Morgunblaðið - 30.09.1964, Síða 6
6
MORCUNBLAÐiÐ
í
Miðvikudagur 30. sept. 1964
75 ára ■ dag:
Páll Erlendsson
organisti og söngstjóri
Síldveiðiskýrslan
Vb Jón Kjanansson aflahæstur
ÞRÍR fjórðungar aldar eru sem
leiftur af eilífð, stutt stund i
þjóðarsögu, en í mannsævi mik-
ill hluti starfsdagsins.
í dag á Páll Erlendsson, org-
anisti og söngstjóri í Siglufirði,
að baki 75 ár. Hann er faeddur á
Sauðárkróki, 30. september
1889. Foreldrar bans voru merk-
ishjónin Erlendur Pálsson, þá
bókari hjá Gránufélagsverzlun-
inni á Sauðárkróki, síðar verzl-
unarstjóri í Grafarósi og Hofs-
ósi, og kona hans Guðbjörg
Stefánsdóttir.
Páll ólst upp í foreldrahúsum
og naut þar þess uppeldis, sem
einkenodist af fastheldni á
fornar dyggðir er framsýni og
baráttuhug fyrir öllu því, er
baett gat og fegrað, og hefur það
uppeldi mótað starfsdag hans
öðru fremur.
------------------------- 9
Kosið til
ASÍ-þings
Fulltrúar hafa verið kosnir í
eftirtöldum félögum til na.l;ta
þings Alþýð'usambands ís-
lanðs:
Verkamannafélagið Dagsbrún
I Reykjavík. Sjálfkjörinn varð
listi stjórnar Og trúnaðarmanna-
ráðs. Hann skipa 34 fulltrúar,
og er fuilltrúatala félagsins því
jafnhá og á síðasta þingi ASÍ.
Félag íslenzkra kjötiðnaðar-
manna. Félagið kaus ICristján V.
Kristjánsson fulltrúa sinn. Geir
M. Jónsson var kosinn til vara.
Flugfreyjufélag íslands kaus
Guðrúnu Ó’afsdóttur sem aðal
fullfcrúa og Guðrúnu Norberg
sem varafulltrúa.
Rausncrleg gjöf
Hann stundaði nám í Latínu-
skólanum fjóra vetur, jafn-
framt því sem hann sótti fræðslu
í orgelleik og söngmennt, en sú
menntun, samfara meðfæddri
listhneigð, skipaði honum í for-
ystusveit þeirra, er að þessum
listgreinum unnu bæði í Skaga-
firði og Siglufirði.
Páll kvæntist árið 1916 Hólm-
fríði Rögnvaldsdóttur, dóttur
Rögnvaldar Jónssonar, bónda að
Á í Unadal, og konu hans Jónínu
Björnsdóttur frá Gröf á Höfða-
strönd. Hann reisti bú að Hofi á
Höfðaströnd en fluttist þaðan
ári síðar að Þrastarstöðum í
sömu sveit, þar sem hann bjó
myndarbúi til ársins 1940, er
haxm flutti búferlum til Siglu-
fjarðar. >au hjón eignuðust fjög
ur mannvaenleg börn: Erlend,
starfsmann bæjarfógetaembættis
ins á Siglufirði, Ragnar, banka-
stjóra á Sauðárkróki, Guðbjörgu
og Guðrúnu, húsmæður í Reykja
vík.
Heima í sveit sinn tók Páll
virkan þátt í félags- og menn-
ingarmálum. Hann var organisti
í Hofskirkju í aldarfjórðung,
stofnandi og stjórnandi karla-
kórsins „>röstur“, stýrði og
blönduðum kór og var í forystu-
sveit ungmennafélagshreyfingar-
innar. >á sat hann og í skóla-
nefnd og starfaði í ýmsum fé-
lagasamtökum.
Hér í Siglufirði hefur Páll um
langt skeið verið organisti Siglu-
fjarðarkirkju, stjórnandi kirkju-
kórsins og söngkennari við
Barna- og Gagnfræðaskóla Siglu-
fjarðar. Hann hefur um árabil
annast ritstjórn og umsjón með
blaðinu „Siglfirðingi“, málgagni
Sjálfstæðismanna hér á staðnum,
Og gegnt margháttuðum trúnaðar
störfum fyrir Sjálfstaeðisflokkinn
og Siglufjarðarbæ. öll hans störf
hafa einkennzt af sterkri trú-
mennsku og borið vitni um góðar
gáfur og góðan dreng.
Við, sem höfum átt því láni að
fagna að eiga samleið með Páli
Erlendssyni, mn lengri eða
skemmri tíma, kunnum honum
þakkir fyrir viðkynningu og vin-
arhug, sem aldrei hefur fallið á
neinn skuggi. Hann hefur í lífi
sínu og starfi skapað það for-
dæmi, sem hollt er eftir að
breyta.
Og siglfizkir sjálfstaeðismenn,
eldri og yngri, þakka honum sér-
staklega fyrir marga áratuga fórn
fúst og farsælt starf í þágu sjálf-
stæðisstefnunnar. bæði í sveit og
sjávarplássi, og biðjum forsjón-
ina þess, að hann megi lengi enn
vera í fremstu víglínu í sókn til
nýrra sigra.
Sjötta og fimm ár eru stuttur
tími í þjóðarsögu en langur tími
í mannsævi. En það sem máli
skiptir, er að nota dagana og árin
í farsælu starfi, í þjónustu við
fagrar listir, í baráttu fyrir góð-
um málefnum, því þannig lifuð
ævi er liður í mótun þjóðarsögu.
Okkur, sem þekkjum afmælis-
barnið bezt, finnst sem vorþeyr
bæri gráar hærur manns, sem á
mörg ár og mikið starf að baki,
en æsku sína óskemmda í hjarta.
Stefán Friðbjarnarson.
HÉR fer á eftir skýrsla Lands-
sambands islenzkra útvegsmanna
um afla þeirra síldveiðiskipa,
sem bættu við sig í vikunni, sem
endaði á miðnætti laugardaginn
26. september.
Skv. skýrslunni er Jón Kjart-
ansson frá Eskifirði nú aflahæst-
ur með 38.487 mál og tunnur.
Þá kemur Jörundur III. frá
Reykjavik með 37.278, Snæfell,
Akureyri, með 34.153, Sigurpáll
Garði, með 31.871, Helga Guð-
mundsdóttir frá Patreksfirði með
31.646, Signrður Bjamason frá
Akureyri með 30.253, Bjarmi H.
frá Dalvik með 29.819 og Þórður
Jónasson frá Reykjavík með
29.071.
Akraborg, Akureyri 15.5)58
Akurey, Heykjavík 13.245
Amar, Reykjavík 10.434
Arnarnes, Hafnarfirðl 10.040
Amfirðingur, Reykjavfk 18.813
Ásbjörn, Reykjavík 18.74ð
Ásþór, Reykjavík 14.818
Auðunn, Hafnarfirði 7.044
Bjarmi H. Dalvík 29.819
Björgvin, Dalvík 17.530
Eldey, Keflavik 15.787
Elliöi. Sandgeröi 17.785
Fagriklettur, HafnarfirfE 9.703
Fákur, Hafnarfiröi 10.180
Faxi, Hafnarfirði 25.584
Gísli lóös, HafnarfirM 11.860
Gissur hvíti, Homafiröl 12.615
Gjafar, Vestmannaeyj\i« 17.095
Grótta, Reykjavík 25.771
Guðbjörg, ísafirði 16.387
Guðbjörg, ÓlafsfirSI 15.002
Guðmundur Péturs, Bolungarvlk 17.865
Guðmundur iÞórðarson, Rvík 14.287
Guðrún Jónsdóttir, íaafirði 27.135
Gullberg, Seyðisfirði 18.656
GulMaxi, Neskaupstaö 12.166
Gunnar, Reyðarfirði 18.759
HafJ>ór, Neskaupetað 10.377
Hamravík, Keflavík 20.650
Hannes Hafstein, Dalvik 25.604
Héðinn, Húsavík 20.382
Heimir, Stöðvarfirði 13.010
Helga Guðmundsdóttir, Patreksf. 31.646
Helgi Flóventsson, Húsavac 18.089
HoffeU, Fáskrúðsfirði 17.042
Hólmanes, Keflavík 12.999
Húni, Höfðakaupstað 2.345
Húni II. Höfðakaupstað 9.499
Ingiber Ólafsson, Njarðvík 10.068
Ingiber Ólafsson n. Njarðvík 3.5»
Ingvar Guðjónsson, Hafnarfirði 5.564
Jón Kjartansson, Eskifirði 38.487
Jörundur III., Reykjavík 37.27Ö
Lotftur Baldvinsson, Dalvík 23.689
Mánatindur, Djúpavogi 12.374
Marz, Vestmannaeyjum 12,222
Náttfari, Húsavík 20.959
Oddgeir, Grenivík 21,232
Ólafur btíckur, Ólafsfirðl 14.784
Ólatfur Magnússon, Akureyrl 23.029
Ólafur Tryggvason, Homafirði 4.921
Óskar Halldórsson, Reykjavík 5.291
Páll Pálseon, Sandgerði 4.357
Pétur Jónsson, Húsavfk 9.831
Pétur Sigurðsson, Reykjavflc 14.021
Seley, Eskifirði 18.701
Siglfirðingur, Sig-Rufiröl 10.007
Sigurður Bjamason, Akureyr! 30.253
Sigurður Jónsson, Breiðtíalsviik 18.633
Sigurpáll, Garði 31.871
Sigurvon, Reykjavík 19.639
Skálaberg, Seyðisfirði 4.885
Snæfell, Akureyri 34.153
Snæfugl, Reyðarfirði 8.833
Sólrún, Bolungarvík 13.600
Steingrímur trölli, EskiíLrði 15.211
Súlan, Akureyri 19.884
Sunnutindur, Djúpavogi 16.182
Vattarnes, Eskifirði 16.879
Viðey, Reykjavik 19.723
Víðir, Eskifirði 14.399
Víðir II, Garði 17.969
Vigri, Hafnarfirði 20.710
Vonin, Keflavík 23.321
Þórður ónasson, Reykjavfk 29.071
Þórkatla, Grindavík 8.840
Þráinn, Neskaupstað 12.342
Ráðinn útibú-
stjóri Lands-
bankans á
Akranesi
Á FUNDI bankaráðs Lands-
banka íslands á þriðjudag var
Sveinn Elíasson ráðinn útibú-
stjóri bankans á Akranesi.
Sveinn hefur veitt útibúi Lands-
banka íslands á Langholtsvegi
forstöðu.
bum og fullkomni fiskiskipa-
floti sennilega veitt töluvert
meira. — En þá mundu þeir
aðaiiega veiða fyrir skatt-
heimtumenn ríkisins, eða svo
sagði Stefán Jónsson í útvarp-
inu í fyrrakvöld.
>ANN 27. ágúst s.l. barst Frí-
kirkjusöfnuðinum í Reykjavík að
gjöf kr. 30.000,00 til minningar
um 100 ára afmæli hinna mætu
hjóna Dagfinns Bjöms Jónsson-
ar, sjómanns, og eiginkonu hans
Halldóru Elíasdóttur, en þau
voru meðal stofnenda Fríkirkju-
safnaðarins. — Stjórn Fríkirkju
safnaðarins vill ekki láta hjá líða
að þakka gefendunum, sem eru
börn þeirra hjóna: Elías, Einar,
Ólafur, Guðmundur, Sigríður og
Sesselja, þessa rausnarlegu gjöf,
og það hlýja hugarfar til Frí-
kirkjunnar, sem að baki liggur.
Gjöfingi verður varið til fegr-
unar kirkjunni og verður hún, þá
um leið, fagur minnisvarði um
þau hjónin um ókomin ár.
Stjóm Fríkirkjusafnaðarins
í Reykjavík.
Bv, Hafliði
selur ytra
SIGLUFIRÐI, 29. sept.
Siglufjarðartogarinn Hafliði er
nú á leið til Englands með um
það bil 100 tonn af fiski. Hann
selur væntanlega næstkomandi
fimmtudag. — Stefán.
Keflvíkingar
Kefivíkingar tóku vel á
móti íslandsmeisturunum sín-
um. Ef slíkar móttökur em
ekki uppörfandi fyrir knatt-
spymumennina syðra, þá veit
ég ekki hvað það væri, sem
gera ætti. Kannski ætla Kefl-
vikingarnir sér nú að reyna
að taka það sæti, sem Akur-
nesingar skipuðu lengi. Ég hef
það líka á tilfinningunni, að
Akurnesingarnir hafi ekki
gætt þess nógu vel að ala upp
nýja kappa. >á væru þeir
sennilega enn á tindinum.
En vafalaust eru ýmsir erfið
leikar á að byggja upp öflugt
íþróttalíf í bæjum, sem
byggja mikið á sjósókn. >ví
oft eru það vöskustu strákarn-
ir, sem fara á sjóinn og era
ekki heima nema með höppum
og glöppum.
Grott fordæmi
Nú malbika þeir í gríð og
erg á Selfossi. >etta eru ekki
aðeins góðar fréttir fyrir íbúa
staðarins, heldur fyrir alla,
sem aka bíl. Hér er stigið skref
í rétta átt — og betra er seint
en aldrei.
Ýmis bæjarfélög stofnuðu
með sér félag til kaupa og
reksturs nýrra tækja til gatna-
gerðar og voru bundnar mikl-
ar vonir um að samtök þau
mundu lyfta þungu hlassi.
Ýmsir munu hafa verið einum
of bjartsýnir og hafa ísfirð-
ingar nú keypt allar vélarnar.
Má því ætla að þar verði hver
spotti malbikaður innan
skamms tíma — og vonandi
hafa aðrir bæir einhver ráð til
að hrinda þessu framfaramáli
í framkvæmd hjá sér. Fordæm
ið, sem Reykjavík hefur gefið
í sumar, ætti að verða mörg-
um uppörvun.
Enn eitt metið
Nú hafa sjómennirnir siegið
öll fyrri met í síldarafla. Menn
fara sjálfsagt að spyrja sjálfa
sig hvort hægt sé að slá metin
í það óendanlega, einkum þeg-
ar þess er gætt, að Jakob hinn
margvísi Jakobsson segir, að
síldin í sjónum eystra — og
hér syðra — dugi ekki nema
fyrir svo og svo mörg skip.
Án þess að vanþakka á neinn
hátt gjafir Guðs verður það að
játast, að síldaraflinn er alls
ekki neitt stórfenglegur, þegar
tekið er tillit til afkastagetu
íslenzka síldveiðiflotans. En
auðvitað verður alltaf að
reikna með ógæftum og öðrum
töfum, þannig er það víst með
allar veiðar hverju nafni, sem
þær nefnast. Ef flotinn gæti
hins vegar verið að frátafa-
lítið allt sumarið — og ekki
yrðu neinar löndunartafir, sem
um munaði, gæti þessi vel út-
Met-skattar
Síldarhappdrættið er einmitt
gott dæmi um þær hættur, sem
skattheimtukerfið skapar okk-
ur. Nú er metár og þorri sjó-
manna mun því greiða ein»
konar „met-skatta“, en ekki
fyrr en á næsta ári. Hvernig
fæm þeir að, ef þá áraði illaT
Fæstir leggja fyrir núna til
þess að eiga fyrir skattinum
næsta ár. >að væri þýðingar-
laust að brýna fyrir mönnum
að gera það. >að er víst orðinn
vani á íslandi að festa allt
handbært fé — og meira e»
það. Sjómennirnir eru í raun-
inni nauðbeygðir til að setja
annað met næsta sumar. Ekki
höfum við landkrabbarnir
neitt á móti því.
Kaupið það bczta
RAFHLOÐUP
fyrir transistor viðtæki.
Bræðurnir Ormsson
Vesturgötu 3, sími 11467