Morgunblaðið - 26.09.1964, Síða 24
IKgptttltlnfrtfe
225. tbl. — Laugardagur 26. september 1964
LEKTROLUX UMBOÐIÐ
IAUOAVEG1 «9 tfmi 21800
Breyting samþykkt á lög-
reglusamþykkt Kópavogs
Kjörbúðarvagna má þó ekki staðsetja
nœr fastri verzlun en 450 metra
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í
Kópavogi í*ær fór fram seinni
umræða um tillógu til breyting-
ar á lögreglusamþykkt kaup-
staðarins, en hún er fram borin
til þess að hægt sé að leyfa
rekstur kjörbúðarvagna þar.
Svo sem kunnugt er lét bæjar-
fógeti stöðva rekstur eins slíks
vagns, þar sem hann var ekki
leyfilegur samkvæmt gildandi
lögTeglusamþykkt staðarins.
Á bæjarstjórnarfundinum í gær
var samþykkt tillaga um þreyt-
ingu á 13. grein lögreglusam-
þykktarinar, þar sem bæjarráði
er heimilað að leyfa rekstur kjör
búðairvagna, þó ekki nær en
450 metra frá fastri verzlun.
Þótt breyþng þessi hafi verið
á lögreglusamþykktinni gengur
hún ekki þegar í gildi, þar sem
samþykki og staðfestingu dóms-
málaráðuneytisins þarf til slíkra
breytinga.
Kosið í Trésmiða-
félagsins um helgina
Lm þessa helgi ...
Um þessa helgi fer fram i
allsberjaratkvæðagreiðsla í
Trésmiðafélagi Reykjavík
ur um kjör fulltrúa félagsins
á þing Alþýðusambands ís-
lands, sem haldið verður í
nóvember.
Tveir iistar hafa komið frotm,
A-listi, sem studdur er af komm
únistum og B-listi, sem borinn
er fram af lý ðræðiss i nnum í fé-
laginu.
B-listinn er þannig skipaður:
Aðalfulltrúar:
Haraldur Sumariiðason
Hraunteigi 17.
I Kristinn Magnússion
Goðlheimum 4.
Lúther Steinar Kristjánseon
Akurgerði 46
Guðmundur G. Sigfússon
Heiðargerði 34.
Brlingur Guðmundsson
Kópavogsbraut 50, Kóp.
Guðjón Ásbjömsson
Grænuhlíð 10.
Varafulltrúar:
Ólafur Ólafsson
Laufásvegi 27.
Knut Helland
Kópavogsbraut 4, Kóp.
Þorvaldur Ó. Karlsson
Bergstaðastræti 61.
Framhald á bls. 23.
Hér blaktir griski fáninn í skut togarans Ágústs í Reykjavíkur-
höfn í gær, en togarinn hefur sem kunnugt er verið seldur til
Grikklands, en íslenzk áhöfn mun sigla togaranum út. Skipinu
hefur verið gefið grískt nafn — en Ijósmyndarinn treystist
ekki til að lesa úr því. — Ljósm. Mbl. S.Þ.).
Þingsetning 10. október
Forseti íslands hefur, að ardaginn 10. október 1964.
tillögu forsætisráðherra kvatt Fer þingsetning fram að lok
Alþingi til fundar laug- inni guðsþjónustu, er hefst í
dómkirkjunni kl. 13.30.
Kynþroska fiskur
liefir minkað um
60%
Lmsogn skozks skipstjéra
í GÆR var skozki línuveið-
arinn Loch Brora frá Aber-
deen staddur hér í Reykja-
víkurhöfn og brá frétta-
maður blaðsins sér um borð
og tók tali skipstjórann,
Alec Morrace, sem meðal
kunningja er kallaður
‘Sandy og marga vini á hér
í Reykjavík. Við hófum
samtalið með að spyrja um
veiðar að undanförnu, en
þeir á Loch Brora veiða
með línu hér við vestan-
vert landið.
Sandy sagði í samtalinu við
blaðið:
— Á svæðinu frá Berufjarð-
arál í Kolluál, á dýpinu 100—
300 faðmar, hefur hrygningar-
fiskur minnkað um 60% síðast
liðin 10 ár. Ég hef stundað
hér veiðar frá 1947 og alltaf á
sömu slóðum á sama árstíma
og ég er sannfærður um að
þetta er rétt. Ég hef einnig
haft samskonar beitu allan
tímann.
Er við spurðum um afkomu
áhafnar hans sagði hann að
allir væru ánægðir með hlut
sinn. Háseti hefur á línuveið-
unum 1800 £ um árið og er
við bárum um samanburð við
almenna verkamenn í Aber-
deen sagði Sandy að þeir
hefðu 70Ö—1000 £ á ári þar
heima.
— Það sem veldur því að
við höfum svo gott kaup, sem
raun ber vitni, og útgerðarfé-
lagið er ekki komið á hausinn,
er að fiskverð hefur hækkað
samfara því að afli hefur
minnkað hér við land.
Þegar við spurðum um
hvort áhöfnin væri ánægð á
skipi hans, sagði Sandy, að
stýrimaður sinn hefði verið
um borð í 17 ár og 3 af hin-
um í 10 ár, en sá, sem stytzt
hefði verið, hefði verið í 2 ár.
Er við yfirgáfum Sandy bað
skipstjórinn okkur að leysa
fyrir sig landfestar og sigldi
hann glaður brott eftir að
hafa fengið línuspilið lagfært.
Sandy skipstjóri
á brúarvængnum.
ÍOþekktoi mnð- j
| ur drukknnr j
- í Sundlaug |
| Vesturbæjor
| UM kl. fjögur síðdegis í f
I gær varð það slys að mað- |
| ur um þrítugt að því er tal |
[ ið er, drukknaði í Sund- 1
[ laug Vesturbæjar. Sást j
I maðurinn liggja á botnin- [
I um í dýpri hluta laugar- [
I innar og var -þegar dreg- [
= inn upp, en reyndist lát- =
{ inn.
[ Er MbL vissi sáðast til j
[ í gærkvöldi, var hafði j
Í enn ekki verið upplýst j
| hver maður þessi var, en j
| rannsóknarlögreglan vann =
[ að rannsókn málsins. í föt- j
\ um hans í búningsklefa [
[ fundust engin skilríki, sem j
[ bent gætu til þess hver I
| hann væri, en af frásögn- j
| um sundlaugargesta mátti \
\ ráða að hann hafi ekki ver j
I ið íslendingur. Var þvi lík =
i iegt "talið, að hér væri um ='
Í órlendan ferðaimann að j
i ræða, þótt að sjálfsögðu j
| verði ekki um það fullyrt j
I á því stigi sem málið var j
[í gærkvöldi.
I MMMMMMIf MMM*M»M»I,IMMMMMMMMMMMMI,MM»I»I
Sultuð ú Eski-
firði í gær
Eskifirði 25. septemiber.
HINGAB komu inn í dag fimnt
bátar með síld, Grótta með 1800
tunnur, Viðey 1000, Ólafur
Tryggvason 600, Seley 1000 mál.
Þá kom hér Oddgeir með 100
tunnur og rifna nót til viðgerðar
hjá Jóhanni Clausen.
Síldarbræðslan hér hefur nú
alls tekið á móti 140.000 málum
í sumar og haust. í frystingi*
hafa farið hér 5.500 tunnur, og
söltunin hjá stöðvunum fimn)
hefur verið sem hér segir: Auð-
björg 15.900 tunnur, Askja 5.500,
Bára 5.000, Eyri 3.800 og Oddi
2.000 tunnur.
Saltað hefur verið hér í allan
dag svo mikið sem hægt er af
þeirri síld, sem þá barst hingað.
Háir það söltunarstöðvunum
mjög, að erfitt er að fá fólk til
að vinna við síldarsöltunina, enda
eru flestir aðkomumenn farnir
héðan.
Eftir 1. október hefst barna-
og unglingaskólinn hér, og þá
versnar ástandið enn frá þvi sem
nú er. — Gunnar.
Foring j anámskeið
við Vestmannsvatn
Akureyri 25. sept.
Á fyrsita fundi hinnar nýju
stjórnar Æskiulýðssambanda
kirkjunnar í Hólastifti, var á-
kveðið að eÆna til foringj anám-
skeiðs í sumarbúðu num við Vest
mannsvatn, og miun það standa
yfir daigana 22.-25. október nk.
Þátttakendur verða foringjar,
sem munu stjórna vetrarstarfl
einstakra félaga í sa.mbandimu.
Ætlast er til að tveir fulltrúar
komi frá hverju féla.gi. Nám-
skedðinu sitjórnar séra Sigiurðu*
Guðmundsson, prófastur á
U Grenjaðastað. — Sv, F.