Morgunblaðið - 26.09.1964, Page 1
24 síður
0íri0tttiM»Mífo
%>
81 ár^angur
225. tbl. — Laugardagur 26. september 1964
Prentsmiðjú Morgunblaðsína
Minnihlutastjórn
mynduð ■ Danmörku
Skipuð 17 ráðherrum Sósíaldemókrata
Kaupmannahöfn, 25. sept. (NTB)
M Y N D U Ð hefur verið ný
stjórn í Danmörku, minni-
hlutastjórn sósíaldemókrata,
undir forystu Jens Otto Krag.
Tilkynnti hann í kvöld hvern-
ig skipað væri ráðherraemb-
flýja
'StókMiólmi, 25. sept. NTB
Fimm tékkneskir ferða-
menn, á aldrinum 25-30 ára,
gáfu sig firam við lögregluna
í Stokkhólmi í da.g og báð-
ust hælis. Voru þeir úr hópi
30 ferðamanna, er fara átti
filugleiðis til Prag í dag eftir
nokkurra daga dvöl í Sví-
’þjóð. Einn þeirra, sem flýðu,
er laeknir, annar búfræðing-
ur en hinir þrír opimberir
sta rfsmenn. Fjórir þeirra
vildu halda áfram til Kan-
ada eða V-Þýzkalandis, þar
sem þeir áttu ættingja.
ættum, sem eru 17 að tölu —
einu færra en áður var.
í stjórninni koma fram níu
nýir menn, viðskiptamálaráðherr
ann, Lars P. Jensen; húsnæðis-
málaráðherrann, Kaj Andreas-
sen; innanríkisráðherrann, Hans
Hækkerup; menningarmálaráð-
herrann, Hans Sölverhöj; Græn-
landsmálaráðherrann, Carl P.
Jenseí^ landbúnaðarráðherrann,
Christian Thomsen; dómsmála-
ráðherrann, Axel Nielsen; fiski-
málaráðherrann, Hans Bjerre, og
fræðslumálaráðherrann, K. B.
Andersen. Aðrir í stjórnmni eru,
auk forsætisráðherrans: Per
Hækkerup, utanríkisráðherra;
Poul Hansen, fjármálaráðherra;
Victor Gram, landvarnaráðherra;
Bodil Koch, kirkjumálaráðherra.
Embætti efnahagsmálaráðherra,
sem Kjeld Philip gegndi, var
lagt niður.
Hans Sölverhöj, sem nú verð-
ur menningarmálaráðherra, hef-
ur verið aðalframkvæmdastjóri
danska útvarpsins — og K.B.
Andersen, sem verður fræðslu-
málairáðherra, hefur verið leið-
togi þingflokks Sósialdemókrata.
Scripps-Howard blöðin
telja Goldwater
óhæfan
- Styðja framboð Johnsoais
Ráðherrarnir, sem úr stjóm-
inni fara, auk náðlherranna frá
Radikalflokknum, eru Julíus
Bomholt, menningairmálaráð-
herra og Mikael Gam, Grænlands
móiarherra.
Hin nýja stjórn hefur á þingi
tryggt sér ýmist hlutleysi eða
stuðning tíu þingmamna Sósíal-
íska þjóðarflokksins og jafn-
margra þingmanna radikaia, jafn
framt því, sem annar þingmaður
Færeýingja styður hana. Krag
hefúr lýst þó þvi yfir, að hann
muni ekki sœtta sig við stuðning
sósdaldska þjóðarflokksins eins,
Jens Otto Krag,
forsætisráðherra.
iþegar um mikilsverð málefni sé
að rseða á þingi. En með fyrr-
greindu fyrirkomuiagi hefur
stjórnin nánast stuðning 97 þing
manna af 176. Grælandsþing-
mennirnir og annar þingmaður
Framhald á bls. 23.
Augustus Bea, kardináli:
Sökin er ekki
Cyðinga einna
en
New York, 25. sept.
Scripps-Howard blaða-
hringurinn bandaríski —
honum tilheyra sautján
dagblöð — lýsti í dag yfir
fylgi við Lyndon B. Johnson
f komandi forsetakosningum.
Er það í fyrsta sinn frá því ár-
ið 1940, þegar Franklin D.
Roosevelt var í framboði, að
blöð þessi styðja frambjóð-
anda demókrata.
Blöðin sautján hirtu öll sam-
hljóða ritstjórnargreinar í dag,
þar sem segir meðal annars, að
Lyndon B. Johnson hafi sýnt, að
hann sé til þess fær að gegna
forystuhlutverki með þjóð sinni
•— og eigi skilið traust hennar.
Ennfremur segja blöðin, að þau
hafi beðið með að taka afstöðu
og hafi viljað gefa Goldwater
færi á að bera á borð kenningar
sinar, rökstuddar og sýna fyrir
hverju hann hyggðist berjast.
teNú hefur hann gjört það — og
þótt við dáumst að atorku hans,
hugrekki og heiðarleika og telj-
um hann aðlaðandi einstakling, á-
lítum við rökstuðning hans ekki
eannfærandi og teljum ekk'i, að
hann hafi sýnt sig til þess hæfan
®ð skipa emhætti forseta", segir
1 ritstjórnargreinunum.
Páfagarði, 25. september — AP
EINN nánasti samstarfsmaður
Páls páfa VI., kardinálinn Aug-
ustus Bea, lýsti því yfir á kirkju-
þinginu í Róm í dag, að rangt
væri að lýsa ábyrgð á hendur
Gyðingum einum vegna kross-
festingar Jesús Krists. Kemur
þessi skoðun fram í yfirlýsingu,
sem kardinálinn mælti fyrir,
varðandi afstöðu kaþólsku kirkj-
unnar til Gyðinga og annarra
„ókristinna" trúarbragða.
Uppkast að þessari yfirlýsingu
var fyrst lagt fram á þinginu i
fyrra en síðan hefur verið fjallað
um það — og gerðar á því marg-
vislegar breytingar — í nefnd
þeirri, sem skipuð var til að
vinna að eflingu einingar innan
kirkjunnar. Er Augustus Bea
kardináii formaður þeirrar
nefndar.
Kardinálanum, sem er 83 ára
kð aldri, var ákaft fagnað þegar
hann hafði lokið máli sínu og
hvatt til þess, að yfirlýsingin
yrði samþykkt. Hann sagði henni
meðal annars ætlað að sjá til
þess, að ekki verði lýst sök
hendur Gyðingum nútímans
vegna krossfestingar Krists
Hann gerði að umtalsefni þær
ráddir, er fram hefðu komið
þinginu um, að yfirlýsingin
gæti valdið erfiðleikum kaþólsk-
um mönnum i Arabaríkjunum
og sagði: „Hér er ekki verið að
ræða um stjórnmál. Við erum
ekki að fjalla um stjórnmála-
stöðu Ísraelsríkis heldur um
fylgjendur lögmála JÆóses. Vanda
mál þetta er eingöngu trúar-
bragðalegs eðlis“. Hann kvað
engan vafa leika á því, að kristn-
Framhald á bls. 23.
Fellibylur .
I Japan
A.m.k. 36 fórust
á 500 særðust
Tókíó, 25. sept. — NTB — AP
VITAÐ er nú, að a. m. k. 36
manns hafa beðið bana •£
hátt í fimm hundruð særzt,
meira og minna, af völdum
fellibylsins „Wilda“, sem far-
ið hefur yfir Japan tvo síðustu
daga. 43.500 hús eru undir
vatni og níu hús bárust á brott
með flóðbylgjunni, er fylgdi í
kjölfar ofviðrisins. „Wilda“ er
f jórði öflugasti fellibylur, sem
farið hefur yfir Japan frá því
byrjað var að halda skrá yfir
fellibylji og styrkleika þeirra.
„Wilda" gleymdi ekki að bregða
sér til Ólympíuþorpsins í Tókió.
Reif fellibylurinn tré upp meS
rótum, braut rúður í tugatali og
feykti þákinu af baðhúsi þvl, er
sovézkir og ungverskir íþrótta-
menn eiga að nota á Ólympíu-
leikunum.
Á annað hundrað skipa löskuð-
ust i óveðrinu eða sukku. Þeirra
á meðal norska flutningaskipið
„Surna“, 9.776 lestir, og brezka
flutningaskipið „Kunion", 7.199
lestir, sem rak hæði á land.
Fellibylurinn skall á suður-
hluta syðstu eyjar Japans, Ky-
ushu, á fimmtudagskvöld og gekk
þaðan yfir suður og vestur eyj-
arnar, og þaðan út á Kyrrahaf.
En síðan tók hann á sig sveig og
kom aftur yfir Japan, norður-
hlutannð en hvarf loks aftur út
yfir Kyrrahafið. Sást til sólar f
dag í Japan, í fyrsta sinn á rúmri
viku.
Mynd þessi, sem birtist i einu
brezku dagblaðanna nú í vik-
umni þarf víst engrar skýring-
ar viff. Hún sýnir glöggt meff
hvílíkum hita hugans Bretar
fylgdust meff keppninni um
Amerikubikarinn — og tö-
raunum Peters Scotts til aff
/ verja heiffur þeirra.