Morgunblaðið - 27.11.1964, Blaðsíða 8
MORGUNBLADID
Fostudágur 27. nóv. 1964
*
waEHHm
Frumvarp um veitingu
prestakalla
MENNTAMÁLANEFND Neðri
deitdar hefur flutt frumvarp um
veitingu prestakalla. Er það 6-
breytt frá frumvarpi, sem flutt
var á Alþingi 1962-1963. Aðal-
efni þess er, að prestar skuli
kosnir af kjörmönnum, en þeir
eiga að vera samkv. frumvarp-
inu sóknarnefndir og safnaðar-
fulltrúar prestakallsins. Þá er
einnig gert ráð fyrir því, að
katla megi prest þ.e. velja hann
án umsóknar, ef % kjörmanna
ern um það sammála.
Fer frumvarpið í heild hér á
eftir.
1. gr.
Þagar prestakall losnar og
prestur er eigi kallaður til em-
bættisins (sbr. 6. gr.), auglýsir
biskup kallið ' með hæfilegum
umsóknarfresti.
2. gr.
Að liðnum umsóknarfresti
sendir biskup prófasti hlutaðeig-
andi prófastsdæmis, sé hann eigi
umsækjandi, svo og sóknarnefnd
um prestakallsins, skrá yfir þá,
er sótt hafa ásamt skýrslu um
aldux þeirra, náms- og embættis
feril og störf. Jafnframt sendir
hann prófasti næigilega marga
atkvæðaseðla með nöfnum um-
sækjenda og felur honum að
boða kjörmenn prestakallsins á
<
IALL5 r l /
\JXISRj2iS \
Vélapakkningar
Ford ameriskur
Ford Taunus
Ford enskur
Chevrolet, flestar tegundii
Buick
Dodge
Piymoth
De Soto
Chrysler
Mercedes-Benz. flestar teg.
Volvo
Moskwitch, allar gerðir
Pobeda
Gaz ’59
Opel. flestar gerðir
Skoda 1100 — 1200
Renault Dauphine
Volkswagen
Bedford Diesel
Thames Trader
BMC — Austin Gipsy
GMC
Þ. Jónsson & Co.
Brautarholti 6,
Simi 15362 og 19215.
sameiginlegan fund innan til-
tekins tíma. Kjörmenn eru: Sókn
arnefndarmenn og safnaðarfull-
trúar prestakallsins (aðalmenn).
Fyrsti varamaður tekur sæti aðal
manns, ef forfallaður er. Sé pró
fastur héraðsins umsækjandi um
kallið, nefnir biskup annan pró-
fast í hans stað.
3. gr.
A kjörmannafundi skulu um-
sóknir ásamt umsögnum bisk
ups liggja frammi til athugunar.
Fundurinn er lokaður, og stýrir
prófastur honum. Ef meiri hluti
kjörmanna samþykkir, að kjör
skuli fram fara, skal það fram-
kvæmt með þeim hætti, sem seig-
ir í . gr. Að öðrum kosti ráðstaf-
ar kirkjumálaráðherra embætt-
inu samkvæmt tillögu biskups.
4. gr.
Ef samþykkt er, að kjör fari
fram, ákveður prófastur kjör-
fund kjörmanna þá þegar eða
næsta dag hið síðasta. Kjörfund-
ur er lokaður, og stýrir prófast-
ur honum. Fer þar fram leyni-
leg, skrifleg atkvæðagreiðsla um
umsækjendur. Prófastur afhend-
ir hverjum kjörmanna einn at-
kvæðisseðil, og setur kjörmaður
kross framan við nafn þess, er
hann kýs. Prófastur skilar at-
kvæði á sama hátt. Að lokinni
atkvæðaigreiðslu eru atkvæði inn
sigluð og send biskupi í póst-
ábyrgð, ásamt afriti af gerðabók
kjörfundar. Verði ágreiningur
um undirbúning eða framkvæmd
kosningar eða hún kærð, fellir
kjörstjórn úrskurð um málið.
Kjörstjórn skipa, auk biskups,
2 menn, er kirkjumálaráðuneyt-
ið skipar til 5 ára í senn.
J 5. gr.
Þegar kjörstjórn hefur kynnt
sér niðurstöður kjörfundar, send-
ir biskup afrit af bókun hennar
til kirkjumálaráðherra, ásamt
rökstuddri tillöigu sinni um veit-
ingu. Biskup styður með tillögu
sinni þann umsækjahda, er hlot-
ið hefur % atkvæða kjörmanna.
Skal veita honum embættið, enda
telst hann hafa hlotið lögmæta
kosningu. Nái umsækjandi
ekki % tkvæða kjörmanna,
telst kosningin ólögmæt, og mæl-
ir biskup þá með tveimur umsækj
endum, ef um fieiri en einn er
að ræða ,er hann telur, þegar
tillit er tekið til allra aðstæðna,
standa næst því að hljóta em-
bættið, og í þeirri röð, sem næst
liggur að hans dómi. Veitir ráð-
herra því næst embættið öðrum
hvorum þessara tveggja.
6. gr.
Heimilt er kjörmönnum að
kalla prest. Ef 3A kjörmanna
prestakallsins eru einhuga um
að kalla tiltekinn prest eða guð-
FASTEIGNA-OG VERÐBRÉFASALA
Til sölu
Glæsilegt einbýlishús í Holtagerði í Kópavogi. Húsið er
á einni hæð 188 ferm. fyrir utan bílskúr. í húsinu eru
5 svefnherbergi, húsbóndaherbergi, 3 stórar stofur,
stórt eldhús 2 snyrtiherb., þvottahús og 2 geymsluherb.,
annað ætlað fyrir kalda geymslu. Húsið er einstaklega
fallegt og alit haganlega fyrir komið. Húsið selst fok-
helt.
Olaffur Þorgrímsson hri.
Austurstræti 14, 3 hæö - Sími 217B5
fræðikandidat án umsóknar, gera
þeir prófasti viðvart um það í
tæka tíð, en hann tilkynnir bisk-
upi, sem felur þá prófasti að
boða kjörmenn prestakallsins á
sameiginlegan fund innan viku,
og er þá embættið eigi auiglýst.
Samþykki % kjörmanna að kalla
tiltekinn mann til embættisins,
sem lögum samkvæmt á rétt til
prestsembættis í íslenzku þjóð-
kirkjunni, skal biskup birta köll-
unina þeim presti eða kandidat,
sem í hlut á. Taki hann köllun,
skal veita honum embættið, ella
er embættið auglýst til umsókn-
ar.
7. gr.
Prestsembættin að Skálholti,
Hólum og Þingvöllum veitir for-
seti íslands samkvæmt tillöigu
biskups og kirkjuráðs.
8. gr.
Setja má reglugerð, er kveði
nánar á um framkvæmd þessara
laga.
í greinargerð með frumvarp-
inu segir m.a.:
Menntamálanefnd flytur frv.
þetta samkvæmt ósk dóms- og
kirkjumálaráðherra. Einstakir
nefndarmenn áskilja sér allan
rétt í afstöðu sinni til málsins og
hafa um það óbundnar hendur.
Frumvarp þetta er óbreytt frá
fmmvarpi, er flutt var af mennta
málanefnd neðri deildar Alþing-
is á 83. löggjafarþingi, 1962-1963,
188. mál, þingskjal 362.
Frumvarpið var sent mennta-
málanefnd neðri deildar aftur af
kirkjumálaráðherra 23. október
1964 með tilmælum um, að nefnd
in flytti það, þegar fengin væri
umsögn kirkjuþings um málið,
en það hafði ekki hlotið af-
greiðslu á 83. löggjafarþinigi.
IV. kirkjuþing var háð í Reykja
vík daganna 25. október til 6.
nóvember 1964.
Frumvarpið var lagt fyrir
kirkjuþingið, sem samþykkti það
óbreytt eftir tvær umræður og
athugun í nefnd milli umræðna.
í greinargerð með sams konar
frumvarpi, sem flutt var á Al-
þingi 1962-63 og vísað er til í
þessu frumvarpi sagði m.a.:
FrumvarpiS miðar að því að
bæta úr þeim meinbugum, sem
fylgja gildandi lögum um veit-
ingu prestakalla. Samkvæmt því
skulu almennar prestskosningar
lagðar niður, en íhlutun safnað-
anna um val á prestum sínum
tryggð á annan veg, þ. e. með
því, að þeir menn, sem söfnuðirn
ir velja til forgöngu í málefnum
sínum, sóknarnefndarmenn og
safnaðarfulltrúar, fjalli um málið
og greiði atkvæði um umsækjend
ur.
Eðlilegt er, að prófastur hafi
umsjón með framkvæmd þessar
ar kosningar og hafi atkvæðis-
rétt, enda er líkur háttur hafður
í Danmörku og Noregi, þar sem
sóknarnefndir gera tillögur um
veitingu prestsembætta á hlið-
stæðan hátt og hér er gert ráð
fyrir. Skv. 5. gr. frv. skal veita
þeim umsækjanda embættið, er
hlýtur % atkvæða fyrrnefndra
kjörmanna, og verður þá aðstaða
veitingavaldsins hin sama og skv.
gildandi lögum þegar kosning er
lögmæt. Hljóti enginn umsækj-
enda slíkan stuðninig kjörmanna,
mælir biskup meið tveimur um-
sækjendum, ef um fleiri en einn
er að ræða, eftir því sem hann
telur eðlilegast, en kirkjumála-
ráðherra veitir öðrum hvorum
embættið.
Skv. 6. gr. geta trúnaðarmenn
kallað prest án umsóknar, ef
nægilega margir þeirra eru ein-
huga um að kveðja tiltekinn
mann til þjónustunnar. Þykir
eðlilegt að gera ráð fyrir þess-
um möguleika, og má ætla, að vel
gæfist.
í þjóðkirkjum nágrannaland-
anna eru allmörg prestsembætti
undanþegin almennUm ákvæð-
um um veitingu. Veldur því bæði
eðli embættanna sjálfra og svo
hitt, að kirkjunni er nauðsyn að
hafa einhver embætti til ráð-
stöfunar handa sérstökum verð-
leikamönnum. Þykir eðlilegt, að
slík sérstaða sé löigákveðin um
prestsembættin á hinum fornu
biskupssetrum og á Þingvöllum.
Sóknarnefndir
Jafnhliða frumvarpinu um
veitingu prestakalla hefur verið
útbýtt frumvarp frá menntamála
nefnd N.d. um breyting á lög-
um um skipun sóknarnefnda og
héraðsnefnda. Það felur í sér
tvær meginbreytingar á gildandi
lögum:
1. Lagt er til, að sóknarprestar
og safnaðarfulltrúar sitji
fundi sóknarnefnda, en hafi
þó ekki atkvæðisrétt á fund
unum.
2. Gert er ráð fyrir fjölgun
sóknarnefndarmanna í fjöl-
mennum prestaköllum í allt
að 11 menn (auk safnaðar-
fulltrúa og sóknarprests).
1 greinargerð með frumvarp-
inu segir m.a.
Lögin um sóknarnefndir frá
1907 eru orðin það gömul, að
e'ðlilegt er, að þau samsvari ekki
að öllu leyti kröfum breyttra
tíma. Sú breyting á lögunum,
sem hér er lögð til, miðar að
því, að sóknarnefndir geti orðið
virkari starfsaðili í safnaðarlíf-
inu, einkanlega í hinum fjöl-
mennari prestaköllum, og jafn-
framt með tilliti til þeirrar
auknu ábyrgðar, sem þeim yrði
fengin, ef lögum um veitingu
prestakalla yrði breytt á þann
veg, sem lagt er til í frumv. því
um þáð efni, sem kirkjuþing 1962
samþykkti.
Sameinaðþing
Á fundi Sameinaðs þings í gær
var lokið umræðum um þings-
ályktunartillögu Ólafs Björns-
sonar um aðstoð við þróunar-
löndin. Var tillögunni vísað til
utanríkismálanefndar. Þá var
þingaályktunartiil. um héraðs-
skóla að Reykhólum og þings-
ályktunartill. um aflatrygginga-
sjóð sjávarútvegsins vísað til 2.
umr. og allsherjarnefndar.
Efri deild
LANDSKIPTALÖG.
Karl Kristjánsson (F) gerði
grein fyrir frumvarpi, sem hann
og Ólafur Jóhannesson flytja í
sameiningu, um breytingu á
landskiptalögum, þannig að á-
kvæði þeirra laga verði ljós um
það, að enginn eigandi sameign-
arlands megi, án samþykkis hins,
eða hinna, ef fleiri eru, sem land
ið eiga, hagnýta óskipt verð-
mæt jarðefni sameignarinnar,
hver sem þau eru, nema til heim
ilisnota fyrir sjálfan sig. Var
frumv. vísað til 2. umr. og nefnd-
ar.
IMeðri deild
Leiklistarstarfsemi áhugamanna.
Pétur Pétursson (Alþfl.) gerði
grein fyrir áliti menntamála-
nefndar um frumvarp um leik-
listarstarfsemi áhugamanna.
Sagði hann, að nefndin hefði orð
íð sammála um, að mæla með
frumvarpinu. Væru nefndar-
menn sannfærðir um, að yrði
þetta frumvarp að lögum, þá
myndi það verða öflugur stuðn-
ingur við leiklistarstarfsemi á-
hugamanna.
Menntamálanefnd hefur lagt
fram breyti.ngartiLlögur við
frumvarpið, og eru helztu breyt-
ingarnar, sem í þeim felast frá
frumvarpinu þær, að auk A- og
B-flokks sýninga komi C-flokk-
ur, sem taki til þeirra félaga,
sem sýna að minnsta kosti eitt
leikrit á ári, sem sérstaklega er
ætláð börnum og sé fullgild sýn-
ing. Er þetta gert í því skyni að
styrkja sérstakilega sýningar
barnaleikrita. Önnur aðalbreyt-
ingin er sú, að veita megi sér-
stakan aukastyrk, ef um íslenzk
leikrit er að ræða, enda þótt
ekki sé verið að frumsýna þau.
Pétur Pétursson ræddi einnig
um breytingartillögu, sem fram
hefur komið frá Sigurvini Einars
syni o.fl. um, að Bandalag ísL
leikfélaga hefði afskipti af því,
hvernig því fé yrði úthlutað; sem
veitt er til þessara mála. Taldi
hann þáð eðlilegra, að mennta-
málaráð ákveði, hvernig því fé
yrði úthlutað.
Tvö leikfélög í Hafnarfirði og
á Selfossi, hefðu mælt með því,
að þetta frumvarp yrði sam-
þykkt.
Var síðan samþykkt, að vísa
frumvarpinu svo breytu til 3.
umr. en áður hafði Sigurvin Ein-
arsson gert nokkra grein fyrir
breytingartillögu sinni, sem var
felld.
Endurálagning útsvars og tekju-
skatts.
Framhald var á 1. umr. frum-
varps Lúðvíks Jósefssonar o.fL
um endurálagningu útsvars og
tekjuskatts. Var frumvarpinu
vísað til 2. umr. og fjárhags-
nefndar, eftir að nokkrar um-
ræður höfðu orðið um það, en
þar töluðu Einar Ágústsson, Lúð
vík Jósefsson og Edvarð Sigurðs-
son.
Ekkert nýtt kom fram í um-
ræ’ðunum.
rafveitustjóri.
Sjálfstæðisfólk
á Akureyri
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN k
Akureyri efna til fundar næst-
komandi sunnudag kl. 14 í Sjálf-
stæðishúsinu, litla sal. Á fund-
inum flytur Knútur Otterstedt,
rafveitustjóri, erindi um RAF-
MAGNSMÁL með sérstöku til-
liti til Norðurlands. Magnús
Jónsson, alþingismaður, mætir á
fundinum. — Allt Sjálfstæðis-
fólk er velkomið á fundinn.
Þegar Mbl. skýrði frá þessum
fundi sl. þriðjudag í frétt, urðu
þau mistök, að með fréttinni
birtist mynd af föður Knúta
Ottersteds og nafna, Knut Ott-
ersteds, fyrrverandi rafveitu-
stjóra. Mbl. biður velvirðingar
á þessu.
Málverkin seld-
ust öll
MÁLVERKASÝNIN GU Sigurð-
ar Kristjánssonar sem haldin var
í Lidó, laug á miðvikudagskvöld
ið með uppboði, en þar voru all-
ar myndirnar boðnar upp af
Kristjáni Fr. Guðmundssyni,
málverkasala. Á sýningunni var
41 málverk og seldust þau ölL