Morgunblaðið - 27.11.1964, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 27. nóv. 1964
Svanhildur Jöru ndsdótfir
frd Syðstabæ í Hrísey
F. 22.8 1877. D. 19.11 1964.
MÆT KONA og merk er kvödd
í Dómkirkjunni í dag af miklum
fjölda afkomenda og vina, og
lögð til hinstu hvildar við hlið
mannsins síns Páls Bergssonar,
útvegsmanns og kaupmanns í
Ólafsfirði og Hrisey, sem kvadd-
ur var frá sömu kirkju fyrir
15 árum.
Sjö ára snáði eignaðist ég þessi
ágætu hjón og börn þeirra fyrir
vini, er foreldrar mínir fluttu
1903, frá Svarfaðardal til Ólafs-
fjarðar, með okkur fjóra unga
drengi sína. Þau Páll og Svan-
hildur tóku á móti okkur opn-
um örmum. Mér er því Ijúft og
skylt að rifja upp nokkur atriði
minninga minna, þegar þessi
góða vinkona okkar er kvödd.
Svanhildur Jörundsdóttir fædd
ist að Syðstabæ í Hrísey 22. ágúst
1877. Faðir henar Jörundur há-
karlaformaður Jónsson var einn
af þessum harðduglegu útvegs-
mönnum við Eyjafjörð, af góð-
um þingeyskum ættum kominn.
Konan hans, og móðir Svanhild-
ar, Margrét Guðmundsdóttir var
ættuð úr Eyjafirði, fyrirmyndar
húsmóðir og samhent bónda sín
um við góðan búskap, mikla sjó
sókn, og fóstur margra bama.
Eftir fráfall Jörundar giftist
Margrét Jóhannesi Davíðssyni.
Munu systkini Svanhildar alls
hafa verið 14. Nítján ára giftist
hún árið 1897, Páli Bergssyni
frá Hæringsstöðum í Svarfaðar-
dal, sem þá hafði nýlega lokið
námi í Möðruvallaskóla, og
gerzt kennari hjá Jörundi í
Hrísey. Þau reistu strax bú á
„mölinni“ í ólafsfjarðarhorni,
eins og staðurinn var þá kallað-
ur, og hófu verzlun og smábáta
útgerð. Þar með hófst þróun
ólafsfjarðar, enda var þar fyrir
á Kleifum og frammi í sveitinni
manndómsfólk og sjósóknarar.
Tíu ára gamall byrjaði ég nám
í vísi að barnaskóla, sem þau
Páll og Svanhildur stofnuðu til.
Á ég margar góðar minningar um
sjósóknina og ýmsar mer.ningar
legar framfarir í Horninu. Barna
skólahús var fyrsta átakið. Svo
mótorbátarnir, sem fyrstir gengu
til fiskjar við Eyjafjörð. Sím-
inn var lagður yfir Grímubrekk
ur til Akureyrar 1907, trébryggj
ur byggðar, sömuleiðis beitinga-
skúrar og salthús mikið, sem á
vetrum var notað sem leikhús.
Svanhildur var af lífi og sál
með Páli bónda sínum driffjöð-
ur í öllu þessu, og ungir og
gamlir Ólafsfirðingar tóku um-
stanginu tveim höndum, sýndu
ótrúlegan áhuga, og mikinn
dugnað við framkvæmdirnar.
Sérstök áherzla var lögð á
sjósóknina á mótorbátunum, þó
þá væri við ofurefli Ægis að
etja — hafnleysið og norðan
stórviðrin.
Þegar ég hleypti heimdragan-
um 1916, vissi ég ekki annað en
alilr Ólafsfirðingar væru góðir
vinir þeirra Páls og Svanhildar,
og virtu þau og blessuðu er þau
fluttu burtu um vorið til föður-
leifðar Svanhildar, Syðstabæjar í
Hrísey.
Að sjálfsögðu var það nokkur
hnekkir fyrir sjávarþorpið og
sveitina. En manndómsmenn og
konur höfðu tekið myndarlega
til starfa, og margt efnilegt fólk
vaxið upp. Framfarirnar héldu
áfram, þó við mikla örðugleika
væri að etja. Mun starfa og á-
hrifa Svanhildar og Páls lengi
gæta í Ólafsfirði. Áreiðanlega
gladdi þau ekkert meira síðustu
æfiárin, en vitundin um undra-
verðar framkvæmdir þar, eftir
að þau fluttu burtu. Ég veit fyrir
víst að Svanhildur vonaðist eftir
að geta ekið Múlaveginn til Ólafs
fjarðar, þar sem hún hafði lifað
tveggja áratuga manndóm sinn
og alið sín ellefu börn af þrettán.
Óskaði hún að hitta þar gamla
vini, sem enn lifðu, og geta aug
um litið reynitréð í Kvíabekkjar
kirkjugarði, sem gróðursett var
á leiði fjögurra ára dóttur fyrir
hálfri öld.
Svanhildur Jörundsdóttir var
falleg og glæsileg kona, stjórn-
söm húsmóðir, háttprúð og ætíð
glaðvær og góðgjörn. Áhuginn
og dugnaðurinn við margbrotna
og erfiða lífsönn langa æfi, var
framúrskarandi, enda ævistarf-
ið mikið og glæsilegt: Ellefu
börnum komið til bezta mann-
dóms og þroska, tvö fjölmenn
stórheimili byggð upp frá
grunni, sitt á hvorum stað, með
mesta myndarbrag. Ég man að
í Ólafsfirði gekkst Svanhildur
fyrir húsmæðranámskeiðum,
stofnaði stúku, gerði minni hátt-
ar læknisaðgerðir ef á lá. Svo
mun hún einnig hafa gert í Hrís
ey, og tekið þar á móti þrem
tugum barna, þegar engin var
þar ljósmóðurin, og beðið var
eftir að sækja hana yfir sundið.
Hún stofnaði þar kvenfélag og
var aðaldriffjöðurin við kirkju-
bygginguna, enda trúkona í þess
orðs beztu merkingu.
Þegar útgerð og verzlun
þeirra Páls og Svanhildar lauk
í Hrísey, fluttu þau til Akur-
eyrar, byggðu sér þar hús í
þriðja sinn, og áttu þar friðsæit
heimili þangað til Páll þurfti
sjúkrahúsvist í Reykjavík, og dó
hann hér árið 1949.
Eftir það bjó Svanhildur með
Margréti dóttur sinni, og að
henni látinni með Guðrúnu dótt
Engar heildartölur
Það er haft eftir ÁTVR, að
reykingar hafi farið í vöxt hér
eins og víða annars staðar strax
og fólk tók að jafna sig eftir
óttann, sem greip um sig vi'ð
birtingu bandarísku lækna-
skýrslunnar um krabbameinið.
Að vísu er ekki gott að átta
sig fullkomlega á því hve mikið
er reykt í landinu, því ÁTVR
hefur engar heildaítölur, hvorki
■ um tóbaksreykingar manna né
vínneyzlu.
Unnsteinn Beck og hans kapp
ar gera eitt og annað til þess
að leiðrétta skýrslurnar, en reyk
háfarnir eru margir, eins og
— allir vita.
Barrtrén
Hér er komið bnéf frá ein-
um, sem ber umbyggju fyrir
gróðrinum.
„Hvers vegna er ekkert gert
til að bjarga þeim barrtrjám,
ur sinni, kennslukonu, og öðrum
vandamönnum og vinum, þar til
hvíldin og biðin var bezt og náuð
synleg á sjúkrahúsum.
Afkomendur þeirra Svanhildar
Jörundsdóttur og Páls Bergsson-
ar frá Hrísey, munu nú um 70
alls, starfandi og uppvaxandi
víðsvegar í þjóðfélaginu. Þjóðin
öll þakkar slíkum ágætishjónum
ævistarfið, og blessar minningu
þeirra. Og áreiðanlega kveður
mikill fjöldi vina og ættmenna
Svanhildi Jörundsdóttur í dag
með þökk og mikilli virðingu.
Guð blessi minningu hennar
og afkomendur alla.
Sveinbjörn Jónsson.
ÞEGAR ég kom unglingur til
Hríseyjar, var ég svo lánsamur,
að fá vist á heimili þeirra merku
hjóna, Svanhildur Jörundsdótt-
ur og Páls Bergssonar á Syðsta-
bæ. Um leið og ég var kominn þar
inn fyrir dyr fannst mér ég eiga
þar heima. Ég hafði ekki verið
sem lifðu af hretið vorfð 1963
— en þá mun haía drepizt um
helmingur allra barrtrjáa í
Reykjavík og nágrenni?
í haust hefur borið á því að
grenitré hafa orðið brún, visn-
að og síðan fellt barrið. Hér
mun lús vera á ferðinni, hinn
mesti vágestur. Ef þess er ekki
gætt í tíma að sprauta trén
með skordýraeitri, eru þau
daúðadæmd.
í gamla kirkjugarðinum við
Suðurgötu var talsvert orðið
um falleg og stæðileg grenitré,
grænt orðið yfir að líta á vetr-
ardegi. En nú hefur orðið mikil
breyting. Um 30—40 tré, sem
náð höiðu 6—8 metra hæð eru
dauð og visin og engum tii ynd
is.
Er ekki bezt að horfast í augu
við þá staðreynd, að barrtrjáa-
rækt er vonlaus hér, ef ekki
er fylgzt nákvæmlega með
þeim — og þau varin gegn
sníkjudýrum, sem borið hefur
þar nema nokkra daga, þegar
húsfreyjan sagði við mig: „Ég
tek þig eins oig einn af drengjun-
um mínum og þú verður að gera
þér það að góðu.“
Ég gerði mér það sannarlega
að góðu. Svanhildur var mér frá
fyrstu kynnum sem önnur móð-
ir, og allar minningar mínar um
hana eru mér heligar. Ég minnist
stórbrotinnar konu. Heimilis-
stjórn hennar var fyrirmynd.
Þegar hún gekk um stofur og
stjórnaði sínu heimili, hlutu allir
að lúta henni í virðirugu.
Fátækleg orð ná skammt til
þess að tjá þakkir mínar að leið
arlokum. Hvert sinn sem mér
verður hugsað til veru minnar í
Hrísey, þakka ég forsjóninni fyr-
f. 28. 3. 1895 d. 22. 11. 1964.
ÞEGAR ég frétti lát vinar míns
Björns Jóhannessonar, þá komu
mér í hug gamlar og bjartar
minninigar, allt frá því að hann
kemur sem ungur drengur með
foreldrum sínum til Hafnarfjarð-
ar og þar til að hann andaðist
snöggglega þann 22. þ.m.
Faðir hans Jóhannes Sveinsson
byggði sér fljótlega eiigið hús
og var það nálægt æskuheimili
mínu við Merkurgötuna. Jóhann-
ós faðir hans var að mörgu leyti
merkilegur maður. Hann var
feiknarlega kappsamur dugnað-
ar- og áhugamaður, og kunni
aldrei að hlífa sér. En hann var
góður öllum þeim, sem minni-
máttar voru, og hvers manns
vandræði vildi hann leysa eftir
getu og var þá lí'ka oft stórtæk-
ur. — Það var því ekkert undar-
legt, þó að sonurinn hneigðist
að þeirri stefnu í þjóðmálunum,
að vilja greiða götu þeirra er á
einhvern hátt fóru halloka í lífs-
baráttunni og fylkti sér snemma
æ meira á síðari árin?
Það fylgir því mikill söknuð-
ur að horfa á eftir þessum
trjám — og sárast fyrir þá sem
vari'ð hafa mikilli vinnu og sýnt
mikla alúð við ræktun þeirra
— jafnvel áratugum saman.“
Stutt bréf frá Stefi
Og hér kemur svar frá
STEFi vegna fyrirspurnar frá
ísfirðingi í dálkunum í fyrra-
dag. Ég veit ekki hvort sá ís-
firzki er ánægður með svarið,
en ég er hins vegar mjög
ánægður yfir því að það varð
ekki lengra.
„Hefðraði velvakandi!
Vér hörmum það, að þér
hafið birt fyrirspurnir ísfirð-
ings um STEF, tilorðnar af mis
skilningi og án þess að bera
það undir oss.
Vér leyfum oss að upplýsa
það, að STEF er ekki skatt-
heimtufyrirtæki og inmheimtir
ir kynni min af Svanhildi og
Páli. Ég held að það sé ekki
ofmælt, að allir sem samvista
þeirra nutu, hafi haft af því and
legan ávinnirug. — Syðstibær
stendur hátt á eyjunni, og þang-
að litu allir upp í tvennum skiln
ingi. Sú reisn, sem ríkti yfir því
heimili mun fátíð, hvar sem leit-
að værí.
Eitt sinn skal hver deyja, það
eru örlög sem ekkert okkar fær
umflúið. Svanhildur Jörundsdótt
ir lifði lengi og vel. Minning
hennar er öllum, sem hana
þekktu, hugljúf og kær. Mín sál
á ei málið, sagði skáldið, og því
tek ég mér í munn orð annars
manns. Hafðu þökk fyrir allt og
allt.
Víglundur Möller.
í raðir þeirra, er bæta vildu kjör
og aðbúnað hinna vinandi stétta
í þjóðfélagi voru.
Ég veit að um Björn sál., verð
ur skrifað og getið hinna marg-
þættu starfa fyrir Hafnarfjarðar
bæ oig því kem ég með þessum
örfáu línum ekki inn á þau mál.
En með þessum fáu orðum
vildi ég mega þakka honum
vináttu og trygigð mér sýnda og
þá ekki síður órofatryggð, er
hann sýndi foreldrum mínum
alla tíð og ekki sízt þegar þau
voru orðin gamalmenni og þótti
svo vænt um hlýtt handtak ag
vinsemd alla, er hann ævinlega
sýndi þeim allt til æviloka.
Ég færi honum hjartans þakk-
ir fyrir samveru æskuáranna og
alla tíð siðan, og ég bið honum
blessunar Guðs á þeim leiðum,
sem framundan eru og hann
hefir nú lagt út á.
Konu hans og börnum votta ég
innilega samúð. Þau hafa mest
misst. —
Gísli Sigurgeirsson.
enga skatta. Hinsvegar er sam-
kvæmt aiþjóða og íslenzkum
lögum óheimilt áð hagnýta sér
annarra manna eignir án leyfis.
Þeir sem hagnýta sér andlegar
eignir í heimildarleysi, eru
skaðabótaskyldir og geta orðið
dæmdir til refsingar að auki.
STEF hefir tekið að sér að
útvega mönnum fyrirfram við
vægu verði og fyrirhafnarlítið
leyfi til hagnýtingar tómverka.
Það leggur ekki áð mönnum að
hagnýta verkin, .— en til eru
óvernduð verk, sem hagnýta
má leyfislaust, og er STEF
reiðubúið til að benda mönnum
á hvaða verk það eru.
Sökum of mikils kostnaðar
og fyrirhafnar hefir STEF ekki
tök á að halda uppi mjög
ströngu eftirliti út um land, —
og þess vegna kunna þar ein-
stakir lögbrjótar að hafa
sloppið. Framvegis mun þó eft-
irlitið verða aukið að mun.
Reykjavík, 26. nóvember 1964
S T E F
Samband tónskálda og
eigenda flutningsréttar."
Rauðu
Rafhlöðurnar
fyrir transistor viðtæki.
Bræðurnir Ormsson
Vesturgötu 3. — Sími 11467.
Björn Jóhannesson
frv. bæjarfulltrúi