Morgunblaðið - 28.08.1964, Qupperneq 2
2
MORGUN SLAÐIÐ
Fðstudagtrr 28. águst 1964
Áætlunarfer&ir
Heklu ab Surtsey
ÁKVEÐIÐ hefur verið að strand
ferðaskipið Esja verði tekin til
flokkunarviðgerðar eftir 8. sept.
n.k. og mun viðgerðin sennilega
taka einn til einn og hálfan mán-
uð. Á meðan mun Hekla fara
áætlunarferðir Esju, en þannig
er háttað, að Hekla átti upphaf-
Iega að vera í i'okkunarviðgerð
á þessum tíma en viðgerð hennar
var frestað til næsta árs til þess
að hin dýra flokkun skipanna
beggja koir.i ekki á sama árið.
í sambandi við þessa ráðstöf-
un fær Hekla nokkra lausa daga
um fyrstu helgina í september
og er nú ráðgert að nota þá á
þann hátt, að gefa fólki kost á
þremur þaagilegum ferðum með
skipinu til Vestmannaeyja og
þar með til Surtseyjar, en veru-
leg eftirspum hefur verið eftir
skipstfari á þessar sióðir.
Verður öllum ferðunum hag-
að þannig að skipið verði við
Surtsey í ljósaskiptunum að
kvöldinu, þannig að eyjan sjáist
öll ef skyggni er til þess og
einnig sjáist hið glóandi hraun-
flóð, en flestum eða öllum, sem
séð hafa Surstey, við slík skil-
yrði, kemur saman um að það
sé tilkomumest. Mun nánari aug-
lýsing birtast um þetta í blað-
inu í dag eða á morgun.
(frá Skipaútgerð ríkisins).
Aðolfundur Skég-
ræktarfélugs íslands
hefst í dag
AÐALFUNDUR Skógræktarfé-
laigs íslands verður settur að
Skáldatími gefinn
út hjá Gyldendal
KAUPMANNAHÖFN, 27. ágúst.
— Skáldatími Halldórs Laxness
er meðal þeirra bóka sem koma
út í haust hjá forlagi Gyldendals.
Kemur bókin væntanlega út
þegar í september. Þá kemur um
líkt leyti út bók eftir færeyska
rithöfundinn William Heinesen,
sem nefnist „Det gode haab“. Er
það fyrsta skáldsagan um langt
árabil, sem Heinesen lætur frá
sér fara. — Rytgaard.
Laugarvatni kl. 10 f.h. f dag.
Hákon Guðmundsson, formaður
íélagsins ávarpar fundinn, en
síðan flytur framkvæmdastjóri
þess, Hákon Bjarnason, skýrslu
sína. Þá flytur Snorri Sigurðsson
skógfræðingur erindi og reikn-
ingar verða síðan lagðir fram.
Að því loknu verður kosið í
nefndir og tillöigur fram bornar.
Snæddur verður hádegisverður
að Laugarvatni og kl. 2. e.h. fara
fundarmenn upp í Haukadal og
ganga um Austmannabrekkur í
Haukadalshlíðum. og Hákon
Bjarnason flytur erindi um sögu
Haukadals. Að Geysi verður
snæddur kvöldverður og síðan
haldið aftur að Laugarvatni.
Bátar fjarlægöir í Örfirisey
í GÆRMORGUN var unnið
að því að fjarlægja trillur,
sem lágu í hirðuleysi á lóð,
sem Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjan hefur á leigu í
Örfirisey. Voru fjarlægðir
15 bátar og þeir fluttir vest-
ast á eyna. Var orðið mjög
ljótt um að litast á þessu
svæði vegna fjölda smábáta,
sem lágu þar í algjöru hirðu-
leysi. Er alllangt síðan þess-
ar hreinsunarframkvæmdir
voru auglýstar, en engu að
síður hafa eigendur bátanna
lítt skeytt um að forða þeim
frá glötun.
Stefán Jóhannsson, sem
hefur umsjón með hreinsunar
aðigerðum í bænum af hálfu
lögreglunnar, sagði blaðinu
í gær, að Síldar- og fiski-
mjölsverksmiðjan hefði farið
fram á, að bátar á lóð hennar
í Örfirisey yrðu fjarlægðir,
svo og nokkrir skúrar, sem
þar eru. Voru bátarnir fluttir
í gær á vögnum vestur undir
Esso-stöðina, en skúrarnir
verða fjarlægðir í dag. Þá
mun hafnarstjórn láta til
skarar skríða innan skamms
og hefja brottflutning báta af
svæði hennar í eynni. Stefán
sagði, að einungis tveir þess-
ara báta virtust hafa verið
sjósettir í sumar. Fyrir nokkr-
um árum var mikill áhugi á
smábátaútgerð, en nú virð-
ist hann nokkuð í rénun, ef
dæma má af óreiðubátunum
vestur þar.
^KRANESI, 27. ágúst. — Hafn- I
arferjan liggur við sementsgarð-
inn og hleður 352 tonn af sementi.
Siglir hún svo í fyrramálið kl. 5
til Reykjavíkur. — Oddur.
Ágætt héraðsmót
í Beykjanesi
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna
í Norður-ísafjarðarsýslu var
haldið í Reykjanesi síðastliðinn
sunnudag. Fór mótið hið bezta
fram,
Samkomuna setti Baldur
Bjarnason, bóndi frá Vigur, og
stjórnaði síðan mótinu. Dagskrá-
in hófst á einsöng Guðmundar
Jónssonar, óperusöngvara, en
undirleik annaðist Carl Billich,
píanóleikari. Þá flutti Gunnar
Thoroddsen, fjármálaráðherra,
ræðu. 9'ðan fóru leikararnir
Róbert Armfinnsson og Rúrik
Haraldsson með skemmtiþátt.
Þessu næst flutti Matthías
Bjamason, allþingismaður, ræðu.
Að lokum söng Guðmundur
Jónsson einsöng. Var ræðumönn-
um og listamönnum mjög vel
tekið. Lauk mótinu með því, að
stiginn var dans fram eftir
kvöldi.
Þessi mynd var tekin við brun arústirnar á Grandagarði í gærmorgun. Gunnlaugur B. Jónsson,
heildsali, ræðir við brunaverði og virðir fyrir sér ónýtt postulín, sem hann hafði flutt inn. Átti
hann í skemmunni tvær sendingar af kaffistellum, sem kosta um 10 þús. króna hvert út úr búð
og hafði hann þegar selt þau. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.)
Bílarnir fundust í fönn
BLAÐH) hafði í gær tal af
Braga Sigurðssyni hjá Bílaleig-
unni Bílnum, en hann fór ásamt
Guðbjarti Pálssyni, forstjóra og
þrem öðrum mönnum inn í Ó-
dáðahraun á þriðjudag til þess
að huga að bílunum tveimur, sem
Svisslendingarnir skildu þar eft-
ir, svo sem áður hefur verið skýrt
frá í blaðinu.
Hittu þeir Svisslendingana í
Reynihlíð við Mývatn, áður en
þeir lögðu af stað inn á öræfin,
og voru þeir allir ólmir að kom-
ast með í ferðina inn eftir. Réðu
úrslit spila, hverjir fóru með.
Var haldið á þriðjudagsmorgun
frá Reynihlíð á Dodge Weapon
og rússajeppa og ekið um Herðu
breiðalindir suður fyrir Öskju.
Sagði Bragi, að snjór hefði verið
mikill þar sem bílarnir tveir
voru, um sex kílómetra fyrir
norðan Kattberking, eiginlega í
mynni Dyngjufjalladals. Var þar
snjór kominn í öll lægðadrög, og
í Dyngjufjalladal sást hvergi
örla á svartan bletrt. Var veðrið
mjög breytilegt, og lentu þeir um
stund í stónhríð.
Bílarnir tveir, sem Svisslend-
ingarnir urðu að yfirgefa, reynd-
ust vera gangfærir. Annar þeírra,
Willis-jeppi, fór þegar í gang, en
alíudæla var biluð í hinum, rúrra
jeppanum. Bifvélavirki var með
í förinni, og gerði hann þegar við
dæluna.
Var ekið sömu leið til baka og
farin hafði verið, Reynihlíð, því
að Svartárkotsleið virtist ófær
sakir fannfergis.
Mun leið Svisslendinganna hafa
teppzt vegna snjóa og völdu þeir
þaiin kostinn að yfirgefa bílana
og halda af stað fótgangandi til
byggða. Sagði Bragi, að sér virt-
ist það rökrétt ákvörðun eins og
á stóð.
Eyjobótai
afla vel
VESTMANNAEYJUM 27. ágúst.
Sildveiði Eyja'báta hefur glæðzt
l þessari viku. Hafa bátarnir
siglt um 6—7 stundir austur
undir Hjörleifshöfða og aflað
þar sæmilega. Hefur síldin verið
grunnt í sjónum og nokkrir bát-
•ir rifið næturnar. Hún er misjöfn
að gæðum. Hafa bátarnir flestir
verið með um 1000 tunnur úr
hverri veiðiferð, og í morgun
kom Hrafn Sveinbjarnarson II.
hingað með 2200 tunnur. Þá kom
Pétur Ingjaldsson hingað einnig
með 1400 tunnur.
Síldin fer einkum í bræðslu,
en frystihúsin tóku einnig á
móti síld í gær og var nýtingin
um 60—65%, þar sem notaðar
eru flokkunarvélar. Báðar verk-
smiðjurnar bræða með fullum
afköstum og eru þrær fullar,
með um 0000 tunnur. — B.G.
Prédikor í
Lcngholtskirkjo
SR. STEPHANO R. Moshi, bisk-
upinn, sem prédikar í Lang-
holtskirkju kl. 10.30 á sunnu-
dagsmorgun, var nýlega út-
nefndur biskup hinnar nýstofn-
uðu lúthersku kirkju í Tangan-
yika, en hún var stofnuð í fyrra
af sambandi sjö kirkna. Forsæti
við vígslu hans skipaði Hans
Lilje, biskup í Hannover, for-
seti lútherska heimssambands-
ins.
Ekki mjög
hættulegt
Loftleiðum?
SAMKVÆMT því, sem Morgun-
blaðið hefur fregnað, og í fram-
haldi af frétt í blaðinu í gær
um samþykkt IATA, Aliþjóða-
sambands flugfélaga, þá er hæpið
að mikil röskun verði á farmiða-
sölu Loftleiða, og fyrirgreiðsla f
því sambandi, vestan hafs, þótt
samiþykktiin nái fram að ganga.
Loft-leiðir munu hafa selt mest
af farseðlum sínum í ferðaskrif-
stofum vestan hafs, og þær ann-
azt alla fyrirgreiðslu, þótt félag-
ið hafi að auki haft samning um
slíka samvinnu við bandarísk
flugfélög.
Hins vegar má fullyrða, að
stefna IATA I þessu máli, og
öðrum, varðandi Loftleiðir, sé á
engan hátt í anda frjálsrar sam-
keppni, og því verður athyglis-
vert að fylgjast með, hvernig
Flugráð Bandaríkjanna tekur
þeim tilmælum, að samþykkt
IATA verði vísað á bug.
Samkvæmt fréttum að vestan,
hefur lögfræðingur félagsins þar
lýst því yfir, að IATA sé að
reyna að „kæfa saimkeppni, at
ásettu ráði“