Morgunblaðið - 27.11.1964, Blaðsíða 5
T Föstudagur 27. nóv. 1964
MQRGUNBLADI1
5
' , ! *
De Gaulle ruk á TáBknafirðS
Víða konia l’rakkar við á landi okkar. Þeir fiskuðu fyrrum við strendurnar, þeir stukku fyrstir á
land í Surtsey. þeir sendu eldflaugar á loft á Mýrdalssandi, og síðast en ekki sízt er loksins Charles
de Gaulle fundinn vestur í Tálknafirði!
Til okkar á blaðið kom í fyrradag tvítuguÞ’ piltur vestan vir Tálknafirði, Stefán Kristjánsson til
heimilis á I.ambeyri þar. Hann hafði meðferðis st ein, sem fundinn var þar á fjörunum. Og svo sem
6já má, er steinninn eins og lítil veggmynd af de Gaulle. Sveinn Þormóðsson gapti af undrun, þegar
hann tók myndma hérna úti í Aðalstræti.
Stefán sagðist safna steinum, ekki bara svona skrýtnum steinum, heldur einnig alls konar teg-
nndum. F.kki kvaðst hann vilja senda hershöfð ingjanum steininn.
Gaman hefði verið að sjá frásögn um þetta í gömlum snnáium. Þetta heFði vafalaust táknað
undur og stórmerki, og þar staðið eitthvað á þessa leið: „Andlitið af einum frakkneskum generál rak
á fjörur í Tálknafirði vestra, samtímis sást þar rosabaugur kringum tunglið. Þótti vera fyrir vætutíð."
Akranesferðir með sérleyfisbílum Þ.
Þ. Þ. Afgreiðsla hjá B.S.R. Frá Reykja
vík alla virka daga kl. 6. Frá Akra-
nesi kl. 8, nema á laugardögum ferðir
frá Akranesi kl. 8 og kl. 2 frá Reykja-
vík kl. 2 og 6. Á sunnudögum frá
Akranesi kl. 3 og 6:30. Frá Reykjavík
kl. 9 og 12 á miðnætti.
Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug:
Skýfaxi fer til Bergen, Osló og Kaup-
mannahafnar kl. 08:00 í dag. Vélin er
Storkurinn
sagði
að nú væri hann fyrst alvar-
lega hræddur, því að hingað nið-
ur á blað, þar sem ég var að
pára, af minni venjulegu lífs-
gle'ði, þanka um lífið og tilver-
una, kemur alt í einu maður ark-
andi, brúnaþungur, skáld nefnd
ur, og hefur stundum verið að
keppa um hylii mína hér á síð-
unum með rímum.
Maðurinn bað mi.g blessaðan,
sagði storkurinn, og hefur senni-
lega elcki verið alltof vel að sér
í fuglafræðum að vita ekki að
ég, var sjálfur storkurinn, að
snúa nú bannsettan storkinn úr
hálsliðnum!
Það fór hrollur um mig all-
an, ég sem hélt, að ég gerði frek-
ar að gleðja en hitt, en auðvitað
eru alltaf til einhverjir geð-
vonskupúkar, sem kunna ekki
að taka sakiausu gríni.
En ég er áð hugsa um að hafa
þjóðaratkvæðagreiðslu meðal les
enda minna, nokkurskonar skoð-
annakönnun, hvort ég á að halda
áfram að fljúiga og segja ykkur
frá ýmsum hlutum, eða ég á
hreinlega að fljúga inn í BORG,
og biðja Þorbjörn, formann Dýra
verndunarfélagsins að snúa mig
úr hálsliðnum^
Atkvæ’ðaseðiar sendist dagbók-
inni sem allra fyrst, því að líf
mitt er í veði, sagði storkurinn
og með það flaug hann upp á
Fossvogskirkju og horfði tárvot-
um augum yfir kirkjugarðinn í
Fossvogi.
Hœgra hornið
Það er nógu skrýtið, að ríkir
menn eru oft hræddir við að
verða fátækir, en fátækir menn
eru aldrei hræddir við að verða
ríkir.
væntanleg aftur til Rvíkur kl. 16:05
(DC—6B) á morgun. Sólifaxi fer til
London kl. 08:30 í dag. Vélin er vænt
anleg afitur til Rvikur kl. 19:25 á morg
un. Sólfaxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:00 í fyrramálið.
Innanlandsflug:
í dag er áætlað að fljúga til Akureyr-
ar (2 ferðir), Vestmannaeyjar, Fagur-
hólsmýrar, Hornaf jarðar, ísafjarðar
og Egilsisitaða.
Á morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar (2 ferðir), Vestmannaeyj-
um, Sauðárkróks, Húsavíkur, ísafjarð
ar og EgiLsstaða.
Loftleiðir h.f.: Leifur Eiríksson er
væntanlegur frá NY kl. 07:00. Fer til
NY kl. 02:30. Bjarni Herjólfsson fer
til Glasgow og Amsterdacm kl. 08:00.
Er væntanlegur til baka frá Amster-
dam og Glasgow kl. 01:00. Snorri
Sturluson fer til Oslóar, KauFwnanna-
hafnar og Helsingfors kl. 08:30.
H.f. Eimskipafélag íslands: Bakka-
fos sfór frá Haugasund 25. þm. til
Rvíkur. Brúarfoss kom til Rvíkur 24.
þm. frá HuLl Dettifoss fer frá NY
2. des. til Rvíkur. FjalLfoss fer frá
Raufarhöfn 27. þm. til Vopnafjarðar,
Seyðisfjarðar og Reyðarfjarðar. Goða-
foss fór frá Reykjavík 26. þm. til Ham
borgar. Gullfoss fór frá Hamborg 1
morgun 27. þm. til Kaupmannahafnar.
Lagarfoss fór frá Keflavík 21. þm. til
GLoucester, Camden og NY. Mánafoss
fer frá Sauðárkróki 26. þm. til Aust-
fjarðahafna. Reykjafoss kom til Vents
pils 26. þm. fer þaðan til Gdynia,
Gdansk og Gautaborgar. Selfoss fer
frá Rvík 27. þm. til Vestmannaeyja,
Rotterdam og Hamborgar. Tungufoss
fer frá Hull 27. þm. til Rvíkur.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.:
Katla var væntanleg í morgun til Pir-
aeus frá Kanada, Askja fór frá Kaup ;
mannahöfn s.l. miðvikudag áleiðis til |
Rvíkur.
Hafskip h.f.: Laxá lestar á Austur-
landshöfnum. Rangá fór frá Rvík í I
gær til Vestmannaeyja og Austfjarð-
arhafna. Selá er í Antwerpen, fer það
an í kvöld til Hull. Skærn fór frá ]
Eskifirði 25. þm. til Gdynia.
H.f. Jöklar: Drangajökull fór frá j
Riga 22. þm. til íslands. Hofisjökull fór j
í gærkveldi frá Pietersaari til Hels-
ingfors og Riga. Langjökull fór 18.
þm. frá NY til Le Havre og Rotter-
dam og þaðan til Hamborgar og Rvík-
ur. Vatnajökull kom 1 gær til Lond-
on frá Avonmouth.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á |
leið frá Austfjörðum til Rvíkur. Esja
fer frá Rvík í kvöld austur um land ,
í hringferð. Herjólfur fer frá Rvík !
kl. 21:00 í kvöld til Vestmannaeyja.
ÞyriLl fer frá Sandefjord í dag áleiðis
til íslands. Skjaldbreið er í Rvtk.
Herðubreið er í Rvík.
Skipadeild S.Í.S.: Arnartfell er vænt- |
anlegt til Rvíkur 30. frá Belfast.
Jökulfell fer væntanlega í dag frá |
Grimsby til London og Calais. Dísar-
fell lestar á Vestfjörðum. Litlafell !
kemur til Rvíkur í dag. Helgafell er |
í Rvík. Hamrafell er vænitanlegt til
Rvíkur 1. des. frá Batumi. Stapafelíl |
er á Vopnafirði. Mælifell er í Rvík.
Spakmœli dagsins
Þaff er eflaust betra aff fyrir- |
gefa um of en fordæma of mikiff.
(— G. Eliot.
^YNDAGETRAIN 4
Þetta hús hefur nýlega veriff gert aff safni um merkan mann.
Hvar er þaff, og til mioningar um hvern er þaff gert aff safni?
Þetta er næstsíöasta myndiil í getrauninni.
sá NÆST bezti
Hjónin voru í fasta svefni. Konuna dreymdi þá að hún væri á
leynilegu stefnumóti með öðrum manni. Henni fannst maðuriirn
sinn koma, og hún æpti upp úr svefninum: Guð minn góður, maður-
inn minn! Maðurinn hennar tu-ökk upo úr fasta svefni — oig þaut
í ofboði út um gluggann.
Barnarúm,
barnasvefnbekkir og káp-
ur.
Húsgagnaverzlun
Erlings Jónssonar
Skólavörðustíg 22.
Tækifæri — Bíll
Moskwitch, árg. ’57, til
sölu í því ástandi sem hann
er. Uppl. í síma 50015.
í Fóstbrœðrum
Síðasti samsöngur kórsins verður í Austurbæjar-
bíói á morgun, laugardag kl. 3 e.h.
Þeir styrktarfélagar sem ekki hafa ennþá fengið
skírteini og aðgöngumiða sína afhenta, góðfúslega
vitji þeirra í Leðurverzlun Jóns Brynjólfssonar,
Austurstræti 3.
Feroyiitsafélagi
heldur dansskjemtan Friggjakv0ld 27/11
kl. 9 í Tjarnarkaffi.
Möti væl og taki vi tykkum gesti.
Stj0rnin.
Holmsund-eikargólf
HANNES ÞORSTEINSSON
HOLMSUND — EIKAR-
PARKETT-gólf (Laminet),
aftur fyrirliggjandi.
Gólfin eru lakkeruð og
tilbúin til lagningar.
Hannes Þorsteinsson
HEILDVERZLUN
íslenzk ameríska félagiö
Kvöldfagnaður
ÞAKKARGJÖRÐARHÁTÍÐ að Hótel Sögu í kvöld
kl. 20,30.
1. Ávarp: Dr. Benjamín Eiríksson,
bankastjórL
2. Einsöngur: Frú Guðrún Á. Símonar
óperusöngkona.
3. DANS.
Áðgöngumiðar seldir í verzluninni Hitun h.f., Lauga
vegi 69f, sími 21-800 og hjá Heildverzl. Konráð
Axelsson & Co, Vesturgötu 10, sími 21-490 og
19-440.
Borð- og matarpantanir í síma 20-221 fimmtudag-
inn 26. nóv. frá kl. 4—6 e.h. og föstudaginn
27. nóv. frá kl. 4 e.h.
STJÓRNIN.
Veitingahás
um 450 ferm. í smíðum á mjög fjölfarinni leið, er
af sérstökum ástæðum til sölu. Húsinu fylgja borð,.
stólar og bekkir, sem verið er að smíða í veitinga-
salnum ásamt ýmsum tækjum til veitingareksturs
Teikningar til sýnis.
Nánari upplýsingar gefur
Nýja fasteignasalan
Laugavegi 12. — Sími 24-300.
og kl 7,30-8,30 e.h. Sími 18546.