Morgunblaðið - 27.11.1964, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 27. nóv. 1964
BcBffar samgöngur við
marga staði á Austurl,
Af> XJNDANFÖRNU hefur verið
unnið að samræmingu bílferða
um Austurland í sambandi við
flugferðir Flugfélags íslands til
Egilsstaða. — Reglulegar bílferð
ir eru nú milli Seyðisfjarðar,
Borgarfjarðar, Norðfvirðar, Eski
fjarðar, Reyðarfjarðar og Egils-
staða. Enn fremur milii Vopna-
fjarðar, Bakkafjarðar og Þórs-
hafnar í sambandi við flug
þangað.
Seyðisfjörður — Egilsstaðir.
í allan vetur verða bílferðir
frá Seyðisfirði til Egilsstaðaflug
vallar á þriðjudögum, fimmtu-
dögum og laugardögum. Þessar
ferðir verða farnar á venjuleg-
um langferðabílum meðan fært
er vegna snjóa, en síðan á snjó-
bíl. Meðan venjulegum langferða
bíium er enn fært yfir Fjarðar-
heíði, verða einnig ferðir milli
Seyðisfjarðar og Egilsstaða í sam
bandi við flugferðir á mánudög-
um og föstudögum.
Eskifjárðar, Reyðarfjarðar og
Egilsstaða á laugardögum. í þvi
tilfe’li að Oddskarð lokist vegna
Enginn vUI
knupn Rán
KATALÍNAFLUGBÁTUR
Landhelgisgæzlunnar, RÁN,
stendur enn inni í flugskýli
á Reykjavíkurflugvelli og
bíður eftir nýjum eiganda.
Báturinn hefur verið auglýst-
ur, en enginn kaupandi fæst
— og er ekkert útlit fyrir að
takast megi að selja Rán,
sem annars er í flughæfu
ástandi. Notkun flugbáta verð
ur nú æ minni um allan heim
vegna þess hve viðhald þeirra
er kostnaðarsamt.
snjóa verða þessar ferðir farnar
frá Eskifirði og Reyðarfjrði.
Með þessum ferðum eru allir
stærstu kaups^aðirnir á Austur-
landi komnir í samband með bíl-
ferðum, er bílar frá Borgarfirði,
Seyðisfirði, Neskaupstað, Eski-
firði og Reyðarfirði hittast á
Egilsstöðum.
Flugferðir milli Reykiavíkur
og Egilsstaða eru á mánudög-
um, þriðjudögum, fimmtudögum,
föstudögum og laugardögum. í
þriðjudags- og föstdagsferðunum
er komið vfð á Akureyri i báðum
leiðum.
Vopnafjörður — Bakkafjörður -
Þórshcfn.
Fyrir atbeina póststjórnarinn-
ar eru komnar á bílferðir milli
Vopnafjarðar, Bakkafjarðar og
Þórshafnar í sambandi við flug
Flugfélagsins þangað, sem í vet-
ur er á miðvikudögum.
Vöruskiptasamnircgur
fyrír 2,4 millj. dollara
við Austur-Þýzkaland
Borgarfjörður — Egilsstaðir
Milli Borgarfjarðar og Egils-
staða verða ferðir á fimmtudög-
um.
Neskaupstaður — Eskifjörður —
Reyðarf jcrður — Egilsstaðir
Milli Norðfjarða.r, Eskifjarðar,
Reyöarfjarðar og Egilsstaða
verða ferðir á þriðjudögum og
fimintudögum og einnig milli
f~ *' *’ — ^~ i
Brauzt imt
■ Döm-
kirkjuna
f GÆRKVÖLDI brauzt maður
inn í Dómkirkjuna. Hann
I braut glugga á suðvesturhlið-
inni og skreið inn. Kona nokk
ur sá til hans og gerði lög-
reglunni aðvart. Lárus Salo-
monsson fór með fleiri lög- 1
regluþjóna og stakk upp skrúð f
húshurðina. l»á var maður-1
inn kominn upp á loft í kirkj- /
unni og hafði unnið nokkur)
spjöll. Kom í ljós að þetta var 1
vandræðapiltur sem lögreglan í
þekkir og var hann undir á- /
hrifum áfengis. Pilturinn hafði J
skorið sig á glerbrotum við að \
komast inn og var fluttur á ^
Slysavarðstofuna, þar sem i
þurfti að sauma í hann nokkur /
spor. ‘
HINN 23. þ.m. var undirritaður
í Reykjavík vöruskiptasamning-
ur, fyrir árið 1965, milli Verzl-
unarráðs Austur-Þýzkalands
(Kammer fúr Aussenhandel der
Deutschen Demokratischen Repu
blik) og íslenzka vöruskiptafé-
lagsins. Er gert ráð fyrir við-
skiptum allt að $ 2.450.000,- —
á hvora hlið. Stærstu liðir inn-
flutningslistans eru skip, lilbúinn
áburður, bifreiðir og vélar, papp-
Haustniót í Gull-
bringusýslu
HAUSTMÓT Sjálfstæðismanna
í Gullbringusýslu verður haldið
í Sandgerði, laugardaginn 28.
þ.m. kl. 9 síðdegis
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra og Axel Jónsson, al-
þingism. flytja ávörp. Leikar-
arnir Róbert Arnfinnsson og
Rúrik Haraldsson, skemmta.
Að lokum verður dansað.
ír, vefnaðarvara og rörafittings.
Stærstu útflutningsliðirnir eru
frosin síld og fiskur og söltuð
síld.
Samningurinn var undírritað-
ur af formönnum samninga-
nefndanna, þeim Franz Fillinger,
framkvæmdastjóra af hálfu Þjóð
verja og Bergi G. Gíslasy.ni, ræð-
ismanni, að hálfu Vöruskiptafé-
iagsins.
(Frá ísl. Vöruskiptafél.)
Sæbjörg úr
gæzlunrci
Á NÆSTA ári mun landhelg-
isgæzlan taka björgunarskip-
ið Sæbjörgu úr notkun. Sæ-
björg er í eigu Slysavarna-
félagsins og er leigusamn-
ingurinn við ríkið útrunninn
í ágústmánuði n.k. M.un hann
ekki verða endurnýjaður að
því er Pétur Sigurðsson,
forstj. landhelgisgæziunnar
tjáði fréttamönnum í gær.
María Júlía verður eftir það
varaskip gæzlunnar.
Styrmir Gunnarsson formaður Heimdallar:
„Ég er Jósefsson
og fœddur í jötu44
Stefán Jónsson, fréttamaður, skráir
ævisögu Jóhannesar á Borg
ÞEGAR Jóhannes á Borg Jósefs
son varð áttræður hinn 28. júlí
s.l. átti Stefán Jónsson, frétta-
maður, útvarpsviðtal við hann,
og verður það. viðtal lengi í minn
um haft. Ekki er það oft að út-
varpsþátta er getið í Reykjavík-
urbréfi Mbl., en „Sagan af karls-
syni“, eins og Stefán nefndi við-
talið, er ein undantekninganna.
Þar segir m.a., udir fyrirsögn-
inni „Bezt-a viðtalið“ (Mbl. 18.
ágúst 1963):
„Viðtalið víð Jóhannes á Borg
þegar hann varð áttræður, átti
sér stað rétt fyrir blaðamanna-
verkfallið, svo að ekki hefur
verið kostur’ að minnast þess fyrr
í Reykjavíkurbréfi. Nú er því all-
langt um liðið síðan þa'ð var
flutt. Engu að síður má það ekki
liggja í þagnargildi, svo ágætt
sem það var. Vafalaust eiga frétta
mennirnir sinn hlut þar að, en
mestan þó Jóhannes sjálfur. Hann
lýsti þar á fáum mínútum fá-
gætu ævintýri og færði áheyr-
endum heim sanninn um að þeir
hlustuðu á rammíslenzkan afreks
mann, sem rúddi sér braut með
öðrum hætti en n-okkur annar
landi hans fyrr e'ða síðar.“ Ekki
hafa þeir Jóhannes og Stefá n
verið búnir að tala út, eins og
gefur að skilja, því Jóhannes
hefur frá mörgu að segja. En
þetta viðtal hefur orðið til þess
að nú er komin út á vegutn
Ægisútg'áfunnar bókin „Jóhannes
á Borg“, sem StefáiT hefur skráð,
Sjálfur skrifar Jónhannes for-
mála, sem hljóðar svo: „í þessa
bók hefur höfundur skráð það
eitt, sem ég vildi segja og með
þeim hætti, sem ég vildi þáð
sagt hafa.“
Lætur Stefán Jóhannes segja
frá ævi sinni og_ ævintýrum ailt
frá fæðingu („Ég er Jósefsson
og fæddur í jötu. Sú jata var í
fjárhúsinu hans Jóns afa míns á
Barði.“) og þar til hann kom
heim til íslands fjörutíu árum
seinna eftir margra ára frægðar-
för víða um heim.
í bókinni, sem er rúmar þrjú
hundruð síður og prýdd fjölda
mynda, úir og grúir af skemmti-
legum sögum frá bernsku og
æsku Jóhannesar á Akureyri og
frá glímuferli hans. Ein þeirra
segir frá þegar Jóhannes glímdi
við Grómikoff, Rússlandsmeist-
ara í lyftingum í þungaflokki, í
St. Pétursborg. Grómíkoff þessi
var „óskaplega hár og gildur“,
enda 320 pund að þyngd. Segir
Jóhannes svo frá átökunum:
Fjáröflun vegna fél-
agsheimilis Heimdallar
Aðventukvöld í
DómkSrkiunni
Fjölbreitt tónlist og erindi um jólasálm
SVO sem skýrt hefur verið frá
í blöðum hófust framkvæmdir
við innréttingu Félagsheimlis
Heimdallar síðla sumars og er
gert ráð fyrir að þeim ljúki um
áramót.
Með hinu nýja Félagsheimili
mun gjörbreytast aðstaða til fé-
lagsstarfsemi Heimdallar. Stærri
hópar ungs fólks hér í borginm
munu finna í starfsemi félagsins
eitthvað við sitt hæfi og Heim-
dallur mun betur fær um að
gegna því hlutverki að kynna
unga fólkinu Sjálfstæðisstefn-
una og starf Sjálfstæðisflokks-
ins.
Þessi framkvæmd kostar mikið
fé, en einu tekjur félagsins eru
félagsgjöld og tekjur af Aug-
lýsingablaði og hrökkva þær
varla til þess að standa straum
af kostnaði við hina aimennu
félagsstarfsemi.
Við í sjtórn Heimdallar setj-
um hins vegar stolt okkar í að
ljúka þessari miklu og kostnað-
arsömu framkvæmd á þann veg,
að félagið sjálft leggi það fé af
mörkum sem til þarf.
Nú um þessar mundir berast
Heimdallarfélögum, yngri og
eldri, bréf frá stjórn Heimdallar
með ósk um, að þeir leggi fram
til Félagsheimilis Heimdallar kr.
100.00. Ef hinn mikli fjöldi ungra
Reykvíkinga, sem skipað hefur
sér undir merki Heimdallar
bregzt vel við þessari ósk, getur
félagið sjálft staðið straum af
kostnaði við Félagsheimili sitt.
Ég vil leyfa mér að beina þeirri
ósk til félagsmanna Heimdallar,
yngri og eldri, að þeir bregðist
nú vel við er starfsmenn Heim-
dallar hafa samband við þá
vegna þessa máls.
HIÐ ÁRLEGA aðvenitukvöld
Dómikirkjunnar verður í Dóm-
kirkjunni næstkomandi sunnu-
daigskvöld 29. nóv. kl. 8.30 en
þá er fyrsti sunnudagur í að-
ventu. Kirkjunefnd kvenna hef-
ur, eins og áður, annazt undir-
búning dagskrárinnar og fengið
til aðstoðar bamaflokka (lúðra-
sveit og bamakór) og vinseelt
og þekkt listafólk. Það er gam-
al'i og góður siður að fagna að-
ventunni, en hún er undirbún-
ingstími jólahátíðarinnar.
Undanfarin ár h>afa þessi að-
ventukvöld kvennamefndarinnar
verið mjöig vimsæl og aðsoka
mikiL
Að þessu sinni verður efnis
skráin í höfuðatriðum þessi.
Lúðrasveit drengja leikur undii
stjóm Páls Pampiohler PáLsson-
aj- og Bamakiór undir stjórn
Guðrúnar Þlorsteinsdóttur syng
ur jólalög. Fróf. Steingrimur J.
Þorsteinsson fllytur erindi „Gaim-
all jólasálimur rifjaður uipp eftir
Matthías Jochumson“. Dómkór
inn syngur sájminn á eftir. Þur ■
íður Páisdóttir og Margrét Egig
ertsdóttir syngja dúett „Ave Ver
um Corpus“ eftir Motzart. Þá
er upplestur, Margrét Guðmunds
dóttir leikkona les jólasögu, og
fiðluleikur Steinunn Briem
Bj'arnadóttir leikur lög eftir
Hándel, en hún er nýkomin fra
námi erlendis og hefur ekki leik-
ið einleik hér fyrr, undirieik
annast dr. Páll ísóifsson.
Kvennakór Dómkirkjunnar syng
ur „Tantum Ergo“ eftir Mozart
og Mariuvers eftir dr. Pál Isólfs
don.
Allir eru veUcomnir á þetta að
vonbukvöld kvennanefndarinnax.
„Salurinn glumdi af hlátri
þegar við tókumst í hendur, því
stærðarmunurinn var með óiik—
indum, og það var ég sem þeir
hlógu að. Svo tókumst vi‘ð tök-
um og Grómíkoff hóf mig á loft
í einum rykk, eins og ég væri
ekki einu sinni heypoki, heldur
dúnpoki. En hann kastaði mér
ekki aftur yfir höfuð sér, því ég
krækti tánni milli fóta honum
og hékk þar fastur. Hann tók
svo fast á að mig logverkjaði
undan ólunum og ég var dauð-
hræddur um að beltið myndi
slitna. En svo þreyttist hann á
hamaganginum á nokkrum and-
artökum og setti mig niður. Og
þar með var sagan sögð, ég
lagði á hann svo snarpan hæl-
krók að hann kom nfður á herð-
arnar. Og enn hlógu áhorfendur,
en í það skipti að Grómíkoff.“
Þetta er í þriðja skipti sem
Stefán Jónsson, fréttamaður, send
ir lesendum sínum jólaglaðning.
Fyrsta bók hans, „Krossfiskar og
hrúðurkarlar“ kom út 1961, næst
kom svo „Mínir menn“ 1962, og
„Þér að segja“ 1963. Þessi bók
Stefláns um Jóhannes á Borg er
öll hin vandaðasta og hefur Gísli
J. Ástþórsson séð um útlit herm-
ar