Morgunblaðið - 27.11.1964, Blaðsíða 1
28 siðwr
Sjóslys
í þoku
Flutningur særðra frá Staniey ville
200 gislum bjargað
frá borginni Paulis
— 17 drepnir tvo síðustu daga
Starfi belgiska fallhlífaliðsins
lokið innan 48 klst. segir Spaak j
|| Brússel, Leopoldville,
! 26. nóv. — (AP-NTB) —
'<* BELGÍSKIR fallhlífaher-
menn héldu í dag áfram að
bjarga hvítum gislum upp-
reisnarmanna í Kongó. Gerðu
þeir áhlaup á hæinn Paulis,
sem er tæpa 400 km fyrir
norðan Stanleyville og tókst
að bjarga tvö hundruð gisl-
«m. Fólkið var allt flutt til
Leopoldville.
Til Briissel komu í dag 70
flóttamenn, er verið höfðu í
Stanleyville og voru ófagrar
lýsingar þeirra á meðferðinni,
er þeir höfðu hlotið. Baudou-
ín konungur og Fabiola
drottning hans tóku á móti
fólkinu á flugvellinum og
nrðu mjög hrærð af frásögn-
um þess.
Paul Henri Spaak, utan-
ríkisráðherra Belgíu til-
kynnti í kvöld á fundi með
fréttamönnum, að starfi belg-
ísku fallhlífasveitanna í
Kongó yrði lokið eftir 48 klst.
í síðasta lagi — og þeir yrðu
allir komnir heim til Belgíu
n-k. miðvikudag.
• FREGNIR frá Elizabethville
í kívöld hermdu, að upp-
reisnarmenn hefðu aftur náð á
sitt vald námuhorginni Punia,
sem er 240 km norður af Kindu.
Var flugvöllurinn þar notaður
til bir,gðaflutninga til stjórnar-
hersins, sem réðist inn í Stanley
ville á þriðjudag. Bærinn Punia
er mjög mikilvægur vegna sam-
gangna milli Leopoldville og
Stanleyville og getur þetta
því haft alvarlegar afleið-
ingar fyrir herliðið þar. f
AP frétt segir, að taka Punia sé
mikið áfall fyrir Thsombe og
merki þess, að stjórnarliðinu
muni ekki takast að fylgja nægi
lega eftirþeim sigrum, er það
vinni á uppreisnarmönnum.
Borgin Paulis, sem er um 390
kim norður af Stanleyville og
telur um fimm þúsund íbúa, var
stærsta borgin, sem uppreisnar-
menn höfðu enn á sínu valdi í
norðurhluta landsins. Þar lentu
belgískir fallhlífahermenn, 267
að tölu, í dögun og höfðu síð-
degis í dag bjargað um tvö
hundruð gislum, þar af 51
belgiskum, 54 grískum og sjö
bandarískum. Heðal hinn bel-
gísku voru 20 dominikana-munk
ar.
Belgíska fallhlífaliðið hafði til
umráða sjö bandarískar flug-
vélar af gerðinni C-130 og lentu
allar heilu og höldnu. Fjórar
urðu fyrir skotum uppreisnar-
manna en löskuðust aðeins lítil
lega. Að sögn bandaríska sendi-
Framh. á bls. 27
New York, 26. nóvember
— (AP-NTB) —
A Ð minnsta kosti sextán
manns druknuðu í morgun,
er norskt olíuflutningaskip,
„Stolt Dagali“, lenti í árekstri
við ísraelskt farþegaskip
„Shalom“, 65 km fyrir utan
höfn New York-borgar. —
Svartaþoka var á og rigning
en sjólítið. Skipið brotnaði
í tvennt við áreksturinn og
sökk afturhlutinn fljótt. —-
„Shalom“ laskaðist niikið, en
komst þó af eigin ramleik til
hafnar í New York.
• Á norska skipinu var 43
manna áhöfn og björguðust 25
þeirra. Tveggja var enn saknað,
er síðast fréttist, en vitað, að 16
höfðu farizt. Á israelska skip-
inu voru um það bil 600 farþeg-
ar auk 460 manna áhafnar og
skemmtikrafta. Engan sakaði af
skipinu — ein kona var að vísu
flutt í sjúkraflutningi til lands
eftir slysið, en veikindi hennar
voru ekki af þess völdum. Norsku
skipbrotsmennirnir voru fluttir í
sjúkrahús í New Jersey.
• Áreksturinn varð um 300
km. frá staðnum, þar sem ítalsk*
Framh. á bls. 27
Eldur lagöur í
bifreiðar, - rúður
hús og
brotnar
London, 26. nóv. AP-NTB
★ Kommúnistaríkin og
nokkur Afríkuríki héldu í
dag áfram hörðum árásum á
Belga og Bandaríkjamenn
vegna atburðanna í Kongó. í
kvöld hermdu fregnir frá
Kairo, að upplýsingaskrif-
stofa bandaríska sendiráðsins
stæði í björtu báli. Hafðí
fjöldi manna safnazt saman
við sendiráðið í dag, reynt að
ráðast þar til inngöngu,
brotið rúður og lagt eld í
bifreiðir.
★ í Nairobi í Kenya fóru
hundruð manna hópgöngu að
sendiráðum Belgíu og Bandaríkj
anna og höfðu uppi spjöld með
áletrunum „Sendum Mau JVIau
til að berja á Thsombe og „Rek
am aila Bandarikjamenn og
Belga frá Kenya“. Voru bifreið-
ir brenndar og sendiráðsbygging
ar grýttar. Sá sem skipulagði
aðgerðirnar í Nairobi var
Sammy Maina, formáður stjórn-
arí'okksins KANU í borginni.
Sagði liann fréttarr.mnum, að
hann og fylgismenn hans krefð-
ust vopnaðrar íhlutunar Afríku-
ríkja í Kongó — þó svo það'
kosti þriðju heimstyrjöldina“ —
eins og hann komst að orði.
ár Frá Vínarborg herma fregn
ir, að Afríkustúdentar við nám
í Prag hafi gert aðsúg að banda-
ríska sendiráðinu og grýtt bygg
inguna. Símaði einn starfsmað-
ur sendiráðisins til Vínar að all-
ar rúður á fyrstu tveim hæðum
sendiráðsins væru brotnar og
ólf bifreiðar starfsmanna þ«ss
meira og minna skemmdar.
Lögreglan kom fljótt á vett-
'vang, er hún var til kölluð og
dreifði stúdentunum — em ekki
leið á löngu áður en þeir hófðu
flykkzt að brezka sendiráðinu
Voru nokkrar rúður brotnar þar
Fraimhald á bls. 27.
Paul Carlsson.
Hann var gæddur
miklu hugrekki
ÞEGAR bandaríska utanríkis-
ráðuneytið tilkynnti fjöl-
skyldu trúboðslæknisins Pauls
Carlssons, að hann hefði orð-
ið meðal fórnarlamba villi-
mennskunnar í Stanleyville,
gáfu faðir hans, Gus Carlsson
og bróðir, Dwight, sem einn-
ig er læknir, út sameiginlega
orðsendingu. Þar sagði með-
al annars, að þrátt fyrir þær
tilfinningar sorgar, er þrúg-
uðu hjörtu þeirra, minntust
þeir orða móður þeirra frá
fyrri árum. Hefði hún látið
Framhald á bls. 21