sig fram við
brezk yfirvöld.
„Leynilögreglumenn frá
Scotland Yard yfirheyrðu mig
í marga daga“, segir Krúger,
„en mér var aldrei stefnt
fyrir rétt, ag ég var aldrei
dærndur." Bretarnir afhentu
mig Frökkum — hvers vegna
hef ég aldrei fengið að vita —
og þeir slepptu mér lausum
eftir tvö ár.“
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii'iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii'iiiiiibiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiii;
25. Dg2 Dxc3t
26. Kdl Rc4
27. Hel Dd4t
28. Bd2 Dxat
29. Bcl Dd4t
30. Bd2 Dxd2t
31. Dxd2 Rxd2
32. Kxd2 Kf7
33. He3 Bc4
34. Ha3
Hvítur gefst upp.
2. UMFERÐ UNDANRÁSIR
Hvítt: L. Mjagmarsuren,
Mongolía
Svart: Stefán Briem, ísland.
1. e4 e5
2. Rf3 Rc6
3. Rc3 Rf6
4. d4 exd4
5. Rxd4 Bb4
6. Rxc6 bxc6
7. Bd3 d5
8. exd5 cxd5
9. 0—0 O 0
10. Bg5 c6
11. Re2 h6
12. Bh4 Be7
13. Rd4 Db6
14. Hel Bd8
15. c4 Bg4
16. Dd2 Re4
17. Bxe4 Bxh4
18. cxd5 cxd5
19. Bf3 Bg5
20. Dd3 Bf6
21. Rf5 Bxf3
22. Dxf3 Dxb2
23. Dxd5 Had8
24. Df3 Hfe8
25. g3 Hxelt
26. Hxel Dxa2
27. Rxh6t Kf8
28. Rf5 a5
29. Dc6 Dd2
30. Dc5t Kg8
31. He4 Dd3
32. Dc6 Kh7
33. Re3 Hd6
34. De8 Dblt
35. Kg2 Db7
36. f3 Hd8
37. Da4 Hd2t
38. Kh3 Dc8t
39. Rg4 Df5
Hvítur féll á tíma.
2. UMFERÐ ÚRSLITAKEPPNI
Hvítt: Stefán Briem, Island.
Svart: H. Westerinen, Finnland.
1. e4 e5
2. Re2 Rf6
3. f4 exf4
4. Rxf4 d5
5. Rxd5 Rxd5
6. exd5 Bc5
7. De2t Be7
8. Df3 0—0
9. Be2 c6
10. d4 Dxd5
11. Dxd5 cxd5
12. Bf3 Rc6
13. c3 Be6
14. Bf4 a5
15. a4 g5
16. Bg3 f5
17. 0—0 f4
18. Hel Kf7
19. Bf2 g4
20. Bdl h5
21. Ra3 h4
22. Hxe6 Kxe6
23. Bxg4t Kf7
24. Rb5 Hg8
25. Bf3 Had8
26. Rc7 h3
27. Khl Hd7
28. Rxd5 hxg2t
29. Kgl Bd6
30. Rb6 Hd8
31. Bd5t Kf6
32. Bh4t Kf5
33. Bxd8 Hxd8
34. Bxg2 He8
35. Kf2 Re5
36. Bh3t Kg5
37. dxe5 Bcðj
38. Kf3 Bxb6
39. e6 Hh8
40. Bg4 Kf6
41. h3 Hd8
42. Kxf4 Hd2
43. Hfl Bc5
44. Ke4t Kg6
45. Hf7 Hxb2
46. h4 Gefið.
. UMFERÐ ÚRSLITAKEPPNl
Hvítt: P. Jongsma, Holland.
Svart: F . Georghiu, Rúmeníuu
1 d4 Rf6
2. c4 g6
3. Rc3 Bg7
4. e4 0—0
5. Bg5 c5
6. d5 h6
7. Bh4 d6
8. f4 b5
9. cxb5 aö
10. bxa6 Da5
11. Dd2 Bxa6
12. Bxa6 Rxa6
13. Rf3 c4
14. 0—0 Rb4
15. Khl Rd3
16. Habl Hfb8
17. Rel Rxb2
18. e5 Rxb5
19. Dxd5 Dxc3
20. exd6 exd6
21. Dxd6 He8
22. Í5 g5
23. Bg3 Df6
24. Dc5 c3
25. Rc2 He2
26. Rb4 Dd4
27. Db5 De4
28. Hgl Hxg2
29. Dd5 Hxglt
Gefið.