Morgunblaðið - 28.08.1964, Síða 15

Morgunblaðið - 28.08.1964, Síða 15
Föstudagur 28. águst 1964 MORGUN BLAÐIÐ 15 UNDIR grænum brekkum fjalls- ins, þar sem grettið andlit Hruna karlsins gægist út úr brúninni liggur „Staðurinn" í sólbaði þessa heita og heiða ágústdags. Það er eins og hann sé — engu BÍður en fólkið — að njóta sum- arsins og sólarinnar eftir hina mörgu, svölu regndaga júlímán- aðar þegar aldrei þornaði af steini, þegar grasið spratt óvið- ráðanlega úr sér, þegar kýrnar geltust ■' sunnlenzka rosanum svo Hruni í Ytri-Hrepp. Eftir fagran, bjartan dag, slær á staðinn gullnum roða kvöldsólarinnar. hlaupa fram í eldhúsið, en þang- að mátti hann vitanlega ekki fara. Ég kallaði því til hans og sagði honum að mamma hans væri fyrir utan gluggann og vildi tala við hann. Kom hann þá svo nálægt, að ég gat seilst til hans og kippt honum út. Þvínæst stökk ég £ símann, en um leið og ég náði sambandi brann þráðurinn sundur. Ég fékk með naumindum bjargað kirkjubókunum, en svo að segja ekkert bjargaðist af innbúi mínu eða annarra, sem áttu heima í húsinu. Fljótt sást til eldsins frá næstu bæjum og menn dreif að til hjálpar. Þeir fengu borgið mestu af bókasafni hreppsins, sem geymt var í útbyggingu, gamla þinghúsinu. Svo brann húsið allt til kaldra kola. Það var mikil mildi Guðs að ekki I varð neitt slys. Þar er aldrei brotið glas Spjallað við sr. Sveinbjörn í Hruna um búskap vegna gekk þetta allt fljótar en ella. Húsið var tilbúið til íbúðar á næsta ári. — ★ — í Hrunamannahreppi eru um 400 manns. Er það sjálfsagt eitt fjölmennasta hreppsfélag á land- inu utan þéttbýlis. Þótt víða sé glæsilegt um að litast í sveitum landsins, þá mun almennt talið að hvergi séu framfarir jafnmikl- ar og í þessari uppsveit Árnes- þings. Hér er vandamálið ekki það hvernig eigi að halda unga fólkinu heima, heldur hitt hvern- ig skaffa eigi öllu því fólki jarð- næði, sem vill vera heima. Hér er starfandi eitt af landsins stærstu ungmennafélögum með gróskuríku og fjölþættu starfi. Formaður þess er Haraldur Sveinsson á Hrafnkelsstöðum. M.a. gengst það fyrir hinni al- kunnu skemmtun á Álfaskeiði — fyrirmyndarsamkomur með myndarlegri menningardagskrá. Ungmennafélagið á einnig aðild að hinu stóra og glæsilega félags- heimili á Flúðum. Þar hefur ung- mennafélagið skipað sér í varð- sveit gegn innrás óreglu og ó- menningar. Ungir menn úr félag- inu annast löggæzlu á samkom- ocj félagslíf i Hrunamannahreppi að mjólkurinnleggið í Flóabúið fór mörg prósent niður fyrir það normala. En „nú er hafinn annar óður“. í staðinn fyrir vatnanið og úr- helli landsynningsins er kominn ljúfur söngur norðanáttarinnar með brakandi þurrki frá morgni til kvelds. Þetta eru dýrmætir dagar og erfiðir dagar fyrir alla búandmenn. Afkoma ársins og ánægja lífsins er komin undir því frekar en flestu öðru að þessir dagar notist vel — að verk hyggni og hagsýni sé samfara atorku og áræði og framkvæmda- dug. Þetta á við um alla, sem í sveit wm búa og einhvern búskap reka, jafnt lærða sem leika. En Tiú eru þeir að vísu orðnir fáir lærðu mennirnir, sem búskapinn Btunda. Hvar sem þorpskríli hef- ur myndazt, safnast embættis- menn viðkomandi í plássi þar taman. Það eru helzt nokkrir prestar, sem enn halda tryggð við búskapinn á prestssetrum sín um. Sumir halda að þeir muni vera síðustu lærðu mennirnir á íslandi, sem eiga sitt undir sól og regni eins og Stephan G. „Staðurinn“ undir Hrunanum «r samnefndur honum og við hann kannast allir. Þar hefur verið kirkja og staður frá önd- verðri kristni og hver merkis- klerkurinn af öðrum setið hann. Sviphýrt er þangað heim að líta og ekki síður um að litast á heimahlaði. Hér er öllu vel fyrir komið, öllu vel við haldið. Það er auðséð á öllu, innan bæjar og utan, að þessi staður er setinn með prýði. Hús ’og kirkja nýmál- uð, stéttar og stígar hreinleg og skipuleg, kirkjugarður og blóma garður, báðir sannkölluð staðar- prýði. Kirkjan er 99 ára. Á næsta ári verður hér mikil hátíð á ald- arafmaelinu, og það er bezt að láta lýsingu á þessu guðshúsi bíða þess tækifæris. Eitt sinn stóð kirkjan uppi á Hrunanum og sér enn móta þar fyrir kirkju- stæðinu. En sú kirkja fór ekki vel. Það var ekki- von. Fólkið Var svo óguðlegt. Það fór að dansa í húsi guðs á sjálfa jóla- nóttina. Það kunni ekki góðri lukku að stýra. Þegar dansinn dunaði var kölski ekki lengi að renna á hljóðið. Hann fann að- hér bar vel í veiði. Hann kom, tók í hringinn á kirkjuhurðinni og kvað vísu þessa: Held ég hér í hurðarhring hver, sem það vill lasta. Ekki er þetta komið í kring kemur til kasta kemur til minna kasta. Síðan sökk kirkjan í jörð niður. Svona fer þegar fólkið mis- notar hátíðir og helgidaga. En allar hugsanir um hrap nið- ur í sótsvart víti eru harla fjar- lægar þegar litazt er um af Hrun- anum þennan bjarta ágústdag og horft yfir þennan fríða stað. Hér er búsældarlegt og allmikil rækt- un að sjá, enda þótt búið sé ekki stórt, a.m.k. ekki þegar borið er saman við það sem almennt er í þessu mikla landbúnaðar- héraði, sem framleiðir fleiri mjólkurpotta heidur en nokkur önnur sveit á landinu. En það er hægt að búa vel, þótt ekki Xungufellskirkja. Xungufell er elzti bær í Hrunamannahreppi og sá bær á Suðurlandi, sem fjærst liggur sjó. Skemmst er í Hvalfjörð — 58 km (Árb. Ferðafél.). í Xungufellssókn eru 5 bæir, um 25 manns. Meðan Reykjadalur var sérstakt prestakall var Xungufell annexía þaðan. Með konungsbréfi 21. júlí 1819 var Reykjadalskirkja aftekin og Xungufell lagt undir Hruna. sé búið stórt. Svo mun vera hér í Hruna. — ★ — Sr. Sveinbjörn Sveinbjörnsson fékk veitingu fyrir Hruna að af- staðinni kosningu vorið 1944. Sjö árum síðar kvæntist hann Olmu Ásbjörnsdóttur úr Reykjavík. Hún var ekkja Páls Magnússonar flugmanns, sem fórst í flugslysi í Englandi og áttu þau tvö börn. Þeim prestshjónunum hefur orð- ið auðið tveggja barna og stunda systkinin öll búskapinn með for- eldrum sínum, þegar tóm gefst til frá skólanámi. Það er alltaf einhver sérstakur svipur lífs og starfs yfir degin- um og veginum á þéim prest- setrum þar sem búskapur er rek- inn. Þar er alltaf fullt af verk- efnum, annirnar kalla, fjölbreytn in skapar annir allan ársins hring, umsvif og útveganir, erfiðleika og sigra. Og þannig er það líka hér á Hruna. En eftir störf dags- ins við heyskap, mjaltir og Önn- ur búverk, nær unga fólkið sér í hesta eða fær sér far með jeppa og heldur til sundlaugar sveit- arinnar til að þvo af sér svit- ann og rykið og njóta hollustu hinnar nytsömu íþróttar. En gestirnir setjast með prestshjón- unum inni í stofu í húmi síð- sumarsins. Hve notalegur endir á degi starfsgleðinnar. — ★ — Húsið er eins og það sé nýtt. f einfeldni minni spyr ég sr. Sveinbjörn: — Var byggt hér í fyrra? — Nei, það var byggt þegar brann. — Brann? Hefur brunnið hér? Svona er maður fljótur að gleyma þeim eldinum, sem ekki brennur á manni sjálfum. Það er bezt að rifja upp þá sögu. Já, það var einmitt um þetta leyti sumarið 1949. Það var seint um kvöld. Við vorum að raka hérna vestur á túninu. Heima í bænum var bara gömul kona og 4—5 ára drengur, sonur ráðs- konunnar. Gamla konan var háttuð en ekki sofnuð. Þá finnur hún reykjarlykt berast að vitum sér og fer að gruna margt. Hún rís á fætur og opnar fram í eld- húsið. Þá er þar eitt reykhaf. Þá þurfti ekki frekar vitnanna við. Það var kviknað í húsinu. j Gamla konan kom hrópandi há- stöfum út á hlað og ég hljóp heim sem fætur toguðu til að bjarga drengnum. Hann svaf í herbergi baka til í húsinu. Þang- að var ekki hægt að komast nema gegnum eldhúsið, en nú var þar ófært fyrir reyk. Ég hljóp bak við húsið og braut glugga yfir rúmi drengsins. Vakn aði hann við og ætlaði þegar að Séra Sveinbjörn dregur heyið inn í hlöðu á jeppanum sínum. En jeppinn vill ekki vera neinn traktor og er óþægur í gang. Rafmagnslaus? Já, eða vont samband. — Var svo strax farið að byggja? — Já, á því var byrjað þegar um haustið. Svo vel vildi til, að grunnurinn var fyrir hendi. Nokkuð löngu áður hafði verið byrjað á nýju íbúðarhúsi. En það varð aldrei nema kjallarinn. Nú kom hann að góðum notum. Það var hægt að nota hann fyrir grunninn í nýja húsinu. Þess um og svo vel hefir tekizt að hafa hemil á óeirðarseggjum, að þar er aldrei brotið glas. Aldrei brotið glas. Ég Tiem staðar við þessa setningu og fer að hugsa um hana. Hvernig væri að setja hér punkt, og hafa svo þessa lýsingu á samkvæmislífinu á Flúðum að yfirskrift þessa greinarkorns. G. Br. — Frambjóðendur Framh. af bþs. 10 hann fremur endurskoðuð frumvörp, þótt hann sé ekki sáttur með breytingarnar, heldur en að berjast áfram fyrir því, sem hann telur full- komnast og bíða ósigur. Humphrey er Norðurríkja- maður, fæddur í S-Dakota 1911. Forfeður hans áttu litla lyfjaverzlun, sem faðir hans rak á æskuárum hans. — Humphrey vann oft í verzlun- inni og kallar sig ennþá lyf- sala. Humphrey stundaði há- skólanám í Minnesota og Louisiana og þaðan lauk hann meistaraprófi í stjórnvísind- um 1940. Hann var síðan pró- fessor í þessari grein í fimm ár í Minnesota. 1943 var hann í framboði, þegar kosið var um embætti borgarstjóra í Minne- apolis, en beið ósigur. Hann bauð sig fram aftur 1945 og var þá kjörinn og síðan endur- kjörinn 1947. Á þessum árum var hann helzta driffjöðurin í Demókrataflokki Minnesota. Humphrey er kvæntur Maurieal Buck, sem er frá S.-Dakóta eins og hann. Þau eiga fimm börn og tvö barna- börn. Þegar Humphrey tók sæti 1 Öldungadeild Bandaríkja- þings 1949, litu margir sam- starfsmenn hans á hann sem metnaðargjarnan og tungu- lipran ungan mann, sem ætti ekki þar heima. En árin liðu og nú eru állir, jafnvel einnig Suðurríkjamenn, sammála um að hann sé einn virðingár- verðasti og áhrifamesti maður deildarinnar. Þegar Johnson, forseti, hafði útilokað alla meðlimi stjórnar sinnar sem varafor- setaefni, var þegar talið mjög líklegt, að Humphrey yrði fyrir valinu. Humphrey hefur starfað mikið með Johnson í’ Öldungadeilinni og allt bend- ir til þess að báðum hafi líkað samstarfið vel. A X H U G 11> að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa i Morgunblaðinu en öðrum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.