Morgunblaðið - 28.08.1964, Page 17
Fðstudagur 28. Sgust 1964
MORGUNBLAÐIÐ
17
Valdimar Long kaupmaður
Minning
Á KVEÐJUSTUND veitum við
oft fyrst athygli, hve kynningar
og vinaböndin eru margþætt og
inargofin. Vseru siit þeirra oft
lítt þerandi, ef ekki kæmu til
nýir traustir þræðir, þræðir
góðra minninga. Hver einstakur
maður er smár í heimstilver-
unni, en hve miklu væri hann
ekki smærri, af snertingin við
gott umhverfi, gott samferða
fólk, góða vini stækkaði hann
ekki.
Það er ekki óeðlilegt, að slíkar
hugsanir yakni, þegar Valdimar
Long, kaupmaður er kvaddur eft
ir langan og giftudrjúgan starfs-
dag. Hann var einn af þeim
mönnum, sem mat vináttubönd-
in, tryggð og trúmennsku mikils.
Hann var einn af þeim mönnum
sem gott var að leita til og af
heilum huga og fullri festu vann
hann að lausn þeirra mála, sem
hann tók að sér. Valdimar var
framsýnn og víðsýnn. Hann fór
því ekki alltaf troðnar slóðir
heldur tók þátt í að ryðja nýjar.
Þannig var hann annar aðal
hvatamaður að stofnun Mál-
fundafélagsins Magna í Hafnar-
firði, sem margt gott hefur lát-
ið af sér leiða í menninfrarmál
um. Valdimar var formaður fé-
laísins fvrstu árin og var það
hans hlutskioti að halda v'asiu
ræ«"na. er Magni tók Hellis
gerði til ræktunar fvrir almenn-
ingsskrúðgarð. Var þá jafnvel
brosað að soádómum Valdimars
varðandi þróun gróðurs í Gerð-
inu en þeir spádómar hafa allir
fullkomlega rætzt. Var Valdimar
heiðursfélagi Magna hin síðari
ár. Valdimar var ritstjóri Brú-
ar'nnar. sem ráðizt var í að ?efa
út í Hafnarfirði árið 1928. For-
m"*ur skó'anefridar Barnaslróla
H-^narf'frðar var hann
1938—1942.
V^dimar var fæddur á Sevð-
fsf'rði 9. jan. 1884, sonur hión
anna Invibjargar Jóhannesdótt-
ur og Sigmundar Long. gest
giafa.En hann ólst upo hjá móð- . ..* , . *
urforeldrum sínum Ásdísi ólafs 3 °ðrU ari n0rður 1
dóttur og Jóhannesi Magnússyni
A uppvaxtarárum sínum vann
Valdimar ýms algeng störf en
fór síðan í kennaraskólann og
lauk þaðan burtfararprófi árið sinni
1909. Þá varð hann skólastjóri
barnaskóla Neskaupstaðár og
síðan í Hnífsdal, en til Hafnar
fjarðar fluttist hann árið 1916 og
bió þar síðan. í Hafnarfirði vann
Valdimar við verzlunarstörf
m.a. hjá Einari Þorgilssyni út-
gérðarmanni, en kaupmaður
gerðist Valdimar árið 1927 er
hann keypti bókaverzlun af Ein
ari og rak hana síðan allt fram
á síðustu ár, er hann breytti verzl
un sinni og hætti þá bóksölu
Valdimar var umboðsmaður Sjó
vátryggingarfélags íslands um
langt árabil, umboðsmaður Happ
drættis Háskóla íslands frá stofn
un þess, hafði auglýsingaþjón-
ustu fyrir Ríkisútvarpið og
margt fleira mætti telja. Bækti
hann oll þessi störf af stakri
reglusemi og nákvæmni
Árið 1912, 12. júlí kvongaðist
Valdimar Arnfríði Einarsdóttur
kennara, hinni ágætustu konu
Voru þau mjög samhent í störf-
um og unnu bæði við verzlunina
Var sama lipurðin og alúðin hjá
þeim báðum i þjónustunni við
fólkið.
Þrjú börn eignuðust þau Arn
friður og Valdimar. Einar, verzl
unarmann, sem unnið hefur við
verzlun föður síns jafnframt því,
sem hann hefur stundað við-
tækjaviðgerðir, Ásgeir, verk-
stjóri á Reykjalundi og Ásdís,
er þau misstu 6 ára gamla.
Þeim, sem komu á heimili
þeirra Arnfríðar og Valdimars
mastti ávallt alúð sú og hlýja,
sem var einkenni þeirra hjóna
beggja. Konu sína missti Valdi-
mar árið 1961.
Lítil atvik lýsa oft manninum
meira en mörg orð. Á afmælis-
daginn sinn, er Valdimar varð
sjötugur, tók hann sér það fyrir
hendur, mitt í skammdeginu, að
ganga á Helgafell fyrir ofan
Hafnarfjörð. Vildi hann við
þessi tímamót komast í sem nán-
ast samband við móður jörð, er
hann unni, tign hennar og mikil
ieik og þó ekki síður hitt, að
skynja guð sinn í einveru og
ajúpri þögn, því mikill og ein-
lægur trúmaður var Valdimar.
Við kveðjum góðan dreng
með söknuði í huga en þó miklu
auðugri minninga er brúa bilið
milli lífs og liðinna.
Páll V. Daníelsson.
VALDIMAR S. LONG, frum-
kvöðullinn að starfsemi félags
vors, er horfinn úr hópi vorum.
Anda þeirra hugsjóna, sem hon-
um voru kærastar viljUm vér
leitast við að varðveita og hlúa
að þeim, svo að þær magni að
þroska hvern þann, er auðga vill
anda sinn og þjálfa hönd sína til
hvers kyns nytsemdarverka.
Fyrirbænir vorar fyigja hon-
um. Þakkir vorar skulu honum
færðar, og kveðjur vor allra fel-
ast í eftirfarandi orðum eins
hinna eldri Magnamanna, Ólafs
Þ. Kristjánsson, skólastjóra í
Flensborg.
Málfundafélagið Magni.
Himinn skær við heiðarbrún
heilsar tæru sundi.
Utar hlær við árdags-rún
unn í væfum blundi.
haft forgöngu um stofnun Ung- sæla gangstigu með laufþök ilm-
Valdimar S. Long, höfundur
þessarar stílhreinu morgunvísu,
var fæddur á Seyðisfirði 9. janú-
ar 1884, og var því rúmlega átt-
ræður, er hann lézt eftir langa
vanheilsu 19. ágúst sl. Foreldrar
hans voru hjónin Sigmundur
Matthíasson Long og Ingibjörg
Jóhannesdóttir. Var Sigmundur
aun þá gestgjafi á Seyðisfirði, en fór
ekki löngu seinna til Vestur-
heims og átti þar heima til dauða-
dags, ágætlega greindur maður,
fróður um marga hluti og prýði-
lega ritfær. En Valdimar fluttist
Fnjóskadal
með móðurforeldrum sínum, Jó-
hannesi Magnússyni og Ásdisi
Ólafsdóttur. Ólst hann upp hjá
þeim og þó einkum hjá ömmu
á Illugastöðum og víðar,
Er Ásdisi ömmu hans þann veg
lýst, að hún hafi verið góð kona
og vitur.
Snemma bar á því, að Valdi-
mar var greindur og bókhneigð-
ur, og var honuni komið í ungl-
ingaskóla til Sigurðar Jónssonar
í Yztafelli veturna 1896 og 1897,
þótt ungur væri, nokkrar vikur
eftir hátíðar hvorn vetur. Ann-
arrar skólagöngu átti Valdimar
ekki kost á unglingsárum sínum,
en bækur las hann eftir föngum.
Árið 1901 fluttist Valdimar til
Norðfjarðar og vann þar við
verzíun í nokkur ár. Vorið 1908
sótti hann um skólavist í kenn-
aradeild Flensborgarskólans í
Hafnarfirði, þá 24 ára gamall. En
það sumar var kennaradeildin
lögð niður, en Kennaraskóli ís-
lands tók hins vegar til starfa
í Reykjavík um haustið. Var
ákveðið, að þeir menn, sem sótt
höfðu um skólavist í kennara-
deildinni í Flensborg, skyldu fá
vist i Kennaraskólanum og ljúka
kennaraprófi eftir einn vetur,
eins og var í kennaradeild Flens-
borgarskólans, en Kennaraskól-
inn var hins vegar þriggja vetra
skóli. Voru 32 nemendur i þess-
um bekk um veturinn, og má
segja, að það hafi verið valin
sveit; þar voru meðal annarra
svo þjóðkunnir menn sem Helgi
Hjörvar rithöfundur, Jörundur
Brynjólfsson alþingismaður,
Magnús Stefánsson skáld (Örn
Arnarson) og Þorsteinn M. Jóns-
son skólastjóri. f þessum hóp var
Valdimar S. Long, og útskrifað-
ist hann með ágætri einkunn vor-
ið 1909.
Þegar að loknu kennaraprófi
tók Valdimar að sér stjórn barna-
skólans á Norðfirði (síðar Nes-
kaupstað). Var hann þar skóla-
stjóri í 5 ár, en síðan var hann
skólastjóri í Hnífsdal í einn vet-
ur. Ætla ég, að honum hafi farn-
azt vel í þessu starfi, því að hann
var maður athugull og stilltur í
framkomu, laginn stjórnandi og
snemma glöggur á menn.
Til Hafnarfjarðar fluttist Valdi-
mar árið 1916 og átti þar heima
siðan. Vann hann jafnan við
skrifstofustörf eða verzlun. Árið
1927 setti hann á fót siálfs sin
verzlun og veitti henni s'ðan for-
stöðu, meðan heilsa entist, hafði
m.a. umfangsmikla bókaverzlun
um langt skeið. Jafnframt hafði
hann löngum á hendi umboð
fyrir ýmis fyrirtæki, bókafélög
og happdrætti. Fékk hann það
orð í öllum þessum störfum, að
vandaðri mann og nákvæmari í
skintum gæti ekki en Valdimar
S. Long.
Valdimar kvæntist 12. júli
1912 Arnfríði Einarsdóttur, sem
þá var kennari við barnaskólann
á Norðfirði og var ein þeirra.
sem lokið hafði kennaraprófi
vorið 1909. Arnfríður var gáfuð
kona og mikilhæf og reyndist
mjög umhyggjusöm húsmóðir
og manni sínum mikill styrkur í
störfum hans. Hún lézt 18. marz
1961. Þau Valdimar eignuðust
þrjú börn, dóttur, Ásdísi, sem þau
misstu sex ára gamla, og tvo
syni, Einar, sem tekið hefur við
verzlun föður síns í Hafnarfirði,
og Ásgeir rennismið, verkstjóra
á Reykjalundi.
Ekki lét Valdimar mjög mikið
að sér kveða í opinberum mál
um. Hann var ekki bardagamað
ur í eðli sínu og honum var ekki
gjarnt að láta á sér bera. Hins
vegar hugleiddi hann marga hluti
gaumgæfilega og myndaði sér
ákveðnar skoðanir á mönnum og
málefnum. Hann var tillögugóð
ur, ef til hans var leitað, traust-
ur starfsmaður í öllu, sem hann
tók að sér, og drjúgur að koma
málum fram. Alþýðuflokknum í
Hafnarfirði var hann þarfur mað
ur í félagsmálum og var um
skeið varafulltrúi hans í bæjar-
stjórn. Formaður skólanefndar
barnaskólans var hann í 9 ár og
bar mjög fyrir brjósti farsælan
árangur af skólastarfinu, og naut
í því starfi reynslu sinnar frá
skólastjóraárunum og mikillar
mannþekkingar, er hann hafði
aflað sér.
f desember 1920 bar það til
nýlundu í Hafnarfirði, að nokkr-
ir ungir menn stofnuðu mál
fundafélag, sem hlaut nafnið
Magni. Frumkvöðlar að félags-
stofnuninni voru tveir: Valdimar
Long og Þorleifur Jónsson, sem
síðar var lengi bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði. Þeir höfðu báðir
starfað ötullega í ungmennafélög-
um á Austfjörðum, Valdimar
mennafélags Norðfjarðar árið
1910 og verið formaður þess um
skeið, en Þorleifur verið einn af
stofnendum ungmennafélagsins
Egils rauða í Norðfjarðarhreppi
1915. Er enginn efi, að kynni
þeirra af ungmennafélagsskapn-
um og starfsemi í honum varð
þeim hvöt til að gangast fyrir
stofnun málfundafélagsins
Magna, sem varð raunar miklu
meira en venjulegt málfundafé-
lag, því að það félag hefur haft
mikil og margvísleg menningar-
áhrif í Hafnarfirði, þótt hér verði
ekki rakið. Þannig var það fyrir
áhrif frá Magna, að blaðið Brúin
var stofnuð í Hafnarfirði 1928, og
var Valdimar Long ritstjóri að
fyrstu 12 tölublöðunum. Hitt er
þó miklu meira til frásagnar,
enda víða kunnugjt, að það var
Magni, sem hóf ræktun í Hellis-
gerði, hinum landskunna
skemmtigarði Hafnfirðinga, og
hefur jafnan staðið fyrir starf-
seminni þar og séð um hana,
þótt bæjarsjóður hafi styrkt
Gerðið myndarlega um langt
skeið. Valdimar Long var for-
maður Magna fyrstu 4 árin og
aftur 1931. Það var í formanns-
tíð hans, sem hafizt var handa
um ræktun Gerðisins, en fyrstu
trjáplönturnar voru gróðursettar
þar 1924. í mörg ár hélt Magni
útiskemmtun til ágóða fyrir
starfsemina í Gerðinu. Nutu þær
skemmtanir mikilla vinsælda og
voru kallaðar Jónsmessuhátíð.
Fyrsta Jónsmessuhátíðin var
haldin í Hellisgerði 1923. Þar
flutti Valdimar Long ræðu og
var bjartsýnn á ræktunarfram-
kvæmdirnar. Hann talaði um.
beear svo væri komið í Hellis-
eerði. að Hafnfirðinear P"“tn
leitað hingað í tómstundum sín-
um til þess að reika hér um frið-
þrunginna trjáa yfir höfði sér
eða til þess að sitja hér undir
runnunum við fuglasöngva og
blómangan, sér til hvíldar og
gleði“. Er það alkunnugt, hve
glæsilega þessi orð hafa rætzt
á Hellisgerði, þótt einhverjir
kunni að hafa hlýtt á þau með
nokkurri vantrú, er þau voru
sögð.
Valdimar Long var góður ræðu-
maður. Mál hans einkenndist af
hófsemi og vitsmunum, hvort
sem var i ræðu eða riti. Hann
vandaði orðfæri og stíl, og naut
þar þjálfaðrar þekkingar sinnar
á þeim efnum og næmrar smekk-
vísi. Sömu einkenni báru Ijóð
hans, sem hann að vísu flíkaði
ekki mikið, en þó eru nokkrar
lausavísur eftir hann birtar í
Stuðlamálum. íslenzkt mál,
merking orða og notkun, bæði í
bundnu máli og lausu, var Valdi-
mar kært efni til umhugsunar og
umræðu til æviloka. Framtíð ís-
lenzkrar menningar var honum
hugleikin.
Ólafur Þ. Kristjánsson.
— Jón BjÖrnsson
Framhald af 8. síðu.
félaga sem ávallt var reiðubú-
inn að hjálpa og styðja.
Kæri vinur. Áhugi þinn, trú
mennska og vandvirkni, að
hverju sem þú gekkst skaDa þér
varanlegan bautarstein. Hlýhug-
ur þinn og elskulegt viðmót
gevmist í hjörtum vina þinna.
Eg færi þér þakkir mínar og
fjölskyldu minnar, þá ekki sízt
sona minna, og óska þér farar-
heilla inn á landið ókunna sem
allra bíður. í guðs friði.
Bj. Dan.
JÓN Þ. BJÖRNSSON, fyrr skóla-
stjóri á Sauðárkróki, verður lagð-
ur til hvíldar í hinu fagra ættar-
héraði sínu í dag. Langri og starf-
samri ævi er lokið. Margir minn-
ast hins látna skólamanns og fé-
lagsleiðtoga með þakklæti, því að
hvarvetna kostaði hann kapps
um að hlúa að vexti alls, sem
gott var og fagurt, og hann var
svo mikill gæfumaður, að þessi
viðleitni hans bar víða fagran
ávöxt. — Stórstúka íslands af
I.O.G.T. er meðal þeirra, sem
þakka Jóni Þ. Björnssyni mikil
og heillarik störf, ekki aðeins þau
störf, sem unnin voru á hennar
vegum, — en þau voru mikil —,
heldur einnig öll önnur menn-
ingarstörf, sem hann lagði hug
og hendur að. Svo er slíkra
manna bezt minnzt og þeim þakk
að, að störfum þeirra sé haldið
áfram með fullri einlægni og
alúð.
Ólafur Þ. Kristjánsson.
— Op/ð bréf
Framhald af bls. 6
kvæmdir sem fyrir löngu ættu
að vera búnar, sérðu þá ekki
fyrirlitninguna í augum áheyr-
endanna, sem vita að þú hefur
velt stóru byrðinni á þeirra bak?
Herra skattsvikari. Þú ert
ekki öfundsverður af þeim krón
um sem bú hefur þannig eign-
ast. því ábvrgð þín er stór. Þú
befur valdið mörgurri fjölskyld-
um stórum fiárhaffsörðualeikum
og grafið undan trúnni á réttar-
ríkið sem svo margir hafa lengi
unnið við að bvggja upp.
Ef til vill angrar samvizkan
þig eitthvað þessa dagana, en
verður hún ekki aftur sofnuð
djúpum svefni næst er skatta-
framtalið berst þér til útfylling
ar?
Þorgrímur Halldórsson.
Hollensku
sokkarnir
eru komnir
d
fetla
Laghentur raaður
óskast nú þegar út á la-nd.
Má hafa með sér fjölskyldu.
Upplýsingar í Ráðningarskrif-
stofu landbúnaðarins.
Berjaferð á Snæfellsnes
á laugardag, komið til baka á sunnudagskvöld.
Farþegar sóttir heim og ekið heim að ferðinni
lokinni.
FERÐABÍLAR. sími 29969.
Sími
10880
FLUGKENNSLA